Morgunblaðið - 04.03.2001, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MARS 2001 53
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
FISKAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert kappsfullur og það
svo að þú átt erfitt með að
halda aftur af þér þegar bet-
ur færi á því. En áhugi þinn
virkar smitandi á aðra.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þeir eru margir sem vilja
veðja á sköpunarkraft þinn
og líða þér eitt og annað þess-
vegna. Gættu þess að misnota
ekki þessi forréttindi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Leggðu þig fram um að fá
sem mest út úr þeim tækifær-
um sem gefast. Þau eru mörg
og vandinn er að velja rétt og
vinna svo úr því öllu saman.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það getur oft reynt á þolin-
mæðina að vera í samstarfi
við aðra en sýndu lipurð og
líttu á björtu hliðar málanna.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er til lítils að þvæla um
hlutina fram og aftur enda-
laust. Orðum verða að fylgja
athafnir svo það er eins gott
að þú brettir upp ermarnar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þér væri nær að líta í eigin
barm í stað þess að reyna að
skella skuldinni á aðra. Að-
eins með því að gera hreint í
eigin ranni getur þú haldið
áfram.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er ekki rétt að taka þýð-
ingarmiklar ákvarðanir án
þess að afla allra staðreynda
og gera sér grein fyrir afleið-
ingunum. Gefðu þér tíma til
þessa.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Reyndu að halda ró þinni
hvað sem tautar og raular.
Láttu ekki smáatriðin villa
þér sýn varðandi heildarlausn
mála.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Stundarhrifning getur dregið
dilk á eftir sér þegar hún er
innihaldslaust hjóm. Forð-
astu slíka reynslu með því að
gefa þér nægan tíma.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þér hrýtur af munni hvert
spakmælið á fætur öðru en
gættu þess að þú sért ekki
bara að tala fyrir eigin eyru
heldur leggðu eitthvað raun-
hæft til málanna.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ert góður í að hlusta á
aðra og vera öxlin sem þeir
geta grátið við. Gleymdu
samt ekki sjálfum þér því þú
átt líka við þín vandamál að
stríða.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Taktu þér tíma til þess að
meta allar aðstæður. Þeir
sem nálægt þér standa munu
virða það að þú dragir þig í
hlé um sinn.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er eitt og annað sem þú
hefur látið sitja á hakanum að
undanförnu. Raðaðu verkefn-
um eftir forgangsröð því þá
verður eftirleikurinn auð-
veldari.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
FYRST ein sagnþraut: Það
er enginn á hættu og makker
opnar á þremur spöðum í
fyrstu hendi. Næsti maður
doblar og norður á að segja
með nokkuð glæslileg spil á
móti.
Norður
♠ K3
♥ Á742
♦ Á9
♣ Á8632
Suður
♠ DG109874
♥ 6
♦ 832
♣ 75
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 3 spaðar
Dobl 4 spaðar Pass Pass
Pass
Þessi tiltekni spilari valdi
að hækka í fjóra spaða. Er
það viturlegt eða kemur önn-
ur sögn til greina – pass, re-
dobl eða jafnvel þrjú grönd?
Setjum nú sviga utan um
þessa spurningu í bili og snú-
um okkur að því að spila
fjóra spaða með laufkóng út.
Öruggir slagir eru níu og
sá tíundi gæti komið með tíg-
ulstungu í borði ellegar á frí-
lauf. En það er óþarfi að
dúkka fyrsta laufið, því hugs-
anlega á austur einspil, svo
best er að drepa og spila aft-
ur laufi.
Norður
♠ K3
♥ Á742
♦ Á9
♣ Á8632
Vestur Austur
♠ Á62 ♠ 5
♥ KD9 ♥ G10853
♦ KG10 ♦ D7654
♣ KDG10 ♣ 94
Suður
♠ DG109874
♥ 6
♦ 832
♣ 75
Vestur svarar með hjarta-
kóng. Ásinn tekur þann slag
og lauf er trompað. Og nú
kemur lykilspilamennskan –
smár tígull frá báðum hönd-
um. Ef vörnin mætir því með
spaðaás og spaða, fæst inn-
koma á spaðakóng til að
trompa laufið frítt með tíg-
ulásinn enn í blindum. Ann-
ars má trompa þriðja tígul-
inn.
En aftur að sögnum. Ef
norður redoblar, hrökklast
austur í fjögur hjörtu og
hvað á norður þá að gera?
Hann mun sjá eftir því að
dobla, því öll uppskeran er
ásarnir þrír. Norður valdi því
greinilega réttu sögnina að
hækka í fjóra spaða. Þannig
fór hann í samning sem var
líklegur til að vinnast og setti
aukinn þrýsting á mótherj-
ana. Þetta er stundum orðað
svo: Í sagnbaráttu er oftast
best að láta mótherjana um
síðustu ákvörðunina.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Árnað heilla
100 ÁRA afmæli.Hundrað ára verð-
ur mánudaginn 5. mars Guð-
munda Guðmundsdóttir frá
Búðum í Grindavík. Eigin-
maður hennar Guðlaugur
Þórðarson sjómaður lést 6.
ágúst 1962. Guðmunda er
vistmaður á Hrafnistu í
Reykjavík. Hún dvelur með
ættingjum sínum á afmælis-
daginn.
75 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag-
inn 5. mars, verður Kristinn
P. Michelsen, Skólabraut 3,
Seltjarnarnesi, 75 ára. Sam-
býliskona hans er Margrét
Þorgeirsdóttir. Þau verða
að heiman.
50 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 4.
mars, er fimmtugur Björn
Ingi Christensen, kjötiðn-
aðarmeistari, Ásbúð 56,
Garðabæ. Hann er að heim-
an í dag.
50 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 4.
mars, er fimmtugur Krist-
ján Friðþjófsson, Huldu-
braut 5, Kópavogi. Hann er
að heiman í dag.
Ekki alls fyrir löngu var í
þessum pistlum rætt um
beygingu sérnafnsins Ár-
vakur og í framhaldi af
því um no. faraldur og
tvenns konar beygingu
þess. Vonast ég til, að sú
umræða hafi vakið ein-
hverja lesendur til um-
hugsunar. Nú hefur bætzt
við enn eitt orð, þar sem
fallbeyging þess virðist
vefjast fyrir mönnum. Er
það no. höldur, sem merk-
ir samkv. OM. óðalsbóndi
en var áður einnig haft
um jarðeiganda. Þetta no.
mun ekki algengt í nútíð-
armáli en menn kannast
áreiðanlega við það í sam-
setningunni búhöldur,
sem haft er um bónda,
einkum stórbónda eða
góðbónda. Svo er ljóst, að
ýmsir halda, að höldur
beygist eins og no. akur
eða faraldur, sem áður
hefur verið minnzt á.
Þannig er ekki, því að
höldur er hreinn a-stofn,
þar sem r-ið helzt ekki í
öllum föllum. Í blaðinu
Degi 9. febr. sl. var þessi
regla brotin, vafalaust
fyrir misskilning. Þar er á
2. bls. talað um einn af
stofnendum Höldurs á
Akureyri. Og síðar í sömu
frétt er talað um fram-
kvæmdastjóra fyrirtækis-
ins og sagt, „en hann hef-
ur um árabil starfað hjá
Höld.“ Hér hefur blaða-
maður ruglazt heldur bet-
ur í ríminu.
No. beygist svo: í et.
höldur, um höld, frá höldi,
til hölds og í ft. höldar,
hölda, höldum, hölda. Því
var annar maðurinn
stofnandi Hölds, ekki
Höldurs, en hinn hafði
lengi starfað hjá Höldi. –
J.A.J.
ORÐABÓKIN
Höldur
Meðvirkni
Námskeið um meðvirkni, samskipti, tjá-
skipti og tilfinningar verður haldið föstu-
dagskvöldið 16. mars og laugardaginn
17. mars í kórkjallara Hallgrímskirkju.
Nánari upplýsingar
og skráning í síma 553 8800.
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið
Stefán Jóhannsson,
MA, fjölskylduráðgjafi
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
Opinn fundur skóla- og
fræðslunefndar Sjálfstæðisflokksins
Er menntun fjárfesting?
Frummælendur:
Runólfur Ágústsson
rektor Viðskiptaháskólans Bifröst
Áslaug B.
Guðmundardóttir
sérfræðingur í fræðslumálum
Magnús Ragnarsson
markaðsstjóri
Ketill B. Magnússon
MA í heimspeki
Fundarstjóri:
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
alþingismaður
Almennar umræður verða að
framsöguerindum loknum.
Allt áhugafólk um háskólamenntun,
endurmenntun og símenntun velkomið.
Fundarstaður: Valhöll,
Háaleitisbraut 1.
www.xd.is, sími 515 1700
Þriðjudaginn 6. mars kl. 17.15-18.30 í Valhöll
Viktoria Antik Síðumúla 34 Sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18,
lau. frá kl. 11-17,
sun. kl. 13-17
Til fermingargjafa
Skrifborð - Skrifborðsstólar
Kommóður - Bókahillur
Fyrir
fermingarveisluna
Borðstofusett -
Stök borð og stólar
Gömul dönsk postulínsstell
Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, situr í félagsmálanefnd
og utanríkisnefnd Alþingis.
Steingrímur verður til viðtals á skrifstofu
flokksins í Hafnarstræti 20, 3. hæð,
kl. 16–18 á morgun, mánudaginn 5. mars.
Allir velkomnir.
Steingrímur J.
Sigfússon
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík
Njálsgötu 86,
s. 552 0978
Vöggusængur,
vöggusett,
barnafatnaður
LJÓÐABROT
Sveitin mín
Fjalladrottning, móðir mín!
mér svo kær og hjartabundin,
sæll ég bý við brjóstin þín,
blessuð aldna fóstra mín.
Hér á andinn óðöl sín
öll, sem verða á jörðu fundin.
Fjalladrottning, móðir mín,
mér svo kær og hjarta bundin.
Blessuð sértu, sveitin mín,
sumar vetur, ár og daga.
Engið, fjöllin, áin þín,
yndislega sveitin mín,
heilla mig og heim til sín
huga minn úr fjarlægð draga.
Blessuð sértu sveitin mín,
sumar, vetur, ár og daga.
- - -
Sigurður Jónsson frá Arnarvatni