Morgunblaðið - 04.03.2001, Side 40

Morgunblaðið - 04.03.2001, Side 40
MINNINGAR 40 SUNNUDAGUR 4. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Ólafur Ö. Pétursson, útfararstjóri, s. 896 6544 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. S. 551 7080 Vönduð og persónuleg þjónusta. Minningarkort Hjartaverndar 535 1825 Gíró- og greiðslukortaþjónusta ✝ Þóroddur Har-aldsson fæddist í Reykjavík 29. sept- ember 1999. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans mánu- daginn 26. febrúar síðastliðinn eftir erf- ið veikindi. Foreldr- ar hans eru Hanna Óladóttir íslensku- fræðingur, f. 3.5. 1968, og Haraldur Bernharðsson mál- fræðingur, f. 12.4. 1968. Eldri bróðir Þórodds, Frey- steinn, f. 22.1. 1998, lést fyrir rösku ári (30.1. 2000) eftir harða baráttu við sama sjúkdóm og nú dró Þórodd til dauða. Foreldrar Hönnu eru Inga Teitsdóttir, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík, f. 3.5. 1943, og Óli Jóhann Ás- mundsson, arkitekt og iðnhönnuður, f. 18.3. 1940; foreldr- ar Haralds eru Ragnheiður Hans- dóttir, tannlæknir á Akureyri, f. 18.7. 1942, og Bernharð Haraldsson, fv. skólameistari, f. 1.2. 1939. Þóroddur fæddist í Reykjavík, en bjó lengst af með fjölskyldu sinni í Cambridge í Massachusetts í Bandaríkjunum. Fjölskyldan fluttist fyrir röskum tveimur mánuðum aftur heim til Íslands til að setjast hér að. Útför Þórodds fer fram frá Fossvogskirkju á morgun, mánu- daginn 5. mars, og hefst athöfnin klukkan 15. Lítill sólargeisli sem gaf syrgj- andi foreldrum orku til að líta nýjan dag og sjá tilgang í lífinu þegar Freysteinn stóri bróðir dó. Lítill drengur, sem fannst svo gott að hjúfra sig í hálsakot á mömmu og toga um leið í eyrna- sneplana á henni. Lítill drengur sem sat í fanginu á pabba og skoðaði mynd af blómi og benti þá á blóm á borðinu og sagði ba. Lítill drengur sem var stundum lystarlaus á kvöldin en opnaði munninn upp á gátt og borðaði allt sem að honum var rétt þegar spurt var: Hvernig gerir afi? Lítill dreng- ur sem hló dillandi hlátri þegar amma skreið í kapp við hann eftir ganginum. Lítill drengur sem skildi að Ási frændi var strákur líka og tuskaðist við hann meir en aðra. Lítill drengur sem fór að sofa á hverju kvöldi hjá apastelpunni sinni og vaknaði alltaf jafn glaður á hverj- um morgni. Lítill forvitinn drengur sem minnti svo oft á Freystein stóra bróður. Lítill drengur sem var umvafinn elsku og ástúð og litið á sem guðs- gjöf er hrifinn brott í einni svipan eins og Freysteinn bróðir hans var fyrir rúmu ári. Eftir sitjum við öll með þunga sorg í hjarta en þá vissu að engir sem hafa verið elskaðir eins og litlu bræðurnir, Þóroddur og Freysteinn, hverfa í raun og veru heldur lifa áfram í hverri einustu dýrmætri minningu. Inga amma. Sá sem öllu ræður gaf okkur gim- stein. Það geislaði frá honum yfir höf og lönd og hann var okkur dýr- mætari en allt annað. Nokkru seinna gaf almættið okkur annan gimstein og við áttum tvo geislandi gimsteina, Freystein og Þórodd, sem veittu okkur ómælt yndi og framtíðin var sannarlega björt og fögur. En þá komu örlaganornirnar og hrifsuðu Freystein frá okkur. Við grétum og báðum um að fá að halda honum. Samt var hann hrifinn burt og við héldum dauðahaldi í Þórodd og hann veitti okkur gleði og hugg- un. Óvænt og harkalega komu ör- laganornirnar á nýjan leik og hrifs- uðu Þórodd burtu. Sorg okkar er ólýsanleg. Við eigum bara myndir og minningar og engir gimsteinar lýsa upp framtíðina. Seinna förum við sjálf þangað sem litlu bræðurnir eru, föðmum þá og kyssum og finnum aftur birtuna og gleðina og upp frá því verðum við alltaf saman. Amma á Akureyri. Enn einu sinni grúfir sorg yfir fjölskyldum okkar. Enn einu sinni eigum við um sárt að binda. Enn einu sinni hefur lítill drengur verið hrifinn frá okkur í blóma lífsins. Enn einu sinni eru bjartar vonir brostnar. Enn einu sinni… Það var gleðihljómur í röddum sonar okkar og tengdadóttur vorið 1997 er þau hringdu frá Bandaríkj- unum, þar sem þau voru við nám og störf, og sögðu okkur að erfingja væri von. Í janúar 1998 fæddist þeim sonur, sem skírður var Frey- steinn. Hann var okkur öllum mikill gleðigjafi, fyrsta barnabarn í báðar ættir, allra augasteinn og yndi. Hinn 29. september 1999 fæddist honum bróðir, sem gefið var nafnið Þóroddur. Hamingja okkar allra var mikil og fölskvalaus, tveir bjartir og fagrir gimsteinar lýstu framtíðina. Engin hamingja var þessari meiri. Það voru stoltir foreldrar, sem í byrjun janúar árið 2000 héldu með syni sína tvo til Boston til að ljúka námi sínu þar. Daginn eftir komuna til Boston veiktist Freysteinn og eft- ir 19 sólarhringa baráttu færustu lækna, sem önnuðust hann af heilum hug, lést hann í örmum föður síns. Skuggi var yfir er við fluttum hann heim og hann fékk leg í vígðri íslenskri mold. Gleðin yfir þessum ljúfa dreng, hinn hreini innri fögn- uður, breyttist á einu andartaki í harm, hið skerandi hjartasár. Þóroddur fór með foreldrum sín- um til Boston, er sól var farin að hækka á lofti. Þeim fylgdu góðar og heitar bænir um bjarta framtíð þessa litla drengs. Hann var for- eldrum sínum huggun í djúpri sorg þeirra, ljós, sem lýsti þeim veginn inn í framtíðina, hvatning til dáða, uppspretta yndis og gleði. Við heimsóttum þau í lok maí og foreldrar Hönnu fóru síðsumars vestur um haf og nutu samvista við fjölskylduna. Þessar ferðir urðu okkur öllum gleðistundir, minningin um þær eru fjársjóður, sem aldrei verður frá okkur tekinn. Nær daglega vorum við í tölvu- sambandi við þau og við fengum að frétta af framförum Þórodds, af tanntöku, fyrstu skrefunum og hljóðum, sem hann náði tökum á og æfði í tíma og ótíma. Um miðjan desember lauk pabbi hans námi sínu og að morgni 21. desember komu þau heim. Að þessu sinni alkomin. Þóroddur hafði þroskast og dafn- að vel og var okkur mikill auga- steinn. Hann var eins og bróðir hans hafði verið, pínulítið stríðinn og hermdi eftir okkur, sem eldri erum. Hann var mikill pabba- og mömmu- drengur og ávann sér allra hylli með hlýju brosi og skemmtilegu fasi. Björt var framtíð þessarar ungu fjölskyldu, framundan var mikið verk, vísindastörf og nám og innan skamms ætlaði hún að flytja í eigin íbúð. Svo var Þóroddur nokkra tíma á dag hjá dagmömmu og sýndi þar strax góða forystuhæfileika í verki. Sunnudaginn 25. febrúar veiktist hann alvarlega og var fluttur á sjúkrahús og síðar um daginn á gjörgæslu, þar sem hann naut allrar þeirrar umhyggju sem í mannlegu valdi stóð. Síðdegis á mánudaginn lést hann, lítið, saklaust barn, hin bjarta von okkar allra. Þóroddur var með okkur í tæpa 17 mánuði. Hann fæddist inn í birtu og yl, frá fyrstu stundu til hinnar síðustu var hann umvafinn ást og kærleik og hann kynntist aldrei neinu öðru. Nú verður hann lagður til hinstu hvílu við hlið Freysteins, bróður síns. Við kveðjum þennan litla gleði- gjafa með sárum trega í þeirri full- vissu, að góður Guð geymi góðar sálir. Afi á Akureyri. Þóroddur, litli vin. Nú ertu farinn og við fáum aldrei að sjá þig framar. Þú sem varst ljós pabba þíns og mömmu í myrkri sorgar eftir Frey- stein bróður þinn – tveggja ára snáða, er þau misstu fyrir um rúmu ári. Hver skilur ráðstafanir almætt- isins? Hver skilur þessa grimmd lífsins? Hanna og Haraldur, kæru vinir. Áfallið er mikið, höggið þungt – þeg- ar rétt var farið að hema yfir ykkar sára missi fyrir ári. En mætti það létta undir með ykkur að vita af hinni þöglu sorg ættingja ykkar og vina og þeim sterku hugsunum sam- úðar, sem nú beinast að ykkur. Megi horfnar gleðistundir með drengjun- um ykkar lýsa ykkur og gefa ykkur kjark og þrótt gegn tómleikanum – og áframhaldandi trú á lífið. Þinn langafi, Teitur Þorleifsson. Ég er orðlaus. Hvað get ég sagt? Ég er búin að missa engilinn minn. Aftur. Það eru ekki til nógu sterk orð til að lýsa því hvernig mér líður. Þóroddur er dáinn. Ég man eftir því þegar Þóroddur fæddist. Það var á miðvikudegi. Ég átti að mæta í skólann en ákvað að skrópa þegar ég frétti að Halli og Hanna væru komin upp á fæðing- ardeild. Glætan að ég gæti einbeitt mér að einhverju námi þegar lítill engill var að fæðast í heiminn! Þarna var Þóroddur mættur. Ein- ungis afar og ömmur máttu fara í heimsókn á fæðingardeildina. Það voru okkur systrum mikil vonbrigði. Hlutverk okkar sem föðursystra fólst jú aðallega í dekri, dekri og meira dekri. Við gátum varla beðið eftir að byrja að dekra við Þórodd. Þóroddur var svo yndislegur. Það tók hann sko ekki langan tíma að bræða hjarta mitt. Þessi bláu augu og þetta ljósa hár sem síðar varð dökkt. Þóroddur var sannkallaður sólargeisli. Gaf fjölskyldunni von á myrkum og þungbúnum dögum þegar Freysteinn bróðir hans dó. Hann var þá okkar eina von í myrkrinu. Flestar minningar mínar um Þór- odd eru frá því um jólin. Loksins var engillinn minn fluttur heim. Þórodd- ur var svo æðislegur. Svo líkur bróð- ur sínum en samt svo ólíkur. Ég man eitt kvöldið þegar Þóroddur var í heimsókn. Við vorum nýbúin að borða, en sátum ennþá við borðið. Ég hristi höfuðið þannig að hárið sveiflaðist til. Þóroddur skellihló og fór að herma eftir mér. Þá hristi Adda höfuðið og Þóroddur skellihló. Eftir þetta máttum við gjöra svo vel að hrista höfuðið stöðugt. Og alltaf skellihló Þóroddur. Við hittum Þór- odd ekki fyrr en viku síðar og það fyrsta sem hann gerði var að hrista höfuðið! Síðasta minningin um Þórodd er frá því 24. janúar, kvöldið áður en ég fór aftur til Kaupmannahafnar. Þór- oddur hafði verið í pössun hjá okkur systrum um daginn. Við vorum búin að borða kvöldmat og komið var fram yfir háttatíma hjá honum Þór- oddi mínum. En hann hélt sko ótrauður áfram að leika sér í dóta- kassanum þó að hann væri sífellt að detta á rassinn. Jafnvægisskynið var ekki alveg í lagi svona seint að kvöldi, Snúlli minn var orðinn þreyttur. Við hlógum einmitt að því og töluðum um hvað það væri gott að Þóroddur var með bleyju. Daginn eftir fór ég til Kaup- mannahafnar. Ég hlakkaði rosalega til að koma heim í sumar, sjá íbúðina sem Halli og Hanna voru búin að kaupa og sjá hvað Þóroddur væri orðinn stór. Því miður verður ekkert úr því. Ég er búin að missa engilinn minn. Aftur. Freysteinn og Þóroddur. Tveir fallegir englar. Báðir farnir. Voru hérna svo stutt en náðu samt að snerta svo mörg hjörtu og skilja svo margt eftir sig. Minningarnar um þá munu lifa að eilífu í hjörtum okkar og þær hjálpa okkur að komast í gegnum myrkrið. Við erum svo rík en samt svo fátæk. Elsku Halli og Hanna. Þið sköp- uðuð tvo engla. Engla sem nú hafa yfirgefið okkur. Engla sem snertu okkur að innstu hjartarótum og gerðu okkur að betri manneskjum. Það er ekkert sem ég get sagt sem getur huggað ykkur, elsku Halli og Hanna, nema kannski það að þeir bræður eru saman á himnum að leika sér. Þið eruð í huga mínum og hjarta. Takk fyrir Freystein og Þór- odd, englana mína. Þórdís. Þetta er búið að vera stutt æv- intýri, stutt en dásamlegt. Eins og í öllum öðrum ævintýrum eru hetjur. Hetjurnar okkar voru tvær, þú, Þóroddur minn, og bróðir þinn Freysteinn. Tveir bræður, upp- fullir af hugrekki og forvitni, tilbún- ir að sigra heiminn. Þegar Freysteinn leit dagsins ljós byrjaði ævintýrið. Þá varð allt ein- hvern veginn svo miklu bjartara og skemmtilegra. Það var eins og hul- unni hefði verið svipt af nýjum ynd- islegum heimi. Allt frá byrjun var Freysteinn fullur af þori og áræði, og um leið og hann fór að ganga fór hann að kanna heiminn. Það var ekkert sem fékk stöðvað hann, ef hann vildi kanna hvað var að gerast á eldhús- borðinu þá einfaldlega læsti hann litlu fingrunum sínum um borð- brúnina og lyfti sér upp á hönd- unum, og ef hann vildi kanna leynd- ardóma þvottahússins og rennihurðin var læst hamaðist hann á henni þangað til hún gaf sig og hljóp svo sönglandi eftir ganginum í átt að þvottavélinni. Freysteinn var alltaf fullur af leik og aldrei var langt í stríðnina. Þegar ég hugsa um hann sé ég hann ávallt fyrir mér, skælbrosandi, kirfilega búinn að festa kubba á báða þumalputta, koma hlaupandi til að sýna mér. Þegar hörmungarnar dundu yfir okkur í fyrra varst þú, Þóroddur, hetjan okkar allra. Þú leiddir okkur í gegnum þessa erfiðu tíma. Þú varst svo undurvær og góður, sí- brosandi framan í allt og alla. Þú gafst okkur nýjan tilgang og sýndir okkur fram á að lífið heldur áfram. Það eitt að líta í augun á þér sem ljómuðu yfir bústnum kinnunum kvaddi allan drunga og allt svart- nætti á brott og fékk mann til að horfa fram á veginn. Þetta voru langir mánuðir frá því að þið fóruð aftur út til Boston í apr- íl og þangað til að þið komuð heim fyrir jólin. Eftirvæntingin eftir að fá að sjá þig aftur var mikil og dag- arnir sem við áttum öll saman á Hofsósi yfir jólin voru yndislegir. Þú varst oft lítill í þér þegar þú varst nýkominn heim í Depluhólana en þegar þú fórst að ganga óx þér þor og þá gafstu bróður þínum ekk- ert eftir í áræði og dirfsku. Ég mun aldrei gleyma hve kelinn þú varst, litli kútur, hve gaman þú hafðir af að herma eftir okkur eða láta okkur herma eftir þér og hvern- ig þú fitjaðir upp á trýnið og sýndir kanínutennurnar þínar þegar þér var skemmt. Þótt það sé svo ósköp sárt að æv- intýrið okkar skuli vera á enda hugga ég mig við það sem þú kennd- ir mér, að lífið heldur áfram með önnur ævintýri, ævintýri eins og þig og bróður þinn sem gefa lífinu til- gang. Ásmundur Ingvi. Þóroddur litli Haraldsson var ekki nema tæplega hálfs annars árs og honum auðnaðist ekki lengri jarðvist. Þessi litli angi sem var hvers manns hugljúfi með fallega brosið sitt og blikið í augunum. Þessi litli prakkari sem var búinn að komast að því hvað það er gaman að toga í sítt hár á stelpum. Hann var að uppgötva heiminn og honum fannst skemmtilegt að príla upp á borð og upp í sófa og hreykja sér þar. Öðru sinni er svo sár harmur kveðinn að ungum foreldrum að með ólíkindum virðist að hægt sé að rísa undir honum. Hvers vegna er það lagt á fólk að fylgja litlu börnunum sínum til graf- ar? Hvers vegna þarf að svipta fólk því dýrmætasta sem það á? Við slík- um spurningum fást engin svör og við sem stöndum hjá og skynjum sorgina og tómið fáum ekkert að ÞÓRODDUR HARALDSSON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.