Morgunblaðið - 04.03.2001, Síða 46
KIRKJUSTARF
46 SUNNUDAGUR 4. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ENDURMINNINGAFUNDIR
karla eru annan hvern þriðjudag kl.
14–15.30 í Guðbrandsstofu í anddyri
kirkjunnar. Á þessum fundum kom-
um við saman og rifjum upp gamlar
og góðar minningar, frá barnæsku,
unglingsárum, fullorðinsárum, frá
minnisstæðum atvikum á lífsferlin-
um og frá ákveðnum tímabilum s.s.
kreppu- og stríðsárunum, svo dæmi
séu tekin. Hjá okkur er karlagrobb
meira en velkomið.
Við ræðum einnig í hópnum það
sem á brennur hverju sinni og hver
og einn vill deila með hinum. Innan
hópsins myndast trúnaðarsamband
og góð vinátta. Í hvert sinn mæta
5–8 karlmenn á aldrinum 70–90 ára.
Það má því með sanni segja að þar
sé samankomin viska 500–600 ára.
Karlmennirnir koma og fara eftir
aðstæðum, þannig að alltaf er hægt
að bæta í hópinn.
Rannsóknir hafa sýnt að upprifj-
un bjartra endurminninga vinnur
gegn depurð og þunglyndi auk þess
að örva minnið.
Þið karlmenn í Langholtssöfnuði,
sem hafið áhuga á að bætast í hóp-
inn, verið velkomnir að hafa sam-
band við Svölu Sigríði Thomsen
djákna, sem er leiðbeinandi hópsins,
í síma 520 1300 eða 862 9162.
Leikhús í
sunnudagaskóla
Árbæjarkirkju
Í DAG, sunnudaginn 4. mars, á
æskulýðsdegi þjóðkirkjunnar, mun
Stoppleikhópurinn heiðra sunnu-
dagaskólann í Árbæjarkirkju með
nærveru sinni og flytja okkur leik-
ritið „Ævintýrið um óskirnar tíu“. Í
verkinu er komið inn á að kenna
börnum að biðja rétt, um mátt bæn-
arinnar og það að gleyma ekki þeim
sem þurfa á bænum okkar að halda.
Það er von okkar og ósk að sem
flestir foreldrar, afar og ömmur sjái
sér fært að koma með börnum sín-
um og eiga stund með okkur á þess-
um hátíðisdegi æskunnar.
Rauði krossinn
og kirkjan
FULLORÐINSFRÆÐSLA Laug-
arneskirkju hefur nú starfað í hálft
þriðja ár með sínum vikulegu
fræðslutímum um kristna trú og
lífsskoðun. Um þessar mundir
vinnum við að undirbúningi mál-
þings um fátækt og einsemd á Ís-
landi, sem haldið verður laugardag-
inn 24. mars nk. í samvinnu við
Rauða krossinn, Hjálparstarf kirkj-
unnar, fræðsludeild Biskupsstofu og
ÖBÍ. Á þriðjudagskvöldið kemur kl.
20:00 mun Helga G. Halldórsdóttir
hjá Rauða krossinum greina frá ný-
legri rannsókn á aðstæðum þeirra
sem minnst mega sín í samfélagi
okkar og umræður verða um hlut-
verk kirkjunnar og Rauða krossins í
samfélaginu. Gengið er inn um dyr
að kórbaki inn í gamla safnaðar-
heimilið. Fræðslufundir þessir
standa alltaf í tæpa klukkustund en
kl. 21:00 er lofgjörðar- og bæna-
stund í kirkjunni í umsjá Þorvalds
Halldórssonar. Nýtt fólk velkomið.
Safnaðarfundur
í Grafarvogs-
kirkju
NÆSTKOMANDI mánudag, 5.
mars, kl. 20:00 heldur Safnaðarfélag
Grafarvogskirkju almennan fund. Í
þetta sinn mun Hjördís R. Jóns-
dóttir, skreytingarmeistari Blóma-
vals, vera með sýnikennslu í gerð
páskaskreytinga, sem geta einnig
tengst fermingarskreytingum.
Kaffiveitingar, allir velkomnir.
Safnaðarstarf
Endurminn-
ingafundir
karla í Lang-
holtssöfnuði
FÓLK Í FRÉTTUM
!" #
$! $
" %!
&''
!
( ) ! " *
#
(
(
!
(
!+
!$
" %
!
( ( ( ! (
#
+ "
,
-(. " *"
.( " $ /0
)"
"
!+
" 1
!
2(/
"
3 4
!
$ ( " -2" -""
HÁLSAR
Byggingaverktakar - fyrirtæki
Byrjunarframkvæmdir að nýbyggingu. Grunnflötur ca
5.000 fm. Fyrir utan milliloft er lofthæð allt að 8 m. Plata
komin. Frábær staðsetning í gróskumesta athafnasvæði
Reykjavíkur. Teikningar fyrirliggjandi. Gatnagerðargjöld
greidd. Verð tilboð.
Allar nánari uppl. á skrifstofu.
Heiðarhjalli 47 - frábært útsýni
Vorum að fá í einkasölu mjög
glæsilega 154 fm efri sérhæð, auk
25,8 fm bílskúrs í nýju tvíbýlishúsi.
Hæðin selst tilbúin undir tréverk
og húsið fullfrágengið að utan og
lóð fullfrágengin. Allt sér. Frábært
útsýni. Til afh. í júlí nk.
Borgartúni 22
105 Reykjavík
Sími 5-900-800
Opið hús í dag
Erum með til sýnis í dag óvenjulega
glæsilegt einlyft rúmlega 200 fm einbýl-
ishús á frábærum stað í Staðahverfi. Um
er að ræða 168 fm íbúðarrými ásamt 33
fm innb. bílskúr m. jeppahurð. Allar inn-
réttingar eru sérsmíðaðar úr hnotu. Flís-
ar og vandað parket á gólfum, hiti í gólf-
um að hluta. Stórglæsilegt eldhús og
bað. 4 góð svefnherbergi. Innbyggð ha-
logen- ljós í mestum hluta lofta, góð
lofthæð. Vandaður rafbúnaður og allur
annar tækjabúnaður af bestu gerð. Búið
að helluleggja bílastæði og umhverfis
húsið með hitalögnum. Sjón sögu ríkari.
Áhv. 7,5 millj. Verð 27,9 millj.
BAKKASTAÐIR 25 - EINBÝLI.
Sigfús tekur á móti gestum
í dag á milli kl. 14 og 16
Raðhúsalóðir í
Grafarholti til sölu
Mikið útsýni. Stærðir 200-210 fm
Upplýsingar gefur Sigrún í síma 861 8120