Morgunblaðið - 14.03.2001, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 14.03.2001, Qupperneq 24
ERLENT 24 MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ OLIVE LEAF EXTRACT FRÁ APÓTEKIN T al ið g o tt vi ð há ls b ó lg u o g fle ns u. MORÐ á 12 ára gamalli stúlku hefur vakið mikinn óhug í Þýskalandi og hafa sumir íhaldssamir þingmenn lagt til að notuð verði byltingar- kennd aðferð við að finna morðingj- ann. Það er, að safnað verði erfða- sýnum úr öllum fullorðnum karlmönnum í landinu, sem eru um 41 milljón. Sérfræðingar stjórnvalda í per- sónuverndarmálum segja tillöguna ekki fýsilega, hvorki lagalega né framkvæmdalega, og kallaði einn stjórnarþingmaður þetta „orwellska eftirlitsóra.“ Engu að síður eru þess dæmi að Þjóðverjar hafi með góðum árangri bælt sterka tilhneigingu sína til verndar einkalífs og leyft töku erfða- efnissýna, eða DNA, til rannsóknar á kynferðisafbrotamálum. Rannsókn á 16.400 körlum í norðvesturhluta landsins 1998 leiddi til handtöku manns sem viðurkenndi að hafa nauðgað og myrt 11 ára stúlku. En þessi kostur þykir ekki koma til greina í bænum Eberswalde, þar sem líkið af Ulrike Brandt fannst sl. fimmtudag, og hafði henni verið mis- þyrmt kynferðislega og hún myrt. Yfirvöld eru undir miklum þrýstingi um að ná árangri í rannsókn málsins. Eitt hundrað og þrjátíu lögreglu- menn sinna rannsókninni og hefur 190 þúsund marka fundarlaunum – eða tæpum 7,7 milljónum króna – verið heitið þeim sem veitt geti vís- bendingar er leiði til handtöku morð- ingjans. Það jók á þrýstinginn þegar lög- fræðilegur talsmaður Kristilega demókrataflokksins og Kristilega sósíalsambandsins, sem eru í stjórn- arandstöðu, Norbert Geis, hvatti til þess í viðtali við blaðið Bild am Sonn- tag að allir þýskir karlmenn gengj- ust undir próf, og bætti við að harð- ari refsingar hefðu ekki reynst nægjanlegar til að draga úr glæpum. Tillagan vakti hörð viðbrögð. Ráð- gjafi ríkisstjórnarinnar í persónu- verndarmálum, Joachim Jacom, benti á að samkvæmt þýskum lögum yrði grunur um afbrot að liggja fyrir áður en heimilt væri að leita gena- bundinna sérkenna. Jafnvel formaður Kristilega demókrataflokksins, Angela Merkel, sagði „stjórnarskrárleg vandkvæði“ á tillögunni. Morð á tólf ára gamalli stúlku vekur mikinn óhug í Þýskalandi Vilja taka DNA-sýni úr öllum karlmönnum Berlín. AP. BANDARÍSKUR hermaður, sem slasaðist þegar bandarísk herþota varpaði sprengju fyrir mistök á æf- ingu í Kúveit í fyrradag, var flutt- ur á sjúkrahús í Þýskalandi þar sem hann er talinn í lífshættu, að því er talsmaður sjúkrahússins greindi frá. Búist var við tveim öðrum mönnum, sem slösuðust í sprengingunni, á bandaríska Landstuhl-sjúkrahúsið skammt frá Ramstein í suðvesturhluta Þýska- lands, í gær eða dag. Foringi orrustuvélasveitar í bandaríska flotanum var við stjórnvölinn á F/A-18 Hornet-þot- unni sem varpaði um 230 kílóa sprengju sem varð sex manns að bana og slasaði sjö í eftirlitsstöð á æfingasvæði í eyðimörkinni í Kúv- eit í fyrrakvöld (um klukkan 16 síð- degis að íslenskum tíma), að því er bandarískir varnarmálafulltrúar greindu frá í gær. Fimm þeirra sem létust voru Bandaríkjamenn og einn var Nýsjálendingur. Allir sem létust og slösuðust voru eftirlitsmenn við æfinguna. Orrustuvélasveitin hefur aðsetur á flugmóðurskipinu Harry Truman sem er á Persaflóa. Sveit- arforingjar eru hátt settir her- menn og jafnan þrautreyndir flug- menn. Heræfingunum fram haldið Bandaríkjamenn og Kúveitar skipuðu í gær sameiginlega nefnd sem rannsaka á tildrög atburðar- ins. „Slysið mun engu breyta um sameiginlegar æfingar Kúveita og Bandaríkjamanna. Þeim verður fram haldið,“ sagði Sheik Jaber Mubarak al-Sabah, varnarmálaráð- herra Kúveit. Þær upplýsingar fengust hjá bandaríska sendiráðinu í Kúveit, að bandarískir rannsóknarmenn væru væntanlegir til landsins „nú í vikunni,“ en ekki var gefin upp ná- kvæm dagsetning. Varnarmálaráð- herra Nýja-Sjálands sagði að Bandaríkjamenn hefðu samþykkt að nýsjálenskur eftirlitsmaður yrði við rannsóknina. Talsmaður bandaríska varnar- málaráðuneytisins, David Lapan undirofursti, sagði að það hefði verið hluti af æfingunni að varpa sprengjunni. „Augljóslega missti sprengjan marks,“ sagði hann. Tal- ið er að um hafi verið að ræða Mark-82 sprengju sem er miðað án sérstakra miðunartækja. Annar varnarmálaráðuneytisfulltrúi sagði aftur á móti að sprengjan kunni að hafa verið búin leysigeislamiði. Bandarískar hersveitir stunda reglulega æfingar á þessu svæði, sem er í al-Udari eyðimörkinni, um 50 km suður af landamærum Íraks. Um 4.500 bandarískir hermenn eru staðsettir í Doha-búðunum vestur af Kúveitborg. Í síðasta mánuði endurnýjuðu Bandaríkin og Kúveit varnarsamning til tíu ára en hann var fyrst undirritaður eftir Persa- flóastríðið 1991. AP Bandarískir herbílar sem eyðilögðust þegar sprengjunni var varpað á æfingasvæðið í Kúveit. Sex féllu er sprengja frá bandarískri herþotu missti marks Háttsettur foringi var við stjórnvölinn Ramstein í Þýskalandi, Kúveit, Washington. AFP, Reuters. NORÐUR-Kóreumenn aflýstu á síðustu stundu fyrirhuguðum viðræðum við háttsetta ráða- menn frá Suður-Kóreu, sem hefjast áttu í gær. Engin form- leg ástæða var gefin en stjórn- málaskýrendur töldu að hana mætti hugsanlega rekja til harðnandi afstöðu Bandaríkja- stjórnar gagnvart kommún- istastjórninni í Pyongyang. Fyrirhugað var að háttsettur ráðherra, Jon Kum-Jin, færi fyrir sendinefnd Norður-Kór- eumanna til Seoul, höfuðborgar Suður-Kóreu, í gær. Viðræð- urnar áttu fyrst og fremst að snúast um fyrirhugaða heim- sókn Kim Jong-Il, leiðtoga Norður-Kóreu, þangað en einn- ig átti að ræða leiðir til að draga úr hernaðarlegri spennu milli Kóreuríkjanna. Boðað var til neyðarfundar suður-kóresku stjórnarinnar eftir að viðræðunum var aflýst í gær. Að sögn embættismanna mótmælti ráðherra sameining- armála framkomu Norður-Kór- eumanna harðlega og sendi yf- irlýsingu til stjórnvalda í Pyongyang, þar sem hann harmar að viðræðunum hafi verið aflýst og hvetur til þess að þær verði hafnar sem fyrst. Mótmæli vegna yfirlýsinga Bandaríkjaforseta? George W. Bush Bandaríkja- forseti gaf fyrirheit um harðari afstöðu Bandaríkjastjórnar gagnvart Norður-Kóreu á fundi sínum með Kim Dae- Jung, forseta Suður-Kóreu, í síðustu viku. Lét Bush meðal annars í ljósi þá skoðun að stjórnvöldum í Pyongyang væri ekki treystandi og utanríkis- ráðherrann Colin Powell lýsti því yfir að Bandaríkjastjórn ráðgerði ekki að ræða við Norð- ur-Kóreumenn um áform sín um að koma upp eldflauga- varnakerfi. Stjórnmálaskýrendur leiddu getum að því að Norður-Kór- eustjórn hefði verið að mót- mæla þessu með því að aflýsa viðræðunum í Seoul í gær. „Norður-Kóreumenn munu samt sem áður ekki aflýsa við- ræðunum endanlega og munu hafa samband við Suður-Kór- eumenn von bráðar,“ sagði Ryu Suk-Rur, sérfræðingur við ut- anríkis- og öryggismálastofnun Suður-Kóreu. N-Kóreu- menn af- lýstu við- ræðum Seoul. AFP, AP. ELDRA fólk í Danmörku mun hvorki hafa ráð á því né heldur treysta sér til þess að fara til út- landa, verði það að hafa meðferðis skrifleg vottorð fyrir öllum lyfjum sem það þarf að hafa með sér, að sögn forsvarsmanns Samtaka eldri borgara í Danmörku. Þegar Danir fullgilda Schengen- sáttmálann 25. mars nk. taka um leið gildi nýjar reglur um lyf sem inni- halda vímuvaldandi efni. Þetta þýðir að þeir sem þurfa að nota t.d. magn- ýl, tilteknar gerðir af hóstasaft, gikt- arlyf, róandi, sársaukastillandi og slakandi, verða að hafa skriflegt vottorð frá lækni fyrir hverju lyfi. Ennfremur þarf að senda vottorðin til heilbrigðisyfirvalda og fá þau staðfest. „Maður gæti haldið að það væri fyrsti apríl,“ sagði Bjarne Hastrup, framkvæmdastjóri Samtaka eldri borgara. Hann bendir á að þessi lyf séu notuð af mörgum eldri borgur- um. Þeir muni missa allan áhuga á ferðalögum „því að þeir munu aldrei geta áttað sig á svona flóknum reglum. Og eldra fólk kærir sig ekki um að brjóta gildandi reglur – og heldur því sig fremur heima hjá sér.“ Eldra fólk fer hvergi Danmörk
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.