Morgunblaðið - 04.03.2001, Side 36
36 SUNNUDAGUR 4. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
KARLMENN
Saw Palmetto
FRÁ
Tvöfalt sterkari
APÓTEKIN
D
re
if
in
g
J
H
V
Bjálka-, eininga- og frístundahús,
arnar, eldhús, uppsetning
HAGKVÆM HEILDARAFHENDING BEINT FRÁ FINNLANDI!
www.emhouse.fi, e-mail/emhouse(att)sgic.fi
Fax 00 358 3 2130045.
Sími 00 358 3 2130050.
EM House Marketing, Rautatienkatu 17,
33100 Tampere, Finnlandi
HAMPIÐJAN
Aðalfundur
Hampiðjunnar hf.
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verð-
ur haldinn í fundarsal félagsins,
Bíldshöfða 9, Reykjavík, föstudaginn
9. mars 2001 og hefst kl. 16.00.
Dagskrá fundarins verður sem hér segir:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 12. gr.
samþykkta félagsins.
2. Tillaga um heimild félagsins til að kaupa
eigin hluti samkvæmt 55. gr. hlutafélagalaga.
3. Tillaga um að bæta málslið við 4. gr.
samþykkta félagsins er kveði á um að for
kaupsréttur hluthafa falli niður á allt að
kr. 12.5 milljónum nýs hlutafjár í félaginu.
4. Tillaga um að felld verði úr samþykktum á-
kvæði um kjör varamanna í stjórn félagsins.
5. Önnur mál sem löglega eru upp borin.
Tillögur frá hluthöfum sem bera á fram á að-
alfundi skulu hafa borist í hendur stjórnar
með skriflegum hætti eigi síðar en sjö dögum
fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur
félagsins, ásamt skýrslu endurskoðenda,
munu liggja frammi á skrifstofu félagsins,
Bíldshöfða 9, Reykjavík, hluthöfum til sýnis,
sjö dögum fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á
fundarstað.
Hluthafar sem ekki geta mætt á fundinn en
hyggjast gefa umboð verða að gera það skrif-
lega.
Stjórn Hampiðjunnar hf.
NÚNA!
Auðbrekku 14, Kópavogi,
sími 544 5560 og 864 1445
Yoga Studio - Halur og sprund ehf.
Í verslun okkar er að finna:
Gæða nuddbekki frá Custom
Craftworks, Oshadhi 100% hágæða
ilmkjarnaolíur o.fl.
Jóganámskeið og jógatímar
Jóga gegn kvíða með Ásmundi Gunnlaugssyni
hefst 13. mars — Þri. og fim. kl. 19.30.
4ra vikna uppbyggjandi námskeið fyrir þá sem eru að glíma við streitu, kvíða og/eða fælni.
Traust námskeið frá árinu 1994 — byggt á reynslu.
Yoga — breyttur lífsstíll með Daníel Bergmann
hefst 12. mars — Mán. og mið. kl. 19.30
4ra vikna grunnnámskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu spor í jóga.
Jógatímar fyrir alla með Ásmundi, Önnu, Daníel, Ingibjörgu og Lísu.
Sjá stundaskrá á heimasíðu okkar www.yogastudio.is
www.yogastudio.is
Ásmundur Anna Daníel Ingibjörg Lísa
Þ
að er langt um liðið síð-
an kaþólska kirkjan
bannaði Galíleó að
halda fram tilteknum
skoðunum um heim-
inn. En þótt kirkjufeður hafi fyrir
ekki löngu séð villu síns vegar og
beðist afsökunar á yfirganginum
er það enn að gerast að ráðamenn
– núorðið pólitíkusar, ekki páfar –
séu að skammast út í vísindamenn
sem hafa óheppilegar skoðanir og
segja frá þeim á opinberum vett-
vangi.
Nýlega ákváðu kanadísk stjórn-
völd að banna innflutning á nauta-
kjöti frá Brasilíu á þeim for-
sendum að „hugsanleg hætta“
væri á að kjöt þaðan bæri með sér
kúariðusmit, sem getur valdið
heilarýrnunarsjúkdómi í fólki ef
það borðar sýkt kjöt. Bras-
ilíumenn urðu æfir. Ekki hefur
verið skráð eitt einasta tilfelli kúa-
riðu í Brasilíu.
Vegna ákvæða
fríversl-
unarsamnings
Norður-
Ameríku
(NAFTA)
urðu Banda-
ríkjamenn að fylgja fordæmi Kan-
adamanna og banna innflutning á
brasilísku kjöti.
Þetta bann entist að vísu ekki
lengi, og hefur verið afnumið. En
fljótlega eftir að það var sett á
komu tveir vísindamenn fram op-
inberlega og sögðu að það væru
engar vísindalegar forsendur fyrir
því að banna innflutning á nauta-
kjöti frá Brasilíu, og að líklega
væri hin raunverulega ástæða fyr-
ir banninu pólitísk. Það er að
segja, viðskiptastríð sem Kan-
adamenn hafa átt í við Bras-
ilíumenn vegna niðurgreiðslna í
flugvélaiðnaði. (Kanadíska fyr-
irtækið Bombardier og brasilíska
fyrirtækið Embraer eiga í sam-
keppni í framleiðslu á litlum far-
þegaþotum).
Kanadísku vísindamennirnir
tveir sögðu í viðtali við dagblaðið
The Globe and Mail að yfirvöld
hefðu ekki ráðgast við vís-
indamenn áður en bannið hafi ver-
ið sett á. Blaðið gerði mikið úr
þessari afstöðu vísindamannanna,
fréttin var stór, efst á forsíðunni
og náði yfir hana þvera. Umrædd-
ir vísindamenn eru starfsmenn
hins opinbera, vinna fyrir kan-
adíska heilbrigðiseftirlitið.
Eða öllu heldur unnu, því að
minnsta kosti öðrum þeirra hefur
verið sagt upp störfum tímabund-
ið vegna málsins. Svona eins og
þegar krakki er rekinn úr skóla í
viku fyrir að haga sér ekki. Í raun
og veru var vísindamaðurinn, hún
heitir Margaret Haydon, því rek-
inn fyrir að kjafta frá. Kannski
mátti hún við sjálfa sig sakast að
hafa ekki vit á að láta ekki nafns
síns getið, eins og hinn vís-
indamaðurinn passaði sig á – og
ekki hefur frést af því að hann hafi
verið látinn taka pokann sinn.
Nokkrum dögum eftir uppslátt-
arfréttina digru hafði The Globe
and Mail eftir heimildamönnum að
Haydon hafi verið tekin á teppið
og yfirmaður heilbrigðiseftirlits-
ins – sem var þar með yfirmaður
Haydon – hafi lesið henni pist-
ilinn. Var Haydon sagt, að al-
mannatengslafulltrúar eftirlitsins
væru þeir einu sem hefðu leyfi til
að tala við fjölmiðla um það sem
eftirlitið væri að gera. Haydon var
þar með skipað að halda kjafti.
Hún er sennilega að mati yf-
irmanna heilbrigðiseftirlitsins það
sem stundum er kallað „erfiður
starfsmaður“, því þetta var í ann-
að sinn sem þeir þurftu að vera að
standa í því að þagga niður í
henni. Fyrir nokkrum árum síðan
sagði hún frá því opinberlega að
heilbrigðiseftirlitið hefði beitt sig
og aðra vísindamenn þrýstingi til
að samþykkja notkun tiltekinna
hormóna sem þeir hefðu ekki talið
áreiðanlegt að væru meinlausir til
matvælavinnslu.
Það mál endaði með því að fyrir
hálfu ári kvað kanadískur alrík-
isdómari upp þann úrskurð að það
væri „óviðunandi“ að heilbrigð-
iseftirlitið meinaði starfsfólki sínu
að ræða opinberlega um mál sem
vörðuðu almenna heilbrigði. Enn-
fremur hefur verið bent á, að
stjórnvöld séu með þessum hætti
að skerða málfrelsi þeirra sem síst
skyldi. Um sé að ræða hámennt-
aða vísindamenn og það séu því
helst þeir sem eigi að veita al-
menningi ráð í heilsufarsefnum.
Slík ráðgjöf geti varla heyrt undir
pólitíkusa og embættismenn.
En ráðamenn hafa hvergi hvik-
að. Herb Gray, aðstoðarforsæt-
isráðherra Kanada, sagði í fyr-
irspurnartíma á þinginu að
vísindamenn ættu ekki að vera að
tjá sig opinberlega um mál sem
þeir væru ekki beinlínis þátttak-
endur í. Yfirmaður heilbrigðiseft-
irlitsins bannaði Haydon að mæta
í vinnuna í tíu daga (og hún fær
engin laun þá daga), á þeim for-
sendum að hún hefði „brugðist
trúnaðarskyldu“ sinni.
Þetta mál virðist ætla að verða
kanadísku ríkisstjórninni til mik-
illar háðungar enda eru f jölmiðlar
hvergi bangnir við að taka gagn-
rýna afstöðu í fréttum sínum um
aðgerðir stjórnvalda. Þannig segir
The Globe and Mail í aðalfrétt á
forsíðu, um afnám bannsins, að
Kanada hafi „skömmustulega“ af-
létt þessu umdeilda banni, þrem
vikum eftir að það var sett, „og
ekki fyrr en Bandaríkin höfðu
þegar gert hið sama fyr um dag-
inn“.
Þá lætur blaðið í veðri vaka í
fréttinni að kanadísk yfirvöld hafi
beinlínis reynt að fela það að verið
væri að afnema bannið. Tilkynn-
ingin hafi komið á fréttamanna-
fundi sem hafi verið boðaður í
skyndi klukkan sex síðdegis á
föstudegi, of seint til að fréttin
kæmist í aðalfréttatíma sjón-
varpsstöðvanna klukkan sex, og í
Brasilíu hefðu menn verið komnir
í gott karnivalstuð á þessum tíma
og ekki mátt vera að því að spá í
boð og bönn.
Það er dálítið undarlegt að
stjórnmálamenn séu enn að falla í
svipaða gildru og kirkjufeðurnir
til forna. Auðvitað má segja að það
sé munur á þessum málum, það
var enginn að saka kanadísku vís-
indamennina um villutrú. Og þó,
þeir voru átaldir fyrir að hafa ekki
áttað sig á því hverjum þeir ættu
að vera dyggir.
En svona lagað er alltaf að ger-
ast. Ekki er langt síðan virðulegur
forsætisráðherra Íslands, Davíð
Oddsson, sagði í ávarpi að það
væri beinlínis ábyrgðarleysi að
taka fullt mark á viðvörunum vís-
indamanna um yfirvofandi hættur
vegna gróðurhúsaáhrifa. Ekki
gott að átta sig á því hvort þessir
stjórnmálamenn eru bara svona
vissir í sinni sök eða hvort þeir eru
öllu heldur blindir í eigin ofstæki.
Pólitík og
vísindi
Fjölmiðlar eru hvergi bangnir við
að taka gagnrýna afstöðu í fréttum
sínum um aðgerðir stjórnvalda.
VIÐHORF
Eftir Kristján G.
Arngrímsson
kristjan@
yorku.ca
Símar 557 2000 og 557 7100
Skemmuvegi 36 Bleik gata
Kópavogi
Þakrennur
og rör
frá...
Þakrennur
BOSSAKREMIÐ frá
Weleda. Þú færð ekki
betra. Þumalína,
Heilsuhúsið, Apótekin.