Morgunblaðið - 14.03.2001, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 14.03.2001, Qupperneq 41
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 41 HELDUR þykir það smásálarlegt að ráðast á menn og stofnanir úr hátimbruðum þingsöl- um, þar sem þolendur geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér. Samt eru það engin nýmæli. Æðstu menn þjóðarinn- ar og Alþingis nota þessi meðöl þegar hent- ar. Hinn 6. mars réðst 1. þingmaður Norður- landskjördæmis eystra og forseti Alþingis, Halldór Blöndal, að ástæðulausu á Náttúru- rannsóknastöðina við Mývatn og stjórnarformanninn Gísla Má Gíslason prófessor og fann starf- semi stöðvarinnar það helst til foráttu að hún hefði ekkert gert fyrir at- vinnulíf í Mývatnssveit. Þá var liðið rúmt ár frá aðför framsóknarmanna, með Hjálmar Árnason í fararbroddi, að Skipulagsstofnun og skipulags- stjóra ríkisins vegna Fljótsdalsvirkj- unar í árslok 1999. Ekki þarf náttúrufræðing til að skilja að Mývatn er náttúruparadís á heimsmælikvarða en til að tryggja vernd hennar var rannsóknastöðin stofnuð – ekki til þess að byggja upp atvinnulíf í sveitinni. Hlutverk hennar er að stunda nauðsynlegar rannsókn- ir til að geta verið stjórnvöldum til ráðgjafar um verndun Mývatns og líf- ríkis þess. Rannsóknir hafa leitt í ljós geigvænleg áhrif kísilnáms í Ytri- Flóa. Fæðuöflunarsvæði fugla eins og kafanda hefur minnkað og lífsskilyrðum fugla og fiska hrakað. Hús- andarstofninn er bein- línis í hættu. Gröfturinn í Ytri-Flóa hefur lokað fyrir aðburð lífrænna efna yfir í Syðri-Flóa og áhrifin koma fram alls staðar – líka í Laxá. Málflutningur 1. þingmanns Norður- landskjördæmis eystra vegur ekki síst að mannréttindum. Mann- réttindi og lýðræði eru ekki eitthvað sem stendur á blaði í laga- safni eða er æft á fjög- urra ára fresti. Þetta eru hornsteinar lífsins, vort daglegt brauð, og eiga að fylgja því sjálfkrafa að vera frjáls maður í frjálsu landi. Grundvallar- þáttur mannréttinda er virðing fyrir einstaklingum og lýðræðislegum vinnubrögðum. Árás Halldórs Blön- dal á Náttúrurannsóknastöðina var ómálefnaleg og ófagleg og hann stað- festi fyrri grunsemdir um að hann sé afleitur talsmaður fjölda sjálfstæðis- manna sem unna náttúru landsins. Náttúrurannsóknastöðin við Mý- vatn er ekki ein á báti í þessum efn- um. Stjórnvöld beita ýmsum brögð- um til að ná tökum á stjórnendum ríkisstofnana. Stundum eru þeir tekn- ir fyrir í þingsölum og einnig hafa stjórnirnar, sem eru stuðpúðar og ör- yggisventlar stofnana, verið leystar upp. Eftir standa forstöðumenn ber- skjaldaðir fyrir ágangi stjórnarherra og hefur sýnt sig að þegar ráðherra heimtar undirgefni og hlýðni eiga menn fárra kosta völ. Þannig verða stjórnarhættir gerræðislegir og mannréttindi misvirt. Fjölmargir embættismenn ríkisins hafa lent í þessari kreppu og heilu stéttunum eins og náttúrufræðingum er bannað að birta skoðanir sínar. Þeim er ein- faldlega stillt upp við vegg og meinað að ræða um eða skrifa grein í blað og viðra þekkingu sína og áhyggjur af stöðu mála – nema þeir þóknist stjórnvöldum. Rétt er að taka fram að framsóknarmenn eru ekki barnanna bestir í þessum efnum. Þingforseti Alþingis er ekki venju- legur nonni úti í bæ. Rógsherferð á hendur einstaklingum og stofnunum eru hvorki honum né stöðu hans sæmandi. En þetta virðist liggja hon- um í laufléttu rúmi. Í því sambandi er fróðlegt að draga fram fundargerð frá fundi Húsgulls á Húsavík 16. janúar 1998 en þar þáðu ráðherrar og þing- menn kjördæmisins leiðsögn hags- munafélagsins Húsgulls um það hvernig standa bæri að lagasetning- um um umhverfismál. Þá var sótt hart að Náttúrufræðistofnun Íslands og stjórnanda hennar sem ekki var á staðnum til að bera hönd fyrir höfuð sér. Við það tækifæri sagði þáverandi landbúnaðarráðherra, Halldór Blön- dal, ef marka má fundargerð: „Ef þeim sem stjórna þeim stofnunum sem hafa með þessi mál að gera, sé ekki treystandi fyrir þeim, væri mun einfaldara að skipta um menn í emb- ættum en að vera með skrifræði fyrir sunnan sem ekki þekkir til á þeim stöðum sem verið er að fjalla um.“ Okkur er lífsnauðsyn að eiga vand- aða embættis- og vísindamenn sem segja skoðanir sínar umbúðalaust og fylgja samvisku sinni. Hvernig hefði þjóðin brugðist við ef Ólafur Ólafsson landlæknir hefði verið rægður í þing- sölum, maður sem óhræddur lét í ljós skoðanir sínar og faglegt álit? Það hefði verið mikið tjón ef hælbítar hefðu komið honum úr starfi. Á Náttúrurannsóknastöðinni við Mývatn, Líffræðistofnun Háskólans og Náttúrufræðistofnun Íslands er einstakt mannval. Þeim er meira að segja vel kunnugt um að sömu nátt- úrulögmál og lög eru við lýði norð- anlands og sunnan. Heimóttarleg rök Halldórs Blöndals um að „þekkja ekki til“ sýna svart á hvítu að skilningur hans á eðli náttúrurannsókna er ekki rúmfrekur á harða diskinum. Það er engum til blessunar að hægt sé að panta niðurstöður rannsókna sem henta atvinnulífi eða stjórnmálatrú í það og það sinnið. Móðir náttúra er einfaldlega ekki háð vilja Halldórs Blöndals, jafnvel þótt hann sé forseti Alþingis. Við Mývatn hefur verið unnið þrek- virki með gæðarannsóknum. Sá árangur er fenginn með þrautseigju og fræðilegri vandvirkni. Ef örlaði á skilningi á þessu merka starfi heima í héraði meðal sveitarstjórnarmanna, þingmanna og atvinnuforkólfa hefðu þeir virkjað þekkingu og mannauð og gert stöðina að stórveldi, eins konar Smithsonian-safni sínu þar sem rann- sóknir, stórbrotin náttúra og saga Mývatns væri kynnt á glæsilegan hátt og fylgt eftir með fræðandi ferða- mennsku. Þess í stað hafa þeir sár- lega brugðist landi og þjóð og ekki síst blessaðri sveitinni. Í merkri grein eftir Þór Magnús- son fyrrverandi þjóðminjavörð í Morgunblaðinu 7. mars sl. segir hann: „Við Íslendingar höfum á stundum líka verið duglegir við að skemma menningararfinn, og ekki sízt beitt hinni „réttu“ trú til þess.“ Þetta á líka við um náttúruarfinn. Það er von mín að náttúrufræðingar vandi til verka – óhræddir – líkt og þeir við Mývatn því ef rannsóknir eiga að fara eftir flokks- línum eða hreppapólitík veikir það lýðræðið og afbakar vísindi. Og frið- urinn er úti ef stjórnmálamenn halda áfram að rægja fólk og ofsækja fyrir það eitt að vinna vinnuna sína af trú- mennsku. Það má ekki líðast lengur að vísindamenn séu óvelkomnir í eigin landi nema þeir dilli bossa undir takti stjórnvalda og lúti höfði í undirgefni. Breytum því! Óvelkomnir í eigin landi? Guðmundur Páll Ólafsson Náttúruvernd Okkur er lífsnauðsyn, segir Guðmundur Páll Ólafsson, að eiga vand- aða embættis- og vísindamenn sem segja skoðanir sínar umbúðalaust og fylgja samvisku sinni. Höfundur er náttúrufræðingur og rithöfundur. GRÍÐARLEG aukn- ing hefur orðið á sókn erlendra ferðamanna til landsins. Rannsókn- ir benda til að náttúra Íslands sé megin- ástæða þess að ferða- maðurinn sækir landið heim. Einnig hefur orð- ið mikil vakning meðal Íslendinga sjálfra að skoða landið sitt. Á sama tíma hefur vaknað aukinn áhugi á stofnun og starfrækslu þjóðgarða hér á landi. Þjóðgarðar eru í Skaftafelli og Jökulsár- gljúfrum, auk þjóðargerseminnar á Þingvöllum. Fyrirhuguð er formleg stofnun Snæfellsnesþjóðgarðs á þessu ári og Vatnajökulsþjóðgarðs á næsta ári. Þjóðgarðar hafa alþjóðlega tilvís- un í huga ferðamanna enda eru þeir stofnaðir til að varðveita sérstakar náttúruheildir, sem verðugt er að njóta. Í hugtakinu þjóðgarður felst ákveðinn gæðastimpill og eru tilteknar kröfur gerðar til aðbúnaðar og umbúnaðar slíkra svæða. Þess er t.d. vænst að allur aðbún- aður til útivistar sé full- nægjandi s.s. vegvísar, kort og leiðbeiningar um svæðið. Einnig eiga göngustígar að vera í góðu ástandi, öruggir og þeim vel viðhaldið, svo og viðeigandi bún- aður og mannafli vegna hugsanlegra slysa eða óhappa. Þjóðgarðar eiga að vera fyrirmynd við skipulag á móttöku ferðamanna á öðrum náttúruperlum. Bágborið ástand í Skaftafelli Þegar Skaftafellsþjóðgarður var stofnaður var það gert með miklum glæsibrag. Vel var vandað til verka og var hann talinn til fyrirmyndar langt út fyrir landsteinana. Frá fyrstu tíð hefur þjóðgarðurinn verið vinsæll viðkomustaður jafnt er- lendra sem innlendra ferðamanna og voru gestir hans um 100 þúsund á síðasta ári og fer fjölgandi. Því miður hefur þó ekki tekist að halda þjóð- garðinum í því ástandi sem sómi er að og aðbúnaður hefur ekki þróast í samræmi við breyttar kröfur og hug- myndir manna um rekstur þjóð- garða. Er ástand þjóðgarðsins nú fremur bágborið. Göngustígar eru í slæmu ásigkomulagi, víða niður- gengnir og sleipir þegar rignir. Þetta hefur leitt til þess að ágangur á svæði utan göngustíga hefur aukist og nýir farvegir myndast, sem er til lýta á svæðinu. Á hverju ári hefur um 1 milljón króna varið til verklegra framkvæmda í þjóðgarðinum m.a. til viðhalds göngustíga. Reyndar má segja að hámarksnýting fáist úr þessu fé, því árlega koma breskir sjálfboðaliðar sem vinna við endur- bætur og endurnýjun á göngustíg- um, launalaust. Merkingar og veg- vísar eru til staðar, en langt frá því að vera viðunandi. Hér er ekki við staðarhaldara að sakast, heldur er ljóst að ekki er nægilegu fjármagni veitt til þjóðgarðsins, þótt nokkur bragarbót hafi verið gerð í þeim efn- um við fjárlagagerð ársins 2001. Hér verður að staldra við. Á teikniborðinu eru tveir nýir þjóð- garðar, Snæfellsnesþjóðgarður og Vatnajökulsþjóðgarður. Ég tel að lengra verði ekki gengið í þá átt að stofna fleiri þjóðgarða, fyrr en ljóst verður hvernig staðið verði að rekstri þeirra og hvernig afla skal fjármagns til reksturs þeirra. Aðgangseyrir Í 32. gr. laga um náttúruvernd er opnað á heimild til að setja ákveðið gjald fyrir veitta þjónustu á náttúru- verndarsvæðum, svo og fyrir aðgang að svæðinu ef spjöll hafa orðið af völdum ferðamanna eða hætta er á slíkum spjöllum. Ef þessari heimild væri beitt og hver einstakur fullorðinn ferðamað- ur sem heimsækti Skaftafellsþjóð- garð greiddi vægt gjald sem næmi t.d. 200–250 krónum fyrir aðgang að svæðinu, þar með talið gestastofu, hefði þjóðgarðurinn um 15–20 millj- ónir króna til ráðstöfunar á ári til endurbóta. Ferðamenn, sem sækja erlenda þjóðgarða, eru vanir því að greiða sérstakt aðgöngugjald að slíkum svæðum. Þeir gera jafnframt kröfu um að aðbúnaður sé til fyrirmyndar og fyrir þá þjónustu finnst þeim sjálfsagt að greiða. Þingvellir undanskildir Þjóðgarðarnir í Skaftafelli og Jök- ulsárgljúfrum eru landfræðilega þannig í sveit settir að auðvelt ætti að vera að rukka aðgangseyri. Hið sama á við um fyrirhugaðan Snæ- fellsnesþjóðgarð. Í þessu sambandi vil ég þó undanskilja þjóðgarðinn á Þingvöllum. Hann hefur slíka sér- stöðu meðal þjóðarinnar að ég tel ekki koma til greina að krefjast að- göngugjalda að svæðinu. Hagsmunir ferðaþjónustunnar Ferðaþjónustuaðilar hafa jafnan lýst sig mótfallna sérstakri gjaldtöku á ferðamenn ef þjónusta kemur ekki á móti. Gjaldtaka í þjóðgörðum er fyrst og fremst hugsuð til að standa undir væntingum ferðamanna um þjónustu og aðbúnað á slíkum svæð- um. Aukinn fjöldi ferðamanna leiðir til ágangs á viðkvæm svæði og það er hagsmunamál ferðaþjónustunnar að vel sé staðið að þessum málum. Við vitum að ef aðbúnaður er ekki í lagi, minnkar virðing fyrir umhverfinu og umgengnin verður verri. Því tel ég sjálfsagt að taka upp aðgöngugjöld í þjóðgörðum. Rekstur þjóðgarða Ásta Möller Náttúruvernd Ég tel sjálfsagt, segir Ásta Möller, að taka upp aðgöngugjöld í þjóðgörðum. Höfundur er þingmaður Sjálfstæð- isflokksins og á sæti í umhverf- isnefnd Alþingis. Í LOK ársins 2000 er talið að 36,1 milljón manna hafi verið á lífi með HIV-(human imm- unodeficiency virus) sýkingu í heiminum. Stærstur hluti þeirra býr í þróunarlöndum. Talið er að um 22 millj- ónir manna hafi látist úr alnæmi fram til þessa. Á Íslandi hafa á undanförnum árum greinst um 10 einstak- lingar á ári með HIV- smit og er heildarfjöldi greindra nú 146. Hærra hlutfall gagnkyn- hneigðra og fleiri konur greinast nú en áður en kynmök eru meginsmit- leið alnæmisveirunnar. Enn hefur ekki tekist að þróa virkt bóluefni gegn sjúkdómnum til notkunar í mönnum en miklar framfarir hafa orðið í lyfjameðferð sem því miður aðeins litlum hlutra sýktra jarðarbúa gefst kostur á að njóta, fyrst og fremst vegna fá- tæktar. Með fjöllyfja- meðferð er í flestum til- fellum unnt að styrkja ónæmiskerfið og hefta framgang sjúkdómsins. Aukaverkanir, bæði til skemmri og lengri tíma, geta verið vandamál. Með bættri meðferð gegn HIV hafa færri einstaklingar greinst með alnæmi og fylgi- kvilla þess en meira kveðið að öðrum vanda- málum, einkum lifrarsjúkdómi, hjá þeim sem einnig hafa lifrarbólgu C en hún smitast einkum með spraut- um í tengslum við fíkniefnanotkun. Sprautunotkun er önnur meginsmit- leið HIV-sýkingar en alnæmisveiran hefur ekki borist að neinu marki í sí- fellt stækkandi hóp fíkniefnaneyt- enda á Íslandi. Það er því sérlega mikilvægt að varna því að HIV berist í hóp fíkniefnaneytenda hér á landi. Í fyrirlestri fyrir almenning um þetta efni, sem haldinn verður 15. marz kl. 20 í Lögbergi, verður gefið yfirlit um HIV-sýkingu og alnæmi. HIV sýking og alnæmi Gunnar Gunnarsson Höfundur er sérfræðingur í lyflækn- ingum og smitsjúkdómum á Landspítala – háskólasjúkrahúsi. Veirur Með bættri meðferð gegn HIV, segir Gunn- ar Gunnarsson, hafa færri einstaklingar greinst með alnæmi. Fermingarmyndatökur Erling Ó. Aðalsteinsson Ljósmyndastofa Laugavegi 24, sími 552 0624 Pantanir í síma 552 0624 frá kl. 13-18 Mörkinni 3, sími 588 0640G læ si le ga r gj af av ör ur Skál kr. 6.300 Opið mán.-fös. frá kl. 12-18. Lau. frá kl. 11-14.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.