Morgunblaðið - 14.03.2001, Síða 57
ALDARAFMÆLI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 57
Í KVÖLD, miðvikudaginn 14. mars,
mun séra Ingþór Indriðason Ísfeld
annast Biblíulestur í Hallgríms-
kirkju sem hefst kl. 20. Viðfangs-
efnið er fyrra bréf Páls postula til
Korintumanna. Mun séra Ingþór
ræða ástand í söfnuðinum í Kor-
intuborg með hliðsjón af bréfinu og
skoða samtíma okkar í ljósi þess.
Korintuborg var hin dæmigerða
hafnarborg allra tíma, þar sem
hvers konar siðleysi óð uppi sem
náði inn í hinn unga, kristna söfnuð,
jafnframt því sem flokkadrættir
stóðu honum fyrir þrifum. Auk þess
einkenndist borgin af því sem við
nú köllum fjölhyggju í trúarlegum
efnum, sem postulinn og söfnuður-
inn urðu að takast á við. Öllum er
velkomið að taka þátt í lestrinum
og umræðum um efnið.
Áskirkja. Föstumessa kl. 20. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl.
12.10. Léttur málsverður á eftir.
Grensáskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10–12. Allar mæður velkomnar
með lítil börn sín. Samvera eldri
borgara kl. 14. Biblíulestur, bæna-
stund, kaffiveitingar og samræður.
TTT-starf (10–12 ára) kl. 16.30.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir for-
eldra ungra barna kl. 10–12.
Fræðsla: Brjóstagjöf. Sóldís
Traustadóttir hjúkrunarfræðingur.
Passíusálmalestur kl. 12.15. Bibl-
íulestur kl. 20.
Háteigskirkja. Samverustund eldri
borgara kl. 11–16 í Setrinu í umsjón
Þórdísar Ásgeirsdóttur þjónustu-
fulltrúa. Við minnum á heimsókn-
arþjónustu Háteigskirkju, upplýs-
ingar hjá Þórdísi í síma 551-2407.
Kórskóli fyrir 5–6 ára börn kl. 16.
Barnakór 7–9 ára kl. 17. Kvöldbæn-
ir og fyrirbænir í dag kl. 18.
Langholtskirkja. Opið hús kl. 11–
16. Heilsupistill, léttar líkamsæfing-
ar og slökun í Litla sal. Kyrrðar- og
bænastund, orgelleikur og sálma-
söngur í kirkjunni. Létt máltíð (500
kr.) í stóra sal. Spilað, hlustað á
upplestur og málað á dúka og kera-
mik. Kaffisopi og smákökur kl. 15.
Að lokum er söngstund með Jóni
Stefánssyni. Eldri borgarar eru
sérstaklega velkomnir en stundin
er öllum opin.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
6.45–7.05. Kirkjuprakkarar 6–7 ára
kl. 14.10. Fermingarfræðsla kl.
19.15. Unglingakvöld Laugarnes-
kirkju og Þróttheima kl. 20, 8.
bekkur.
Neskirkja. Starf fyrir 7 ára börn kl.
14–15. Opið hús kl. 16. Kyrrðar-
stund á föstu kl. 20. Tónlist, íhugun,
ritningarlestur og bæn. Tónlist
Szymon Kuran og Hafdís Bjarna-
dóttir. Prestur sr. Halldór Reyn-
isson.
Óháði söfnuðurinn. Föstumessa kl.
20.30. Gunnar Steingrímsson guð-
fræðinemi prédikar. Biblíulestur út
frá 25. Passíusálmi. Krumpaldins-
kaffi.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðar- og
bænastund kl. 12. Léttur málsverð-
ur á eftir í safnaðarheimilinu. Starf
fyrir 11–12 ára börn kl. 17.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra. Opið hús í dag kl. 13–16.
Handmennt, spjall og spil. Fyr-
irbænaguðsþjónusta kl. 16. Bænar-
efnum er hægt að koma til presta
safnaðarsins. Kirkjuprakkarar 7–9
ára kl. 16–17. TTT-starf fyrir 10–12
ára kl. 17–18.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safn-
aðarheimilinu eftir stundina.
Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7–9
ára börn kl. 16. TTT-starf fyrir 10–
12 ára kl. 17.15.
Digraneskirkja. Æskulýðsstarf
KFUM&K og Digraneskirkju fyrir
10–12 ára drengi kl. 17.30. Ung-
lingastarf KFUM&K og Digranes-
kirkju kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Kyrrðar- og
bænastund kl. 12. Léttur hádeg-
isverður í safnaðarheimilinu eftir
stundina. Opið hús fyrir fullorðna
til kl. 14. Bæna- og þakkarefnum
má koma til Lilju djákna í síma
557-3280. Látið einnig vita í sama
síma ef óskað er eftir keyrslu til og
frá kirkju. Starf fyrir 9–10 ára
stúlkur kl. 15–16. Helgistund í
Gerðubergi á fimmtudögum kl.
10.30.
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í
hádegi kl. 12. Altarisganga og fyr-
irbænir. Boðið er upp á léttan há-
degisverð á vægu verði að lokinni
stundinni. Allir velkomnir. KFUM
fyrir drengi 9–12 ára kl. 16.30–
17.30. Kirkjukrakkar í Engjaskóla
kl. 18–19. KFUK fyrir stúlkur 12
ára og eldri annan hvern miðviku-
dag kl. 20.30–21.30.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar
kl. 10–12. Starf fyrir 10–12 ára kl.
17.
Kópavogskirkja. Samvera 8–9 ára
barna í dag kl. 16.45–17.45 í safn-
aðarheimilinu Borgum. TTT-sam-
vera 10–12 ára barna í dag kl.
17.45–18.45 í safnaðarheimilinu
Borgum.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bæna-
stund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúk-
um, allir velkomnir. Léttur kvöld-
verður að stund lokinni. Tekið á
móti fyrirbænaefnum í kirkjunni og
í síma 567-0110.
Vídalínskirkja. Foreldramorgnar,
starf fyrir foreldra ungra barna kl.
10–12 í safnaðarheimilinu.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 14–16.30. Helgi-
stund, spil og kaffi.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund
í hádegi kl. 12, altarisganga og fyr-
irbænir. Léttur hádegisverður frá
kl. 12:30 –13.
Kletturinn, kristið samfélag.
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl.
12. Kyrrðar- og fyrirbænastund í
kirkjunni kl. 12.10. Samverustund í
Kirkjulundi kl. 12.25, súpa, salat og
brauð á vægu verði. Allir aldurs-
hópar. Umsjón Ásta Sigurðardóttir.
Alfanámskeið í Kirkjulundi kl. 19
og lýkur í kirkjunni um kl. 22.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. STN-starf í
dag kl. 16.30 í umsjá Vilborgar
Jónsdóttur og er ætlað börnum 6.
til 9 ára.
Landakirkja í Vestmannaeyjum.
Helgistund á Hraunbúðum k. 11.
Allir velkomnir. Kyrrðarstund í
kirkjunni kl. 12–12.30. Opið hús fyr-
ir unglinga í 8.–10. bekk í
KFUM&K-húsinu kl. 20.
Fíladelfía. Súpa og brauð kl. 18.
Kennsla kl. 19, krakkaklúbbur,
unglingafræðsla, kennsla fyrir
enskumælandi og biblíulestur. Allir
hjartanlega velkomnir.
Boðunarkirkjan. Námskeið dr.
Steinþórs Þórðarsonar „Lærum að
merkja biblíuna“ í kvöld kl. 20.
Mörg spennandi efni verða tekin
fyrir og biblían verður aðgengilegri.
Allir velkomnir.
Kapella sjúkrahúss Hvammstanga.
Bænastund í dag kl. 17. Allir vel-
komnir.
KEFAS. Samverustund unga fólks-
ins kl. 20.
Samband íslenskra kristniboðs-
félaga, Háaleitisbraut 58. Fjáröfl-
unarsamkoma Kristniboðsfélags
kvenna kl. 20.30 í kvöld. Árni Gunn-
arsson syngur einsöng. Happ-
drætti, veglegir vinningar. Kjartan
Jónsson flytur hugvekju. Allir vel-
komnir.
Safnaðarstarf
Deilur og ólifn-
aður í söfnuðinum
Stefán Sigurðsson,
fyrrverandi kennari við
Melaskólann í Reykja-
vík, er hundrað ára í
dag. Stefán er Austur-
Skaftfellingur, fæddist
14. mars 1901 á Reyð-
ará í Lóni. Fyrir hálfri
öld, þegar hann varð
fimmtugur, birtist um
hann afmælisgrein í Ís-
lendingaþáttum Tím-
ans, en þá hafði hann
gegnt skólastjórastarfi
um 17 ára skeið við
heimavistarskólann í
Reykholti við góðan
orðstír. Er þar sérstaklega til nefnt
skyldurækni og árvekni í starfi, heið-
arleiki í viðskiptum, umgengnis-
menning og félagsþroski. Þeir eig-
inleikar hafa einkennt Stefán alla tíð,
jafnt í starfi sem félagslífi.
Hér er ekki ætlunin að rekja
merkilegan starfsferil Stefáns sem
kennara, heldur víkja nokkrum orð-
um að þeim þætti í ævi hans sem
fáum er kunnur öðrum en þeim sem
deila með honum hugsjóninni um
hlutlaust hjálparmál í alþjóðlegum
samskiptum. Stefán hreifst af tungu-
máli Zamenhofs, esperanto, þegar
hann var við nám í Kennaraskólan-
um en hóf ekki markvisst nám í mál-
inu fyrr en á fertugsaldri. Naut hann
þá leiðsagnar Þórbergs Þórðarson-
ar. Hann hóf þá að skrifast á við er-
lenda esperantista og afla sér bóka á
esperanto. Árið 1975 sótti hann í
fyrsta sinn alþjóðaþing Alþjóðlega
esperantosambandsins sem þá var
haldið í Kaupmannahöfn. Síðan hef-
ur hann sótt flest slík þing en þau
eru haldin árlega í ýmsum borgum á
víxl í öllum heimsálfum. Hefur eng-
inn Íslendingur jafn oft tekið þátt í
þessum stærstu og fjölbreyttustu
menningarþingum esperantohreyf-
ingarinnar. Jafnframt hefur Stefán
gegnt trúnaðarstörfum fyrir ís-
lensku esperantohreyfinguna, var
m.a. ritari Auroro, esperantofélags-
ins í Reykjavík, í nokkur ár. Hann
kenndi einnig esperanto í níu ára
bekk í Melaskóla veturinn 1950–51.
Á 90 ára afmælinu var hann gerður
heiðursfélagi Íslenska esperanto-
sambandsins og var þá gefið út safn
esperantoþýðinga hans á íslenskum
ljóðum. Stefán er vel ritfær maður
STEFÁN
SIGURÐSSON
og er einkum kunnur
fyrir þýðingar sínar á
barnabókum, þar á
meðal bókunum um Óla
Alexander eftir Anne-
Cath. Vestly. En hann
hefur einnig þýtt margt
úr esperanto. Má þar
nefna tvær bækur eftir
tékkneska esperanto-
höfundinn Fr. Omelka,
Boðhlaupið í Alaska og
Flugslys á jökli. Báðar
þær sögur las Stefán í
útvarp og var sú fyrr-
nefnda einnig gefin út í
bókarformi. Þá þýddi
hann einnig bókina Kúmeúáa, sonur
frumskógarins, eftir ferðalanginn og
esperantohöfundinn Tibor Sekelj og
las hana í útvarp. Margar smásögur
hefur Stefán þýtt úr esperanto og
lesið í útvarp og hafa sumar einnig
birst í blöðum. Öll þessi rit voru
frumsamin á esperanto og lét Stefán
þess ævinlega getið til að vekja at-
hygli á frumsömdum esperantobók-
menntum.
Stefán hefur einnig þýtt margt úr
íslensku yfir á esperanto. Þar má
m.a. nefna leikritið Inúk sem leik-
hópur Þjóðleikhússins sýndi tvívegis
á alþjóðaþingi esperantista í Reykja-
vík 1977. Er það eina tungumálið
annað en íslenska sem þetta fræga
leikrit hefur verið flutt á við sýning-
ar. Margar smásögur og kvæði hefur
Stefán þýtt á alþjóðamálið og hefur
það flest verið birt í esperantotíma-
ritum. Sérstaklega má þar nefna rit-
smíð Þórbergs Þórðarsonar Strönd-
in á Horni sem annar íslenskur
esperantisti, Karl Sigurðsson, sendi
pennavini sínum í Frakklandi og var
síðan þýdd á frönsku og vakti mikla
athygli. Margt er þó enn óbirt og
ótalið af þýðingum Stefáns. Hann
hefur unnið merkilegt menningar-
starf með þýðingum sínum og hefur
það starf beinst í tvær áttir: kynn-
ingu á íslenskum bókmenntum er-
lendis með esperantoþýðingum og
kynningu á esperantobókmenntum
hérlendis. Það ber að lofa og þakka.
Íslenskir esperantistar þakka
Stefáni Sigurðssyni áratuga sam-
starf og árna honum heilla á aldaraf-
mælinu.
Baldur Ragnarsson,
Hallgrímur Sæmundsson.
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK í Gullsmára
spilaði tvímenning á tíu borðum
mánudaginn 12. mars. Miðlungur
168. Efst voru:
NS
Karl Gunnarss. og Ernst Backmann 205
Díana Kristjánsd. og Ari Þórðars. 201
Helga Helgad. og Þórhildur Magnúsd. 186
AV
Þórhallur Árnas. og Björn Bjarnas. 198
Viðar Jónss. og Sigurþór Halldórss. 186
Kristján Guðm.ss. og Sig. Jóhannss. 186
– Eldri borgarar spila brids að
Gullsmára 13 alla mánudaga og
fimmtudaga. Skráning kl. 12.45.
Bridsfélagið Muninn,
Sandgerði
Síðastliðinn miðvikudag var
fyrsta kvöldið af þremur í Lands-
bankatvímenningi Bridgefélagsins
Munins. 12 pör voru skráð til leiks.
Efstu 8 sætin eru þéttsetin og
mjög jöfn, þannig að ljóst þykir að
keppnin verði spennandi og hörð,
en svona standa stigin hjá efstu 4:
Efstir með 131 stig eru Einar
Júlíusson – Þórir Hrafnkelsson, í
öðru sæti eru Karl G. Karlsson –
Guðjón Svavar Jensen með 125
stig, í þriðja sæti urðu Randver
Ragnarsson – Pétur Júlíusson með
124 stig, og í því fjórða eru Guðjón
Óskarsson – Eiður Gunnlaugsson
með 123 stig.
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Góð þátttaka var í tvímenningn-
um 6. mars sl. eða 24 pör. Úrslit í
N/S urðu þessi:
Bragi Björnss. – Magnús Halldórss. 258
Eysteinn Einarss. – Kristján Ólafss. 236
Ragnar Björnsson – Hreinn Hjartarson
232
Hæsta skor í A/V:
Ólafur Ingvarss. – Þórarinn Árnason 304
Heiður Gestsd. – Þorsteinn Sveinsson 241
Helga Helgad. – Þórhildur Magnúsd. 237
Sl. föstudag mætti 21 par og þá
urðu úrslit þessi í N/S:
Einar Einarss. – Hörður Davíðsson 244
Eysteinn Einarss. – Sigurður Pálsson 239
Sigríður Pálsd. – Eyvindur Valdimarss.
226
Hæsta skor í A/V:
Helga Helgad. – Þorleifur Þórarinss. 245
Rafn Kristjánss. – Oliver Kristóferss. 245
Ingibjörg Stefánsd. – Þórólfur Meyvantss.
236
Meðalskor var 216 báða dagana.
Bridsfélag Kópavogs
Fimmtudaginn 8. mars lauk að-
alsveitakeppni félagsins með sigri
sveitar Þorsteins Berg. Sveit Þor-
steins hafði forystu nánast frá
byrjun móts og hélt henni allt til
loka.
Með Þorsteini spiluðu Guð-
mundur Grétarsson, Baldur Bjart-
mars, Guðmundur Sigurjónsson,
Hallgrímur Hallgrímsson og Guð-
mundur Baldursson.
Lokastaðan varð þessi:
1. Sveit Þorsteins Berg 211
2. Sveit Þróunar 205
3. Sveit Sigurðar Sigurjónss. 188
4. Sveit Vina 187
5. Sveit Old Boys 187
Eftir síðasta leik sveitakeppn-
innar var spilaður stuttur tví-
menningur og bestum árangri
náðu:
N-S
Georg Sverriss. – Gunnl. Kristjánss. 116
Guðm. Baldurss. – Hallgr. Hallgrímss. 101
A-V
Árni Már Björnss. – Gísli Þ. Tryggvas.107
Magnús Aspelund – Steingrímur Jónss.
103
Á fimmtudaginn kemur, 15.
mars, hefst tveggja kvölda „board
a match“-sveitakeppni með tví-
menningsútreikningi og hefst
spilamennska kl. 19.45.
Spilað er í Þinghól við Hamra-
borgina og eru allir spilarar vel-
komnir.
Aðaltvímenningi Bridsfélags
Húsavíkur lokið
Lokastaðan í aðaltvímenningi
Bridsfélags Húsavíkur er þannig:
Óli Kristinss. – Pétur Skarphéðinss.: 96
Friðrik Jónass. – Torfi Aðalsteinss.: 79
Þórir Aðalsteinss. – Gaukur Hjartars.: 28
BRIDS
U m s j ó n A r n ó r G .
R a g n a r s s o n
Aðeins tvær sveitir mættu til leiks í flokki yngri spilara í keppninni um Íslandsmeistaratitilinn. Sveit Sig-
urbjörns Haraldssonar sigraði eftir hörkukeppni. Guðmundur Ágústsson, forseti BSÍ, afhenti verðlaunin í
mótslok en með honum á myndinni eru Íslandsmeistararnir. Talið frá vinstri: Heiðar Sigurjónsson,
Sigurbjörn Haraldsson, Ingvar Jónsson og Ásbjörn Björnsson.
KIRKJUSTARF