Morgunblaðið - 04.03.2001, Síða 22
22 SUNNUDAGUR 4. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
L
AGÐAR hafa verið
fram tillögur að nýju
bryggjuhverfi í Arnar-
nesvogi þar sem fyrri
hugmyndir að bryggju-
hverfi á þessum stað hafa tekið á
sig nákvæmari mynd. Höfundur
skipulagstillögunnar er Björn
Ólafs, arkitekt í París, og er málið
nú í umhverfismati. Tekið hefur
verið tillit til athugasemda bæj-
aryfirvalda og íbúa í næsta ná-
grenni og fyrirhuguð landfylling í
Arnarnesvogi stytt um rúma 100
metra auk þess sem hún hefur
verið færð um 100 metra frá Arn-
arnesi.
„Öll náttúruleg fjara Arnarnes-
vogs verður ósnortin enda land-
fyllingin aðeins framhald á þeirri
landfyllingu sem þegar er til stað-
ar,“ segir Sigurður Helgason,
framkvæmdastjóri Björgunar ehf.,
sem ásamt Byggingarfélagi Gylfa
og Gunnars ehf. og Garðabæjar
undirrituðu 31. október í fyrra
viljayfirlýsingu um uppbyggingu
íbúðabyggðar í Arnarnesvogi.
Að sögn Sigurðar er stefnt að
því að búa til glæsilegt íbúða-
hverfi, bryggjuhverfi á athafna-
svæði Stálvíkur, út frá því í átt að
Gálgahrauni og á landfyllingu í
Arnarnesvogi að fengnu umhverf-
ismati.
Hvað vinnst með framkvæmd
þessara tillagna?
Samkvæmt aðalskipulagi er
þetta svæði skilgreint sem iðnað-
ar- og athafnasvæði og svæði fyrir
opinberar stofnanir, íbúðir sem og
svæði fyrir þrifalegan iðnað.
Í hinum nýju tillögum er gert
ráð fyrir 750 til 800 íbúða byggð
sem rúmar um 1.800 íbúa. Byggðin
verður á svæði norðan Vífilsstaða-
vegar og á 7,3 hektara landfyllingu
sem verður framlenging á landfyll-
ingu Stálvíkur í Arnarnesvogi. Sig-
urður Helgason var spurður nánar
út í hvað talið væri vinnast með
þessari byggð?
„Frá sjónarmiði bæjarfélagsins
verður þarna falleg og skemmtileg
byggð eða hverfi, sem er hluti af
bæjarfélaginu, hverfið er þannig
hugsað að það sé fallegt til að búa
í því en líka skemmtilegt til að
heimsækja. „Afi komi þarna á
sunnudögum til að kaupa ís handa
barnabarninu og svo framvegis.“ Í
annan stað er þarna um ákveðna
þéttingu byggðar að ræða sem
styrkir miðbæ Garðabæjar, sem
þarf á stuðningi að halda til þess
að „lifa góðu lífi“.
Í þriðja lagi skapast þarna
byggð á óvenjulega fallegum stað
fyrir 1.800 manns. Þar af verða
líklega um þrjú hundruð ellilífeyr-
isþegar, í 150 til 200 íbúðum fyrir
aldraða. Í fjórða lagi þá er þarna
um verulega tiltekt að ræða í því
„andliti“ bæjarins sem snýr að al-
faraleið, þarna er „þreyttu“ iðn-
aðarhverfi að talsverður leyti
breytt í fallega íbúðarbyggð og við
það eykst verðmæti eignanna í
kring. Þá má nefna hagkvæmari
rekstur skóla og styttri leið fyrir
börn í skólann. Síðast en ekki síst
skapar þetta auknar tekjur fyrir
bæjarfélagið í formi útsvara og
fasteignagjalda og eflingu atvinnu-
starfsemi.“
Unnið út frá skipulags-
hugmynd Bryggjuhverfis í
Grafarvogi
– Hvað var haft að leiðarljósi við
skipulagningu þessarar byggðar?
„Við erum að vinna út frá skipu-
lagshugmynd sem við höfum unnið
með í Bryggjuhverfinu í Grafar-
vogi. Sú hugmynd felur í sér sam-
þættingu, raðað er saman íbúða-
byggð fyrir 1.800 manns sem fyrr
sagði, smábátahöfn fyrir 40 til 50
báta og atvinnulífi sem felur í sér
veitingahúsalíf, þjónustu og ein-
hverja verslun. Samspil þessara
þriggja þátta á að skapa líf í bæn-
um, ólíkt því sem gerist t.d. í
svefnhverfum.
Annað atriði er samræming, við
reynum að setja ákveðnar sam-
ræmingarreglur sem fela það í sér
að húsin „kalla hvert á annað“, þau
eru teiknuð þannig að hverfið fái
ákveðinn heildarsvip en þó leggj-
um við áherslu á að vera með verk
nokkuð margra arkitekta í hverf-
inu svo hvert hús hafi sitt sérstaka
yfirbragð. Þriðja atriðið er samspil
sjávar og byggðar. Alls staðar þar
sem byggð og sjór kemur saman,
svo sem í Feneyjum, Amsterdam,
Kristjánshöfn í Kaupmannahöfn,
skapast ákveðin spenna vegna ná-
lægðar byggðarinnar við sjó eða
vatn. Þetta er auðvelt að nýta sér í
skipulagi til að skapa skemmtilega
heild.“
Um að ræða visst
afturhvarf til fortíðar
– Eru fyrirmyndir í húsagerð og
skipulagi upprunalega sóttar til út-
landa?
„Þessi hugmynd er sótt til út-
landa, þetta fyrirbrigði er kallað á
ensku Marina Village og var fyrst
byrjað að þróa við Miðjarðarhaf en
er komið víða í Norður-Evrópu og
er vinsæll skipulagskostur. Sem
dæmi má nefna að svona hverfi
eru í Stavanger og víðar. Um er í
raun að ræða visst afturhvarf til
fortíðar þar sem tilfinning fyrir
samfélagi var sterkari vegna þess
að svo margvísleg starfsemi var á
svæðinu.“
Verðlag rétt ofan
við meðallag
– Verða íbúðir þarna á viðráð-
anlegu verði?
„Það sem einkennir þessi hverfi
erlendis er mjög hátt íbúðaverð en
íslenskur markaður ber ekki slíkt
þannig að þessi valkostur kemur
til Íslendinga á öðru og lægra
verði en kannski til annarra þjóða.
Búist er við að verð íbúða þarna
verði rétt ofan við meðalverð á
markaðinum. Þess má geta að
verktakinn mun skila hverfinu full-
búnu til bæjarfélags og íbúa með
tilheyrandi lögnum og lýsingu.“
Byggð sem skapar sterka
tilfinningu fyrir samfélagi
Endurbættar tillögur að bryggjuhverfi í
Arnarnesvogi í Garðabæ eru komnar fram.
Sigurður Helgason, framkvæmdastjóri
Björgunar ehf., segir hér Guðrúnu Guð-
laugsdóttur frá helstu atriðum tillagnanna
og hvað vinnst með framkvæmd þeirra.
Svarta línan sýnir núverandi strandlengju.
Ljósbláu línurnar sýna fyrri hugmyndir um
stærð landfyllingar, sem nú er fallið frá. Fyr-
irhuguð landfylling verður framhald af land-
fyllingu sem nú er til staðar. Þessi hugmynd
gerir ráð fyrir landfyllingu sem verður um
100 metrum styttri og um 100 metrum fjær
Arnarnesi en áður var ráðgert.