Morgunblaðið - 16.03.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HYDRA-DETOX
RAKAGEFANDI OG HREINSANDI HÚÐVÖRUR
FYRIR KARLMENN
FYRIR FRÍSKARI HÚÐ OG
FALLEGRI HÚÐLIT
Snyrtitaska fylgir
þegar keyptir eru
2 hlutir
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Andorra Hafnarfiðri, Bjarg Akranesi, Bylgjan
Kópavogi, Fína Mosfellsbæ, Hjá Maríu Akureyri,
Hygea Kringlunni, Hygea Laugavegi,
Snyrtivöruverslunin Glæsibæ
GENGIÐ var frá samkomulagi um
sölu á rækjuverksmiðju Nasco í Bol-
ungarvík á fundi tilboðsgjafa og
kröfuhafa í þrotabúið á fundi í
Byggðastofnun í gærmorgun og und-
irrituð viljayfirlýsing þar um. Kaup-
verð verksmiðjunnar verður 236
milljónir króna en um kaup og rekst-
ur hennar verður stofnað hlutafélag
þar sem heimamenn fara með svo-
kallaðan virkan meirihluta. Stefnt er
að því að hefja rækjuvinnslu í verk-
smiðjunni eftir u.þ.b. mánuð.
Á fundinum voru fulltrúar AG-fjár-
festingar, sem Agnar Ebenesarson
og Guðmundur Eydal standa að, Sjó-
vár-Almennra og Sparisjóðs Bolung-
arvíkur. Auk þeirra voru þrír fulltrú-
ar frá Byggðastofnun sem er stærsti
kröfuhafinn í þrotabúið. Í viljayfirlýs-
ingunni sem þessir aðilar undirrituðu
felst að AG-fjárfesting ásamt sam-
starfsaðilum mun leggja til 60 millj-
óna króna nýtt hlutafé samfara því að
veðkröfum stærstu kröfuhafa verður
að mestu leyti breytt í hlutafé. Hlutur
Byggðastofnunar verður 30 milljónir,
hlutur Sjóvár-Almennra verður 27,3
milljónir, hlutur Sparisjóðs Bolung-
arvíkur verður 40 milljónir auk 60
milljóna króna hlut heimamanna, þar
af eru bæjarsjóður og Verkalýðs- og
sjómannafélag Bolungarvíkur með
7,5 milljónir króna hvor. Þá verður
u.þ.b. 90 milljónum af veðkröfum
Byggðastofnunar breytt í langtíma-
lán.
Heimamenn með
meirihlutavald
Að sögn Guðmundar Eydal, fram-
kvæmdastjóra AG-fjárfestingar, er
stefnt að því að hefja vinnslu von
bráðar. „Okkar hugmyndir eru að
reyna að vinna þetta eins hratt og
hægt er og koma vinnslunni í gang
eftir u.þ.b. mánuð.“
Í samningnum er tryggt að heima-
menn fari með meirihlutavald í mál-
efnum verksmiðjunnar og er það gert
m.a. með þeim hætti að 60 prósent af
30 milljóna króna hlutafé Byggða-
stofnunar eru í svokölluðum B-hluta-
bréfum, en í því felst að hluthafar
þeirra hafa ekki vægi í stjórn félags-
ins auk þess sem þau bera ekki ávöxt
fyrstu 5 árin.
Guðmundur segist vona að með
þessu samkomulagi hafi rekstrar-
grundvöllur verksmiðjunnar verið
tryggður en tíð eigendaskipti og
gjaldþrot hafa sett svip sinn á rekst-
urinn hingað til. Verksmiðjan er ein
sú öflugasta á landinu og eru há-
marksafköst hennar um 220 tonn af
hráefni á viku en að sögn Guðmundar
verður afkastagetan ekki nýtt að fullu
til að byrja með. Enginn rækjukvóti
fylgir rekstrinum en að sögn Guð-
mundar er meiningin að kaupa hrá-
efni á almennum mörkuðum frá þeim
útgerðum sem ekki eru tengdar
vinnslu, bæði innanlands og utan.
Hann segist ánægður með að sam-
komulagið sé nú í höfn.
„Þetta mál er náttúrlega búið að
taka geysilangan tíma og það hefur
verið tekist á um ýmis sjónarmið.
Þetta er fyrst og fremst léttir fyrir
byggðarlagið í Bolungarvík og það
fólk sem hefur atvinnu sína af þessari
vinnslu,“ segir hann. Hann vill þó
ekkert segja til um hversu margir
verða við vinnu í verksmiðjunni til að
byrja með enda segir hann ljóst að
hluti af fólkinu sé kominn í vinnu ann-
ars staðar.
Lárus Benediktsson, formaður
Verkalýðs- og sjómannafélags Bol-
ungarvíkur, sagði að um 40 manns
fengju vinnu við verksmiðjuna til að
byrja með. Þetta er einungis um
helmingur þeirra sem störfuðu í verk-
smiðjunni fyrir gjaldþrot en það voru
um 80 manns. Lárus sagðist engu síð-
ur fagna samkomulaginu. „Þetta er
hamingjudagur fyrir Bolvíkinga enda
er búið að bíða lengi eftir þessu. Þetta
þýðir gríðarlega mikið fyrir byggðar-
lagið enda þótt talsvert færra fólk
verði þar við vinnu til að byrja með.“
Hann sagði að þess bæri að geta að
núna væru um 40 manns á atvinnu-
leysisskrá í bænum en þegar mest
var eftir gjaldþrotið voru þeir 92.
Hann sagði mjög mikilvægt fyrir
byggðarlagið að heimamenn verði
með meirihlutastjórn í verksmiðj-
unni. „Við höfum lagt áherslu á það
frá byrjun að heimamenn stjórni
þessu. Við komum þá til með að
standa og falla með því.“
Byggðastofnun tapar
um 150 milljónum króna
Theódór Bjarnason, forstjóri
Byggðastofnunar, segist ákaflega
ánægður með að málinu sé lokið. „Það
var ákaflega góð stemmning á fund-
inum enda gengu aðilar á hann með
það í huga að reyna að finna endan-
lega lausn á málinu og það tókst.“
Hann kveður þó erfitt að segja til
um hvort reksturinn sé tryggður til
framtíðar með samkomulaginu þar
sem um þunga atvinnugrein sé að
ræða sem krefjist mikils hlutafjár og
lágrar vaxtabyrðar.
Kristinn H. Gunnarsson, formaður
stjórnar Byggðastofnunar, tekur í
sama streng. „Ég hefði kosið að það
væri meira hlutafé þarna því þetta er
erfiður og áhættusamur rekstur sem
þarf að taka miklum sveiflum. En
þeir sem ætla að vera með virkan
meirihluta trúa á þetta þannig að ég
ætla ekki að draga úr þeim kjarkinn.“
Hann segir ljóst að Byggðastofnun
tapi miklu fé vegna gjaldþrotsins.
„Við afskrifum tvö lán sem eru sam-
tals upp á 150 milljónir og það er auð-
vitað gríðarlegt tap og stærsta tap
stofnunarinnar í langan tíma á einu
máli.“
Hann segist þó sáttur við sam-
komulagið enda sé það í meginatrið-
um í samræmi við þær hugmyndir
sem urðu til í samtölum hans við bæj-
aryfirvöld Bolungarvíkur fyrir um
tveimur vikum. Fyrst og fremst
kveðst hann þó sáttur við að málinu
skuli vera lokið.
Stefnt að rækjuvinnslu
eftir um einn mánuð
Morgunblaðið/Ásdís
Frá fundinum í gær. F.v. Sigurður Sigurkarlsson, fjármálastjóri Sjóvár-Almennra, Ásgeir Sólbergsson, spari-
sjóðsstjóri, Kristinn H. Gunnarsson, formaður stjórnar Byggðastofnunar, og Theodór Bjarnason forstjóri.
Rækjuverksmiðja Nasco seld á 236 milljónir – virkur meirihluti heimamanna
Lok nóvember 2000: Samningar
um sölu rækjuverksmiðju Nasco á
Bolungarvík til AG-fjárfestingar
undirritaðir með fyrirvara um fjár-
mögnun. Agnar Ebenesersson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
verksmiðjunnar og Guðmundur Ey-
dal standa að félaginu.
27. nóvember: Stjórn Nasco
ákveður að óska eftir gjald-
þrotaskiptum á búi félagsins.
Byrjun desember: Fallið er frá
kaupum AG-fjárfestingar á verk-
smiðjunni. Kröfur á verksmiðjuna
reynast hærri en gert hafði verið
ráð fyrir og ekki nást samningar
við helstu kröfuhafa.
15. desember: Skiptastjóra
þrotabúsins er falið að auglýsa
verksmiðjuna í Bolungarvík til sölu.
5. janúar 2001: Frestur til að
skila inn tilboðum í verksmiðjuna
rennur út. Tvö tilboð í verksmiðj-
una berast; annað frá AG-
fjárfestingum upp á 145 milljónir
króna, hitt frá Agli Guðna Jónssyni,
sem áður var stjórnarformaður
Nasco, upp á 245 milljónir. Bæði til-
boðin eru háð ákveðnum fyr-
irvörum.
Janúar - febrúar: Ágreiningur
um veðréttaröð í þrotabúið tefur
fyrir afgreiðslu málsins. Fallið frá
málssókn vegna þess í lok febrúar.
13. mars: Kröfuhafar og heima-
menn funda vegna hugmynda um
lausn málsins.
15. mars: Gengið frá sölu verk-
smiðjunnar til AG-fjárfestingar og
kröfuhafa.
Aðdragandi sölunnar
HÖRÐ gagnrýni kom fram á fundi
borgarstjórnar í gærkvöldi á upp-
lýsingarit þar sem kynntar eru til-
lögur um endurbætur flugvallar-
svæðisins í Reykjavík. Ritinu
verður dreift inn á hvert heimili
borgarinnar.
Í tilefni atkvæðagreiðslu um
framtíð Reykjavíkurflugvallar nk.
laugardag fól samgönguráðherra
Flugmálastjórn að sjá um að
kynna borgarbúum þær breyting-
ar sem samgönguyfirvöld sjá fyrir
sér að gætu orðið í Vatnsmýrinni á
næstu árum.
Í ritinu er rakinn aðdragandinn
að því að ráðist var í endurbætur á
tveimur aðalflugbrautum flugvall-
arins árið 1999 en þeim á að ljúka
á næsta ári. Þá er sýnt í ritinu
hvernig flugvallarsvæðið gæti litið
út þegar búið er að færa alla flug-
starfsemina austur fyrir flugbraut-
irnar, þar með talin flugstöð, á
svæðið í kringum Hótel Loftleiðir.
Þá er ráðgert að leggja niður NA/
SV-flugbrautina. Þessar aðgerðir
munu skapa aukið landrými í
Skerjafirði og í grennd við Há-
skóla Íslands, Landspítalann og
fyrir aukna byggð og atvinnustarf-
semi.
Milljónir í áróðursstríð
Miklar umræður spunnust um
þetta á borgarstjórnarfundi í gær-
kvöldi. Hrannar B. Arnarson,
borgarfulltrúi gagnrýndi dreifingu
á bæklingi Flugmálastjórnar og
vakti máls á því að samgöngu-
yfirvöld hefðu í umræðunni um at-
kvæðagreiðslu um flugvöllinn á
morgun, laugardag, haldið því
fram að einungis tveir kostir væru
í stöðunni, þ.e.a.s. að flugvöllurinn
verði í Vatnsmýri eða færist til
Keflavíkur.
„Í dag tók steininn endanlega úr
þegar Flugmálastjórn, að beiðni
samgönguráðherra eins og fram
kemur í bæklingnum, taka sig til
tveimur dögum fyrir kosningu og
dreifa inn á heimili allra Reykvík-
inga áróðursbæklingi fyrir þessari
afstöðu samgönguyfirvalda ríkisins
á kostnað skattborgaranna.“
„Það er verið að eyða milljónum
kr. af fé skattborgara í áróðurs-
stríð fyrir ríkið í þessari kosningu.
Ég verð að segja alveg eins og er
að þetta háttalag samgönguráð-
herra og hans undirmanna er í
fyrsta lagi alger vanvirða við þá
lýðræðislegu stjórnarhætti sem
þessi kosning er fyrirboði um,“
sagði Hrannar.
Helgi Pétursson borgarfulltrúi
tók undir gagnrýni Hrannars og
sagði dreifingu bæklingsins vera
inngrip samgönguráðherra í þá
umræðu sem fram fari um at-
kvæðagreiðsluna.
Ekki náðist í Sturla Böðvarsson,
samgönguráðherra, í gærkvöldi
Upplýs-
ingarit
gagnrýnt
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt mann
til 12 mánaða fangelsis, skilorðsbund-
ið til þriggja ára, og til greiðslu miska-
bóta fyrir kynferðisbrot. Maðurinn
var 15 ára þegar hann framdi brotin,
fyrir nærri áratug, en telpan 8 ára.
Þau eru frændsystkin.
Maðurinn játaði hluta sakargifta,
en neitaði öðrum og alvarlegri hlutum
staðfastlega. Hæstiréttur segir að
þegar framburður hans sé virtur í
heild hafi ýmislegt verið í svörum
hans um atvikin, sem gefi til kynna að
lengra hafi verið gengið en hann við-
urkenndi. Framburður telpunnar hafi
hins vegar verið trúverðugur.
Hæstiréttur staðfesti því þá niður-
stöðu héraðsdóms að maðurinn hefði
gerst sekur um kynferðismök við
stúlkuna þegar hún var barn þannig
að varðað hafi við þágildandi ákvæði
hegningarlaga.
Rétturinn staðfesti einnig niður-
stöðu um 12 mánaða fangelsi, með
vísan til forsendna héraðsdóms, þar
sem sagði að brot mannsins hefðu
verið gróf ofbeldisbrot, þar sem hann
neytti yfirburða aldurs gagnvart
ungu barni. Til refsihækkunar horfði,
að afleiðingar brota hans hefðu orðið
mjög alvarlegar fyrir brotaþolann, en
til verulegrar refsilækkunar kæmi
ungur aldur hans þegar brot var
framið.
Hæstiréttur hækkaði miskabætur,
sem manninum var gert að greiða, úr
800 þúsund krónum í eina milljón,
með dráttarvöxtum frá mars 2000.
Dæmdur fyrir
brot gegn barn-
ungri frænku
Í MÁLI Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur, borgarstjóra, á fundi
borgarstjórnar í gærkvöld, kom
fram að áætlaður kostnaður vegna
kosninganna um flugvöllinn á
morgun, laugardag, er samtals
36,4 milljónir króna.
Þar af eru 21,4 milljónir vegna
atkvæðagreiðslunnar sjálfrar en
um 15 milljónir vegna kynningar
og undirbúnings kosninganna.
Kom þetta fram í svari borgar-
stjóra við fyrirspurn Kjartans
Magnússonar borgarfulltrúa Sjálf-
stæðismanna.
Kosningar
um flugvöll
Kostnað-
ur 36,4
milljónir
♦ ♦ ♦