Morgunblaðið - 16.03.2001, Qupperneq 23
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 23
TENGSLANET eru nauðsynleg öll-
um þeim sem ætla eða eru í rekstri
og vilja ná árangri. Sem dæmi má
nefna að ef tveir aðilar eru báðir að
reyna að koma jafngóðum hugmynd-
um á framfæri þá er ekki spurning
um að sá sem er betur tengdur nær
lengra.
Þetta kom fram í máli Charlotte
Sigurðardóttur, verkefnastjóra hjá
Impru, á fundi sem Félag kvenna í
atvinnurekstri stóð fyrir á miðviku-
dag.
Á fundinum kom fram að tengsl-
anet hafa á sér neikvæðan stimpil
hér á landi ekki síst fyrir þá sök að
fólk tengir þau við spillingu. Að sögn
Charlotte er hér um mikinn mis-
skilning að ræða því allir sem reki
fyrirtæki þurfi að eiga sér bakhjarla,
s.s. rekstrarráðgjafa, fjárfesta,
birgja, markaðsráðgjafa og síðast en
ekki síst lærimeistara (mentor). Það
að geta leitað eftir stuðningi og feng-
ið aðstoð þegar vandamál koma upp
frá lærimeistara sé allt of lítið notað
hér á landi en sé mjög áberandi víða
erlendis.
Tengslanet mikil-
væg í rekstri
Morgunblaðið/Jim Smart
Charlotte Sigurðardóttir, verkefnisstjóri hjá Impru, fjallaði um tengslanet
á fundi Félags kvenna í atvinnurekstri í gær.
EJS hf. hefur sett á markað nýtt
heildstætt kosningakerfi, Kjarval,
sem byggir á notkun strikamerkja
eða annarra rafrænna skilríkja til
staðfestingar við kjörskrá. Kerfið
var vígt á 39. þingi Alþýðusam-
bands Íslands. Þá hefur Reykjavík-
urborg valið þetta kosningakerfi til
að virkja lýðræðið í borginni þegar
kosið verður um flugvöllinn.
Í tilkynningu frá EJS segir að
Kjarval sjái um alla framkvæmd og
úrvinnslu kosninga. Kerfið er ætlað
til staðbundinna kosninga hjá
sveitarfélögum, félagasamtökum
og hlutafélögum og hentar sérstak-
lega vel þar sem atkvæðisvægi er
breytilegt og talning því flókin.
Niðurstöður liggja samstundis fyrir
Við hönnun kerfisins var meg-
ináherslan lögð á að það væri svo
einfalt og auðvelt í notkun að allir
gætu notað það strax, óháð fyrri
tölvukunnáttu að kjörskrá sé mið-
læg og hægt sé að stýra atkvæða-
vægi kjósenda á einfaldan hátt og
að niðurstöður liggi strax fyrir.
„Kosning fer þannig fram að
kjósendur fá í hendur skírteini sem
inniheldur einkvæmt kjörauðkenni
til staðfestingar á kosningarétti við
kjörskrá. Þessi auðkenni geta verið
á formi strikamerkis, í segulrönd
eða geymd í minni smartkorts.
Miðlæg kjörskrá geymir lista yfir
öll útgefin kjörauðkenni auk upp-
lýsinga um atkvæðavægi sem
bundið er hverjum kjósanda. Í
kjörklefa er skjár, mús og strika-
merkjalesari. Kjósandinn rennir
skírteini sínu undir lesarann. Um
leið og kosningaréttur hefur verið
staðfestur af kjörskrá, birtist at-
kvæðaseðill með réttu atkvæðis-
vægi. Þegar kjósandinn hefur
merkt við val sitt, birtist listi yfir
val hans á skjánum. Nú getur kjós-
andinn staðfest valið eða leiðrétt ef
svo vill til. Talning fer fram um leið
og kosning er afstaðin. Niðurstöður
liggja samstundis fyrir bæði sem
atkvæðamagn og hlutfall. Ekkert
er því til fyrirstöðu að fleiri kosn-
ingar séu samtímis í gangi Kjós-
andinn þarf einungis að staðfesta
rétt sinn fyrir hverja kosningu en
kjörskrá tryggir að hver kjósandi
geti aðeins kosið einu sinni í hverri
kosningu.“
EJS setur
Kjarval á
markað
EIGENDUR Veftorgs hf., sem rek-
ur vefsvæðið torg.is, hafa ákveðið að
færa hlutafé fyrirtækisins niður um
70%, úr 100 milljónum króna í 30
milljónir. Jafnframt hafa eigendurn-
ir komið sé saman um að heimilt
verði að auka hlutaféð síðar aftur í
100 milljónir.
Að sögn Viðars Viðarssonar, for-
manns stjórnar Veftorgs hf. og fram-
kvæmdastjóra Miðheima hf., eru
þessar aðgerðir liður í fjárhagslegri
endurskipulagningu Veftorgs. Hann
segir að ástæðan fyrir niðurfærslu á
hlutafénu sé sú að verulegt tap hafi
verið á fyrirtækinu og verið sé að
færa stofnféð niður til samræmis við
það. Martha Eiríksdóttir, fram-
kvæmdastjóri torg.is, muni hætta
störfum en öll starfsemi vefsvæðis-
ins hafi verið færð inn til Miðheima á
meðan unnið sé að því að finna því
farveg. Ýmislegt sé í skoðun í þeim
efnum.
Hluthafar í Veftorgi hf. eru
Landssíminn, Árvakur, Flugleiðir,
Landsbanki Íslands, Búnaðarbanki
Íslands, Íslandsbanki-FBA og
Sjóvá-Almennar.
Veftorg hf.
færir
hlutafé nið-
ur um 70%
♦ ♦ ♦