Morgunblaðið - 14.03.2001, Page 51

Morgunblaðið - 14.03.2001, Page 51
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 51 Kristín Leifsdóttir vinkona okkar og fyrr- verandi samstarfs- maður er látin eftir erfið veikindi. Kristín sleit barnsskónum á Laugum í Reykjadal þar sem faðir hennar Leifur var skólastjóri en flutti til Reykjavíkur 1943 í fjöl- skylduhús móður sinnar, Hverfis- götu 53. Að Kristínu stóðu sterkir stofnar er allir máttu kenna er kynntust foreldrum hennar. Að loknu námi við M.R. dvaldist hún í Bandaríkjunum með foreldr- um sínum en Leifur var þar við stærðfræðirannsóknir. Eftir heim- komuna settist Kristín í Stúdenta- deild K.Í. og lauk þar námi vorið 1958. Haustið eftir gerðist hún kennari við Breiðagerðisskóla í Reykjavík ásamt okkur tveimur og þar áttum við saman ógleymanleg ár. Það var þá mikil barnamergð í hverfi sem enn var að byggjast, bekkir yfirfullir og 1964 náði nem- endafjöldi tölunni 1399. Þarna kenndi Kristín við mikinn og góðan orðstír og var sárt saknað er hún lét af störfum 1966. Vinkonu okkar og fyrrum nemanda Kristínar varð að orði er hún frétti andlát Kristínar: „Hún var besti kennari sem ég hef nokkru sinni haft.“ Kristín gekk í hjónaband fljót- lega eftir að hún hóf kennslu. Eig- inmaður hennar Indriði Einarsson, rafmagnsverkfræðingur, varð góð- ur kunningi okkar samkennara Kristínar og oft var glatt á hjalla á þeim árum. Eftir að Kristín hætti að vinna fæddust þeim hjónum óskabörnin, Einar 1967 og Hrefna 1969. Eftir að börnin fæddust þurftu þau stærra húsnæði og fluttu úr Sólheimunum í raðhús í Sævarlandi og allt lék í lyndi. Þá kom reiðarslagið. Indriði lést í þyrluflugslysi ásamt sam- starfsmönnum sínum hjá Raf- magnsveitum ríkisins 17. janúar 1975. Hann var mikill harmdauði öllum er til hans þekktu og ekki hvað síst eignkonunni og börnun- um. Foreldrar Kristínar, Leifur og Hrefna, urðu henni stoð og stytta og kom hún börnum sínum vel til manns. Kristín valdi að fara ekki aftur í kennslu eftir lát Indriða en hóf störf hjá Tímanum, fyrst við prófarka- lestur og síðan sem blaðamaður og þar vann hún þar til skömmu áður en blaðið hætti að koma út. Kristín var vinaföst og þó að bilið lengdist milli okkar eftir að við hættum að vinna saman höfðum við alltaf samband. Síðustu árin átti Kristín við van- heilsu að stríða en alltaf var gaman að hitta hana og heyra skoðanir hennar á mönnum og málefnum sem voru skeleggar enda konan sterkur perónuleiki. Eitt það síðasta sem hún sagði við okkur þegar við komum til hennar á sjúkrahúsið skömmu fyrir andlát hennar var: „Ég á svo góð börn.“ Þeim góðu börnum, Einari og Hrefnu og fjölskyldu hennar, vott- um við okkar dýpstu samúð. Hrefna og Elsa. Fátt er dýrmætara en góður vin- ur. Vinur sem er til staðar þegar á þarf að halda. Vinur sem gefur sér tíma til að hlusta, til að gefa ráð, til að spjalla um daginn og veginn. Til að koma og dvelja hjá mér um KRISTÍN LEIFSDÓTTIR ✝ Kristín Leifs-dóttir, kennari og blaðamaður, fæddist í Laugaskóla í Suður-Þingeyjar- sýslu 11. maí 1935. Hún lést á líknar- deild Landspítalans 3. mars síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogs- kirkju 12. mars. stund, eða taka á móti mér. Vinur sem deildi með mér bernsku- brekum og sólskins- dögum æskunnar, væntingum unglings- áranna og alvöru lífs- ins. Slíkur vinur var Kristín. Hún veitti af nægtabrunnum vits og reynslu. Hún sagði svo skemmtilega frá, var fróð og minnug. Hún vakti gleði og reyndi ætíð að sjá einhverjar bjartar hliðar. Hún fékk þó ærinn skammt af erfiðleikum, meiri en margur annar. Þó að hún bognaði um stund- arsakir rétti hún við á ný og um- vafði fólkið sitt ást og umhyggju. Foreldra sína, meðan þau þurftu á að halda. Börnum sínum og tengda- syni var hún kjölfesta. Litlu barna- börnunum, sem komu eins og sól- argeislar inn í líf hennar, vildi hún taka þátt í að hlúa að. En það var henni ekki ætlað. Sá sem öllu ræður kallaði hana burt og okkur sem eftir stöndum finnst það mjög svo ótíma- bært, það var ótalmargt sem hún átti eftir að fá að njóta. En við eig- um eftir minningarnar um yndis- lega konu, þær verða okkar hugg- un. Við, systkinin frá Hvítafelli, sem ólumst upp við hlið hennar, þökkum tryggð hennar og vináttu. Rætur okkar allra lágu í sömu norðlensku moldinni, þótt þær greindust síðar til ýmissa átta. Elsku Einar, Hrefna, Jose, Andr- és og Iðunn. Hugur okkar Þórsteins er óskiptur hjá ykkur, við biðjum al- mættið að styrkja ykkur í sorginni. Ykkar sorg er einnig mín. Minn- ingarnar eru minn fjársjóður, þakk- lætið er minn auður. Aðalbjörg (Abba) Pálsdóttir. Kristín Leifsdóttir vinkona okkar og nágranni til margra ára er látin eftir stutta en erfiða baráttu við ill- kynja meinsemd. Við kynntumst Kristínu árið 1972, er hún flutti í sama raðhús og við í Sævarlandinu ásamt Indriða Einarssyni, eigin- manni sínum og tveim ungum börn- um þeirra. Betri nágranna var vart hægt að hugsa sér, bæði hress og skemmtileg í allri umgengni. Gott var að njóta hæfileika Indriða í sambandi við lokafrágang húsa okk- ar og lóða, enda úrræðagóður og hjálpsamur. Því miður fengum við ekki að njóta nærveru Indriða lengi, því hann féll frá aðeins nokkr- um árum síðar, er hann fórst í svip- legu þyrluslysi í Hvalfirði 17. janú- ar 1975. Í þessu hörmulega slysi fórust einnig nokkrir kollegar hans úr verkfræðistétt svo og aðrir sam- starfsmenn hjá Rafmagnsveitum ríkisins. Var þetta mikið áfall fyrir Kristínu og börn hennar, sem þá voru ung að árum. Kristín bjó áfram ásamt börnunum hér í Sæv- arlandinu og var ávallt mikill og góður vinskapur milli fjölskyldna okkar. Fyrir þremur árum seldi Kristín hús sitt og festi kaup á íbúð enda bæði börnin flutt að heiman. Hafði hún komið sér vel fyrir í fallegri íbúð í Ljósheimum þar sem hún bjó í næsta nágrenni við son sinn Einar, sem var henni stoð og stytta. En skjótt skipast veður í lofti, því fyrir aðeins þremur mánuðum veiktist Kristín illa og greindist með ill- kynja sjúkdóm, sem nú hefur hrifið hana burt. Aldrei kvartaði hún þrátt fyrir þrautir, en bar harm sinn í hljóði. Skömmu fyrir andlát sitt eignuðust Hrefna dóttir hennar og José maður hennar sitt annað barn, stúlkubarn, sem Kristínu auðnaðist að sjá skömmu fyrir and- lát sitt og var það henni mikill gleði- gjafi. Að leiðarlokum vottum við börn- um hennar, tengdasyni og barna- börnum innilegustu samúð. Megi hún hvíla í friði. Gerður og Daníel. Okkur langar að kveðja litla frænda okkar Jóhannes Örn með nokkrum orðum. En hvað getur maður sagt þegar tilveran sýnir á sér hliðar sem eru okkur með öllu óskiljanlegar? Það var stoltur frændi sem hélt á litlum nafna sínum nýskírðum fyrir aðeins nokkrum dögum og nú er hann farinn. Eftir stöndum við og reynum að skilja hvað skaparanum gengur til en það eru margar spurn- ingar og engin svör. Að barn sem fæðist í svo ástríka fjölskyldu skuli vera kallað svo skjótt frá okkur er nokkuð sem við ekki skiljum. Eftir stendur söknuður og tóm í hjarta okkar sem seint verður fyllt. Þetta vekur okkur til umhugsunar um hve lífið er hverfult og að hvert líf og hver dagur er kraftaverk sem við skulum vera þakklát fyrir. Elsku Sólmundur, Vilma, Krist- rún stóra systir, Steinar Örn og Hjalti Örn, fráfall Jóhannesar Arnar er ykkur mikill missir, en þið eigið líka mikið eftir og falleg minning hans mun lifa með okkur öllum. Guð blessi ykkur. Jóhannes Helgi og Sigrún. Elsku litli frændi. Fæðing ykkar bræðra hinn 14. janúar sl. var okkur mikil gleði. Tveir litlir frændur komnir í fjölskylduna og tilveran varð okkur enn bjartari og innihalds- ríkari. Þið voruð dálítið á undan sjálfum ykkur en heilbrigðir og allt gekk eins og best varð á kosið. Pabbi tók gott frí frá vinnu og þið nutuð einstakra samvista við foreldra og systkini, sem gáfu ykkur alla sína ást og alúð, enda döfnuðuð þið vel. Sól hækkaði á lofti og litlir drengir voru skírðir; Jóhannes Örn og Hjalti Örn. JÓHANNES ÖRN SÓLMUNDSSON ✝ Jóhannes ÖrnSólmundsson fæddist 14. janúar 2001 í Reykjavík. Hann lést á heimili sínu hinn 6. mars síð- astliðinn. Jóhannes Örn var sonur hjónanna Vilmu Jónsdóttur, f. 10. janúar 1966 og Sól- mundar Arnar Helgasonar, f. 15. apríl 1968. Jóhannes Örn átti þrjú systkin; Kristrúnu, f. 12. mars 1985, Steinar Örn, f. 30. júlí 1998, og tvíbura- bróður, Hjalta Örn, f. 14. janúar 2001. Foreldrar Vilmu eru Jón Víg- lundsson bakarameistari og Stein- unn V. Jónsdóttir húsmóðir. For- eldrar Sólmundar eru Helgi Ingvarsson landpóstur og Bára Sólmundsdóttir læknaritari. Útför Jóhannesar Arnar fer fram frá Grensáskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 10.30. Skömmu síðar eða að morgni 6. mars dró ský fyrir sólu þegar þú, elsku frændi Jóhannes Örn, andaðist fyrir- varalaust í svefni. Til- veran er á köflum óút- reiknanleg og óvægin. Tilgangur ósýnilegur og forsendur óskiljan- legar. Þannig er fólki stillt upp og gert að lifa við það sem er óásætt- anlegt, kyngja því sem ekki er hægt að kyngja. Almennir bakhjarlar, s.s. staðreyndir, kenn- ingar, reglur og áunnin kunnátta til að leysa dagleg viðfangsefni, hrynja og gagnast lítt við spurningum eins og þeirri sem andlát þitt skilur eftir. Vegir Guðs eru órannsakanlegir og þar við situr. Elsku frændi. Fæðing þín og hin stutta jarðvist voru okkur frænd- fólkinu yndislegur gleðigjafi. For- eldrum þínum og systkinum gafstu ómetanlega samveru, gleði og minn- ingar sem munu ávallt lifa með þeim. Elsku frændi. Vissan um tilvist þína er okkur mikils virði og gefur okkur styrk. Við fjölskyldan vitum af þér frændi. Tíminn líður fljótt og fyrr en varir hittumst við aftur og þá á þínum vettvangi. Guð blessi þig og minningu þína elsku vinur. Elsku Sólmundur Örn, Vilma, Kristrún, Steinar Örn og Hjalti Örn. Gjöfin ykkar var mikil, hún er og hún verður. Guð blessi ykkur og styrki til framtíðar. Kveðja, Ingvar. Ó, ljóssins faðir, lof sé þér, að líf og heilsu gafstu mér og föður minn og móður. Nú sest ég upp, því sólin skín, þú sendir ljós þitt inn til mín. Ó, hvað þú, Guð, ert góður. Þitt blessað ljósið lýsi mér, svo lifi ég og fylgi þér á vísdóms vegi sönnum, en auk mér þroska, dyggð og dáð, svo dafni ég í Jesú náð, hjá Guði og góðum mönnum. Þigg, Guð, minn faðir, hug og hönd, mitt hjarta, vilja, líf og önd, svo blessuð boð þín geymi. Að treysta, hlýða, þóknast þér sé þúsund sinnum dýrra mér, en fylgja holdi og heimi. (M. Joch.) Með þessu ljóði langar mig til að minnast þín, litli frændi Jóhannes Örn. Jarðvist þín hjá okkur var stutt en minningin mun ávallt lifa. Elsku bróðir Sólmundur Örn, Vilma mín, Kristrún, Steinar Örn og Hjalti Örn, Guð og góðir englar styrki ykkur á þessari erfiðu stundu og um alla framtíð. Hrafnhildur. Gráttu ekki af því að ég er dáinn Ég er innra með þér alltaf Þú hefur röddina Hún er í þér Hana getur þú heyrt Þegar þú vilt. Þú hefur andlitið líkamann. Ég er í þér. Þú getur séð mig fyrir þér Þegar þú vilt. Allt sem er eftir af mér Er innra með þér. Þannig erum við alltaf saman. (Barbro Lingren.) Elsku Vilnara, Sólmundur og börn, megi guð varðveita litla eng- ilinn ykkar, og styrkja ykkur í sorg- inni. Ykkar vinir, Helga, Leifur og Nína Huld. Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. =       >%    !         !              *      >&    > /$,$ -= ()$$ $ 1+ % &.$$ $ $ "   )--1 $ - '$ $ # ?+,-  1  - '$ $ # &.$ +)  - '$ $ # ?+,-   # )"$& "  &.$+   # 7+ $ ,$ "  < ,'# -  "  1$   # $-.+  ?+ -+ " %                !!!"   # " !           ""  $"$!%

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.