Morgunblaðið - 16.03.2001, Síða 12
FRÉTTIR
12 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HAFNARFJÖRÐUR mun ekki
halda áfram að falla frá kaupskyldu
á íbúðum í félagslega íbúðakerfinu
eftir dóm Héraðsdóms Reykjaness
um að bænum sé það óheimilt, en
nær fullvíst er að málinu verði
áfrýjað til Hæstaréttar.
Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri
í Hafnarfirði, sagði næsta víst að
niðurstöðu Héraðsdóms yrði áfrýj-
að þótt ekki væri búið að taka um
það formlega ákvörðun enn.
„Þetta þýðir auðvitað að við höld-
um ekki áfram að heimila frjálsa
sölu og bíðum niðurstöðu því nú er
dómur fallinn og auðvitað verða
bæjaryfirvöld að hlíta honum,“
sagði Magnús.
Hann bætti því að bærinn myndi
jafnframt reyna að gera betur grein
fyrir sjónarmiðum sínum í þessum
efnum, en þau væru í raun og veru
eingöngu í takt við það sem ákveðið
hefði verið með lögunum frá 1998
um að leggja niður félagslega hús-
næðiskerfið. Það fólk sem hefði val-
ið að fara inn í það kerfi sæti þar
niðurnjörvað. Það greiddi ákveðið
gjald við það að fara úr félagslega
húsnæðiskerfinu vegna hærri vaxta
sem eru á húsbréfalánum og viðbót-
arlánum en á lánum í félagslega
íbúðakerfinu. Ríkið tapaði því í
raun og veru ekkert á þessu.
„Ef eitthvað er þá hagnast ríkið á
því að fólkið fari út úr kerfinu inn í
annað lánakerfi, en á móti hugs-
uðum við að það væri nauðsynlegt
að fólkið fengi að njóta söluhagn-
aðarins af íbúðinni til þess að geta
staðið jafnfætis öðrum,“ sagði
Magnús.
Hann benti jafnframt á að vextir
í félagslega íbúðakerfinu væru 2,4%
en vextir af viðbótarlánum væru
5,7%.
Viðbrögð Hafnarfjarðarbæjar vegna dóms héraðsdóms
Ekki haldið áfram að
falla frá kaupskyldu
BUBBI Morthens og Geir Magn-
ússon, forstjóri Olíufélagsins hf.
Esso, undirrituðu í gær samning
um samstarfsverkefnið: Veldu rétt!
– Esso og Bubbi gegn fíkniefnum.
Samningurinn var undirritaður á
Hlemmi og við það tækifæri var
nýtt lag eftir Bubba sem hann hefur
tileinkað átakinu spilað. Lagið heit-
ir: „Þú valdir rétt.“
Verkefnið felst í forvörnum gegn
fíkniefnum en Bubbi hyggst heim-
sækja grunnskóla, félags-
miðstöðvar og fleiri samkomustaði
um land allt og spjalla við börn og
unglinga um vímuefni; fíkniefni og
áfengi. Þá er ráðgert að halda
þrenna tónleika á þessu ári í
tengslum við átakið.
Við undirritun samningsins sagð-
ist Bubbi þekkja fíkniefni af eigin
raun en sjálfur hefði hann verið fí-
kill í 15 ár. Hann hefði séð hvaða
áhrif fíkniefnin hafa.
„Frá 1980 er ég búinn að missa
tólf kunningja og vini. Þeir hafa
annaðhvort lent í því að vera drepn-
ir eða þá að þeir hafa tekið líf sitt
sjálfir eða dáið vegna þess að þeir
hafa tekið of stóran skammt,“ sagði
Bubbi. Hann hefði reynslu af þess-
um málum og gæti því sagt börnum
og unglingum hvað biði þeirra sem
neyttu fíkniefna.
Geir Magnússon, forstjóri Olíu-
félagsins, sagði að undirritun samn-
ingsins mætti líkja við það að Bubbi
hefði afhent trúnaðarbréf sem for-
varnasendiherra gegn fíkniefnum.
Í fréttatilkynningu frá fyrirtæk-
inu kemur fram að safnkortshafar
Esso fá 80 aura afslátt af verði
hvers lítra af eldsneyti. Þessi af-
sláttur verður aukinn um 10 aura
og sú viðbótarfjárhæð mun renna
til baráttu gegn fíkniefnum næsta
árið. Sú fjárhæð sem safnast til
júníloka rennur til Foreldrahússins
við Vonarstræti en búast má við að
þá hafi um 500 þús. safnast á þenn-
an hátt.
Á heimasíðunni bubbi.esso.is er
m.a. hægt að lesa fréttir af verkefn-
inu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Geir Magnússon, forstjóri Olíufélagsins hf., Esso, og Bubbi Morthens
undirrituðu í gær samning um verkefnið: Veldu rétt!
Bubbi og Esso
berjast gegn
fíkniefnum
hans nýjar vistir og síðan aftur á
Hveravöllum. Guðmundur býst við
að enda leiðangurinn í Vopnafirði í
byrjun apríl ef allt gengur að ósk-
um.
GUÐMUNDUR Eyjólfsson skíða-
göngumaður hefur stigið sín fyrstu
skref í leiðangrinum „Frá strönd til
strandar 2001“ en flogið var með
göngukappann til Hornvíkur á
Vestfjörðum á miðvikudag, þar sem
leiðangurinn hófst. Framundan er
600 km leið yfir hálendi Íslands og
er lokaáfangastaðurinn Vopna-
fjörður. Á Brú í Hrútafirði bíða
Ljósmynd/Ómar Ragnarsson
Lagður af stað í leiðangur
NÆSTU helgar verður vetrarferða-
mennska í Eyjafirði kynnt í versl-
uninni Nanoq í Kringlunni í Reykja-
vík. Að kynningunni standa ýmis
fyrirtæki í ferðaþjónustu við Eyja-
fjörð í samvinnu við Atvinnuþróun-
arfélag Eyjafjarðar og Nanoq.
Kynningin verður á afgreiðslutíma
Nanoq.
Fjölbreytt vetrarferða-
mennska í Grýtubakkahreppi
Kynningin hefst föstudaginn 16.
mars og laugardaginn 17. mars, en
þá verða fulltrúar sjö fyrirtækja í
Grýtubakkahreppi (Grenivík) í Na-
noq og veita allar upplýsingar um
fjölbreytta möguleika til vetrar-
ferðamennsku í sveitarfélaginu.
Fyrirtækin sjö eru Gamli bærinn í
Laufási, Fjörðungar ehf., sem eru
með gönguferðir um Fjörður og
Látraströnd, matvöruverslunin og
skyndibitastaðurinn Jónsabúð á
Grenivík, Bergvin Jóhannsson á Ás-
hóli, sem meðal annars býður upp á
akstur með hópa út í Fjörður, Flat-
eyjardal og Látraströnd, gistiheim-
ilið Miðgarðar á Grenivík, Pólarhest-
ar, sem bjóða upp á lengri og styttri
hestaferðir, og síðast en ekki síst
Kaldbaksferðir ehf., sem bjóða upp á
ferðir með snjótroðara upp á Kald-
bak og gefst fólki þá tækifæri til þess
að fara aftur niður snævi þaktar hlíð-
ar fjallsins á skíðum, brettum eða
aftur með snjótroðaranum.
Grýtubakkahreppur hefur verið
að sækja mjög í sig veðrið í ferða-
þjónustu, jafnt að vetri sem sumri,
og þetta kynningarátak í Nanoq er
liður í því að sækja enn frekar fram.
Um næstu helgar heldur kynn-
ingarátak í vetrarferðamennsku í
Eyjafirði áfram í Nanoq. Dagana 23.
og 24. mars kynna Dalvíkingar og
Ólafsfirðingar það sem þeir hafa að
bjóða gestum yfir vetrarmánuðina,
og 30. og 31. mars er röðin síðan
komin að kynningu Akureyrar, sem
er Vetraríþróttamiðstöð Íslands, á
vetrarferðamennsku í bænum og í
næsta nágrenni hans.
Miðað við mörg önnur héruð
landsins hefur verið óvenjumikill
snjór í Eyjafirði í vetur og hefur úti-
vistarfólk nýtt hann sem kostur er.
Haldi svo fram sem horfir er útlitið
sérstaklega gott fyrir vetrarferða-
mennsku í Eyjafirði um komandi
páska.
Átak til að
kynna ferða-
mennsku við
Eyjafjörð
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 50%
atkvæða í alþingiskosningum ef
kosið yrði núna, samkvæmt
niðurstöðum könnunar DV um
fylgi stjórnmálaflokkanna.
Flokkurinn fékk 45,7% í síð-
ustu alþingiskosningum.
Samfylkingin, sem fékk 29%
fylgi í kosningunum, fengi núna
16% en Vinstri-grænir, sem
fengu 9,4% fylgi, fengju núna
18,7%. Fylgi Framsóknar-
flokksins færi úr 10,4% í síð-
ustu kosningum í 9,1% en
Frjálslyndi flokkurinn myndi
bæta við sig, færi úr 4,2% í
4,5%. Listi anarkista fengi 1,7%
á móti 0,3% í síðustu kosning-
um. Þeir sem svöruðu voru 418
manns úr Reykjavíkurkjör-
dæmi.
Skoðanakönnun DV
Sjálf-
stæðis-
flokkur
með 50%
fylgi
ÍSLANDSPÓSTUR ætlar að færa
smávörulager fyrirtækisins frá
Reykjavík til Blönduóss fyrir 1. júní
nk. Jafnframt verður innkaupum á al-
mennum rekstrarvörum breytt þann-
ig að í stað þess að aðalstöðvar fyr-
irtækisins í Reykjavík sjái um
innkaupin mun hvert pósthús og
starfsstöð Íslandspósts úti á landi sjá
um að kaupa rekstrarvörurnar.
Á smávörulagernum eru ýmsar
vörur sem sérmerktar eru fyrirtæk-
inu geymdar. Hörður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs
Íslandspósts segir að með því að færa
smávörulager fyrirtækisins á
Blönduós sé starfsemi þess á staðn-
um styrkt. „Við erum með fjóra
starfsmenn á Blönduósi í dag. Þetta
þýðir að við þurfum ekki að draga
saman seglin eða fækka starfsmönn-
um,“ sagði Hörður. Tveir vinna á
smávörulagernum í Reykjavík en
þeim verður boðið upp á önnur störf
hjá fyrirtækinu.
Hörður segir að flutningar á vörum
til og frá Blönduósi skapi engan auka-
kostnað enda reki fyrirtækið sitt eigið
flutningskerfi. Lagerinn verður í nú-
verandi húsnæði Íslandspósts á
Blönduósi.
Aðspurður um hvort áform væru
um að fækka starfsmönnum Íslands-
pósts sagði Hörður að rekstur fyrir-
tækisins væri í sífelldri endurskoðun.
Engin ákvörðun lægi fyrir um slíkt.
Hörður segir að í tengslum við
flutning lagersins til Blönduóss muni
öll kaup á almennum rekstrarvörum,
s.s. á skrifstofu- og hreinlætisvörum
verða flutt í heimabyggð en Íslands-
póstur er með starfsemi á 73 stöðum
á landsbyggðinni. „Þetta er okkar út-
spil til að stuðla að meiri verslun á
landsbyggðinni,“ sagði Hörður. Þetta
yrði fyrirtækinu eitthvað dýrara en
einnig hlytist af þessu nokkur hag-
ræðing.
Smávörulager Ís-
landspósts verður
á Blönduósi
DR. GÍSLI Gunnarsson hagsögu-
fræðingur flytur fyrirlestur á
Skriðuklaustri sunnudaginn 18.
mars um jarðeignir og efnahag við
lok 17. aldar. Sérstök áhersla verður
lögð á efnahagsástand á Austurlandi
með tilliti til eignarhalds á jörðum í
fjórðungnum.
Fyrirlesturinn hefst kl. 15. Að-
gangur er ókeypis. Klausturkaffi
verður opið að loknum fyrirlestri.
Skriðuklaustur
Fyrirlestur
um efnahag
á 17. öld
♦ ♦ ♦