Morgunblaðið - 04.03.2001, Qupperneq 28
28 SUNNUDAGUR 4. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Þarna er fullt út úr dyrum öll kvöld og allar
nætur, en þetta er einn af fáum veitinga-
húsum á svæðinu sem hafa opið til kl. 4 að
morgni. Staðurinn opnaði í júní á síðasta ári
og hefur verið vinsæll frá fyrstu stundu að
sögn eigandans Margrétar Bagetta.
Margrét, sem er fædd á Ísafirði, hefur bú-
ið i Albany frá fjögurra ára aldri. Hún byrj-
aði að vinna við þjónustustörf um tvítugt,
vann þá á þrem mismunandi stöðum til að
hafa nóg að gera og til að fá meiri fjölbreytni
í störfin.
Allt frá fyrstu stundu hefur hún notið mik-
illa vinsælda í bransanum, og eftir að hafa
starfað í 8 ár hjá Joe Taylor á veitingahúsinu
Jessica Stones, bauð Joe henni í samstarf um
kaup og rekstur á nýjum stað við Wolf Road.
Það var 1995. Þetta passaði Margréti mjög
vel, en hún hafði fyrir löngu einsett sér að
verða orðin sjálfstæður atvinnurekandi fyrir
þrítugt.
Margrét hannaði staðinn eftir eigin höfði
og nýrri hugmynd þar sem spiluðu saman
drykkir, matur, músík og afþreying.
Miklar endurbætur
Staðurinn fékk nafnið J. T. Maxiés, en í
bransanum er Margrét jafnan kölluð Maxie.
Frá byrjun gekk sá staður frábærlega vel og
er oftast fullt út úr dyrum um helgar og um-
talsverð aðsókn allan daginn á virku dög-
unum. Joe og hún eiga staðinn til helminga
og deila með sér störfum. En íslendingseðlið
sagði til sín í Margréti. Eitt krefjandi starf
var ekki nóg, hún þurfti meira. Eftir að hún
opnaði Maxie’s giftist hún Jim Bagetta raf-
virkja, sem eftir giftinguna hóf að starfa á
Maxie’s. Hann er mjög fær handverksmaður
og saman fóru þau hjónin á stúfana og fundu
niðurnítt veitingahús rétt hjá Lathams
Farms verslunarmiðstöðinni, sem eigandinn
vildi selja. Þau keyptu húsið haustið 1999 og
héldu því opnu með svipuðum hætti fyrstu
mánuðina á meðan Margrét var að teikna
upp breytingarnar, semja við verktaka,
birgja og yfirvöld um breyttan rekstur.
Síðan var hafist handa. Allt rifið innan úr
húsinu, nema barinn, meðal annars milliloft,
því í ljós kom afar fallegt burðarvirki fyrir
þakið yfir loftinu. Hliðin sem snýr út að
Route 9 var rifinn niður og laus gluggavegg-
Veitingakonan
Margrét –
kölluð Maxie
Ef þú ætlar út, þar sem er
stanslaust fjör og stemmn-
ing í fallegu umhverfi og þar
sem þjónustan og maturinn
eru góð, þá ættirðu að fara
á veitingahús Margrétar
Bagetta sem ættuð er frá
Ísafirði – J.J. Raffertys Bar
and Grill í Latham, rétt
norðan við Albany, höf-
uðborg New York-fylkis,
skrifar Úlfar Ágústsson.
Athafnakona sem hannar veitingahús og rekur
Margrét Bagetta frá Ísafirði, snjöll í við-
skiptum og frábær hönnuður.
Melissa Gravella, systir Margrétar, sér um
barinn á föstudagskvöldum.