Morgunblaðið - 14.03.2001, Page 18
AKUREYRI
18 MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LEIKFÉLAG Akureyrar mun hafa
eina aukasýningu á gamanleikritinu
Gleðigjöfunum eftir Neil Simon
laugardaginn 24. mars nk. vegna
mikillar eftirspurnar. Gleðigjafarnir
er eitt vinsælasta og víðförlasta
gamanleikrit þessa bandaríska leik-
skálds og heitir á frummálinu „The
Sunshine Boys“. Það var Gísli Rúnar
Jónsson sem þýddi Gleðigjafana og
aðlagaði að íslenskum aðstæðum og
nútíma, leikritið gerist nú á Akureyri
og sögutíminn er dagurinn í dag.
Leikritið fjallar um gamanleikja-
parið Villa Breiðfjörð og Kalla Frí-
manns. Þeir störfuðu saman sem
skemmtikraftar í yfir 40 ár og voru í
hópi vinsælustu skemmtikrafta
landsins. Benni, sem er bróðursonur
Villa og umboðsmaður, kemur að
máli við karlana, sem eru orðnir vel
rosknir menn og að mestu sestir í
helgan stein, og fær þá til að hittast
og æfa eitt af gömlu atriðunum sín-
um fyrir þátt á Stöð 2. Það gengur
ekki þrautalaust og eiga þeir ýmis-
legt óuppgert frá árum áður. Sam-
skipti þeirra eru kostuleg og orða-
hríðin milli þeirra bæði óvægin og
beitt. Atburðarásin tekur síðan
óvænta stefnu og ekkert fer eins og
til var ætlast.
Saga Jónsdóttir leikstýrir verk-
inu. Hallmundur Kristinsson gerir
leikmynd og búninga. Ingvar
Björnsson lýsir. Gunnar Sigur-
björnsson gerir hljóðmynd. Þráinn
Karlsson leikur Villa Breiðfjörð. Að-
alsteinn Bergdal leikur Kalla Frí-
manns, Skúli Gautason leikur Benna
Breiðfjörð. Sunna Borg leikur hjúkr-
unarkonu. Í öðrum hlutverkum:
Tinna Smáradóttir (nemi í MA), Jón-
steinn Aðalsteinsson, Herdís Jóns-
dóttir, Þórarinn Blöndal og Hjálmar
Hjálmarsson leikur kynni í Sjón-
varpi og þulur í sjónvarpi er Björg-
vin Halldórsson.
Leikfélag Akureyrar
Aukasýning á
Gleðigjöfunum
TVÍTUGUR karlmaður hefur í
Héraðsdómi Norðurlands eystra
verið dæmdur í 7 mánaða fangelsi
vegna þjófnaðarbrota en 6 mánuðir
eru skilorðsbundnir til þriggja ára.
Félagi hans, tæplega tvítugur, var
dæmdur í 45 daga fangelsi skilorðs-
bundið til tveggja ára. Þá var þeim
gert að greiða nokkra upphæð í
skaðabætur auk þess að greiða mál-
svarnarlaun.
Mennirnir tveir voru ákærðir fyr-
ir fjölda þjófnaðarbrota en þau voru
flest framin á tímabilinu frá síðasta
sumri og fram eftir haustinu. Meðal
þess sem þeir voru ákærðir fyrir
var stuldur á tékka úr ólæstri bif-
reið í miðbæ Akureyrar að upphæð
25 þúsund krónur og öðrum að upp-
hæð 3 þúsund. Myndavél og linsa,
skothylkjaklemma og skot, geisla-
diskar, ferðageilsaspilari, kassettu-
tæki og peningar voru á meðal þess
sem mennirnir tóku ófrjálsri hendi
og oftast úr ólæstum bifreiðum.
Þá var einnig kært vegna tveggja
innbrota í Endurvinnsluna en þaðan
höfðu mennirnir á brott með sér
nokkra peningaupphæð í hvort sinn.
Loks var mönnunum gefið að sök að
hafa stolið súrmjólk og þremur
samlokum í innbrot í Skinnaiðnað í
fyrrahaust.
Játuðu mennirnir greiðlega þá
háttsemi sem þeim var gefin að sök.
Yngri maðurinn hafði ekki brotið
af sér áður en í umræddum málum
gerðist hann sekur um 7 þjófnaðar-
brot, ýmist einn eða með félaga sín-
um. Eldri maðurinn hlaut skilorðs-
bundinn dóm vegna 6
þjófnaðarbrota árið 1999 og á ný
vegna 8 þjófnaðarbrota árið 2000. Í
því máli sem nú var til umfjöllunar
gerðist hann sekur um 9 þjófnaðar-
brot. Hann hefur verið skjólstæð-
ingur félagsmálayfirvalda og verið
undir eftirliti Fangelsismálastofn-
unar síðustu misseri og þykja að-
stæður hans að sumu leyti vænlegri
en oft áður en maðurinn hefur
stundað atvinnu frá áramótum. Því
þótti fært að skilorðsbinda 6 mánuði
af þeim 7 mánaða fangelsisdómi
sem maðurinn hlaut, en þar var
einnig horft til andlegra erfiðleika,
ungs aldurs og skýlausrar játning-
ar.
Tveir karlmenn dæmdir í Héraðsdómi Norðurlands eystra
Í fangelsi vegna
fjölda þjófnaða
Ólafsfirði - Íslandsmótið í dorg-
veiði var haldið í Ólafsfirði laug-
ardaginn 10. mars. Um 50 manns
voru skráðir og var veiði þokkaleg
þegar upp var staðið, en alls veidd-
ust um 40 fiskar, mest bleikja og
koli. Íslandsmeistari var Tómas
Gunnarsson úr Reykjadal í Þing-
eyjarsýslu.
Keppt var í flokki eldri og yngri.
Í flokki yngri voru veitt eftirtalin
verðlaun: Fyrsti fiskurinn: Elmar
Heiðarsson. Stærsti fiskurinn:
Elmar Heiðarsson. Flestir fiskar:
Saga Karen Björnsdóttir. Í flokki
eldri: Fyrsti fiskurinn: Sunisa
Otharit. Stærsti fiskurinn: Jakob
Óðinsson. Flestir fiskar: Tómas
Gunnarsson. Minnsta fiskinn veiddi
Ásgeir Bjarnason. Yngsti keppand-
inn var Jóhannes Tómasson,
tveggja ára, en hann er sonur Ís-
landsmeistarans. Elsti keppandinn
var Sigurgeir Hólmgeirsson
Framan af degi veiddist sáralít-
ið. Mótið hófst kl. 11 og að tveimur
tímum liðnum hafði aðeins ein
bleikja veiðst. Leist mönnum ekk-
ert á blikuna. En svo rættist heldur
betur úr veiðinni, en hún fór fram
á þremur stöðum.
Veður var blautt í morgunsárið
en mjög gott eftir hádegi, hlýtt og
milt. Að móti loknu var verðlauna-
afhending og kaffisamsæti á hót-
elinu.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Keppendur sem tóku þátt í Íslandsmótinu í dorgveiði á Ólafsfirði.
Um 50 manns dorguðu
á Ólafsfjarðarvatni
NÁMSKEIÐIÐ Ferðaþjónustan og
samfélagið í umsjón Arnars Más
Ólafssonar, lektors, brautarstjóra
ferðamálabrautar HA og forstöðu-
manns Ferðamálaseturs Íslands
hefst fimmtudaginn 15. mars kl.
17:15 í Þingvallastræti 23.
Á námskeiðinu verður m.a. fjallað
umsögu og þróun ferðaþjónustu.
Eðli hennar, einkenni og gildi.
Helstu tegundir ferðaþjónustu.
Ferðamennsku sem samfélagslegt
fyrirbrigði og skýringar fræðimanna
á því hvers vegna fólk ferðast.
Ímynd og ferðamennsku. Tómstund-
ir og afþreyingu. Stöðu ferðaþjón-
ustu í þjóðfélaginu og heiminum.
Hagræn, náttúruleg, félags- og
menningarleg áhrif ferðamennsku
og ferðaþjónustu sem og framtíðar-
horfur í ferðaþjónustu.
Námskeið um
ferðaþjónustu
og samfélagið
FULLTRÚI frá tölvudeild Háskól-
ans í Skövde í Svíþjóð verður á Ís-
landi 16.–19. mars og kynnir tölvu-
nám við skólann. Föstudaginn 16.
mars verður kynningarfundur í
Menntaskólanum á Akureyri klukk-
an 14.30.
Tölvudeild Háskólans í Skövde
býður upp á BS-nám á breiðu sviði
tölvufræða auk þess sem kostur
gefst á meistaranámi í tölvunar-
fræði við deildina. Deildin er mjög
vel tækjum búin, í húsnæði sér-
staklega byggðu með kennslu og
rannsóknir í tölvuvísindum í huga.
Um 600 manns stunda nám við
tölvudeildina. Við deildina fara
fram rannsóknir á sviðum raun-
tímakerfa, gervigreindar, gagna-
grunna, þróun upplýsingakerfa,
hugfræði og líftölvunarfræði. Á
þessum vetri hafa um 25 íslenskir
námsmenn verið við nám í Skövde í
tölvu- og líftölvunarfræði.
Umsóknarfrestur til náms við
tölvudeild Háskólans í Skövde
rennur út 15. maí fyrir íslenska um-
sækjendur ef notað er sérstakt um-
sóknareyðublað. Almennar forkröf-
ur eru stúdentspróf. Umsóknarblöð
og upplýsingaefni á íslensku er að
finna á Netinu: www.his.se/ida/is-
land/.
Nám á haustönn hefst 20. ágúst.
Íslenskum umsækjendum verður
veitt aðstoð við útvegun húsnæðis
og fáist næg þátttaka verður boðið
upp á sænskunámskeið í byrjun
haustannar.
Kynning
á tölvu-
námi
Háskólinn í
Skövde í Svíþjóð
STELPURNAR í þriðja flokki Þórs
urðu Íslandsmeistarar í innanhúss-
knattspyrnu á dögunum eftir góðan
4:3-sigur á Stjörnustúlkum í úrslita-
leik. Í undanúrslitum lagði Þór
Breiðablik að velli 2:1 en í hinum
undanúrslitaleiknum vann Stjarnan
Val 7:1.
Mótið fór fram í Valsheimilinu og
lék Þór í riðli með Fjölni, Leikni
Fárskrúðsfirði og Val. Þór vann
Fjölni 5:2 og Leikni 3:0, tapaði fyrir
Val 1:4 en hafði eigi að síður sigur í
riðlinum.
Með þessum glæsta sigri fetuðu
stelpurnar í fótspor strákanna í
meistaraflokki félagsins sem urðu
Íslandsmeistarar innanhúss fyrr á
árinu.
Þórsstelpur
Íslands-
meistarar
Morgunblaðið/Kristján
Þórsstelpur fagna titlinum. Efri röð f.v. Bjarney Sigurðardóttir, Rakel Hinriksdóttir, Telma Glóey Jónsdóttir,
Theódóra Gunnarsdóttir, Elma Grétarsdóttir og Jónas Sigursteinsson þjálfari. Fremri röð f.v. Jónína Ásgríms-
dóttir, Björk Nóadóttir fyrirliði, Sandra Sigmundsdóttir, Katrín Vilhjálmsdóttir og Kristín Baldvinsdóttir.