Morgunblaðið - 04.03.2001, Qupperneq 12
12 SUNNUDAGUR 4. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Á FLEYGIFERÐ austur tilflugvallarins Benito Juar-ez í Mexíkóborg þeyt-umst við í Chevrolet Sub-
urban, bíl hins nýja
utanríkisráðherra Mexíkó, Jorge G.
Castaneda. Tíminn er naumur því
senor Castaneda þarf að vera kom-
inn út á flugvöll innan 30 mínútna og
honum er afskaplega illa við að vera
of seinn. En tíminn sem slíkur og að
vera of seinn, eins og við þekkjum á
Vesturlöndum, hefur hingað til ekki
verið eitt að helstu áhyggjuefnum
Mexíkóbúa. En þetta er kannski
merki um það sem koma skal með
nýjum tímum í Mexíkó!
Jorge G. Castaneda er einn af
hinum kraftmiklu ráðherrum nýrrar
ríkisstjórnar í Mexíkó, sem leidd er
af forsetanum Vicente Fox. En Fox
gerði hið ómögulega á síðasta ári
þegar hann batt enda á hið 71 ára
„fullkomna einræði PRI-flokksins“
eins og rithöfundurinn Mario Varg-
as Llosa hafði einhvern tímann kall-
að flokkinn. Hinn nýi forseti hefur
sagt að helstu einkenni ríkisstjórnar
sinnar verði skilvirkni og raunsæi
og hún muni beita sér fyrir auknum
mannréttindum og eflingu lýðræðis
auk þess sem nauðsynlegt sé að
halda áfram frjálslyndistefnu síð-
ustu ára og auka erlendar fjárfest-
ingar. Utanríkisráðherrann mun án
efa vera mikilvægur hlekkur í að
koma þessum áætlunum í fram-
kvæmd.
Senor Castaneda, klæddur óform-
lega í gallabuxur og síðermabol, lýk-
ur loks við símtalið sem hann fékk á
leiðinni út í bíl og snýr sér við og
segir: „Stefán, gott að sjá þig aftur
eftir allan þennan tíma, þú verður að
fyrirgefa þessar aðstæður og þann
litla tíma sem við höfum, en það er
búið að vera mjög mikið að gera hjá
mér. Ég mun þurfa að taka við
nokkrum símtölum á leið út á flug-
völl en þess á milli muntu fá alla
mína athygli.“ Og í þeim orðum veif-
ar hann með annarri hendi og gefur
mér merki um að ég megi byrja.
Hver eru helstu markmið þín
sem hinn nýi utanríkisráðherra
Mexíkó?
„Ég vil breyta ímynd Mexíkó í
heiminum, þ.e.a.s. að breyta því
hvernig fólk lítur á land og þjóð. Þó
að Mexíkó hafi mikla samúð í heim-
inum, þá hefur það oft verið dæmt af
útlendingum sem land einræðis-
stjórnar og spillingar, land sem er
ofbeldisfullt og óöruggt, land þar
sem mikið er af þjóðfélagslegum
átökum samanber zapatistahreyf-
inguna í Chiapas. Ég er á þeirri
skoðun, að þessi ímynd tilheyri ekki
Mexíkó í dag. Helsta markmið mitt
er því að breyta þessari gömlu
ímynd, að sannfæra fólk um að
Mexíkó er öruggt, heiðarlegt og
friðsælt land sem hægt er að heim-
sækja, fjárfesta í að vild, stunda
nám og hafa góð og jákvæð almenn
samskipti við þjóðina.“
Fæddur og alinn upp í Mexíkó-
borg, senor Castaneda fór til náms
til Bandaríkjanna og útskrifaðist
þar frá Princeton og hélt síðan til
Parísar og lauk þar doktorsnámi í
hagsögu. Hann starfaði sem pró-
fessor við ríkisháskólann í Mexíkó-
borg sem og í nokkrum háskólum
Bandaríkjanna eins og við Princeton
og Berkely áður en hann var settur
utanríkisráðherra. Hann hefur verið
einn af helstu fræðimönnum Mexík-
ós síðustu ár og skrifað nokkrar
bækur ásamt því að vera dálkahöf-
undur í blöðum og tímaritum innan-
lands jafnt sem erlendis, m.a. í
Newsweek og L.A. Times. Hann er
alls ekki ókunnugur utanríkismálum
Mexíkós því faðir hans var utanrík-
isráðherra á sjöunda áratugnum,
auk þess sem hann hefur einbeitt
sér að alþjóðamálum í akademíunni
og sérstaklega í samskiptum Mexík-
ós og Bandaríkjanna.
Þegar Vicente Fox útnefndi senor
Castaneda í utanríkisráðherraemb-
ættið þá lét Bandaríkjastjórn
ákveðna óánægju í ljós með valið í
byrjun, aðallega vegna þess að sen-
or Castaneda var á yngri árum í
kringum hið merkilega fyrirbæri 68-
hreyfinguna, viðriðinn vinstrihreyf-
ingu í Mexíkó. Önnur ástæða var að
fræðimenn í allri Rómönsku Amer-
íku voru einkum á árum kalda
stríðsins oft stimplaðir vinstrimenn
einungis vegna þess að þeir gagn-
rýndu. En í þá daga voru sjaldan
gerð skýr skil á milli þeirra og þjóð-
ernissinna í þriðja heiminum. Á síð-
ustu árum hefur senor Castaneda
einnig pirrað Bandaríkjastjórn ein-
mitt fyrir að gagnrýna út frá þjóð-
ernislegum forsendum fríverslunar-
samning Mexíkós við Bandaríkin og
Kanada. Ekki svo að skilja að hann
hafi verið á móti samningnum sem
slíkum, heldur fannst honum þáver-
andi ríkisstjórn Mexíkó ekki semja
nógu vel fyrir land og þjóð.
Var erfitt að sannfæra starfs-
menn ríkisstjórnar Bandaríkjanna,
sem þú hefur nú þegar haft sam-
band við um að þú værir ekki tákn
um vinstriógn fyrir þeirra hags-
muni?
„Ég hef ekkert reynt að sannfæra
þá um eitt eða neitt (og hlær). Það
er fyrir þá að sannfæra sjálfa sig en
ég held að það mikilvæga sé að þeir
hafa gert sér grein fyrir því að for-
seti Mexíkós, Vicente Fox, nýtur
víðtæks stuðnings meðal þjóðarinn-
ar. Hann nýtur þessa stuðnings
vegna sigurs í kosningunum, vegna
hins breiða bandalags sem hann
náði að byggja upp meðal kjósenda
sem nú sést endurspeglast í vali á
persónum í ríkisstjórninni. Ég er
einungis smáhluti af þessu viða-
mikla bandalagi og ég held að
Bandaríkjamenn skilji að það er
best fyrir þeirra hagsmuni að hafa
ríkisstjórn við völd eins og núna er
að finna í Mexíkó.“
Í þeim orðum er hann farinn aftur
í símann og eftir að hafa afþakkað
morgunverð með blaðamönnum
Washington Post og náð í staðinn að
koma á kvöldverði með Colin Pow-
ell, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, er honum rétt annað símtól af
einum að þremur aðstoðarmönnum
hans með orðunum: „Það er frá Par-
ís, og þá er skipt úr ensku yfir í
frönsku.“ En einnig talar senor
Castaneda reiprennandi portú-
gölsku.
Nokkur af helstu ritverkum Cast-
aneda eru um samskipti Rómönsku
Ameríku og Bandaríkjanna, efni
sem hann þekkir mjög vel til. Lengi
hefur það verið draumur frelsishetja
og byltingarsinna sunnan Río
Grande, eins og Símonar Bolívars og
Fidels Castros, að binda betur sam-
an ríki Rómönsku Ameríku til að
geta spornað betur við stórveldinu
Bandaríkjunum. Og hefur Kúbuleið-
toginn nú fengið stuðning frá Hugo
Chavéz, forseta Venezuela, sem er
staðráðinn í því að gera draum Sím-
onar Bolívars að veruleika. Að mati
margra eru þetta gamlir draumar
sem eiga ekki við aðstæður í dag, á
tímum alheimsvæðingar.
Er á döfinni að styrkja tengsl við
önnur ríki Rómönsku Ameríku
gegn Bandaríkjunum?
„Ekki gegn Bandaríkjunum, held-
ur frekar á þeim nótum að Mexíkó
og önnur ríki í Rómönsku Ameríku
eins og Chile, Argentína og Brasilía
stefni að sama marki, ekki endilega
varðandi verslunar- eða fjárfesting-
arþætti, heldur frekar, að þessi ríki,
sem hafa hliðstæðan bakgrunn, sjái
heiminn sömu augum út frá menn-
ingarlegu sjónarhorni og bindist
þannig betur.“
Samband Mexíkós við Kúbu hefur
verið mjög sérstakt á síðustu öld því
Mexíkó hefur verið eina landið í
Rómönsku Ameríku sem viðhélt
opnu sambandi við eyjuna eftir að
Fidel Castro komst til valda árið
1959. En stuttu síðar slitu Banda-
ríkjamenn ásamt öllum löndum
Rómönsku Ameríku að undanskildu
Mexíkó, sambandi við eyjuna. Fidel
Castro hefur ávallt verið mjög þakk-
látur Mexíkó fyrir að láta ekki und-
an pressu Bandaríkjastjórnar á
þessum kaldastríðsárum og var
þessi ákvörðun Mexíkós ein af
ástæðunum fyrir því að byltingar-
foringinn kúbverski studdi aldrei
neinar skæruliðauppreisnir í
Mexíkó. Senor Castaneda var þó
kannski ekki efst á óskalista ríkis-
stjórnar Kúbu því hann hefur í
gegnum árin gagnrýnt stjórn Cast-
ros sem mjög kreddukennda. Ekki
var það til að bæta álit Kúbverja á
honum þegar hann gaf út mjög um-
deilda ævisögu um byltingarhetjuna
Ernesto Che Guevara, árið 1997 í
tilefni af því að þrjátíu ár voru liðin
frá dauða hans. En í þessari ágætri
bók einbeitir hann sér að því að rífa
niður rómantíska dýrlingsmynd af
el Che sem auðvitað olli miklu
fjaðrafoki á Kúbu vegna hlutverks
hans í byltingunni.
Utanríkisstefna Mexíkó gagnvart
Kúbu?
„Stefna Mexíkó gangvart Kúbu er
tvíþætt. Mexíkó mun leitast við að
þróa og styrkja verslunarsambönd
sín, fjárfestingar og ýmsa samvinnu
við Kúbu. Af ýmsum ástæðum hefur
verið samdráttur á þessum sviðum
síðustu árin, m.a. vegna Helms-Bur-
ton-laganna og hegðunar síðustu
ríkisstjórnar Mexíkós sem studdi
ekki nægilega við bakið á mexí-
könskum fjárfestum. Við ætlum að
breyta þessu og styðja betur við
mexíkanska fjárfesta og stuðla bet-
ur að verslun við Kúbu. Á sama tíma
mun Mexíkó halda fast við stefnu
sína um að berjast fyrir mannrétt-
indum og lýðræði í öllum löndum.
Með þessu erum við ekki að benda á
eitthvert ákveðið land eða aðila
heldur er þetta stefna gagnvart öll-
um löndum. Eðlilega séð fellur Kúba
því einnig undir þessa stefnu okk-
ar.“
Símarnir í bílnum halda áfram að
skipta um hendur og nú er umferðin
stopp. Senor Castaneda er í síman-
um og mér verður litið út um
gluggann og man ég þá eftir því að
hafa ekki séð neina lífverði þegar
komið var út úr húsi hans. Ég nota
tækifærið og sný mér að blaðafull-
trúa hans, Juan Ignacio Zavala, og
spyr hvort utanríkisráðherrann sé
ekki sá eini í ríkisstjórn Vicente Fox
sem er ekki með lífverði með sér.
Zavala hugsar sig aðeins um og
svarar háðslega að kannski hafi heil-
brigðisráðherrann enga heldur. Ég
segi honum að á Íslandi sé kannski
ekki svo skrítið að utanríkisráðherr-
ann hafi engan lífvörð en það sé svo-
lítið einkennilegt að sjá utanríkis-
ráðherra Mexíkó án þeirra. Zavala
svarar alvarlega en með bros á vör:
„Þegar senor Castaneda byrjar að
framselja eiturlyfjabarónana til
Bandaríkjanna þá þarf hann að fá
lífvörð hvort sem honum líkar það
betur eða verr,“ og bætir við: „Sen-
or Castaneda mun þá einnig fá skot-
heldan bíl.“ Mér verður hugsað til
hins sálfræðilega ofbeldis sem fylgir
þessum öryggisviðbúnaði og kemur
þá upp í huga mér að nú þegar hafi
Miriam, kona senor Castaneda, upp-
lifað mikla sálarangist. En yngsti
sonur þeirra hjóna hafði sagt mér
einhvern tímann frá því að móðir
hans væri frá Chile og hefði verið
dóttir fyrrverandi ráðherra úr
stjórn Salvador Allende sem Aug-
usto Pinochet steypti af stóli árið
1973. Í kjölfarið hefði fjölskylda
hennar þurft að flýja land. Senor
Castaneda lýkur við annað símtal og
veifar hendinni aftur til mín.
Hvernig munu hinir tveir nýlegu
fríverslunarsamningar við Evrópu-
ríkin (Evrópusambandið og EFTA-
ríkin) hafa áhrif á framtíð Mexíkó?
„Ég held að þeir kalli fram mjög
góð tækifæri fyrir Evrópu að end-
urheimta hlut sinn í fjárfestingum,
viðskiptum og fjölda ferðamanna í
Mexíkó sem hún hafði hér fyrir 20
árum. Af ýmsum ástæðum hefur
dregið úr öllum þessum þáttum síð-
ustu ár. Mexíkóbúum, sem fara til
náms í Evrópu, hefur t.d. einnig
fækkað töluvert. Ég trúi því að þess-
ir fríverslunarsamningar eigi eftir
að snúa þessari þróun í rétta átt og
eigi jafnvel eftir að gera meira en
aðeins að endurheimta það sem áður
var glatað; þ.e.a.s. að Mexíkó byrji
aftur að efla fjölbreytni í alþjóða-
samskiptum sínum við svæðið sem
er í dag stærsti markaður í heimi.“
Það er engin furða, að Mexíkó
skuli vilja efla fjölbreytni í alþjóða-
samskiptum, sérstaklega í viðskipta-
geiranum, í ljósi þess að að 80% af
öllum erlendum viðskiptum Mexíkós
eru við Bandaríkin. En senor Cast-
aneda hefur einnig nefnt það í ræð-
um sínum að alþjóðasamskipti á
sviði menningarmála séu mikilvæg
og á einum blaðamannafundi í janú-
ar síðastliðnum var hann í félags-
skap ekki ómerkari manna en nób-
elsskáldsins Gabriel García
Marquez frá Kólómbíu, sem á hús í
Mexíkóborg, og Carlos Fuentes,
þekktasta rithöfundar Mexíkós í
dag, en hann er einnig persónulegur
vinur utanríkisráðherrans. Á þess-
um blaðamannafundi talaði Fuentes
um nauðsyn þess að standa betur að
því að kynna bókmenntir og menn-
ingu Mexíkó og allrar Rómönsku
Ameríku í Evrópu og lagði fram
hugmynd að ýmsum menningar-
stofnunum þar. Virðist Castaneda
vera tilvalinn í það hlutverk að
hrinda þessari hugmynd í fram-
kvæmd, því hann sem fræðimaður
skilur betur mikilvægi þessa, ólíkt
ýmsum öðrum stjórnmálamönnum
landsins.
Eru einhver sérstök stefnumál
gagnvart Norðurlöndum?
„Við getum lært mikið af þeim,
sérstaklega varðandi réttsýni, en
einnig varðandi starfsemi þeirra á
alþjóðavettvangi, orðstír þeirra,
stjórnarhætti og þjóðfélagsskipun.
Við munum hafa mjög náin sam-
skipti við Svíþjóð, sérstaklega fyrstu
sex mánuði þessa árs meðan Svíþjóð
er í forsæti Evrópusambandsins.“
Íslensk fjárfesting er aðallega í
sjávarútveginum í Mexíkó á Kyrra-
hafsströndinni. Við hverju geta ís-
lenskir fjárfestar búist af Mexíkó
næstu sex árin?
„Breytingarnar sem við erum að
vinna að í Mexíkó eru mjög jákvæð-
ar fyrir íslenska fjárfesta, ekki beint
vegna efnahagsstefnu stjórnarinnar
eða ákveðinna reglna varðandi fjár-
festingu, heldur vegna þess að rík-
istjórn Vicente Fox vill endurskapa
réttar- og viðskiptaumhverfið í
Mexíkó og koma í veg fyrir spill-
ingu, óöryggi, misferli og ólöghlýðni.
Ríkistjórnin vill einnig styrkja inn-
anlandsmarkaðinn í Mexíkó sem
hefur verið ansi dapur í mörg ár. Í
þessum skilningi held ég að breyt-
ingarnar sem ríkisstjórn Fox stefnir
að séu afar hagstæðar og ekki ein-
ungis fyrir íslenska fjárfesta, heldur
einnig fyrir fjárfesta annarra
landa.“
Þar með kvaddi senor Castaneda
og hljóp út í flugvél.
„Mexíkó er friðsælt land,
opið fyrir fjárfestingum“
Mexíkó er í augum
útlendinga ofbeldis-
fullt land og spillt,
segir Jorge G. Cast-
aneda, utanrík-
isráðherra Mexíkó, í
viðtali við Stefán Á.
Guðmundsson.
Eitt af markmiðum
hinnar nýju stjórnar
er að breyta
þeirri ímynd.
Höfundur er fyrrverandi fréttaritari
Morgunblaðsins í Mexíkó. Hann er
magister í menningarsögu Róm-
önsku Ameríku.
AP
Jorge G. Castaneda, utanríkisráðherra Mexíkó (til hægri á myndinni), ásamt Jose Maria Aznar, forsætisráð-
herra Spánar. Myndin var tekin á fundi þeirra í Madrid í síðustu viku.