Morgunblaðið - 14.03.2001, Page 52

Morgunblaðið - 14.03.2001, Page 52
MINNINGAR 52 MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ =       >%     !  >  %     %        C >&A ? $  +)$1%  ! " !$ # (, $&%(,$ "   -  !$ # ' - $  "     '$ $' #-'$ $'$ $' % =    >%  !     %  !   >   C  >& D 7?C $,- =B  ) .,! %  -   ,$ ##- >$," D0.$$ #% :      74 ? $ ?$$   8  ,.+ ! , 8A," - EF %    ,  ,   %  $"    " 2$-/ "   ! " &.$ # & ,$ &.$+ # ? ,"$  "     #-'$ $'$ $' % =           >%     !   >    %  !               %    >&A<   2 ?8 + -  $  % -    >+ -5 $ ,$ "  $> -1  "  & +0>++"  # ,$ > -1  # (,,$(,,+  2$-/ > -1  # ? ,"$2$ .$ "  -$&$> -1  "  +)! &+ # '$ $' #-'$ $'$ $' % ?             2&% &  ) ,@ 8   - / $./  + $ 0 $   %%   % $"   8    >      /1+ "   ?$,  . ," $-.+  ( $,1+ -#-/$% ✝ Lilja Jóhanns-dóttir fæddist 20. maí 1915 á Akureyri. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akur- eyri 3. mars síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Jóhann Hallgrímsson kokkur og Tómasína Þor- steinsdóttir. Systkini Lilju á lífi eru Þór- stína og Hjördís en látin eru þau Jóhann, Magnús, Sigurpála, Bragi, Kristján og Þorsteinn. Eiginmað- ur Lilju var Gunnar Guðmundsson, f. 26. september 1916, d. 25. mars 1975. Börn þeirra eru 1) Sjöfn, f. 23.7 1944, maki Kolbeinn Gunnarsson, börn þeirra eru Gunnar og Lilja. 2) Árni, f. 14.1. 1951, maki Ing- unn Björk Jónsdótt- ir, börn þeirra eru Árni Þór og Íris Björk. 3) Rúnar, f. 23.12. 1952, maki Katrín Sighvatsdótt- ir, börn þeirra eru Jóhann Goði og Sig- hvatur. Langömmu- börn Lilju eru átta. Útför Lilju fór fram frá Akur- eyrarkirkju 12. mars. Kæra móðursystir . Það er margs að minnast þegar ég kveð þig í hinsta sinn. Sem ungur drengur var það ævin- týri að fara frá Siglufirði til Akureyr- ar og heimsækja þig og Gunnar. Glað- værðin og hlýjan frá ykkur endurspeglaði vel þau fjölskyldu- tengsl sem ríktu þar. En eins og hjá mömmu fékk maður að heyra ef eitt- hvað var að. Og margar voru ferð- irnar sem til þín voru farnar og alltaf varstu tilbúin að taka á móti okkur með sömu glaðværðinni. Ég man hvað innilega þú tókst á móti Steinunni og ykkar á milli skap- aðist mikil og góð vinnátta sem hélst alla tíð. Ég var stundum afbrýðisam- ur hvað þú stóðst alltaf með Steinunni en þú varst glögg og vissir hvað mér var fyrir bestu. Það voru innilegar þær kvöld- stundir sem við áttum við að spila manna og fá okkur sérríglas. Ekki var það síðra þegar þú komst suður og við hittumst og spiluðum saman brids, eða þegar þú gistir hjá okkur og börn- in okkar fengu að kynnast þér og voru þess vegna alltaf viljug að koma með og heimsækja þig norður og ætíð varst þú tilbúin að taka á móti okkur. Þú talaðir alltaf tæpitungulaust og lést mig vita ef þér mislíkaði eitthvað, sérstaklega ef ég hringdi ekki í ein- hvern tíma. En þú gladdist líka með mér þegar þannig stóð á. Það var skemmtilegt í maí síðastliðinn þegar ég var fyrir norðan og við fórum saman tvö keyr- andi um Eyjafjörðinn og þú sagðir mér frá átthögum þínum. Við hjónin höfðum rætt um það að heimsækja þig í vetur en af því varð ekki en símtölin við þig voru alltaf jafnhressileg jafnvel þótt þú værir lasin, en lífsgleði þín var það mikil að þú varst farin að skipuleggja ferðir sem þú ætlaðir að fara í sumar og þá var Ísafjörður inni í þeirri mynd. Nú ert þú farin í þína hinstu ferð og ég er viss um að Gunnar og mamma taka vel á móti þér. Birgir Jónsson. LILJA JÓHANNSDÓTTIR Í fjarlægð með hug- ann heima, stend ég nú í þeim sporum að minn- ast Palla frænda míns, sem kveður okkur að- eins rúmlega fertugur að aldri. Á stundum sem þessum er orða vant, hugsanir koma í stað orða. Hann var barn vorsins, fæddur í maí, bjartur yfirlitum með PÁLL SVERRIR PÉTURSSON ✝ Páll Sverrir Pét-ursson fæddist á Akranesi 13. maí 1960. Hann lést 23. febrúar síðastliðinn og fór útför hans fram 6. mars. fallega brosið sitt. Hann tók mér ávallt með hlýju og kærleika. Ég sá hann vaxa úr grasi og verða glæsilegan ungan mann, stofna sína fjöl- skyldu og eignast börn- in sín. Björt framtíðin blasti við. En áður en varir en hann horfinn sjónum okkar. Þung eru nú sporin ykkar, elsku Katla mín og börnin öll, Piddi minn og Magga, systkinin og allir aðrir aðstandendur hans. Á stundum sem þess- um er Kristur okkar eina haldreipi, hann sem gaf okkur fyrirheit um eilíft líf. Ég bið algóðan Guð að styrkja ykkur og græða sárin á þeim erfiðu tímum sem framundan eru. Ég vil kveðja Palla frænda minn með ljóði, sem afi hans fékk frá kær- um vini sínum Sigurbirni Einarssyni, í þeirri vissu að algóður Guð taki hann til sín og að afi og amma, sem voru honum svo kær, breiði nú faðminn móti honum. Blómin falla fölskva slær á flestan ljóma. Aldrei hverfur angan sumra blóma. Þannig varstu vinur mér sem vorið bjarta. Það sem gafstu geymist mér í hjarta. Ilma sprotar, anga lauf sem aldrei falla. Drottinn launi elskuna þína alla. (S.E.) Guð geymi þig, elsku vinur. Edda L. Jónsdóttir. Ágúst Jónsson var mikill velunnari Há- skólans á Akureyri. Í desember 1997 af- hentu hann og Mar- grét kona hans Háskólanum steina- safn sitt að gjöf sem hefur að geyma rúmlega 1200 skrásetta steina. Á þeim tíma var steinasafnið eitt hið merkasta í eigu einstaklings hér á landi. Það var ógleymanlegt að heimsækja Ágúst að heimili þeirra hjóna á Reynivöllum og skoða steinasafnið undir handleiðslu hans. Þrátt fyrir háan aldur fór Ágúst með gestum sínum yfir steinasafnið, tók út einstaka steina og lýsti á lif- ÁGÚST JÓNSSON ✝ Ágúst Jónssonbyggingameist- ari fæddist að Hlíð í Skíðadal 22. desem- ber 1902. Hann lést á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri 22. febr- úar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Akureyrarkirkju 2. mars. andi hátt ferðalögum sem farin voru til að ná þeim. Steinasafnið var heill heimur út af fyrir sig. Þarna hafði Ágúst byggt upp heim steins- ins frá mörgum sjónar- hornum þ.á m. fræði- legum, listrænum og yfirnáttúrlegum. Innri gerð steina Ágústs kallaðist á við ljóð Kristjáns frá Djúpa- læk í bókinni Óður steinsins sem út kom 1976. Steinasafn Ágústs verður varðveitt í þeim hluta ný- byggingar Háskólans sem tekinn verður í notkun síðar á þessu ári. Þar mun það fá verðugan sess kom- andi kynslóðum til fróðleiks og ynd- isauka. Eftirlifandi eiginkonu Ágústs, Margréti, afkomendum þeirra og öðrum ástvinum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. F.h. Háskólans á Akureyri Þorsteinn Gunnarsson. Mig langar í örfáum orðum að kveðja hann Óla frænda eins og ég kallaði hann alltaf. Hann var móðurbróðir minn, mikill atorkumaður og var alla tíð einstaklega lífsglaður. Hann söng mikið og spilaði á gítar og var því hrókur alls fagnaðar, hvar sem hann kom. Bræðurnir Óli og Jósep sungu oft saman við ýmis tækifæri innan fjölskyldunnar, öllum til mikillar ánægju. ÓLAFUR Þ. SIGURÐSSON ✝ Ólafur Þ. Sig-urðsson fæddist á Hamraendum í Hraunhreppi 1. sept- ember 1924. Hann lést á Landspítalan- um í Fossvogi 7. febrúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Vídalíns- kirkju 16. febrúar. Þegar Óli var í fragt- siglingum sem ungur maður færði hann mér stundum gjafir erlend- is frá og gladdi það mig mjög. Sem níu ára drengur fékk ég að kynnast Óla betur þegar hann bauð móður minni, mér og Gumma bróður að dveljast hjá sér, Olgu og börnunum í Grinda- vík. Þar sem Gummi veiktist af lugnabólgu lengdist dvölinn í heila viku. Á þessum tíma fékk ég tækifæri til að kynnast allri fjölskyldunni og nutum við gestristni þeirra. Það eru sérstaklega tvö atriði sem eru mér minnisstæðust. Þetta sumar gaf hljómsveitin Hljómar út lagið „Fyrsti kossinn“ og sungum við Helga frænka þetta lag af eldmóð alla daga og kom sér þá vel þolin- mæði og skilning þeirra fullorðnu. Í lok dvalarinnar bauð Óli mér, í dags- róður með sér út á sjó, á fiskibát sem hann vann á og var það hámark dval- arinnar. Á sjónum var Óli í essinu sínu, hress að vanda og gaf sér tíma til að útskýra og sýna borgarbarninu það helsta um borð á meðan siglt var út á miðin. Eftir dvölina hjá frænda, skyldi ég vel hvers vegna hann var svo vinmargur. Margar góðar stundir áttum við saman og alltaf var Óli jákvæður og hress og sýndi því áhuga sem sam- ferðamenn hans voru að fást við hverju sinni. Stundirnar á Lyng- brekku á Mýrum, þar sem vensla- fólkið hittist nokkur sumur, eru vel geymdar í minningunni. Að lokum vill ég þakka þér, frændi, fyrir allar góðar stundir sem við áttum saman og bið guð að styrkja Möggu, börnin þín, fjölskyld- ur þeirra og systkinin. Minning um góðan mann deyr aldrei. Fljúgðu nú hátt minn fuglinn fríði, fagra vængi þen af þrótt. Vænghaf þitt veitti gleði og prýði, vermir það hjartað um vetrarnótt. Sigurvin. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með- allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.