Morgunblaðið - 14.03.2001, Side 63

Morgunblaðið - 14.03.2001, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 63 DAGBÓK VINNU- SÁLFRÆÐI Á flestum vinnustöðum eru samskipti flókin og oft vandasöm. Á námskeiðinu verður kennd samskiptalík- an til að auka samstarfshæfni þátttakenda og þjálfa viðbrögð sem leysa ágreining og auka vinnugleði. Námskeiðið er ætlað fyrir: Stjórnendur, yfirmenn og aðra starfsmenn sem í starfi sínu þurfa að takast á við samskipti og samstarfsvanda. Upplýsingar og skráning í síma Sálfræðistöðvarinnar, 562 3075, milli kl. 11 og 12/fax 552 1110. Leiðbeinendur og höfundar námskeiðs eru sálfræðingarnir Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal. Samskipt i á vinnus tað LAUGAVEGI 36 Opnaðu augun 30% verðlækkun á öllum gleraugnaumgjörðum & gleri. STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake FISKAR Þú getur verið ákaflega sannfærandi og átt því auð- velt með að fá fólk á þitt band en þér hættir til að missa sjónar á heildarmyndinni. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Stundum stendur maður frammi fyrir öflum sem ekki eru á eins manns færi. Þess vegna skaltu ekki hika við að leita þér aðstoðar þegar erfitt mál rekur á þínar fjörur í dag. Naut (20. apríl - 20. maí)  Reyndu að halda eins mikið aftur af þér og þér er mögu- legt því stundum er bið besti leikurinn og margt er vel þess virði að bíða eftir því. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Legðu þig allan fram við verk- efni dagsins því annars áttu á hættu að það verði tekið af þér og fengið samstarfsmanni þínum í hendur. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Gefðu sköpunarþránni lausan tauminn og gleðstu yfir þeim gjöfum sem hún færir þér og gleðja líka þá sem þú leyfir að njóta hennar með þér. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú ættir að reyna að hagræða vinnuumhverfi þínu þannig að þú getir verið sem mest út af fyrir þig í dag. Ef það er ekki hægt þá biddu vinnufélaga þína um að láta þig í friði. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þig langar til þess að breyta til en vantar herslumuninn upp á að drífa hlutina í gegn. Leitaðu þér aðstoðar til þess að geta hafist handa. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Enginn kemst hjá því að við- urkenna þau takmörk sem honum eru sett og muna skaltu að frelsi fylgir ábyrgð og þitt frelsi endar þar sem frelsi nágranna þíns tekur við. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Reyndu að hafa hemil á skapi þínu því það gerir bara illt verra að stökkva upp á nef sér og rjúka frá málunum óleyst- um í einhverju bræðikasti. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Eyddu ekki orkunni í að reyna að snúa við eðlilegu flæði hlut- anna. Reyndu frekar að færa það þér í nyt svo þú standir sterkari að vígi eftir en áður. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Vinnufélagar þínir líta upp til þín vegna þess hve ráðagóður þú ert. Þótt ásókn þeirra sé stundum þreytandi skaltu reyna að þola hana. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Það er ekki endalaust hægt að kenna öðrum um og best færi á því að þú litir í eigin barm og veltir fyrir þér hvort orsakir erfiðleikanna sé ekki að finna hjá þér sjálfum. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þótt þér þyki eitthvað gott er ekki þar með sagt að nágranni þinn sé sama sinnis. En mundu að bera sömu virðingu fyrir skoðunum hans og þú vilt að hann sýni þér. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. LJÓÐABROT Í KLAUSTURGARÐINUM Ég tilbað þig, móðir, í trausti og undirgefni. Mitt traust til þín var milt og ástríðulaust. Og í myrkrinu leiddirðu mig eins og barn í svefni – og ég minnist þess dags, er ég skynjaði fyrst þína raust. Svo ungur ég fann þín ástúð um sál mína streyma. Fyrir óralöngu kom tólf ára drengur og kraup, einmana og hryggur, við altaristöfluna heima – og augnaráð þitt eins og hunang í sár hans draup. Ég man, að þá lagði hann líf sitt í þínar hendur. Þá lagði ég mína veröld að fótum þér: minn sæ, mín fannhvítu segl, mínar gullnu strendur, minn saklausa harm og hvern dag, sem var ætlaður mér. Þá sofnaði’ ég út frá mynd þinni á veggnum mínum, og morgunninn lagði nafn þitt á varir mér. Og ég las allan fögnuð lífs míns úr augum þínum og las alla þjáning míns hjarta úr augum þér. Tómas Guðmundsson. STAÐAN kom upp á Capp- elle la Grande skákmótinu sem lauk fyrir skömmu. Hvítu mönnunum stýrði rússneski stórmeistarinn Semen Dvorys (2.568) gegn alþjóðlega meistaranum Gullaume Vallin (2.396). 12. Bxc4! dxc4 13. Rxc4 Da6 14. Rd6+ Kd7 15. Bxh6 Bxh6 16. d5! exd5 17. Dxd5 Re7 18. e6+ Kc7 19. Rb5+ Kb6 20. Dd6+ Rc6 Ekki gekk upp að leika 20. ...Kxb5 þar sem eftir 21. a4+ Kc4 22. Re5+ Kb3 23. Ha3+ Kxb2 24. Db4+ mátar hvít- ur. 21. a4 Hd8 22. Dc7+ Kc5 23. e7 He8 24. Dd6+ Kb6 25. a5+ Dxa5 26. Hxa5 Hxe7+ 27. Kf2 Be3+ 28. Kg3 Bc5 29. Df6 He6 30. Df4 Rxa5 31. b4 Be3 32. bxa5+ Kxb5 33. Hb1+ Kc6 34. Re5+ Kd6 35. Rc4+ og svartur gafst upp saddur líf- daga. Upphafsleikir skákarinnar voru þessir: 1. e4 e6 2. d4 d5 3. e5 c5 4. c3 Db6 5. Rf3 Rc6 6. a3 c4 7. Rbd2 f6 8. Rh4 g6 9. f4 fxe5 10. fxe5 Bg7 11. Rhf3 Rh6. Skákmót öðlinga hefst í kvöld, kl. 19.30. í húsakynnum Tafl- félags Reykjavíkur, Faxa- feni 12. Teflt verður einu sinni í viku og samtals 7 um- ferðir. Keppninni lýkur 2. maí með hraðskákmóti. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Þegar skiptingin er tiltölu- lega jöfn og enginn boðleg- ur tromplitur fyrir hendi, er það dómur reynslunnar að 33 háspilapunkta þurfi til að réttlæta hálfslemmu í grandi. Í spili dagsins eiga NS samtals 31 punkt á milli handanna og því „náði“ ekk- ert par sex gröndum í spili dagsins þegar það kom upp á landsliðsæfingu fyrir stuttu. Hins vegar er slemman „sénsarík“. Norður ♠ Á84 ♥ Á10 ♦ Á1093 ♣ KD92 Suður ♠ K3 ♥ K9765 ♦ KG5 ♣Á103 Segjum sem svo að les- andinn sé staddur í sex gröndum. Útspil í tígli og laufi eru hjálpleg og kannski í hjarta líka, en vestur er ekki í jólaskapi og leggur af stað með spaða- drottningu. Hvernig er best að spila? Ef láglitirnir gefa átta slagi, þarf ekki að leita lengra. En til þess að það gerist, þarf í fyrsta lagi að finna tíguldrottningu, og öðru lagi verður laufið að falla 3-3 eða gosinn að sýna sig. Áður en hreyft er við láglitunum er hins vegar sjálfsagt að reyna að gera sér mat út hjartanu. Það gæti legið 3-3 og þá er nóg að laufið skili sér eða tíg- ulsvíning heppnist í loka- stöðunni. En það er ekki sama hvernig hjartanu er spilað. Ef vestur er með litlu hjónin eða annað þeirra í tvíspili fást fjórir slagir með því að spila strax á tíuna: Norður ♠ Á84 ♥ Á10 ♦ Á1093 ♣ KD92 Vestur Austur ♠ DG92 ♠ 10765 ♥ G4 ♥ D832 ♦ 8764 ♦ D2 ♣754 ♣G86 Suður ♠ K3 ♥ K9765 ♦ KG5 ♣Á103 Svona var allt spilið. Sagnhafi tekur á spaðakóng heima og spilar hjarta að blindum og lætur tíuna. Austur drepur með drottn- ingu og síðan fellur gosi vesturs undir ásinn. Litur- inn er þá rennandi. Næst er laufið prófað og það liggur vel. Tólf slagir. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Hlutavelta MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúð- kaup, ættarmót og fleira lesendum sín- um að kostnaðar- lausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrir- vara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnudags- blað. Samþykki af- mælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík 75 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 14. mars, verður 75 ára Guð- mundur F. Halldórsson frá Tyrðilmýri á Snæfjalla- strönd. Eiginkona hans var María Ólafsdóttir. Guð- mundur býr nú á Hlíf á Ísa- firði og tekur þar á móti gestum næstkomandi laug- ardag frá kl. 15. Árnað heilla Morgunblaðið/Nanna Sjöfn Þessar ungu stúlkur héldu tombólu á Bíldudal til styrktar Rauða krossi Íslands. Þær heita Monika, Andrea, Ágústa, Júdit og Una Áslaug. FYRSTI fundurinn í röð fræðslu- funda fyrir almenning um veirur og veirusjúkdóma verður haldinn fimmtudaginn 15. mars kl. 20 í Lögbergi, stofu 101. Örverufræðifélag Íslands stend- ur fyrir röð fræðslufunda fyrir al- menning um veirur og veirusjúk- dóma. Stuttir útdrættir úr fyrirlestrunum munu birtast fyr- irfram í Morgunblaðinu og sam- antekt auk upplýsinga um félagið mun birtast í tímaritinu Lifandi vísindi að fundaröðinni lokinni. Fundirnir eru öllum opnir og að- gangur ókeypis. Fundurinn hefst á inngangsfyr- irlestri um veirur í umsjón Þor- gerðar Árnadóttur líffræðings og að loknu hléi mun Gunnar B. Gunnarsson læknir fjalla um al- næmi. Fundur um veirur og veirusjúk- dóma HELGI Arngrímsson og Áskell Heiðar Ásgeirsson sýna myndir frá Víkum sunnan Borgarfjarðar eystri og segja sögur á myndasýningu Ferðafélags Íslands í dag, miðviku- daginn 14. mars. Þar ætlar Gerður Steinþórsdóttir líka að sýna myndir úr ferð FÍ norður og vestur fyrir Langjökul sl. sumar um fáfarnar slóðir þar sem m.a. var gengið um Tjarnardali og Djöflasand að Hundavötnum, um Fljótsdrög og Hallmundarhraun svo nokkuð sé nefnt. Þarna hafa fá- ir komið og því kjörið að nota þetta tækifæri til að fræðast um þetta sérstæða landsvæði, segir í frétta- tilkynningu. Sýningin er haldin í FÍ-salnum, hún hefst kl. 20.30 og aðgangseyrir er 500 krónur. Kaffiveitingar í hléi eru innifaldar. Myndasýning FÍ Víknaslóðir og nágrenni Langjökuls FRÉTTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.