Morgunblaðið - 16.03.2001, Blaðsíða 28
ERLENT
28 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TOPSHOP
ríkja sem bönnuðu kjötinnflutning
frá Argentínu, en Bandaríkin og
ESB-ríkin höfðu riðið á vaðið.
Í því skyni að hindra að veikin
breiddist frekar út á meginlandinu
settu Austurríkismenn bann við öll-
um innflutningi kjötafurða af hófdýr-
um frá Frakklandi. Tyrkir bættu
mjólkurafurðum, ull og skinni á
listann yfir vörur sem ekki mætti
flytja inn frá neinu því landi þar sem
gin- og klaufaveiki hefði greinzt.
Í Portúgal var á miðvikudag greint
frá því að mótefni við gin- og klaufa-
veiki hefði greinzt í nautgripum sem
fluttir höfðu verið inn frá Hollandi.
Að sögn portúgalska landbúnaðar-
ráðherrans þýddi þetta ekki að dýrin
væru sýkt af veikinni en þeim var
slátrað í varúðarskyni.
Þefhundum beitt
á ferðamenn frá Evrópu
Enginn vafi er talinn á því að þetta
ástand komi kjötframleiðendum í
Bandaríkjunum og Kanada til góða.
Japanskir kjötinnflytjendur sæktust
Í BRETLANDI, þar sem veikin upp-
götvaðist fyrst fyrir rúmum þremur
vikum, heldur hún áfram að breiðast
út. Þótt sérfræðingar hefðu verið
farnir að gera sér vonir um að út-
breiðslan hefði náð hámarki voru í
gær enn ekki merki um annað en að
smit væri enn að berast milli bæja
með svipuðum hraða og hingað til.
Tíu ný tilfelli uppgötvuðust í gær og
var þar með heildarfjöldi staðfestra
tilfella í Bretlandi kominn upp í 240.
En talsmenn ríkisstjórnarinnar vísa
engu að síður á bug fullyrðingum um
allsherjarneyðarástand. Um 1200
brezk býli hafa verið sett í sóttkví, en
samtals er búfjárrækt stunduð á um
160.000 býlum í landinu. Að sögn
Nicks Brown landbúnaðarráðherra
er nú þegar búið að ganga úr skugga
um að 660 býli séu ósýkt.
„Við erum að herða á slátrun dýra
sem hætta er á að verði fyrir smiti,“
sagði Brown á þingi. Er þessi herta
áætlun kölluð „slátrun við grun“. Á
þeim svæðum í NA- og SV-Englandi
þar sem veikinnar hefur mest orðið
vart á umsvifalaust að slátra öllum
dýrum sem gengið hafa laus innan
þriggja km radíuss frá stöðum þar
sem sýking hefur greinzt.
Óbreytt
kosningaáform
Talsmaður Tony Blair forsætisráð-
herra ítrekaði í gær að ekki væru að
svo komnu máli uppi nein áform um
að fresta sveitarstjórnarkosningum
sem boðaðar hafa verið hinn 3. maí
nk., en ferðafrelsi fólks um sveitir
landsins hafa verið settar strangar
hömlur í nafni sjúkdómavarna. Uppi
hafa verið vangaveltur um að Verka-
mannaflokkur Blairs hafi hug á að
láta ennfremur fara fram þingkosn-
ingar þennan dag, en fari á annað
borð fram sveitarstjórnarkosningar
þennan dag er engin gild ástæða til að
hætta við þingkosningar þann dag-
inn.
Að sögn brezkra embættismanna
munu hömlur á ferðafrelsi fólks verða
endurskoðaðar í þeim héruðum þar
sem ekki hefur orðið vart við veikina
eftir viku til tíu daga. Ferðafrelsis-
hömlurnar eru taldar valda ferða-
þjónustunni einni meira en milljarðs
króna tjóni á viku.
Byssur sumra bænda á sýktum
svæðum Bretlands hafa verið gerðar
upptækar. Vitað er til þess að einn
bóndi í Wales hafi fyrirfarið sér í ör-
væntingu.
Í Þýzkalandi hefur verið hert á var-
úðarráðstöfunum eftir að fyrsta gin-
og klaufaveikitilfellið á meginlandinu
greindist á kúabúi í NV-Frakklandi í
vikunni. Tekin hefur verið upp ströng
gæzla á þýzk-frönsku landamærun-
um, sem valdið hefur umferðartöfum.
Sýni voru tekin á 6000 dýra svínabúi í
Þyringjalandi í Þýzkalandi, til að
ganga úr skugga um að grunur um að
veikin hefði stungið sér þar niður
væri tilhæfulaus. Búið var innsiglað
unz niðurstöður prófana liggja fyrir.
Arabalönd grípa
til ráðstafana
Í löndum Arabíuskagans – Sádí-
Arabíu, Sameinuðu furstadæmunum,
Oman, Jemen, Kúveit, Bahrain og
Katar – var gripið til varúðarráðstaf-
ana eftir að gin- og klaufaveikismit
greindist í innfluttum kálfum í Sádí-
Arabíu og kúm í Sameinuðu fursta-
dæmunum. Greindi landbúnaðarráð-
herra Sameinuðu furstadæmanna frá
því að ríkisstjórnir landa Arabíuskag-
ans hefðu tekið sig saman um að
grípa til ráðstafana til að hindra út-
breiðslu veikinnar í sínum heims-
hluta, þar á meðal með því að setja
bann við innflutningi búfjár og kjöt-
afurða frá Bretlandi og öðrum lönd-
um Evrópusambandsins.
David Byrne, sem fer með heil-
brigðis- og neytendamál í fram-
kvæmdastjórn ESB, hefur hvatt rík-
isstjórnir heims til að ganga ekki
óþarflega langt í að banna innflutning
landbúnaðarvara frá ESB-löndunum.
Stjórnvöld í Marokkó og Túnis féllust
í gær á að falla frá banni sem þau
höfðu sett við korninnflutningi frá
ESB, í ofanálag við kjötinnflutnings-
bann þaðan.
En nýjum bönnum við kjötinn-
flutningi var skellt á víða, þar á meðal
gegn Argentínu, eftir að eitt gin- og
klaufaveikitilfelli greindist þar í landi.
Búlgarar bættust í gær í hóp þeirra
nú mjög eftir svínakjöti frá Norður-
Ameríku eftir að Japansstjórn setti
tímabundið bann við kjötinnflutningi
frá ESB, sem kemur mjög illa við
danska svínakjötsútflytjendur. Rúss-
ar, stærstu kaupendur kjöts frá lönd-
um ESB, hafa enn sem komið er ekki
séð ástæðu til að hindra þau viðskipti.
En bandaríska hamborgarastaða-
keðjan McDonalds Corp. lýsti
áhyggjum af sínum hag. Kúariðufárið
hefði þegar spillt fyrir viðskiptunum;
æ fleiri forðuðust að borða kjöt yf-
irleitt.
Í Bandaríkjunum hefur landbúnað-
arráðherrann Ann Veneman lýst því
yfir að allt verði gert sem þurfa þyki
til að halda gin- og klaufaveiki fjarri,
en hún hefur ekki greinzt þar í landi
frá því árið 1929.
Bandarískir embættismenn sögðu
að farþegar frá vissum Evrópulönd-
um, sem til Bandaríkjanna kæmu,
yrðu látnir stíga á sótthreinsunar-
mottur og leitað yrði á þeim að öllu
sem hugsanlega gæti borið smit, með
aðstoð sérþjálfaðra þefhunda.
Kjötiðnaður í löndum ESB í uppnámi vegna útbreiðslu gin- og klaufaveiki
Enn engin merki
um rénun veikinn-
ar í Bretlandi
!"
#
!
"
#
!
"
$
%&'
()
$
'... '..( '... '..(
-
*
E
0
3 3
1
'B.
()
FG '.....%+
4= 8%" 4+
%
*/ !
F $ F
& ""
1
E
(CF((B
%+
'...
$
#
>/
3
&
)F
@....%+
:/
1
(CF
"
- 5 %
:
5 #
H#
%
'...
4 3
') $
I%+
$
Löndum heims sem
gripið hafa til varúðar-
ráðstafana gegn út-
breiðslu gin- og klaufa-
veiki heldur áfram að
fjölga. Innflutningshöft
sem lönd hafa sett á
búfé og landbúnaðar-
afurðir frá Evrópulönd-
um stefna kjötiðnaði
álfunnar í kreppu.
Reuters
Verzlað á nautgripamarkaði í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, en
gengið úr skugga um heilbrigði kýrinnar áður en hún er seld.
DEMÓKRATAR hafa sakað George
W. Bush Bandaríkjaforseta um að
tala með of neikvæðum hætti um
ástand efnahagslífsins og segja að
það geti haft slæm áhrif á fjármála-
markaði.
The Washington Post fjallaði í gær
um hugsanleg áhrif af ummælum for-
setans um efnahagsmál á miðviku-
dag, en þann dag varð mikil lækkun á
gengi hlutabréfa á mörkuðum. Til
dæmis fór Dow Jones-vísitalan niður
fyrir 10 þúsund stig í fyrsta sinn í
fimm mánuði. Bush sagði við frétta-
menn á miðvikudag að hann hefði
áhyggjur af lægðinni á fjármálamörk-
uðum. „Fólk hefur fjárfest í hluta-
bréfum og horfir nú upp á fjárfest-
ingu sína rýrna,“ sagði forsetinn
ennfremur í ræðu sem hann flutti síð-
ar um daginn. Í ræðunni kvaðst Bush
hins vegar einnig hafa mikla trú á
bandarísku efnahagslífi og sagði
skattalækkunartillögur sínar til þess
fallnar að hleypa í það krafti á ný.
Demókratar hafa gagnrýnt forset-
ann fyrir neikvæð ummæli um efna-
hagsástandið og segja þau geta leitt
til þess að almenningur dragi úr
neyslu, en það geti valdið kreppu í
landinu. Embættismenn segja hins
vegar að forsetinn eigi ekki að gegna
hlutverki klappstýru; honum beri
skylda til að vera heiðarlegur og
raunsær í ummælum sínum um efna-
hagsmál.
Trú neytenda á efnahagslífinu
mælikvarði á áhrif ummæla
„Þetta er sennilega í fyrsta sinn í
sögu Bandaríkjanna sem forsetinn og
varaforsetinn hafa lagst í herferð til
að sannfæra þjóðina um að ástandið
eigi eftir að versna. ... Það er afar lík-
legt að endurtekin neikvæð ummæli
forsetans um efnahagslífið séu orðin
að forspá sem gerði sjálfa sig að veru-
leika,“ hefur The Washington Post í
gær eftir Gene Sperling, fyrrverandi
ráðgjafa Bills Clintons í efnahagsmál-
um.
Lawrence B. Lindsey, helsti efna-
hagsráðgjafi Bush, vísar þessum
ásökunum á bug. Hann bendir á að
kaupmáttur hafi náð hámarki í des-
ember og sömuleiðis vinnustundir,
þótt markaðir hafi verið í niðursveiflu
allt árið. „Hvað er þá um að ræða? Á
fólk ekki að geta tjáð sig um ástand-
ið?“
Lindsey segir forsetann hafa mikla
trú á að efnahagslífið rétti úr kútnum,
meðal annars vegna örra tæknifram-
fara, en það sé jafnframt nauðsynlegt
að hann tjái sig á raunhæfan hátt um
efnahagsmálin. „Meðal bestu vopna
stjórnvalda ... eru hreinskilni,
raunsæi og trúverðugleiki,“ hefur
The Washington Post eftir Lindsey.
Gene Sperling segir á hinn bóginn
að forsetinn geti verið raunsær og
bjartsýnn í senn. „Hversu oft heyrir
maður Bush benda á að atvinnuleysi
sé í sögulegu lágmarki eða að fram-
leiðni hafi aldrei verið meiri?“ spyr
Sterling. Hann segir kannanir á trú
neytenda á efnahagslífinu sýna hvaða
áhrif ummæli á borð við orð Bush
hafi. Samkvæmt nýjustu könnunum
hafi trú neytenda á núverandi ástandi
efnahagslífsins ekki minnkað mikið,
aðeins um 8%, en trú almennings á
efnhagsástandinu á næstu mánuðum
hafi minnkað mikið, eða um 32%.
Demókratar segja ummæli Bush geta haft slæm áhrif
Talar ógætilega
um efnahagsmál