Morgunblaðið - 14.03.2001, Page 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 29
MYNDLISTARFÉLAG Fljótsdals-
héraðs á tíu ára afmæli um þess-
ar mundir. Af því tilefni var á
laugardag opnuð sýning á verk-
um félagsmanna í flugstöðinni á
Egilsstöðum.
Í sýningarskrá segir að á
Fljótsdalshéraði standi andleg
menning á traustum grunni. Þar
búi skáld og rithöfundar í öðru
hverju húsi, leiklistarstarfsemi sé
landskunn og tónlistarlíf á heims-
mælikvarða. Sýningin sé framlag
Myndlistarfélagsins til þessa sam-
félags.
Björn Kristleifsson, arkitekt og
formaður félagsins frá upphafi,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að félagið hefði í upphafi verið
stofnað til að efla myndlist-
aráhuga á Fljótsdalshéraði og
væri það enn meginmarkmiðið:
„Við höldum hið minnsta eitt
námskeið árlega, fyrir áhuga-
sama, og það er einmitt eitt slíkt
í gangi núna. Við höfum fengið
gestakennara á námskeiðin, til
dæmis Pétur Behrens, Einar Há-
konarson, Örn Inga, Gunnlaug
Stefán Gíslason og fleiri og höf-
um svo gripið í að kenna sjálf.
Einnig höldum við árlega sýningu
sem er samsýning félaganna. Svo
höfum við verið að setja upp stór-
ar sýningar, ég nefni í því sam-
bandi veglega sýningu á fimmtíu
ára afmæli Egilsstaða og mjög
veigamikla sýningu um Steinþór
Eiríksson okkar heitinn, þegar
hann varð áttræður. Við höldum
einnig sýningar á afrakstri nám-
skeiða.
Við hittumst alltaf á veturna á
laugardagsmorgnum, þeir sem
vilja, og allir eru velkomnir. Þá
teiknum við og málum.
Við erum svona tíu manns í
hvert skipti og drekkum kaffi og
komum með kex og bollur, frá
klukkan tíu til eitt og ægilega
gaman. Spekúlerum í hinum
fögru listum.“
Aðspurður um sýninguna sem
nú hefur verið opnuð segir Björn
að hún sé skemmtileg og fjöl-
breytt eins og alltaf, vegna þess
að þeir sem sýna spanni allt lit-
rófið, frá skólagengnu atvinnu-
fólki til byrjenda: „Sýningin er
falleg, heildstæð, fer vel og ég er
ánægður með hana.“
12 listamenn eiga verk á sýn-
ingunni, sem stendur til maíloka
og er opin á sama tíma og flug-
stöðin.
Björn Kristleifsson, arkitekt og
formaður Myndlistarfélags Fljóts-
dalshéraðs, opnaði sýninguna.
Gestir á opnun sýningar Myndlistarfélags Fljótsdalshéraðs í flugstöð-
inni á Egilsstöðum síðastliðinn laugardag. Sýningin stendur til maíloka.
Afmælissýning
opnuð í flugstöð-
inni á Egilsstöðum
Egilsstaðir. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Tíu ára afmæli Myndlistarfélags Fljótsdalshéraðs haldið hátíðlegt eystra
VEITTIR hafa verið 166 styrkir
samtals að upphæð 74.785.000 kr.,
úr Húsfriðunarsjóði fyrir árið
2000. Styrkirnir voru aðallega til
endurbygginga og viðhalds frið-
aðra húsa um land allt og húsa
sem talin eru hafa menningarlegt
og listrænt gildi.
Leitast er við að veita tiltölulega
stórum styrkjum til verkefna í
hverjum landshluta í samræmi við
stefnumörkun húsfriðunarnefndar.
Sex hús fengu tiltölulega háa
styrki: Syðstabæjarhúsið í Hrísey,
byggt árið 1886, 5.000.000 kr., Frí-
kirkjan í Hafnarfirði, byggt árið
1913, 3.000.000 kr., Borgarkirkja á
Mýrum, byggingarár 1880,
2.500.000 kr., Villa Nova, Sauð-
árkróki, byggt 1903, 2.500.000 kr.,
Norðurgata 2, Oddagata 6, Seyð-
isfirði, byggt árið 1898, 1920
2.500.000 kr., og Landlyst, Vest-
mannaeyjum, byggt árið 1847,
2.500.000 kr.
Þá var einnig veittur sérstakur
styrkur til Reykholtskirkju að
upphæð 2.500.000 kr. ásamt því að
tryggja kirkjunni hæsta styrk
næstu tvö árin, til endurbyggingar
hennar í samráði við Þjóðminja-
safn og heimamenn.
Húsfriðunarnefnd stjórnar Hús-
friðunarsjóði, en hlutverk sjóðsins
er að veita styrki til viðhalds og
endurbóta á friðuðum húsum og
mannvirkjum. Þá eru einnig veittir
styrkir til húsa, sem hafa menn-
ingarsögulegt eða listrænt gildi að
mati nefndarinnar.
Rit um byggingararf
Ennfremur styrkir sjóðurinn
gerð húsakannana og rannsóknir á
íslenskum byggingararfi og útgáfu
þar að lútandi.
Ritið „Íslensk byggingararfleifð
II, varðveisluannáll“ eftir Hörð
Ágústsson kom út seint á árinu
ásamt ritinu „Skrá yfir friðuð hús,
lög, reglugerðir og samþykktir“ í
ritröð húsfriðunarnefndar um við-
gerðir gamalla húsa.
Áður eru útkomin ritin „Tré-
gluggar“, „Gömul timburhús, út-
veggir, grind og klæðning“ og
„Leiðbeiningar um gerð bæja- og
húsakannana“.
Í húsfriðunarnefnd sitja Þor-
steinn Gunnarsson, arkitekt, for-
maður, Einar Njálsson, bæjar-
stjóri í Grindavík, Margrét Hall-
grímsdóttir, þjóðminjavörður,
Nikulás Úlfar Másson, arkitekt,
Árbæjarsafni, og Pétur Ármanns-
son, arkitekt, Listasafni Reykja-
víkur. Framkvæmdastjóri húsfrið-
unarnefndar er Magnús Skúlason
arkitekt.
Syðstabæjarhúsið í Hrísey, byggt árið 1886, fékk hæsta styrkinn úr Húsfriðunarsjóði.
166 styrkir úr
Húsfriðunarsjóði
NÚ stendur yfir sýning Ragnars
Stefánssonar á Mokka. Sýningin
heitir Algengir litir.
Ragnar hlaut myndlistarmenntun
sína í Myndlista- og handíðaskóla Ís-
lands og Scool of Visual Arts í New
York. Í skrifum sem fylgja með sýn-
ingunni leggur Ragnar áherslu á að
listaverk er efnislegur hlutur sem
endurspeglar andlega eiginleika,
sem eru óháðir handbragði, tækni og
efninu sem verkið er gert úr og hvort
það er þekkjanlegt eða ekki. Hug-
myndafræði listamannsins, tjáning
hans og þörf eru einnig annars eðlis.
Hann bendir einnig á að andlegir
eiginleikar myndverks geta tapast
þegar listamaðurinn er of upptekinn
af þessum þáttum verksins.
Verkin sem eru til sýnis á Mokka
eru einlitaðar myndir úr blikki, unn-
in af iðnaðarmönnum. Þau voru lituð
á verkstæði sem sér um að lita járn-
iðnaðarvarning. Litavalið ákvarðað-
ist af þeim litum sem iðnaðarmenn-
irnir voru mest að nota þá stundina,
þ.e.a.s. þetta eru algengir litir.
Sýningin stendur til 8. apríl.
Ragnar
Stefánsson
sýnir á
Mokka