Morgunblaðið - 14.03.2001, Síða 19

Morgunblaðið - 14.03.2001, Síða 19
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 19 SÍÐASTA sýning á Sniglaveisl- unni eftir Ólaf Jóhann Ólafsson hjá Leikfélagi Akureyrar verð- ur í Samkomuhúsinu á laugar- dag, 17. mars, kl. 20. Leikfélag Akureyrar frumsýndi Snigla- veisluna í febrúar síðastliðnum. Þetta er ný leikgerð unnin eftir þessari vinsælu skáldsögu Ólafs Jóhanns, sem kom út árið 1994 og vakti mikla og verð- skuldaða athygli. Sýningin hlaut einróma lof gagnrýnenda, segir í fréttatil- kynningu, og hefur verið sýnd fyrir fullu húsi í Samkomuhús- inu á Akureyri en nú er komið að því að flytja sýninguna til Reykjavíkur og verður hún sýnd í Iðnó frá 21. mars. Leikgerðina gerðu Sigurður Hróarsson og Ólafur Jóhann Ólafsson. Gunnar Eyjólfsson leikur Gils Thordarsen, í öðrum hlutverkum eru: Sigurþór Al- bert Heimisson, Sunna Borg og Hrefna Hallgrímsdóttir. Leik- stjóri er Sigurður Sigurjóns- son, leikmynd og búninga gerir Elín Edda Árnadóttir, lýsingu hannar Halldór Örn Óskarsson og hljóðmynd Hilmar Örn Hilmarsson. Sýningin er samvinnuverk- efni við Leikfélag Íslands. Síðasta sýning á Snigla- veislunni EFTIR mikla ofankomu í síðustu viku var töluverður snjór á Ak- ureyri og þurfti því að ræsa snjó- ruðningstæki í snjómokstur. Greið- lega gekk að hreinsa götur bæjarins sem nú eru allar orðnar auðar og greiðfærar. Töluvert miklir snjóskaflar söfnuðust fyrir víða vegna snjómokstursins og alla síðustu viku voru vörubílar notaðir til að keyra snjóinn í sjóinn. Einnig var töluverðu snjómagni sturtað í Glerána og í gær var enn verið að keyra snjó í ána. Hilmar Gíslason bæjarverkstjóri sagði að vorið væri á næsta leiti og snjómokstri hefði því að mestu ver- ið hætt. „Þetta hefur verið dásam- legur vetur og nú bíðum við bara eftir því að geta hafið vorhreins- unina og við erum reyndar þegar byrjaðir að hreinsa upp sand af göt- um bæjarins.“ Snjóinn í sjóinn Morgunblaðið/Kristján EKIÐ var á unga stúlku um eða laust eftir miðnætti aðfaranótt síð- asta laugardags á Strandgötu, á milli Nætursölunnar og BSO. Stúlkan kvaðst þá ómeidd en nú hefur komið í ljós að svo er ekki þannig að rann- sóknardeild lögreglunnar á Akur- eyri óskar eftir því að bílstjórinn eða vitni að ákeyrslunni hafi samband við lögreglustöð vegna málsins. Um var að ræða hvítan fólksbíl. Rannsóknardeild lög- reglunnar á Akureyri Ökumaður gefi sig fram Golfkúlur 3 stk. í pakka aðeins 850 kr. NETVERSLUN Á mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.