Morgunblaðið - 14.03.2001, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 14.03.2001, Qupperneq 28
LISTIR 28 MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Á UNDANFÖRNUM ár-um hefur i8 átt stóranþátt í því að breyta list-flórunni í Reykjavík og þá ekki síst viðhorfum til sam- tímalistar. Í galleríinu hafa marg- ir helstu samtímalistamenn okkar sett upp sýningar sem margar hverjar teljast til tímamóta, auk heimsfrægra erlendra listamanna á borð við Tony Cragg, Roni Horn og Catherine Yass, sem ekki hafa hikað við að taka boði um að sýna í þessu smáa rými á Íslandi þar sem orðspor þess hef- ur borist víða um lönd. Þar til um síðustu áramót átti i8 sér hógvær- an og látlausan samastað í gömlu timburhúsi í Þingholtunum, en eigandi þess, Edda Jónsdóttir, ákvað þá að koma starfseminni í framtíðarhúsnæði á Klapparstíg þar sem verslunin Hamborg hafði verið um áratugabil. Gallerí i8 verður opnað á nýjum stað á föstudag, en stórfelldar breyting- ar hafa verið gerðar á húsnæðinu til þess að sníða það að þörfum nýrrar starfsemi og óhætt er að segja að þar verði eitt athygl- isverðasta sýningarrými borgar- innar. Hönnun rýmisins hefur verið í höndum Snædísar Úlriks- dóttur, en fyrsta sýningin á nýja staðnum verður á verkum vel þekkts þýsks listamanns, Karin Sander. „Þessir flutningar eru ákveðinn áfangi í sögu gallerísins,“ segir Edda Jónsdóttir, þegar hún er spurð um flutningana og þær breytingar sem verða á starfsemi gallerísins í kjölfar þeirra. „Hér er verið að taka starfsemina einu skrefi lengra. Gamla húsnæðið var orðið of lítið og sýnilegir möguleikar á að reksturinn gæti vaxið takmarkaðir. Þar var fyr- irtaksaðstaða til að hafa litlar sýningar þar sem nándin var mik- il, en erfitt að finna svigrúm til að viðra verk fleiri listamanna og gefa mynd af víðara sviði í mynd- listinni. Að fenginni þeirri reynslu sem ég öðlaðist þar langaði mig til að opna gallerí þar sem væri góður sýningarsalur, auk annars rýmis sem hefur upp á fjölbreytt- ari möguleika að bjóða.“ Þörfin fyrir svona starfsemi er brýn „Það má ekki gleyma því að i8 var upphaflega opnað sem eins konar tilraun, mig langaði til að kanna hvort það væri raunhæfur vettvangur fyrir svona starfsemi í Reykjavík. Það kom fljótt í ljós að þörfin fyrir svona gallerí er brýn og áhuginn mikill, en hins vegar var svo komið að ekki var hægt að efla starfsemina frekar nema með því að færa úr kvíarnar,“ út- skýrir Edda. „Þegar ég fór út úr Ingólfsstrætinu eygði ég mögu- leika á að láta þann draum rætast með því leggja það sem ég átti fyrir undir. Ég átti góða vinnu- stofu sem ég seldi til að geta látið þetta ganga upp. Áður en ég fór út í þennan gallerírekstur starfaði ég sem myndlistarmaður og á meðan ég var á gamla staðnum má segja að ég hafi gælt við að halda í báða heima, mína eigin listsköpun og galleríreksturinn. Ég sá þó fljótt að þannig rekur maður ekki fyrirtæki, maður verður að vera heill í því sem maður gerir. Annars hefði ekkert af þessu orðið að veruleika nema vegna þess að maðurinn minn hefur staðið við hlið mér eins og klettur og yngri sonur minn, Börkur Arnarson, hefur verið með frá upphafi, en hann hefur hannað allt efni fyrir i8. Í byrjun mótaðist áhugi minn af því að mig langaði til að vita hvernig listumhverfið liti út frá hinni hliðinni. Ég kom inn í þetta sem myndlistarmaður sem sá til- tölulega litla möguleika á að koma nútímalist á framfæri í góðu sýn- ingarrými, nema á söfnunum. Mig langaði til að kanna hvað hægt væri að gera erlendis, hvort ís- lenskir listamenn væru ekki það góðir að erlendum söfnurum þætti fengur í að kaupa verk þeirra. Eins fannst mér forvitni- legt að sjá hvort hér heima væri markaður fyrir þá tegund sam- tímalistar sem mér finnst hvað áhugaverðust. Ég gat ekki komist að þessu nema reyna það sjálf,“ segir hún. Nauðsynlegt að kynna íslenska list í alþjóðlegu samhengi „Starfseminni á nýja staðnum verður að einhverju leyti fundinn nýr farvegur, þótt ég haldi að sjálfsögðu fast í listrænt forræði sem felst í því grundvallaratriði að velja sjálf alla listamenn og bjóða þeim að sýna. Ég er nýbúin að ráða rekstrarstjóra til starfa, sem sér um viðskiptahliðina og daglegan rekstur, en starfsmað- urinn sem ég hafði áður er að fara í barnsburðarleyfi. Sjálf sé ég um listrænu hliðina. Þær vonir sem ég geri mér um að reksturinn á galleríinu geti gengið upp byggj- ast á því að þátttaka mín í alþjóð- legum listkaupstefnum á undan- förnum árum hefur leitt í ljós að það er mögulegt að selja íslenska list annars staðar. Það er einnig mögulegt að komast í samband við málsmetandi erlenda lista- menn og selja verk þeirra, því mér hefur tekist að koma upp samböndum við safnara sem hafa trú á stefnu i8 og fylgjast með öllu sem ég hef á boðstólum. Ann- að sem ég hef uppgötvað erlendis er að með því að sýna íslenska og erlenda listamenn saman er ég í raun að tefla fram fólki sem verð- ur að vera sátt hvað við annað og sitja við sama borð. Alþjóðlegu listamennirnir sem ég á í sam- starfi við verða því að hafa trú á þeim íslensku listamönnum sem ég vel, listrænt séð. Það er for- senda þess að fá þá til að vinna með mér. Og samstarf við þekkta erlenda listamenn er afar mik- ilvægt fyrir þá sem starfa að list sinni í tiltölulegri einangrun hér á landi. Í raun þýðir ekkert að kynna íslenska myndlist erlendis án þess að setja hana í samhengi við það sem er að gerast á al- þjóðavettvangi. Listin er ekkert síður íslensk fyrir það, hún styrk- ist fremur og verður áhugaverð- ari,“ segir Edda. Myndlist verður að vera meira en rammanna virði „Annað nýnæmi í rekstrinum er að galleríið er nú með ráðgjafa- stjórn. Reynsla síðustu fimm ára hefur leitt í ljós að kominn er tími til að reyna að vinna meira úti í þjóðfélaginu. Menningarstarfsemi á borð við þessa verður að eiga sér samstarfsaðila til að þrífast og sýningin sem verður opnuð núna er t.d. í samstarfi við Oz. Ég og mínir listamenn erum kannski út af fyrir sig svolitlir sérvitringar,“ segir hún og brosir, „en með tengiliðum á borð við þá sem sitja í ráðgjafanefndinni, sem allir hafa áhuga á menningarstarfsemi jafn- framt því að hafa tengsl í atvinnu- lífinu, kemur ákveðið mótvægi. Þetta fólk hefur trú á því sem i8 stendur fyrir. Það er ekki hægt að standa undir rekstrinum með sýningarhaldi eingöngu og því er afar mikilvægt að reyna að virkja þá aðila í þjóðfélaginu sem gera sér grein fyrir því að myndlist verður að vera meira en ramm- anna virði, ef svo má að orði kom- ast. Það er hægt að fjárfesta í myndlist til framtíðar ef leitað er ráðgjafar atvinnumanna. Auðvitað hefur myndlist líka tilfinninga- gildi, en best er ef tilfinningagild- ið og fjárfestingarkosturinn hald- ast í hendur. Þetta er fólk í atvinnulífinu farið að skilja.“ Framsýn fyrirtæki vilja tengjast menningarstarfsemi Edda segir að burðug fyrirtæki hafi nú vaxandi áhuga á að ráð- stafa þeim tekjum sem áður fóru eingöngu í auglýsingar í ímynd- armótun. „Framsýn fyrirtæki vilja tengjast starfsemi á borð við i8, því við höfum verið svo heppin að eiga töluverðri velgengni að fagna. Galleríið nýtur trausts listamanna og góðs orðspors er- lendis. Það er orðið eftirsótt á listkaupstefnum víða um heim og þróunin hefur þar af leiðandi ver- ið sú að listamennirnir sem gall- eríið er í forsvari fyrir njóta góðs af. Þeim er boðið að sýna í er- lendum galleríum og á listasöfn- um og það er svo sannarlega gaman að finna hve erlendum sýningarstjórum finnst íslensk list standa framarlega. Þeim finnst hún bæði eftirtektarverð og nútímaleg. Annars er ein ástæða þess hve vel hefur gengið að kynna i8 ef til vill sú að við höfum lagt mikla vinnu í góðar sýningarskrár und- anfarið ár,“ segir Edda ennfrem- ur. „Það má segja að í kringum þá viðleitni hafi myndast vísir að útgáfustarfsemi. Við sáum allt í einu að þarna var búið að safna saman miklum fróðleik sem hefur verið unninn af alúð, bæði af fólki hér innanlands og utan. Þegar menningarárið hófst fékk i8 að- eins meira fjármagn en áður og ég ákvað að nota það til þess að gefa út vel unnar sýningarskrár. Það reyndist galleríinu mjög vel því slíkt efni er frumforsenda þess að hægt sé að komast í samband við þá sem skipta máli í hinum alþjóðlega listheimi. Svo varð þetta efni einnig til þess að opna augu fólks fyrir því hversu lítið er til á prenti um íslenska nútímamyndlist og um leið vakn- aði áhugi bókaútgefenda á sam- vinnu þar sem unnið yrði úr þess- um gögnum í samvinnu við þá listamenn sem um er að ræða, ásamt i8. Sýningarskrárnar verða þó með nýju sniði eftir flutn- ingana. Með stærra húsnæði á áberandi stað erum við sýnilegri í borgarlífinu og sýningarskrárnar verða í samræmi við það meira áberandi,“ segir Edda. Langar að tryggja framþróun og endurnýjun „Maður hefur svona starf út frá persónulegum smekk,“ segir Edda þegar hún er spurð um nýj- ar áherslur í starfsemi i8, „og list- rænn metnaður er auðvitað í fyr- irrúmi. Það má alveg líkja stjórnanda svona gallerís við verðbréfakaupanda sem veðjar á ákveðna listamenn af því hann trúir því að þeir eigi erindi við umheiminn og séu mests virði. Ég sýni því auðvitað þá listamenn sem ég álít besta. Það má vera að ég sýni oftar þá listamenn sem tilheyra minni kynslóð og ég þekki best, en ég hef fylgst vel með og langar til að tengja starf- semina yngri listamönnum. Ragna Róbertsdóttir vígir nú þegar gall- eríið opnar lítið sýningarrými sem er undir stiganum, en í framtíð- inni verður það helgað því sem yngri listamenn hafa fram að færa. Þannig langar mig að tryggja ákveðna framþróun og endurnýjun, um leið og galleríið veitir gestum sínum innsýn í hvernig samtímalist er að þróast. Enda er alltaf afar forvitnilegt að sjá hvernig ein kynslóð tekur við af annarri. Svo má einnig segja frá því að ég var að leita að einhverju veru- lega góðu frá eldri tíma og heim- sótti Hörð Ágústsson,“ segir Edda. „Hjá honum fann ég verk sem eru afar fágæt, frá 1953, í upprunalegum römmum eftir Dieter Roth. Ég lét hreinsa þau og lagfæra og verð að segja að þetta eru ótrúleg verðmæti í landi þar sem listasagan er ekki svo ýkja löng. Ég er þess vegna afar stolt af því að fá að sýna þessi verk núna þegar við opnum á nýja staðnum. Ég hlakka til að fá tæki- færi til að sýna fram á meiri breidd í öllum skilningi.“ Meðal þeirra sem unnið hafa verk sérstaklega inn í nýtt rými i8 á Klapparstígnum er listamað- urinn Hreinn Friðfinnsson, en hann sýndi fyrstur manna í Ing- ólfsstrætinu. Textaverk hans er á vegg þar sem stigi tengir efri og neðri hæð og hljóðar svo: „Yes, I know how it feels to have wings on my heels,“ sem útleggst eitt- hvað á þessa leið: „Já, ég veit hvernig það er að hafa vængi á hælum mér.“ Ef til vill felast í þessum orðum skilaboð til gall- erísins i8 á þessum tímamótum þar sem hugsjónamennskan hefur ráðið för og fjölskylda, listamenn og vinir lagst á eitt til að gera samtímalist eilítið hærra undir höfði í Reykjavík. Með vængi á hælum sér Edda Jónsdóttir myndlistarmaður ákvað fyrir fimm árum að kanna hvort það væri markaður fyrir íslenska samtímalist. Hún stofnaði gallerí i8 og komst fljótt að því að með ákveðið sjónarhorn og persónulega nálgun var hægt að rjúfa þá ein- angrun sem oft einkennir íslenskt listalíf. Fríða Björk Ingvars- dóttir ræddi við Eddu um aukna möguleika í starfsemi i8 sam- fara nýju húsnæði í miðborginni. Morgunblaðið/Jim Smart Edda Jónsdóttir í nýjum húsakynnum i8 á Klapparstíg. Í forgrunni er verk eftir Sigurð Guðmundsson en fyr- ir aftan Eddu má sjá fágæt verk eftir Hörð Ágústsson frá sjötta áratugnum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.