Morgunblaðið - 16.03.2001, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Sýningarhald og sögustaðir
Að gera söguna
sýnilega
Í DAG klukkan níu ár-degis hefst málþingum sögustaði og
sýningahald. Yfirskrift
þingsins er Að gera sög-
una sýnilega. Málþing um
sýningahald, sögustaði og
viðskipti við ferðamenn.
Málþingið er í Þjóðmenn-
ingarhúsinu og stendur til
klukkan 16. Þar flytja
ávörp Björn Bjarnason
menntamálaráðherra og
Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra. Meðal
fyrirlesara er Björn G.
Björnsson leikmynda-
hönnuður. Fyrirlestur
sinn nefnir hann Sýninga-
hús og sögusetur utan
minjavörslunnar.
„Ég ætla að ræða um
nýjung sem er að gera vart
við sig á þessu sviði hér á landi,
það eru að koma fram sjálfstæð
sýningahús eða sögusetur utan
hinna hefðbundnu safna. Það virð-
ist sem gróskan og framtakið á
þessu sviði sé að færast í hendur
áhugasamra aðila, einstaklinga,
félaga og sveitarfélaga.“
– Getur þú nefnt okkur dæmi
um svona hús?
„Já, ég átti sjálfur hlut að því að
móta og hanna sögusetrið á
Hvolsvelli, þar sem Njálssögu eru
gerð skil og reyndar fleiru. Þar er
t.d. að koma upp safn um sögu
kaupfélaganna á Suðurlandi og
fleiri sýningar eru í farvatninu.
Önnur dæmi um svona starf er
galdrasýningin á Ströndum,
hvalamiðstöð á Húsavík, Heims-
kringla í Reykholti og jöklasýning
á Hornafirði. Þegar eru komnir
um 20 staðir af þessu tagi víða um
land.“
– Hvað skilur þessi sýningar-
hús frá hinum hefðbundnu söfn-
um?
„Fyrst og fremst að það er síð-
ur stuðst við fornminjar og safn-
gripi en meira við „upplifun“,
sviðsetningu sögu og atburða. Þó
að margar sýningar byggi auðvit-
að á rannsóknarstarfi sagnfræð-
inga og safnafólks. Kannski svo
hitt líka að frekar er beitt nýrri
aðferðum við uppsetningu sýning-
anna en á hinum hefðbundnu
söfnum enn sem komið er.“
– Verður margt á dagskrá mál-
þingsins?
„Þar verða flutt um 10 ávörp og
erindi. Við höfum fengið bæði inn-
lenda aðila úr menningarlífi og
ferðaþjónustu til að tala og einnig
erlenda fyrirlesara frá söfnum og
sögustöðum. Frá Science Mus-
eeum í London kemur dr. Graham
Farmelo sem nýlega setti upp
sýningu þar sem hefur notið gíf-
urlegra vinsæla, sérstaklega með-
al yngri gesta. Tveir sérfræðingar
koma frá fyrirtæki í Skotlandi
sem sérhæfir sig í að setja upp
gestastofur á sögustöðum, þangað
sem menn geta sótt sér fróðleik
og upplýsingar um staðinn og
hvað þar hafi farið fram. Tvær
konur koma frá Stiklastöðum í
Noregi, sem er einn af stóru stöð-
unum í norskri sögu.
Þar féll Ólafur helgi í
orrustu. Konurnar
ætla að greina frá því
hvað gert hefur verið á
Stiklastöðum til að
taka á móti ferðamönn-
um. Þess má geta að
orrustan á Stiklastöðum er svið-
sett á hverju sumri með miklum
fjölda þátttakenda manna og
hesta. Innlendir fyrirlesarar á
þinginu eru Tómas Ingi Olrich
formaður ferðamálaráðs, Arthur
Björgvin Bollason, forstöðumaður
Sögusetursins á Hvolsvelli, Sig-
ríður Sigurðardóttir, safnstjóri
Byggðasafns Skagfirðinga í
Glaumbæ, Haukur Þór Hauksson,
formaður Samtaka verslunarinn-
ar en þau samtök eru í forsvari
fyrir þessu málþingi. Þeir Örlygur
Kristfinnsson og Sigurjón Jó-
hannsson munu kynna framtíðar-
áform og uppbyggingu Síldar-
minjasafns á Siglufirði sem þeir
eru að vinna að og kalla: Frá for-
tíð til framtíðar.“
– Eru þessi safnamál í mikilli
gerjun í heiminum?
„Já, víðast hvar. Þar kemur
m.a. til ný tækni, margmiðlun,
auknar gæðakröfur og aukið fjár-
magn til safna. Nýjar kenningar
og stefnur ryðja sér til rúms, t.d.
að leyfa fólki að koma við hluti og
gera eitthvað sjálft. Sjálfur hef ég
komið að hönnun og uppsetningu
allmargra safna og sýninga und-
anfarin ár og er þetta orðið mikið
áhugamál hjá mér. Sem dæmi um
slíkt starf get ég nefnt Brydebúð í
Vík í Mýrdal, Fjarskiptasafn
Landssímans í gömlu Loftskeyta-
stöðinni á Melunum, Eldborg í
Hitaveitu Suðurnesja í Svarts-
engi, sem er sýning um jarðsögu
og jarðhita og sýninguna: Kristni í
1000 ár, sem stendur í Þjóðmenn-
ingarhúsinu.“
– Hver er tilgangur þessa mál-
þings?
„Að opna umræðuna um hvort
við eigum að gera söguna sýni-
legri. Einnig hvort sagan sé tekju-
lind sem geti fært söfnum og sýn-
ingarhúsum auknar tekjur til þess
að standa undir blóm-
legra starfi. Ef svarið
við þessum spurning-
um er já – hver á þá að
gera þetta? Á þetta að
vera í höndum hins op-
inbera eins og lengst af
hefur verið eða stefnir í
að þessi starfsemi færist í hendur
einkaaðila. Í mínum huga er þetta
spurningin um hvort skiltið við
setjum upp á sögustöðum okkar:
Skilti sem segir: Gangið ekki á
grasinu. Eða hitt sem segir: Vel-
komin. Maður getur velt því fyrir
sér hvað bíði staðar eins og Þing-
valla í þessum efnum.“
Björn G. Björnsson
Björn G. Björnsson fæddist í
Reykjavík 26. maí 1944. Hann
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1966 og
eftir það hóf hann störf hjá Sjón-
varpinu sem leikmyndateiknari
og hönnuður. Hann sótti ýmis
násmskeið í sambandi við það
starf og var um ár starfandi við
leikmyndahönnun hjá danska
sjónvarpinu. Árið 1976 gerðist
hann sjálfstætt starfandi á þess-
um vettvangi og hefur gert leik-
myndir síðan fyrir sjónvarp,
kvikmyndir og leikhús. Björn er
kvæntur Þóru Jónsdóttur mót-
tökuritara og eiga þau þrjá syni.
Getur sagan
verið söfnum
tekjulind til
blómlegra
starfs?
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness
hefur dæmt karlmann á fertugs-
aldri í þriggja mánaða fangelsi fyr-
ir þjófnaði, umferðarlagabrot og
tilraunir til þjófnaða.
Í dómnum segir að sakaferill
mannsins sé langur og alvarlegur.
Á fjórtán árum, frá 1985 til ársloka
1998, hlaut maðurinn 22 dóma þar
sem honum var í heild ákveðið ríf-
lega 11 ára fangelsi. Dómarnir
voru einkum fyrir þjófnað en einn-
ig gegn lögum um ávana- og fíkni-
efni.
Í fyrra var maðurinn enn dæmd-
ur, að þessu sinni í 2½ árs fangelsi.
Brotin sem maðurinn var sakfelld-
ur fyrir nú framdi hann áður en
dómur gekk í því máli.
Með skýlausri játningu manns-
ins sem var í samræmi við rann-
sóknargögn þótti sannað að mað-
urinn hefði gerst sekur um þau
brot sem hann var ákærður fyrir.
Þau voru m.a. innbrot og stuldur á
greiðslukorti sem hann notaði til
að taka peninga út í hraðbanka,
hann gerði einnig sex misheppn-
aðar tilraunir til þess. Þá gerði
maðurinn tilraun til að svíkja út
vörur á greiðslukortið. Maðurinn
braust einnig inn í fyrirtæki í
Höfðahverfi í Reykjavík og stal
þaðan ýmsum tölvubúnaði.
Auk þriggja mánaða fangelsis-
vistar, var manninum gert að
greiða allan sakarkostnað þ.m.t.
málsvarnarlaun skipaðs verjanda
síns, 110.000 krónur.
Gunnar Aðalsteinsson héraðs-
dómari kvað upp dóminn.
Síbrotamað-
ur dæmdur
í þriggja
mánaða
fangelsi
Það hefur nú margur Gordons-hnúturinn verið leystur hérna, Árni minn, en svona kvóta-
laga-hnútar verða ekki leystir nema á hinu háa Alþingi, góði.
Bankastræti 3,
sími 551 3635
Póstkröfusendum
24 stunda dag- og næturkrem
fyrir þurra og viðkvæma húð
Þú ert örugg með BIODROGA
BIODROGA
Lífrænar jurtasnyrtivörur
www.sminor.is/
tolvubun.htm
Áður slógu hendur landans létt á Olivetti ritvél-
arnar en nú eru það bleksprautuprentarar og
geislaprentarar frá Olivetti sem allir vilja hafa
undir höndum.
Hér eru á ferðinni fjölhæfir og velvirkir gæða-
prentarar á góðu verði sem sómi er að á heimili
og skrifstofu.
Prentarar
Nánar á Netinu!
Láttu prentara frá
Olivetti sjá um skriftirnar!
OD
DI
H
F
G
82
78