Morgunblaðið - 16.03.2001, Side 20

Morgunblaðið - 16.03.2001, Side 20
AKUREYRI 20 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ VOGIR Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum eitt mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hafðu samband Síðumúla 13, sími 588 2122 www.eltak.is Stjörnudansleikur laugardagskvöld Hljómsveitin BSG Björgvin Halldórsson • Sigríður Beinteinsdóttir Grétar Örvarsson • Kristján Grétarsson Kristinn Svavarsson   BSG Á AKUREYRI   LAUFÁSPRESTAKALL: Kirkju- skóli á morgun, laugardag kl. 11 í Svalbarðskirkju. Kyrrðarstund kl. 21 á sunnudagskvöld. Guðsþjónusta í Grenivíkurkirkju kl. 14 á sunnudag. Kirkjustarf MAGNÚS V. Arnarsson hjá Björg- unarsveitinni Súlum á Akureyri sagði að vissulega hefði ýmislegt mátt betur fara varðandi flutning manns sem slasaðist á vélsleða í fyrrakvöld á svonefndri Þröm sem skiptir Glerárdal og Skjóldal. Eink- um ætti það við um þá ákvörðun björgunarsveitarmanna að einblína um of á flutning mannsins með þyrlu af slysstað og á Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri. Þegar leitað hefði verið eftir aðstoð þyrlunnar hefði verið bjart á slysstað en myrkur skollið á þegar hún kom á staðinn um miðnætti. Aðstæður hefðu því verið þannig að ekki reyndist unnt að lenda þyrlunni og í kjölfarið var mað- urinn fluttur landleiðina á sjúkrahús. Maðurinn brákaði hryggjarlið í slysinu að sögn læknis á Bæklunar- deild FSA. Hann er þó ekki talinn al- varlega slasaður og er líðan hans eft- ir atvikum góð. Óhappið átti sér stað um kl. 16.30 í fyrradag, en þá var stór hópur vél- sleðamanna staddur á Glerárdal, m.a. 6-7 menn úr Lögreglunni á Ak- ureyri og Björgunarsveitinni Súlum, en hinn slasaði var í hópi með nokkr- um félögum sínum, 7-8 mönnum. Lögreglu- og björgunarsveitarmenn voru lagðir af stað heimleiðis þegar óhappið varð en félagi mannsins hélt á eftir þeim þannig að þeir sneru til baka. Magnús sagði að strax hefði drifið að fjölda fólks sem var á svæð- inu, enda sólskin og gott veður og margir því haldið til fjalla að lokinni vinnu. Magnús sagði að aðstæður hefðu verið með þeim hætti að maðurinn lá nokkuð slasaður neðan við mjög bratta brekku, á henni væri mest um 45 gráða halli og hækkunin um 200 metrar. Hlúð hefði verið að mann- inum og strax tekin sú ákvörðun að ekki væri annað forsvaranlegt en að reyna besta kost við flutning hans á sjúkrahús, þ.e. með þyrlu. Ekki hefði reynst mögulegt að koma jeppa þarna frameftir. Þyrla Landhelgis- gæslunnar var í útkalli vegna annars vélsleðamanns þegar óskað var eftir aðstoð hennar og síðar kom upp bil- un þannig að senda átti minni þyrl- una. Óskað var eftir að læknir yrði á staðnum og voru tveir læknar sóttir til Akureyrar og fluttir á slysstað. Þangað voru þeir komnir um kl. 22.30 og var það mat þeirra að sögn Magnúsar að óæskilegt væri að mað- urinn yrði fluttur landleiðina á sleða. Því hafi menn einblínt á þyrluflutn- inginn. Svartamyrkur var á slysstað um miðnætti þegar þyrlan kom þangað og eftir að aðstæður höfðu verið kannaðar kom í ljós að ógerlegt væri að lenda á staðnum. Magnús sagði að þá hefði verið unnið hratt í því að flytja manninn landleiðina og spilvír úr snjóbíl sem þarna var og tugir metra af köðlum notaðir við að koma manninum upp brekkuna á sleða. „Reynt var að fara eins mjúklega og mögulegt var við flutninginn upp þessa snarbröttu brekku. Við vorum rúma tvo tíma að koma börunum upp brekkuna. Síðan var snjóbíllinn um klukkutíma frá slysstað og niður að sjúkrabílnum,“ sagði Magnús. Hann sagði að allt að 25 manns hefðu verið á svæðinu og allir boðnir og búnir að leggja fram aðstoð sína. Stefán Birgisson sem var á ferð með hinum slasaða sagði að menn hefðu verið að stökkva fram af stórri hengju þegar óhappið átti sér stað. Hinn slasaði lenti ofan í förum eftir annan sleða þegar hann kom niður úr stökkinu og við það hefði komið mikið högg á sleðann. „Hann missti nánast meðvitund við höggið, féll fram á stýrið og sleð- inn rann stjórnlaust niður brekk- una,“ sagði Stefán. Morgunblaðið/Stefán Birgisson Vélsleðamenn njóta veðurblíðunnar í nágrenni slysstaðarins á Glerárdal, skömmu fyrir slysið á miðvikudag. Slasaður vélsleðamaður sóttur niður snarbratta brekku á Glerárdal Kapp var lagt á flutning með þyrlu                                  !"  KRISTILEGA barnastarfið (Child Evangelism Fellowship) efnir til námskeiðs um kristilegt barnastarf á Sjónarhæð, Hafnarstræti 63 á Ak- ureyri næstkomandi mánudag, 19. mars frá kl. 20 til 22. Einnig verður námskeið á morgun, laugardag í sal Kristilega starfsins í Núpalind í Kópavogi. Á námskeiðinu verður Roy Harr- ison, svæðisstjóri Kristilega barna- starfsins í Evrópu og mun hann kynna félagsskapinn auk þess sem ýmiss konar efni verður til sölu. Þessi félagsskapur starfar í um 150 löndum og er óháður kristilegur félagsskapur sem einbeitir sér að því að börn í sem flestum löndum fái að heyra fagnaðarerindið. Haldin eru margs konar námskeið á vegum félagsins m.a. þar sem fólki í barna- og unglingastarfi er kennt og þá er á þess vegum framleitt ýmiss konar kennsluefni. Efni þessa námskeiðs fjallar um hvernig hægt sé að ná til barna sem ekki koma í sunnudagaskóla eða á kristilega fundi. Námskeiðin verða túlkuð á íslensku og er aðgangur að þeim ókeypis. Námskeið í kristilegu barnastarfi FRAMKVÆMDARÁÐ Akureyrar hefur samþykkt að taka tilboði Malar og sands hf. í gatnagerð og lagnir í Nesjahverfi, áfanga II B. Alls bárust sex tilboð í verkið en Möl og sandur átti lægsta tilboðið, um 7,4 milljónir króna, rúmlega 64% af kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á rúmar 11,5 milljónir króna. Öll til- boðin voru undir kostnaðaráætlun og þar af voru fjögur þeirra undir 76% af kostnaðaráætlun. Hæsta tilboðið kom frá Árna Helgasyni, rúmar 10,7 milljónir króna, eða um 93% af kostn- aðaráætlun. Þá hefur framkvæmdaráð sam- þykkt að taka tilboði SS Byggis í framkvæmdir við 2. áfanga Giljaskóla en eins og fram hefur komið átti fyr- irtækið lægsta tilboðið í verkið. Alls bárust þrjú tilboð í fram- kvæmdir við Giljaskóla en SS Byggir bauðst til að vinna verkið fyrir um 300 milljónir króna, sem er um 91% af kostnaðaráætlun. Kostnaðaráætl- un verksins hljóðar upp á um 330 milljónir króna. Nesjahverfi Samið við Möl og sand FJÓRAR umsóknir bárust um stöðu vímuvarnarfulltrúa Akureyrar en frestur til að sækja um stöðuna rann út nýlega. Þeir sem sóttu um eru Al- dís Sigurðardóttir, Ísafirði, Bryndís Arnardóttir, Akureyri, Helgi Gísla- son, Hafnarfirði, og Snjólaug Birg- issóttir, Bandaríkjunum. Um er að ræða nýtt starf á Ak- ureyri, en það er samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, KA og Akureyrar- kirkju. Hlutverk vímuvarnarfulltrú- ans er m.a. að halda utan um og ann- ast vímu- og forvarnarstarf á vegum Akureyrarbæjar og umræddra félaga sem og annarra félaga og skóla á Akureyri sem að þessum málum vilja vinna. Gert er ráð fyrir að vímuvarnar- fulltrúinn taki til starfa á Akureyri nú í vor. Vímuvarnarfulltrúi Fjórir sóttu um starfið ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð Akur- eyrar hefur samþykkt styrki til 14 íþróttafélaga í bænum vegna félags- og tómstundastarfa, að upphæð rúmlega 9,3 milljónir króna. Þá sam- þykkti ráðið jafnframt að leggja framlag að upphæð 1,7 milljónir króna í afreks- og styrktarsjóð. Greiðslur styrkveitinganna eru háðar því að fyrir liggi ársreikning- ur viðkomandi félags fyrir árið 2000. Hæstu styrkina fengu stóru félögin Þór og KA, samtals 3 milljónir króna hvort félag, en Hestamannafélagið Léttir og Golfklúbbur Akureyrar fengu 800.000 krónur hvort félag. Ungmennafélag Akureyrar og Akureyrarmaraþon fengu úthlutað 450.000 krónum, Siglingaklúbburinn Nökkvi og Bílaklúbbur Akureyrar fengu 250.000 krónur hvort félag. Skotfélag Akureyrar fékk 200.000 krónur, Sundfélagið Óðinn 150.000 krónur, Íþróttafélagið Akur, Íþróttafélagið Eik, Fimleikaráð Ak- ureyrar og Tennis- og badminton- félag Akureyrar 100.000 krónur hvert félag og Kraftlyftingafélag Akureyrar fékk 50.000 krónur í styrk. ÍTA samþykkir styrki til íþróttafélaga Rúmar 9 milljónir króna til félags- og tómstundastarfa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.