Morgunblaðið - 16.03.2001, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 16.03.2001, Qupperneq 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ KRÍUNNI er ekki að fækka á Seltjarnarnesi, eins og menn þó álitu til skamms tíma, held- ur er varpstofninn orðinn helmingi stærri en var árið 1986; það ár taldi hann 900 varppör, en í fyrrasumar um 1.850 pör. Hins vegar er kríu- varpið í Gróttu nú hrunið og er ástæðan talin vera koma minks í eyjuna. Árið 1996 voru kríuhreiður í Gróttu um 1.100 talsins, ári síðar aðeins færri, árið 1998 var ekki talið, en 1999 voru þau komin niður í 100 og árið 2000 þó orðin 200. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Jóhanns Óla Hilmars- sonar fuglafræðings, sem hann vann að beiðni Umhverf- isnefndar Seltjarnarnesbæjar og fólst í því að kanna fjölda og dreifingu varpfugla á Sel- tjarnarnesi sumarið 2000. Jafn ítarleg könnun á fuglalífi hefur ekki verið gerð síðan 1986, þegar unnið var að náttúrufar- súttekt á Nesinu, en þrisvar síðan hefur fuglalíf í Gróttu verið kannað, 1996, 1997 og 1999, með höfuðáherslu á kríu- varpið. Auk þess var kríuvarp í Suðurnesi skráð lauslega sumarið 1999. Samkvæmt rannsókn Jó- hanns Óla var kríuvarpið lang- þéttast í Suðurnesi, alls um 1.400 hreiður og þar af helm- ingurinn í óræktarlandi í Dal. Á Framnesinu voru tvö vörp, annað á Snoppu og hitt austur af Bakkatjörn. Varpið á Snoppu var beggja vegna veg- arins norðan kartöflugarð- anna og var hluti þess í görð- unum sjálfum og nágrenni þeirra (um 130 hreiður), en um 70 hreiður voru í óræktartúni norðan vegar. Einungis voru áætluð um 50 hreiður í varp- inu við Bakkatjörn. Þær breytingar sem eru hvað umtalsverðastar á dreif- ingu varpfugla á Seltjarnar- nesi eru tilfærsla og stækkun á kríuvarpinu, segir Jóhann Óli í skýrslu sinni. Kríum hafði fjölgað í Gróttu frá 1986, þeg- ar áætlað var að um 450 pör yrpu þar, fram til 1996, þegar varpið var metið 1.152 hreiður. Það reyndist vera 824 hreiður árið eftir. Ekki var talið 1998, en 1999 var varpið hrunið, komið niður í 150–200 hreiður, og svipaður fjöldi fannst þar svo árið 2000. Breytingar höfðu líka orðið á æðarvarpinu í Gróttu, það var um eða rétt rúmlega 30 hreiður 1996 og 1997, en aðeins 10–15 hreiður 1999 og 2000. Varpið hafði líka færst nokkuð til, 1996–1997 var það mest upp við sjó- varnargarðinn vestan megin í Gróttu, en 1999–2000 aðallega inni á eynni, í kríuvarpinu. Hettumáfsvarpið, sem taldi 70 og 40 hreiður 1996 og 1997, var alveg horfið. Minkur fannst í Gróttu 1999 og 2000. Flest rök hníga að því, að hann hafi hrakið fuglana úr eyjunni. Mikil fjölgun varð í kríu- varpinu í Suðurnesi frá 1986 og mest á árinu 1999 og virðist sem Gróttukríurnar hafi flutt sig um set. Í samtali við starfs- mann og nokkra gesti golf- skálans 7. júlí 1999 var Jó- hanni tjáð, að áberandi aukning hefði orðið í kríuvarp- inu á Suðurnesi á því ári. Nefndu þeir nokkra bletti þar sem kríum hefði fjölgað, t.d. í Dal og á austanverðu nesinu, eða þær hefðu hreinlega num- ið nýtt land, t.d. á milli brauta. Voru þeir ekki sérlega hrifnir af þessari þróun, töldu innan- félagsmenn klúbbsins venjast fuglunum, en gestir fengjust jafnvel ekki til að spila á vell- inum. Kríuvarpið við austanverða Bakkatjörn hafði minnkað úr 200 hreiðrum 1.986 í 50 hreið- ur 2000. Aftur á móti hafði varpið í kartöflugörðunum stækkað úr 50–60 hreiðrum árið 1986 í 200 hreiður árið 2000. Á heildina litið hefur tala kríuhreiðra á Seltjarnarnesi tvöfaldast frá árinu 1986 til ársins 2000. Enn þrengt að fuglum á Seltjarnarnesi Að því er fram kemur í skýrslu Jóhanns Óla Hilmars- sonar er enn þrengt að fuglum á Seltjarnarnesi, nú síðast með ýmsum framkvæmdum í Suðurnesi. Síðla árs 2000 hafi mold verið losuð í Dal (Dæld- um) að frumkvæði Golfklúbbs- ins, að því er virðist í óþökk bæjaryfirvalda. Sjóvarnar- garður hafi verið byggður um- hverfis Suðurnes og síðan gerður göngustígur innan hans. Þessar framkvæmdir hafi gengið á varpland kríu og fleiri fugla, en séu þó mjög til bóta fyrir gesti og gangandi. Þeir sem vilji ganga hring um Suðurnes þurfi nú ekki lengur að þræða grýtta fjöruna eða flatir golfvallarins. Í nóvem- ber 2000 hafi Bakkatjörn og nánasta umhverfi hennar ver- ið friðlýst og sé það stórt skref fram á við fyrir umhverfis- vernd á Seltjarnarnesi. Með friðlýsingu þurfi að tryggja raunverulegan frið í móunum austan og norðan tjarnarinn- ar, en þeir séu nú orðnir mik- ilvægasta varpland á Fram- nesinu, ásamt með Dal (Dældum) í Suðurnesi og Gróttu. Þá segir Jóhann Óli, að hundar hafi verið til vandræða í varpinu 1999 og 2000. Fylgja þurfi hundabanninu eftir um varptímann og uppfræða hundaeigendur um skaða þann og truflun sem hundar geti valdið meðal fuglanna. Árviss minkaleit Árviss minkaleit snemma á vorin sé nauðsynleg í eynni og sem víðast á Seltjarnarnesi, þar sem varp er þétt. Verði hægt að halda minki frá Framnesinu megi búast við því að varpið í Gróttu rétti úr kútnum á ný. Einnig þurfi að fylgjast rækilega með kríu- varpinu og leggur Jóhann Óli til enn nákvæmari talningu næsta sumar. Á veturna dvel- ur krían á hafsvæðinu um- hverfis Suðurskautslandið, og þá ýmist Atlantshafs- eða Kyrrahafsmegin. Samkvæmt þjóðtrúnni birtist hún á Ís- landi um krossmessu á vori (1. maí) og fær ekki röddina fyrr en hún er búin að krækja sér í hreistur af laxi eða silungi. Hún er sögð mesti ferðalang- ur dýraríkisins, flýgur að með- altali um 40.000 km á ári milli búsetusvæðanna á suður- og norðurhveli. Það samsvarar því að fara umhverfis jörðu við miðbaug. Í nýrri skýrslu kemur fram að minkur er búinn að spilla kríuvarpinu í Gróttu Kríu hefur fjölgað veru- lega á Seltjarnarnesi -  -  0 0  ! 2 0 3    4  5  %   # 6 5  -$  -$ %                        7      8                     5  *   #   * + ,    '.. '). 9.. 9.. !-#% '%% 5  * : ;:" % <    , %%%  , !'-( 5  :  :" %         -$  .  /  + ,    0/  /  +   1 0  &,  %%% * 0+   2 Morgunblaðið/Jóhann Óli Krían má sín lítils gagn- vart minknum, þrátt fyrir oddhvasst nef sitt og megn hljóð á stundum. Seltjarnarnes JÓNAS Snæbjörnsson, um- dæmisstjóri Vegagerðarinnar á Reykjanesi, segir að Kópa- vogsbær hafi lýst áhuga á að fjármagna flýtingu fyrsta áfanga í tvöföldun Reykjanes- brautar. Unnið er að undir- búningi umhverfismats og segir Jónas að stefnt sé að því að hraða vinnunni þannig að unnt verði að flýta fram- kvæmdum. Viðræður um það eru þó skammt á veg komnar. Eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær hafa Verkfræðistofan Hnit og Vinnustofan Þverá gert grein- argerð með frumdrögum að breikkun Reykjanesbrautar milli Fífuhvammsvegar og Kaplakrika þar sem fram kemur að aðkallandi sé að ráð- ast sem fyrst í fyrsta áfanga tvöföldunar, þ.e. á kafla skammt sunnan Fífuhvamms- vegar og suður fyrir Arnar- nesveg, til að mæta þeirri aukningu umferðar sem fyr- irsjáanlegt er að verði í haust vegna opnunar verslunar- kjarna í Smáralind. Jónas Snæbjörnsson sagði að Vegagerðin væri bundin af vegaáætlun, sem gerir ráð fyr- ir að unnið verði við fyrsta áfanga á árunum 2003 og 2004. Fordæmi eru hins vegar fyrir því að framkvæmdum sé flýtt að frumkvæði sveitar- félaga enda sé fjárveiting fyrir hendi á vegaáætlun og sveit- arfélagið afli lánsfjár. Jónas segir Vegagerðina jákvæða gagnvart því að sú leið verði farin í þessu máli ef hægt er. Erindi frá Kópavogsbæ „Við höfum fengið erindi frá Kópavogsbæ um að skoða þetta. Formlegar viðæður eru ekki í gangi en þeir hafa boðað að þeir munu tala við okkur,“ sagði Jónas. Ákvörðun um flýtingu fram- kvæmda verði hins vegar ekki tekin nema að höfðu samráði og fengnu leyfi samgöngu- ráðuneytis og Alþingis. Lykillinn að flýtingu fram- kvæmdanna yrði að Kópa- vogsbær gengist fyrir lánveit- ingum þannig að fé til að greiða framkvæmdakostnað- inn yrði handbært fyrr en vegaáætlun kveður á um og kosti framkvæmdirnar þannig til skamms tíma. Jónas sagði að í slíkum til- vikum væri venjan sú að sveit- arfélagið bæri allan þann fjár- magnskostnað sem flýting framkvæmdanna hefði í för með sér. Áætlaður kostnaður við framkvæmdir í fyrsta áfanga er 670 milljónir króna og mið- að við að framkvæmdum verði flýtt og þær hefjist í haust í kjölfar lánveitinga á vegum Kópavogsbæjar mun kostnað- ur bæjarins nema þeim vöxt- um og fjármagnsgjöldum sem falla til frá því að framkvæmd- ir hefjast næsta haust og uns framlög samkvæmt vegaáætl- un fara að skila sér á árunum 2003–2004. Umhverfismat undirbúið Jónas sagði að næsta skref í málinu væri gerð umhverfis- mats. Undirbúningur þess stendur yfir en ekki er búið að ráða ráðgjafarfyrirtæki til að annast gerð þess. Hann segir að þótt ekki veitti af tímanum til 2003 reyni Vegagerðin að flýta því þannig að hægt verði, að einhverju leyti a.m.k., að verða við ósk- um Kópavogsbúa um fyrsta áfanga. Ekkert sé hins vegar í gangi varðandi undirbúning á flýtingu framkvæmda við ann- an áfanga, sem samkvæmt vegaáætlun á að vinna árið 2006 og nær frá Arnarnesvegi að Vífilsstaðavegi, eða 3. áfanga, sem vinna á 2008 og nær milli Vífilsstaðavegar og Kaplakrika. Fyrsti áfangi breikkunar Reykjanesbrautar Kópavogur sýnir áhuga á að fjár- magna flýtingu Kópavogur BÍLASTÆÐUM við Austurstræti mun fækka um 14 að loknum þeim framkvæmdum sem þar eru að hefjast um þessar mundir. ÍSTAK hf. annast fram- kvæmdirnar og hefur Austurstræti verið lokað fyrir umferð frá Póst- hússtræti. Framkvæmd- irnar munu kosta um 230 m. kr. og eiga að standa langt fram á sum- ar, en þó á þeim að vera lokið að hluta fyrir 17. júní þann- ig að þá verði búið að fullgera kafla frá Aðalstræti við Vallarstræti og að Vest- urgötu og á Hafnarstræti frá Aðalstræti að Naustum. Auk þess að endurnýja lagnir verða gangstéttir og akbrautir hellulagðar. Sigurður Skarphéðinsson gatnamálastjóri sagði í sam- tali við Morgunblaðið að m.a. yrði bílastæðum við Austur- stræti breytt á þann veg að í stað skásettra stæða kæmu stæði samhliða götunni. Ská- sett stæði verða einnig aflögð í Pósthússtræti en í staðinn verður leyft að leggja sam- hliða umferð beggja vegna götunnar, að loknum fram- kvæmdum. Vegna þess mun stæðum á svæðinu fækka um 14 frá því sem nú er. Sigurður sagði að í dag væru stæði á svæðinu 56 tals- ins en yrðu 42 eftir breyt- ingar. Hann sagði að skipulag það sem unnið er eftir og er frá árinu 1984 gerði ráð fyrir 40 stæðum á svæðinu en við úrvinnslu hefði tekist að fjölga stæðum um tvö frá því lágmarki. Á fundi í samgöngunefnd borgarinnar nýlega lét Kjart- an Magnússon borgarfulltrúi bóka að hann hefði miklar efasemdir um þá aðgerð að fækka almennum bílastæðum í Aðalstræti og Austurstræti um 14 við núverandi að- stæður. „Ég tel fyrirliggjandi tillögur ekki vera til þess fallnar að styrkja Miðbæinn í sessi sem blómlega miðstöð verslunar og þjónustu,“ segir í bókun Kjartans. Sigurður sagði að vissu- lega væri kvartað undan bíla- stæðaskorti í miðborginni en stefnt væri að því að leysa þau mál með bílastæða- húsum. Hann sagði að borg- inni bærust athugasemdir þegar fyrir dyrum stæði að takmarka umferð um fjöl- farnar verslunargötur vegna framkvæmda, ekki síst frá eigendum fyrirtækja, en skaðabótaábyrgð hefði aldrei lent á borginni vegna þess. Um tímabundið ástand væri að ræða og að loknum end- urbótum sköpuðust for- sendur fyrir meiri umsvifum. Starfsmenn Ístaks hafa lokað Austurstræti við Pósthússtræti. Austurstræti lokað Miðborg Morgunblaðið/Golli
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.