Morgunblaðið - 14.03.2001, Page 23

Morgunblaðið - 14.03.2001, Page 23
VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 23 SAMA dag og starfsmenn Ericsson komust ekki til vinnu í Kista-hverf- inu, Kísildal þeirra Svía, vegna raf- magnsleysis gaf fyrirtækið út af- komuviðvörun. Í yfirlýsingunni segir að tap Ericsson á fyrsta fjórðungi þessa árs verði um fjórir til fimm milljarðar sænskra króna eða um 34 til 43 milljarðar króna. Niðurstaðan er mun verri en búist hafði verið við. Ericsson hafði áður sagt að reikna mætti með að fyrirtækið væri rekið á núlli á fyrsta ársfjórðungi 2001. Rétt fyrir viðvörunina var viðskiptum með bréf Ericsson hætt og eftir að þau hófust aftur lækkuðu þau um 20% og á nokkrum klukkutímum féll markaðsvirði félagsins um 1.300 milljarða íslenskra króna. Hlutabréfavísitalan í Stokkhólmi lækkaði um tæp sex prósent á mánu- dag. Bréfin lækkuðu síðan um tíu prósent til viðbótar við upphaf við- skipta í gær. Hvert hlutabréf selst nú á um 60 sænskar krónur en komst hæst í 228 krónur sænskar í mars 2000 eða fyrir um ári. Verð hluta- bréfanna er nú svipað og um mitt ár 1999. Seint á árinu 1999 og í byrjun árs 2000 steig verð hlutabréfanna hratt og fór úr rúmum 60 sænskum krón- um í 228 á nokkrum mánuðum. Síðan hefur leiðin legið niður á við. Mark- aðsvirði fyrirtækisins hefur lækkað um ellefu þúsund milljarða síðan það var hæst í mars 2000. Nú er Ericsson metið á sex þúsund milljarða ís- lenskra króna. Fyrirtækið rekur tapið fyrst og fremst til hægari vaxtar á mörkuð- um en gert var ráð fyrir. Á Banda- ríkjamarkaði færi hagvöxtur minnk- andi og viðskiptavinir Ericsson væru í auknum mæli að fresta þeim fjár- festingum sem voru fyrirhugaðar. Á Evrópumarkaði væri einnig útlit fyr- ir minni sölu en áætlanir gerðu ráð fyrir. Viðskiptavinir fyrirtækisins héldu að sér höndum vegna óvissu um markaðshorfur og viss mettun á markaði ætti sér stað. Salan í heild stæði því í stað í stað þess að vaxa um fimmtán prósent eins og gert var ráð fyrir í upphaflegum áætlunum. Við þetta bætist tap á farsímafram- leiðslu og mikill þróunarkostnaður vegna þriðju kynslóðar farsíma. Framleiðsla á farsímum var nýverið látin í hendur fyrirtækisins Flex- tronics sem hefur einbeitt sér að framleiðslu þeirra og framleiðir meðal annars síma fyrir keppinaut- inn Motorola. Vandamálið hins vegar núna er að minnkandi hagvöxtur og óvissa á mörkuðum virðist hafa áhrif á öllum viðskiptasviðum fyrirtækis- ins en ekki bara í sölu á farsímum. Kom fjármálasérfræðingum á óvart Fréttin kom mörgum sérfræðing- um á fjármálamörkuðum á óvart. Svo mikið tap á einum ársfjórðungi væri fyrirboði um að eitthvað mikið væri að og áhrifanna kæmi ekki bara til með að gæta á fyrsta ársfjórðungi. Sérfræðingar sem versla mikið með bréf fyrirtækisins sögðu að fyrst svo væri komið yrði ekki ólíklegt að bréf- in lækkuðu niður í um fimmtíu sænskar krónur. Það sem væri sér- stakt áhyggjuefni væri slök afkoma á sviði sem hefði í gegnum tíðina skilað hvað mestum hagnaði og lýtur að uppbyggingu og sölu símkerfa. NTT DoCoMo í Japan, sem fyrst símafyrirtækja í heiminum mun bjóða upp á svokallaða þriðju kyn- slóð farsíma í maí næstkomandi, til- kynnti í gær að einungis tveir fram- leiðendur af ellefu væru tilbúnir með þriðju kynslóðar farsíma. Bæði fyr- irtækin eru japönsk, NEC og Mat- sushita. Sú staðreynd að Nokia og Ericsson skuli ekki geta framleitt þriðju kynslóðar símtæki í maí eru viss vonbrigði fyrir þessi tvö fyrir- tæki sem hingað til hafa verið leið- andi í tækniþróun og nýjungum á þessu sviði. Hingað til hefur verið talið að horfur hjá evrópskum fyr- irtækjum væru bjartari en hjá bandarískum vegna þess að hagvöxt- ur er nú meiri í Evrópu. Nú er hins vegar ljóst að slæmt efnahagsástand í Bandaríkjunum getur haft mikil áhrif á evrópsk fyrirtæki. Búast má við að Nokia þurfi að gefa út afkomuviðvörun en fyrirtæk- ið gerði ráð fyrir vexti í sölu upp á 35%. Sérfræðingar segja nú að sú tala sé allt of há miðað við aðstæður í dag. Sumir sérfræðingar halda því fram að nú sé botninum náð og við- snúningur á mörkuðum geti átt sér stað, sérstaklega í upplýsinga- og fjarskiptageiranum. Taprekstur Ericsson hefur víðtæk áhrif Stokkhólmi. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.