Morgunblaðið - 14.03.2001, Side 1

Morgunblaðið - 14.03.2001, Side 1
61. TBL. 89. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 14. MARS 2001 FYRSTA staðfesta tilfelli gin- og klaufaveiki á meginlandi Evrópu greindist í Frakklandi í gær. Er þetta í fyrsta sinni í 20 ár sem gin- og klaufaveiki blossar upp í Frakklandi. Lönd Evrópusam- bandsins (ESB), Sviss, Pólland og Noregur bönnuðu innflutning á klaufdýrum frá Frakklandi. Bandarísk stjórnvöld greindu frá því að tímabundið bann hefði verið sett á innflutning kjöts og búfjár frá þeim löndum ESB þar sem spurst hefði til gin- og klaufaveiki. Kanadísk stjórnvöld lögðu bann við öllum innflutningi landbúnað- arvara frá löndum ESB. Argentínsk stjórnvöld staðfestu að gin- og klaufaveiki hefði greinst þar í landi í gær. ESB bannaði í kjölfarið innflutning búfjár, kjöts og mjólkurafurða þaðan. Bannið verður endurskoðað 15. apríl. Í Bretlandi, þar sem faraldurinn braust út þann 19. febrúar sl., var tilkynnt um 17 ný tilfelli í gær og hefur gin- og klaufaveiki því greinst á rúmlega 200 býlum þar. Faraldurinn gæti breiðst út Gin- og klaufaveiki greindist í a.m.k. sex kúm í Mayenne í N- Frakklandi í gær. Franski land- búnaðarráðherrann, Jean Glavany, varaði við því að tilfellum gæti átt eftir að fjölga. Ef sjúkdómurinn breiðist út í Frakklandi líkt og hann hefur gert í Bretlandi á það eftir að verða frönskum landbún- aði mikið áfall, en hann er enn í sárum vegna afleiðinga kúariðu. Frakkar flytja næstmest allra þjóða út af landbúnaðarafurðum. Sérfræðingar ESB á sviði dýra- lækninga boðuðu til neyðarfundar í gær í kjölfar fréttanna frá Frakklandi. Auk þess að banna út- flutning búfjár í a.m.k. tvær vikur afréð nefndin að banna allan út- flutning mjólkurafurða og kjöts frá Mayenne og Orne umdæmun- um. Sýktu nautgripirnir voru í 114 dýra hjörð og var strax hafist handa við að slátra henni. Hjörðin hafði verið í grennd við gripi sem fluttir voru inn frá Bretlandi og slátrað var í byrjun mánaðarins. Yfir 40.000 dýrum hefur verið slátrað í Frakklandi síðan gin- og klaufaveiki kom upp í Bretlandi. Norskur misskilningur Sá misskilningur komst á kreik í gær að Norðmenn hefðu bannað allan innflutning á landbúnaðar- afurðum frá löndum ESB og EFTA og þar með talið frá Ís- landi. Síðar kom í ljós að röng fréttatilkynning hafði verið sett á vefsíðu ríkisstjórnarinnar. Norð- menn höfðu eingöngu sett inn- flutningsbann á franskar landbún- aðarafurðir en fyrir var bann á breskum og n-írskum afurðum. Ítalskir embættismenn tilkynntu í gær að rannsókn væri hafin á fyrsta meinta tilfelli gin- og klaufaveiki þar í landi, í Abruzzi héraðinu á Mið-Ítalíu. Fyrstu rannsóknir, á sauðahjörð sem flutt var inn frá Frakklandi og víðar að, sýndu að hún hefði komist í tæri við gin- og klaufaveiki, en ekki var talið víst að hún væri smituð. Gripið til víðtækra ráðstafana gegn útbreiðslu gin- og klaufaveiki Staðfest tilfelli í Frakk- landi og Argentínu París, Brussel. AFP, AP. AP Hræ nautgripa brennd í Frakklandi í gær. Þeim var slátrað eftir að gin- og klaufaveiki greindist í hjörðinni.  Mikið áfall/26 EGYPSKUR leiðsögumaður tók fjóra þýska ferðamenn í gíslingu í fyrradag og segist ekki munu láta þá lausa fyrr en synir hans tveir, sem búa í Þýskalandi ásamt móður sinni, snúi aftur til Egyptalands. Konan, sem er þýsk, yfirgaf mann- inn fyrir einu og hálfu ári. Þýsk og egypsk stjórnvöld greindu frá þessum atburði í gær- dag. Þau eiga nú í samningavið- ræðum við manninn. Maðurinn, Ibrahim Said Mussa, er vopnaður byssu og sögðu embættismenn þýska utanríkisráðuneytisins að skipuð hefði verið sérstök neyðar- nefnd til að fást við málið. Að sögn egypska innanríkisráðu- neytisins er ferðamönnunum haldið föngnum í íbúð í borginni Lúxor, sem er um 500 km suður af Kairó. AFP-fréttastofan náði örstuttu símtali við manninn í gær og sagði hann vilja endurheimta forræði yfir sonum sínum. „Það eina sem ég vil er börnin mín. Eiginkona mín fór með börnin mín... Ég hef ekki séð þau og ekki fengið að tala við þau í síma síðan þá,“ sagði hann við AFP. Að sögn egypsku lögreglunnar hafnaði maðurinn milligöngu nefnd- ar þýska sendiráðsins. Mussa sagði við AFP að sendiráðið hefði neitað sér um áritun til Þýskalands. Fréttastofan ræddi einnig við einn gíslanna, Marco Wedekind, og sagði hann að vel væri farið með þá. Egyptaland Ferðamenn í haldi leið- sögumanns Kairó, Lúxor. AP, AFP. BANDARÍSKA hlutabréfavísitalan Nasdaq rétti úr kútnum í gær þegar fjárfestar reyndu að notfæra sér lágt gengi tæknifyrirtækja til að gera kjarakaup eftir mikla lækkun vísitöl- unnar í fyrradag. Nasdaq hækkaði um 78 stig, eða 4,5%, í 2.001 stig. Vísitalan hefur lækkað um tæp 62% frá 10. mars á síðasta ári þegar hún var hæst, 5.048 stig. „Markaðurinn var stórlega ofmet- inn fyrir ári og við teljum að matið á hlutabréfunum sé nú orðið skynsam- legt þótt þau séu ekki enn ódýr,“ sagði James Oberweis, forstjóri Oberweis Asset Management. Dow Jones lækkaði hins vegar um 67 stig, eða 0,66%, eftir fimmta mesta fall í sögu vísitölunnar daginn áður. Gengi hlutabréfa lækkaði veru- lega í Asíu, einkum í Japan þar sem Nikkei-vísitalan lækkaði um 2,89%. Evrópska hlutabréfavísitalan, FTSE 300, lækkaði um 1,06% og hef- ur ekki verið jafn lág í 16 mánuði. Nasdaq réttir úr kútnum New York. Reuters, AP. ALFRED Sirven, fyrrverandi að- stoðarforstjóri franska risaolíufyrir- tækisins Elf, neitaði í gær að bera vitni í réttarhöldum í einu umtal- aðasta spillingarmáli sem upp hefur komið í Frakklandi. Búist hafði verið við því að vitnisburður Sirven, sem handtekinn var á Filippseyjum í síð- asta mánuði eftir fjögur ár á flótta, myndi varpa ljósi á misnotkun á sjóðum olíufyrirtækisins sem áður var í ríkiseigu. Ríkissaksóknarinn, Jean-Pierre Champrenault, sakaði Sirven um að reyna vísvitandi að hindra framgang réttlætisins. Hann sagði Sirven og hafa sýnt mikinn heigulshátt er hann lagði á flótta. Saksóknarinn sagðist mundu taka mið af hegðun Sirvens við uppkvaðningu dómsins. Á leiðinni út úr réttarsalnum heyrðist Sirven muldra „ég læt vini mína um útskýringarnar“. Þar er talið að hann eigi við þá sex aðra sem kærðir hafa verið fyrir aðild að mál- inu en þar á meðal eru Roland Dum- as, fyrrverandi utanríkisráðherra, fyrrverandi hjákona hans, Christine Deviers-Joncour, og Loik Le Floch- Prigent, fyrrverandi forstjóri Elf. Sirven er ákærður fyrir að hafa stýrt ólöglegum sjóðum Elf sem talið er að hafi verið notaðir til mútu- greiðslna og ýmissa vafasamra við- skipta. Sirven sagðist ekki vilja svara spurningum sem tengdust eingöngu meintri misnotkun á sjóðum Elf. Auka þyrfti umfang réttarhaldanna þannig að þau tækju einnig til um- deildrar sölu, sem tengdist Elf, á herskipum til Taívan árið 1991. Sirv- en sagðist ekki geta varið sig á full- nægjandi hátt þar sem niðurstöður rannsóknar á sölu herskipanna lægju ekki fyrir. Réttarhald í frönsku spillingarmáli Sirven neitar að bera vitni París. AFP, AP. LÖGREGLA beitti tára- gasi og barsmíðum gegn námsmönnum sem köst- uðu grjóti og bensín- sprengjum fyrir utan skrifstofur Golkar- flokksins í Jakarta, höf- uðborg Indónesíu, í gær. Forseti landsins, Abd- urrahman Wahid, virti að vettugi háværar kröfur um að hann segði af sér. Bæði andstæðingar og stuðningsmenn forsetans létu til sín taka fyrir utan höfuðstöðvar Golkar, en flokkurinn var áður stjórntæki Suhartos, fyrr- verandi einræðisherra í landinu. Nú berst flokk- urinn fyrir afsögn Wahids. Mikil lækkun varð á gengi hlutabréfa í kaup- höllinni í Jakarta í gær, annan daginn í röð, og varð seðla- bankinn að skerast í leikinn til að bæta gengi indónesíska gjaldmið- ilsins, rúpíunnar, eftir að aðstoð- armenn Wahids tilkynntu að hann hefði aflýst öllum opinberum emb- ættisverkum til að hvílast. Þeir neituðu því aftur á móti að heilsu forsetans, sem er 61 árs, næstum blindur og hefur fengið nokkur heilablóðföll, hefði hrakað vegna stjórnmálaástandsins í landinu. AP Átök í Jakarta Jakarta. AP. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.