Morgunblaðið - 04.03.2001, Síða 32

Morgunblaðið - 04.03.2001, Síða 32
32 SUNNUDAGUR 4. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ . . . . . . . . . . 4. marz 1971: „Þrír þing- menn hafa lagt fram á Al- þingi frumvarp um Stofn- lánadeild landbúnaðarins, landnám, ræktun og bygg- ingar í sveitum, en fyrsti flutningsmaður er Pálmi Jónsson. Frumvarp þetta felur í sér mikilvægar breyt- ingar á stefnunni í landbún- aðarmálum og er þess vert, að því sé gaumur gefinn. Með frumvarpi þessu er horfið frá því stefnumarki að skipta og fjölga bújörð- um í landinu. Hins vegar er Landnámi ríkisins falið frumkvæði til áhrifa á hag- fellda þróun byggðar í sveit- um. Í því efni er Landnám- inu m.a. falin tillögugerð í samráði við aðra aðila um hagkvæmt skipulag byggð- ar. Þá er því veitt heimild til að veita framlög til samein- ingar jarða og getur það ákvæði haft verulega þýð- ingu. Ennfremur er gert ráð fyrir því, að Landnámið geti synjað um framlög og lán til endurbygginga á eyðijörð- um, ef það telst treysta byggðina betur að ráðstafa þeim á annan hátt, t.d. sam- eina þær nágrannajörðum. Landnáminu er veittur ráð- stöfunarréttur yfir býlum, sem losna úr ábúð í byggða- hverfum og loks er því veitt heimild til að veita sérstök framlög til að treysta búsetu á jörðum, sem þýðing- armikið telst að halda í byggð.“ . . . . . . . . . . 3. marz 1991: „Á Akranesi er að verða til eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki á landinu. Ákvörðun for- ráðamanna Haraldar Böðvarssonar og Co. og Síldar- og fiskimjölsverk- smiðju Akraness hf. að sameina fyrirtækin tvö ásamt dótturfyrirtækjum er merkilegt skref í end- ursköpun sjávarútvegs, ekki bara á Akranesi, heldur á landinu öllu. Reynslan af slíkri samein- ingu er góð. Gleggsta dæmið um það er Grandi hf. en nú hafa þrjú sjáv- arútvegsfyrirtæki í Reykjavík sameinast í rekstri þess fyrirtækis.“ Fory s tugre inar Morgunb laðs ins Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. NÁTTÚRUSÝNIR Í ÍSLENSKU SAMHENGI UM FÍKNIEFNASÖLU OG YFIRVINNU Undanfarna daga hafa staðið fáránlegar deilur bæði innan Al-þingis og utan um yfirvinnu þeirra lögreglumanna sem starfa að fíkniefnamálum. Lögreglumenn halda því fram, að sett hafi verið á þá yfir- vinnubann á tímabili, sem leitt hafi til þess, að fíkniefnamál hafi ekki verið rannsökuð. Yfirstjórn lögreglunnar segir, að gætt hafi verið aðhalds og dregið úr yfirvinnu en ekkert bann sett á, enda hafi yfirvinna verið unnin alla mánuði sl. árs. Hvergi í veröldinni hafa lögregluyfir- völd náð tökum á innflutningi og við- skiptum með fíkniefni. Það er sama hversu margir fíkniefnabarónar eru handteknir, hversu mörgum smyglleið- um er lokað, hversu margir sölumenn eru settir á bak við lás og slá; sölukerfi fíkniefna er einhvers konar skrímsl sem alltaf rís upp á ný. Þessi veruleiki er ein af ástæðunum fyrir því, að hér og þar koma fram raddir um að gera eigi sölu fíkniefna löglega með ákveðnum tak- mörkunum til þess að kippa fótunum undan fíkniefnasölum. Og af þessum sökum væri sennilega hægt að tvöfalda, þrefalda eða fjórfalda fjölda þeirra lögreglumanna sem starfa að rannsókn fíkniefnamála og jafnvel eftir slíka fjölgun væri hægt að færa rök fyrir því, að nauðsynlegt væri að fjölga enn. Miðað við þær upplýsingar, sem lög- regluyfirvöld hafa gefið um yfirvinnu einstakra lögreglumanna, sem vinna að fíkniefnamálum er ljóst, að sá vinnutími er kominn út fyrir öll skynsamleg mörk og raunar hægt að halda því fram, að það sé ómögulegt að inna af hendi svo mikla yfirvinnu, miðað við hámarksregl- ur um vinnutíma og stórauknar kröfur um fjölskylduvænan vinnutíma. Fíkniefnalögreglan hefur á undan- förnum árum náð mjög merkilegum ár- angri með störfum sínum eins og fram hefur komið. Þeir sem telja, að hægt sé að bæta þann árangur verulega eiga að einbeita sér að því að fá fjárveitingavaldið til þess að leggja fram enn aukna fjármuni til þessarar starfsemi og rökstyðja þær tillögur með efnislegum rökum. Því var haldið fram í umræðum á Al- þingi fyrir nokkrum dögum, að dóms- málaráðherra hefði gefið Alþingi rangar upplýsingar. Þingmenn sjálfir ættu að fara varlega í slíkar yfirlýsingar. Full- yrða má, að alþingismenn hvar í flokki sem þeir standa beri þá virðingu fyrir þeirri merku löggjafarstofnun, sem Al- þingi Íslendinga er, að þeim komi ekki til hugar á ráðherrastóli að gefa Alþingi vísvitandi rangar upplýsingar. Umræður um fíkniefnamál eru í röngum farvegi þegar þær eru komnar út í orðaskak um yfirvinnubann eða að- hald að yfirvinnu. Það má færa sterk rök fyrir því, að fjármunum verði bezt varið í að stór- auka forvarnarstarf og reyna að tak- marka með því mjög markað fíkniefna- salanna. Mikill fengur er að sýningunni Nátt-úrusýnir, sem opnuð verður í dag, sunnudag, í Listasafni Íslands en þar gefst íslenskum listunnendum færi á að sjá verk eftir franska meistara á borð við Monet, Cézanne, Sisley og Pissarro. Alls eru til sýnis 74 verk eftir 45 listamenn en sýningin er fengin að láni hjá Borgar- listasafni Parísar, Petit Palais. Að sögn Ólafs Kvaran, safnstjóra Listasafns Íslands, er þetta í fyrsta sinn sem verk helstu listamanna Frakklands á nítjándu öld eru sýnd í íslensku lista- safni. Þetta er því einstakt tækifæri fyr- ir íslenska listunnendur að skoða mynd- list sem er þeim annars utan seilingar nema með ærinni fyrirhöfn og tilkostn- aði. Það segir raunar sitt um einangrun Ís- lands í menningarlegu samhengi að slík sýning skuli aldrei fyrr hafa verið sett upp hér. Ef kenningin um að erlendir menningarstraumar berist iðulega seint hingað út er tekin bókstaflega er þessi sýning vissulega staðfesting hennar. En þótt glæsileg og söguleg verk hennar komi seint þá eru þau eigi að síður kær- komið innlegg í samhengi íslenskrar samtímamyndlistar og -menningar. Gildi margra þeirra listamanna sem eiga verk á sýningunni er ekki síst mikið fyrir þró- un myndlistar á tuttugustu öldinni. Mun sýningin vonandi vekja áhugaverðar um- ræður um það efni í íslensku samhengi. Þetta framtak Listasafns Íslands er lofsvert. Í REYKJAVÍKURBRÉFI sem birtist fyrir réttum mánuði, 4. febrúar, var fjallað um mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar og hlutverk dóm- stóla við túlkun þeirra og útfærslu. M.a. var fjallað um hefðbundna skipt- ingu réttinda í annars vegar stjórn- mála- og borgaraleg réttindi, sem oft hafa verið nefnd klassísk mannréttindi, t.d. tján- ingarfrelsi, frelsi frá ólögmætri frelsissviptingu og rétt til réttlátrar málsmeðferðar, og hins vegar efnahags- og félagsleg réttindi, þ.m.t. rétt til at- vinnu, félagslegrar aðstoðar, húsnæðis og mennt- unar. Var lýst ákveðnum efasemdum um að síðar- nefndu réttindin gætu talizt til algildra mannréttinda og að þau ættu erindi í stjórnarskrá frekar en orðið er, en jafnframt hvatt til umræðu um málið, ekki sízt á vettvangi stjórnmálaflokk- anna. Lítið fór fyrir þeirri umræðu á Alþingi við breytingar á mannréttindaákvæðum stjórnar- skrárinnar árið 1995, eins og rakið var í Reykja- víkurbréfi. „Hlaðborð mannréttind- anna“ ÞESSI umfjöllun hef- ur orðið tilefni beinna og óbeinna andsvara á opinberum vettvangi. Þannig gerði Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, þetta mál að um- ræðuefni á fundi flokksins um lýðræði 10. febrúar. Í ræðu sinni sagði þingmaðurinn meðal annars: „Í umræðu undanfarinna vikna bæði innan og utan veggja Alþingishússins, hefur verið um það deilt hvort svokölluð klassísk mannréttindi, þ.e.a.s. borgaraleg og stjórnmálaleg mannréttindi, séu æðri þeim mannréttindum sem nefnd hafa verið efnahagsleg, félagsleg og menningarleg. Þá hefur borið við að þeir hinir sömu og vilja flokka mann- réttindi í sundur eftir mikilvægi þeirra, þeir telja einnig nauðsynlegt að forgangsraða réttindunum, til dæmis með þeim hætti að tjáningarfrelsið sé með einhverjum hætti mikilvægara en rétturinn til grunnmenntunar. Þetta mætti orða þannig að öllu fólki bæri skilyrðislaus réttur til þess að tjá sig á opinberum vettvangi, en ekki væri jafnnauð- synlegt að sjá til þess að allir kynnu að lesa ... Þetta er ekki útúrsnúningur, heldur ályktun dregin af málflutningi hægrimanna og þeirra ann- arra sem aðhyllast afturhaldssamar skoðanir á því hvers konar réttindi teljist raunveruleg mann- réttindi og hvers konar réttindi séu það ekki. Sem kvenfrelsissinni og jafnaðarmanneskja er ég eindregið þeirrar skoðunar að mannréttindum verði ekki raðað í einhvers konar mikilvægisröð með þessum hætti. Stjórnvöld geta ekki valið af hlaðborði mannréttindanna þau réttindi sem þau telja henta stjórnarstefnu sinni hverju sinni. Að því komst ríkisstjórn Íslands þegar hún tap- aði öryrkjamálinu fyrir Hæstarétti. En munurinn á ríkisstjórn Íslands og ríkisstjórnum í öðrum samfélögum sem kenna sig við lýðræðislega stjórnarhætti er sá að hér beitir stjórnin öllum ráðum til þess að túlka niðurstöðu réttarins í takt við stjórnarstefnu sína, enda kom glöggt fram í umræðum um málið á löggjafarsamkundunni að ekki stæði til, af hálfu þessarar ríkisstjórnar, að viðurkenna algildi efnahagslegra og félagslegra mannréttinda. En ég leyfi mér að efast um að slík viðbrögð hefðu verið liðin annars staðar á Vesturlöndum.“ Réttindin algild, framkvæmdin afstæð? Í Morgunblaðinu 18. febrúar birtist síðan grein eftir Margréti Heinreksdóttur lög- fræðing, þar sem hún heldur því fram að í Reykjavíkurbréfinu hafi gætt „misskilnings“ um að efnahags- og félagslegu réttindin séu ekki al- gild með sama hætti og þau borgara- og stjórn- málalegu. Margrét rekur tilurð Mannréttinda- yfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna og tveggja alþjóðasamninga, annars vegar um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, hins vegar um efnahags- leg, félagsleg og menningarleg réttindi og deilur um þá á alþjóðlegum vettvangi, ekki sízt á milli Vesturlanda og kommúnistaríkjanna. Svo segir Margrét í grein sinni: „Síðan hefur öllum orðið ljóst, að allra þessara réttinda er þörf, að menn þurfa að njóta viðunandi lífsskilyrða til þess að geta nýtt sér til fulls og af einhverju viti og þekk- ingu hin borgaralegu og stjórnmálalegu réttindi, en virðing og efling þeirra er aftur á móti forsenda efnahagslegra framfara – sem eru aftur forsendur þess að fá notið hinna réttindanna; þannig eru öll réttindin samtvinnuð og hvert öðru háð.“ Í umfjöllun sinni um efnahags- og félagsleg réttindi segir Margrét: „Þeim [aðildarríkjum samningsins um efnahagsleg, félagsleg og menn- ingarleg réttindi] er ætlað að uppfylla skyldur sín- ar innan marka þess sem efnahagur þeirra leyfir; þannig þó að þau þoki réttindunum áfram skref fyrir skref, af eigin rammleik eins og þeim er unnt eða með aðstoð og samvinnu annarra ríkja á sviði efnahags og tækni, sem á þá að stuðla að fram- förum í efnahagslífi viðkomandi ríkja. Á hinn bóg- inn verða ríkin að taka þessi skref innan skikk- anlegs tíma (ótiltekins þó) og skrefin verða að vera markviss, sýna að stefnt sé að árangri ... Það er því ekki ætlazt til þess – svo vísað sé til Reykja- víkurbréfs – að Indverjar og aðrar þriðjaheims- þjóðir fullnægi skyldum sínum með sama hætti og ríki með sterkari efnahagsstöðu, svo sem ríki Vestur-Evrópu, Norðurlanda og Bandaríkjanna. Það segir hins vegar ekki að réttindin séu afstæð; þau standa óhögguð og algild sem slík, en gera verður greinarmun á þeim og ákvæðum samn- ingsins annars vegar og framkvæmd þeirra hins vegar. Framkvæmdin sem slík kann að vera af- stæð og þannig afstætt hvernig menn njóta rétt- indanna á meðan vernd þeirra er ennþá á þróun- arstigi. Misskilningur höfundar Reykjavíkurbréfs liggur í því að hann skilur ekki þarna á milli.“ Hvor skilning- urinn er í raun ofan á? Í MÁLI þeirra Þór- unnar og Margrétar virðist koma fram sá skilningur að „allir“, þ.m.t. stjórnvöld í öðr- um vestrænum ríkj- um, séu sannfærðir um algildi allra þeirra rétt- inda, sem hér eru til umræðu, jafnt hinna klassísku, borgaralegu og stjórnmálalegu rétt- inda og félagslegu og efnahagslegu réttindanna. Þá kemur fram sú afstaða að þeir, sem ekki telja að gera eigi síðarnefndu réttindunum jafnhátt undir höfði og hinum klassísku frelsisréttindum, t.d. með því að binda þau í stjórnarskrá, séu and- vígir samhjálp, telji almenna menntun óþarfa o.s.frv. Því er í fyrsta lagi til að svara að ekkert sam- komulag ríkir um algildi allra réttinda sem hér hafa verið til umræðu. Hinn klassíski skilningur á mannréttindahugtakinu er enn ríkjandi á alþjóð- legum vettvangi, þótt umræðan um stöðu efna- hags- og félagslegu réttindanna hafi vissulega far- ið vaxandi. Jafnt í áðurgreindum alþjóða- sáttmálum sem í stjórnarskrám vestrænna ríkja hefur verið farið afar varlega í að kveða sterkt að orði um þessi réttindi. Orðalagið er alla jafna veikt og frekar um fremur óljósar stefnuyfirlýs- ingar að ræða en að orðalagið gefi tilefni til að ein- staklingar geti byggt á þeim rétt og sótt hann til dómstóla. Því fer sömuleiðis fjarri að eitthvert samkomu- lag sé á meðal lögfræðinga um málið, eins og Margrét Heinreksdóttir gefur í skyn í grein sinni. Það sýna kannski bezt deilurnar í Lögmanna- félagi Íslands árið 1995 vegna afstöðu þáverandi forystu félagsins til frumvarpsins um breytingar á mannréttindakafla stjórnarskrárinnar, en að þeim var vikið í Reykjavíkurbréfinu 4. febrúar. Í þeim umræðum, sem fóru fram um frumvarpið hér í Morgunblaðinu í janúar og febrúar 1995, tjáðu raunar ýmsir fremstu fræðimenn landsins á sviði lögfræði svipaða skoðun; að félagslegu og efnahagslegu réttindin ættu tæplega heima í stjórnarskrá nema þá sem stefnuyfirlýsingar, en þau gætu ekki haft mikla réttarlega þýðingu. Í þeim hópi voru t.d. Þór Vilhjálmsson, sem gegnt hefur dómaraembætti við bæði Mannréttinda- dómstól Evrópu og EFTA-dómstólinn, og lagaprófessorarnir Sigurður Líndal og Eiríkur Tómasson. Umræður af þessu tagi fara fram í öðrum vest- rænum ríkjum, sem rétt eins og Ísland hafa undirritað og staðfest alþjóðlega sáttmála, sem kveða á um efnahagsleg og félagsleg réttindi. Þannig hafa þessi ríki skrifað upp á þessi réttindi, en miklu frekar sem þær almennt orðuðu stefnu- yfirlýsingar, sem þau óneitanlega eru, heldur en að þeim sé skipað með grundvallarréttindum borgaranna í stjórnarskrá. Gagnrýni fráfarandi forseta danska Hæstaréttarins, Niels Pontoppid- ans, á vaxandi tilhneigingu til að flokka þessi rétt- indi með grundvallarréttindum, varpar ljósi á þetta en til hennar var vitnað í umræddu Reykja- víkurbréfi. Afstaða mann- réttindasamtaka PONTOPPIDAN og margir fleiri óttast út- þynningu hinna klass- ísku frelsisréttinda, verði félagslegu réttindunum gert jafnhátt undir höfði, vegna þess að allir viti að síðarnefndu rétt- indin séu opin fyrir pólitískri túlkun og fram- kvæmd þeirra algerlega komin undir aðstæðum í viðkomandi ríki. Það á hins vegar að vera hægt að gera þá kröfu til allra ríkisstjórna, að þær virði pólitísk og borgaraleg grundvallarréttindi. Sú er jafnframt ástæðan fyrir afstöðu leiðandi mann-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.