Morgunblaðið - 16.03.2001, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 16.03.2001, Qupperneq 24
VIÐSKIPTI 24 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ HLUTDEILD Flugleiða ítaprekstri dótturfélagavar 531 milljón króna ásíðasta ári miðað við 100 milljónir króna árið 1999. Tap af rekstri Flugfélags Íslands nam 382 milljónum króna. Tap af rekstri Flugleiða-Flugfraktar nam 125 milljónum króna, hagnaður Ferðaskrifstofu Íslands nam 43 milljónum króna og hagnaður Bíla- leigu Flugleiða nam 1 milljón króna. Tap Flugleiðahótela nam 40 milljón- um króna. Kynnisferðir voru reknar með 9 milljóna króna tapi. Island Tours GmbH var rekið með 3 millj- óna tapi, Íslandsferðir með 29 millj- óna tapi og rekstur Iceland Tours Ltd. var í járnum. Amadeus Ísland var hins vegar rekið með 5 milljóna króna hagnaði, að því er fram kemur í ársskýrslu Flugleiða. Í máli Sigurðar Helgasonar, for- stjóra Flugleiða, á aðalfundi félags- ins í gær hefur afkoma Flugfélags Íslands verið gjörsamlega óviðun- andi um nokkurt skeið þrátt fyrir ýmsar aðgerðir til að snúa rekstr- inum við. „Segja má að tvíþætt þróun hafi valdið mestu um vandkvæði í þess- um rekstri síðastliðin fjögur ár. Um svipað leyti og félagið var stofnað ár- ið 1997 opnuðust markaðir í innan- landsflugi og óhætt er að segja að samkeppni og offramboð á markaðn- um hafi kippt grundvellinum undan afkomu fyrirtækisins. Fargjöld lækkuðu um allt að 50% og meðal- fargjald um hér um bil þriðjung. Fyrirtækið brást við með ýmis kon- ar hagræðingaraðgerðum, fækkaði starfsfólki, fækkaði ákvörðunarstöð- um, samningar náðust um verulega lækkun leigugjalda á flugvélum og nýir kjarasamningar tryggja hag- ræðingu vegna aðskilnaðar flugvéla- áhafna Flugfélags Íslands og Flug- leiða. Flest benti því til að tækist að snúa tapi í hagnað á árinu 2000. Það gekk ekki eftir. Flugfélagið varð fyrir þungum búsifjum og þótt tækist að ná markmiðum um tekjur á árinu hækkaði kostnaður svo að tap af rekstrinum varð 382 milljónir króna, sem er 15% af veltu.“ Gjaldtaka hins opinbera kostaði 30 milljónir á síðasta ári Að sögn Sigurðar jókst eldsneyt- iskostnaður um 100 milljónir króna vegna verðhækkana og gengisbreyt- inga. Gengisáhrif á flugvélaleigu kostuðu félagið um 100 milljónir króna. Launakostnaður umfram rekstraráætlun var 60 milljónir króna og ýmis annar kostnaður hækkaði um hér um bil 100 milljónir króna frá því sem áætlanir gerðu ráð fyrir. Hluti af því var ný gjaldtaka hins opinbera sem kostaði félagið 30 milljónir króna á árinu og mun kosta 60 milljónir á heilu ári. Þessar miklu sviptingar á markaðnum urðu til þess að helsti keppinautur Flug- félags Íslands dró sig út úr þessari starfsemi á árinu og við það skap- aðist mikið rót á markaðnum sem varð félaginu dýrt meðan á því stóð. Sigurður segir að félagið eigi að mati stjórnenda þrjá kosti. Í fyrsta lagi að taka um það ákvörðun að hætta í innanlandsflugrekstri sem yrði þá gert í áföngum á tveimur ár- um. Í öðru lagi telja stjórnendur kost á að halda rekstrinum áfram með miklum breytingum sem unnið hefur verið að síðustu mánuði. Áætlað er að rekstrarniðurstaða ársins 2001 verði um 400 milljónum króna betri en niðurstaða ársins 2000. Megin- ástæður eru breytingar í tekju- og kostnaðarliðum. Gert er ráð fyrir að tekjur aukist um 15% á árinu en áætlanir gera ráð fyrir að rekstrargjöld aukist aðeins um 5%. Þar af er gert ráð fyrir að farþegatekjur verði 17% hærri en á síðasta ári. Þjónustusamningur um sjúkra- og áætlunarflug út frá Ak- ureyri tryggir félaginu um 110 millj- ónir króna í tekjur og þjónustu- samningar við grænlensku stjórnina um flug á milli Íslands og austur- strandar Grænlands í vetur og sum- ar skila 100 milljónum króna. Sparnaður með rafrænu miða- sölukerfi er áætlaður 80 milljónir á ári og hætt verður leiguflugi með frakt til Bretlands í þessum mánuði og flugvél skilað. „Dregið verður úr flugi til Hafnar í Hornafirði vegna samdráttar í flutningum á þeirri flugleið. Loks hefur verið endursam- ið um leigugjöld á Metro flugvélum félagsins og lækkar fastagreiðsla verulega. Sparnaður af þessu er um 130 milljónir á árinu,“ að sögn Sig- urðar. Hann segir þriðja kostinn, sem félagið telur sig hafa, háðan kosti númer tvö. Þessi kostur er að fá fleiri sterka hluthafa að félaginu. Það er vitaskuld háð því að hægt sé að sýna jákvæða afkomu af rekstr- inum. Markmiðið væri að vera áfram í þessari starfsemi en deila áhættu og ábata með öðrum. „Það er alveg ljóst að árið 2001 er úrslitaár í rekstri Flugfélags Íslands og fylgst er mjög náið með rekstr- inum frá degi til dags. Það sem af er hefur starfsemin verið eftir áætlun, en framundan eru þeir mánuðir þar sem gert er ráð fyrir mestum rekstr- arbata. Ég hef mikla trú á að þessi markmið náist og að loks verði unnt að snúa þessum rekstri í hagnað,“ segir Sigurður. Lækka verður kostnað og auka tekjur Hörður Sigurgestsson, stjórnar- formaður Flugleiða, sagði í ræðu sinni á aðalfundinum að afkoma félagsins væri óviðunandi og ástæða væri til að staldra einkum við tvennt. Annars vegar endurspegli afkoman afar neikvæða þróun ytri þátta á borð við eldsneytisverð og gengi sem félagið sér ekki fyrir né getur frekar en önnur fyrirtæki haft áhrif á. Viðbrögðin felast í að lækka kostnað enn frekar og auka fram- leiðni, t.d. með aukinni nýtingu. Í reynd felst síðan aðalmöguleikinn til að ná rekstrarjafnvægi á ný í því að auka tekjurnar. Slíkt taki Flugleiðir, líkt og aðra, nokkurn tíma, og gangi misjafnlega eftir mörkuðum. „Hins vegar endurspeglar þessi óviðunandi afkoma einnig breytingu á kostnaðarsamsetningu fyrirtækis- ins. Á þeim árum sem grundvöllur var lagður að endurmótun fyrirtæk- isins og endurnýjun flugflotans var hinn fasti kostnaður í rekstrinum hlutfallslega hár veginn á móti hin- um breytilega kostnaði. Nú á síðustu árum, og einkum á síðasta ári, hefur orðið grundvallarbreyting hér á. Breytilegur kostnaður hefur hækk- að sérstaklega vegna hækkunar eldsneytisverðs en einnig vegna hækkunar á Bandaríkjadal og hluta af launum. Það veldur því að flug sem áður borgaði sig gerir það ekki lengur. Dæmi mætti taka að flug sem áður þurfti 50% sætanýtingu þarf nú allt að 75% nýtingu. Breytt kostnaðarsamsetning eins og ég hef greint hér að framan kallar á nýja afstöðu gagnvart markaði. Hún kallar á aðlögun að breyttum kringumstæðum. Hún kallar á var- anlega aukna nýtingu flugvélanna. Hún kallar á samdrátt þann tíma ársins sem eftirspurnin er minni. Hún kallar á skoðun á því að draga saman flugstarfsemina þar sem af- koman er rýrust. Staðan rýrir mögu- leika okkar að fást við ný verkefni þar sem tíma tekur að leiða í ljós hvort hægt er að ná viðunandi arð- semi af nýjum verkefnum.“ Fleiri fyrirtæki að fást við svipuð vandamál og Flugleiðir Hörður segir að þegar rætt sé um vaxandi innlendan kostnað, þá eink- um laun, sé ekki þar með sagt að laun á Íslandi séu hærri en annars staðar. „Það getur líka þýtt að kostnaður verði of hár miðað við hluta þess markaðar sem félagið starfar á. Það er heldur ekki hægt að segja að laun séu of há ef aðrar starfsgreinar á Íslandi geta borið þau. Það er hins vegar fullvíst að það mun ekki standast til lengri tíma að laun hér á landi hækki umfram það sem gerist í nágrenninu. Það er alveg ljóst þegar horft er á íslenskt efnahagslíf að það eru fleiri fyrirtæki sem eru að fást við svipuð vandamál eða viðfangsefni og Flug- leiðir. Sem dæmi mætti taka fimm stærstu útgerðarfyrirtæki landsins, þau sem sagt hafa þegar frá afkomu s.l. árs. Velta þeirra er samanlagt um 20 milljarðar króna. Afkoma þeirra fyrir skatta var tap að upp- hæð 1,3 milljarðar króna. Þar vegur þungt hækkun á eldsneyti og gengi,“ að sögn Harðar. Hann segir að í fyrsta sinn á lið- lega áratug geri Flugleiðir ekki ráð fyrir vexti í áætlunarflugi milli landa en á síðasta ári flutti félagið 1,4 milljónir farþega. Meginmarkmiðið í flugrekstrinum á næstu misserum sé að tryggja betri arðsemi af mikilli fjárfestingu í flugflota og markaðsstarfi. Til þess að það takist þurfi að auka tekjurn- ar, fyrst og fremst með því að ná hærra hlutfalli þeirra farþega sem greiða bestu fargjöldin og gefa besta von um vöxt, að sögn stjórnarfor- manns Flugleiða. Það séu ferða- menn á leið til Íslands og farþegar í viðskiptaerindum. Hluti af þessu viðfangsefni er að ná viðvarandi betri nýtingu flugflotans. Rekstraráætlun Flugleiða og dótturfélaga fyrir árið 2001 gerir ráð fyrir miklum umskiptum í starfsem- inni og hagnaði af rekstrinum en ár- ið 2000 var Flugleiðasamstæðan rekin með 939 milljóna króna tapi. Aðgerðir sem félagið beitir til að bæta afkomuna eru annars vegar í móðurfélaginu og miða að því að styrkja afkomu leiðakerfis í milli- landaflugi og ná fram hagræðingu í rekstri tæknideildar. „Hins vegar eru þær í rekstri dótturfélaga og byggja á þeirri meginkröfu að öll fyrirtæki og rekstrareiningar sam- stæðunnar skili hagnaði. Þar sem því er ekki að heilsa er verið að gera umfangsmiklar breytingar, draga saman eða hætta rekstri sem ekki skilar viðunandi arði,“ að sögn Harð- ar Sigurgestssonar. Þrír nýir í stjórn Flugleiða Á aðalfundinum voru Hörður Sig- urgestsson, Grétar Br. Kristjáns- son, Benedikt Sveinsson, Garðar Halldórsson, Haukur Alfreðsson, og Jón Ingvarsson endurkjörnir í stjórn Flugleiða. Úr stjórn fóru Indriði Pálsson, Árni Vilhjálmsson og Gunnar Jóhannsson en nýir í stjórn voru kjörnir Birgir Rafn Jónsson, Ingimundur Sigurpálsson og Pálmi Haraldsson. Samþykkt var að greiða hluthöf- um 6% arð. Gunnar Helgason, hæstaréttar- lögmaður, lagði fram þrjár tillögur á aðalfundi Flugleiða og voru þær all- ar samþykktar. Samkvæmt þeirri fyrstu beinir að- alfundur Flugleiða þeim tilmælum til stjórnar félagsins að hún láti kanna hug stjórnvalda til einkavæð- ingar flugumferðarstjórnunarinnar á Norður-Atlantshafi. Jafnframt verði kannaðir möguleikar á að stofna fyrirtæki sem hefði að mark- miði að taka þátt í útboði á slíkum rekstri. Sigurður Helgason sagði einka- væðingu Flugumferðarstjórnar mjög mikilvægt mál og Ísland væri ekki fyrsta landið þar sem þetta væri athugað. Ef opinber yfirvöld treysti sér ekki til þess að reka flug- umferðarstjórn hér þá sé viðeigandi að Flugleiðir og aðrir fjárfestar fari í að kanna útboð á starfsemi sem þessari. Flugleiðir muni fylgjast vel með þróun einkavæðingar í Bret- landi og Írlandi og sagðist hann telja mjög mikilvægt að flugumferðar- stjórnin yrði rekin út frá Íslandi. Kannað með útboð á viðhaldi fyrir Landhelgisgæsluna Önnur tillaga Gunnars hljóðaði á þá leið að því verði beint til stjórnar Flugleiða að hún láti kanna hug stjórnvalda til að láta fara fram út- boð á viðhaldsverkefnum Landhelg- isgæslunnar í því augnamiði að ná fram hagræði og sparnaði í rekstri og útgjöldum þeirrar stofnunar. Jafnframt verði kannaðir mögu- leikar Flugleiða á að bjóða í slík verkefni með það fyrir augum að ná fram hagræðingu í rekstri viðhalds- stöðvarinnar í Keflavík. Sigurður sagði að rætt hefði verið um að flytja viðhald Landhelgis- gæslunnar til Flugleiða en ekki hefði verið sýndur neinn sérstakur áhugi á því hingað til. Sigurður sagði að hann myndi taka það upp við for- svarsmenn Flugfélags Íslands að þeir efni til viðræðna við Landhelg- isgæsluna um hvort möguleiki sé á samlegðaráhrifum með sameigin- legu viðhaldi og annarri starfsemi. Gunnar lagði einnig fram tillögu um að aðalfundur Flugleiða beini því til stjórnar félagsins að hún láti kanna möguleika á þátttöku félags- ins í flugvélaviðhaldi Nató og Varn- arliðsins á Keflavíkurflugvelli. Forstjóri Flugleiða segir að Flug- leiðir séu í viðræðum við Varnarliðið ásamt utanríkisráðuneytinu um ol- íuhöfnina í Helguvík og hann teldi að þetta gæti verið mál sem tekið yrði upp við Varnarliðið í framhaldi af þeim viðræðum. Gunnar Helgason gerði ummæli starfsmanns Kaupþings síðastliðið sumar um Flugleiðir að umtalsefni undir liðnum önnur mál á aðalfund- inum. „Þann 17. ágúst síðastliðinn þá lét verðbréfafyrirtækið Kaupþing fara frá sér fréttatilkynningu varð- andi stöðu Flugleiða hf. í tilefni milli- uppgjörs frá félaginu með þessari fyrirsögn: Greining vegna birtingar milliuppgjörs. Gerð er grein fyrir helstu efnisatriðum uppgjörsins. Dregnar fram helstu niðurstöður. Aðvörunarkallið, einskonar bruna- útboð, er framsett einart og mark- visst sjónarhorn. Greiningardeild Kaupþings mælir með sölu á bréfum Flugleiða. Ekki er óeðlilegt að líta svo á að þessi greiningarniðurstaða Kaupþings jafngildi dómi, eins kon- ar Salomonsdómi, um hlutgengi og markaðsvirði eigenda hlutabréfa í Flugleiðum hf. og þar búi að baki djúpstæð þekking, framtíðarsýn og njörvuð spá fram á við af hálfu vé- fréttarinnar, það er að segja Kaup- þings um rekstrarumhverfi og veg- ferð Flugleiða um ókomna tíð. Af þeim sökum sé ráðlegt að losa sig við þessa hlutaeign. Hún sé ekki ásetj- andi eins og sagt var um skepnuhald í búrekstri forðum.“ Gunnar tók annað dæmi af um- mælum Kaupþings um Flugleiðir. Um er að ræða frétt sem birtist í Ríkisútvarpinu miðvikudaginn 28. febrúar sl. og fjallað var um afkomu Flugleiða á síðasta ári. „Fréttamað- urinn spyr sérfræðinginn frá sápu- kúlufyrirtækinu hvað hann segi um þetta. Þá kemur eftirfarandi og tak- ið nú eftir. Hann svaraði: Markaðs- virði félagsins er svo lágt að það fengist meira fyrir að leysa félagið upp en að selja hlutabréf í því.“ Gunnar sagði þetta einstök vinnu- brögð og að þau dæmdu sig sjálf. „Ég vil líka benda á eitt. Að fyrir- tæki þetta gegnir í starfsemi sinni raunverulega tvöföldu hlutverki. Það er að segja hlutverki fjárfestis og hlutverki sem er fólgið í ráðgjöf til hins almenna borgara sem leitar fyrir sér um hagstæð kaup á hluta- bréfum og verðbréfum. Ég velti fyr- ir mér, júrískt eður ei, siðvæðingu slíkrar starfsemi,“ sagði Gunnar Helgason ennfremur. Morgunblaðið/Þorkell Hörður Sigurgestsson, stjórnarformaður Flugleiða, á aðalfundi félagsins í gær: Aðild Flugleiða að flugrekstr- arbandalögum sem hafa verið mjög áberandi í umræðunni hefur ekki verið á dagskrá og er ekki á dagskrá. Árið 2001 ræður úrslitum í rekstri Flugfélags Íslands Forstjóri og stjórn- arformaður Flugleiða ræddu slæma afkomu Flugleiðasamstæðunnar á aðalfundi félagsins í gær. Kom fram í máli þeirra að afkoma síðasta árs hefði verið óvið- unandi en áætlanir gerðu ráð fyrir viðsnún- ingi úr tapi í hagnað í ár.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.