Morgunblaðið - 16.03.2001, Side 26

Morgunblaðið - 16.03.2001, Side 26
ERLENT 26 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÓTTI manna um að uppreisn al- banskra skæruliða geti þróast í alls- herjarstríð á Balkanskaga jókst á miðvikudag, þegar átökin í Make- dóníu bárust til Tetovo, næststærstu borgar landsins. Þá hafa albanskir skæruliðar í suðurhluta Serbíu hert árásir sínar á fyrstu mánuðum þessa árs, svo Atlantshafsbandalagið (NATO) hefur séð sig tilneytt að auka viðbúnað á svæðinu og heimilað Júgóslavíustjórn að senda hersveitir þangað. Í raun er um að ræða aðskildar uppreisnir tveggja skæruliðahreyf- inga á tveimur svæðum. Annars veg- ar í suðurhluta hlutlausa svæðisins svonefnda við mörk Kosovo-héraðs og Serbíu, nálægt landamærum Makedóníu, og hins vegar nokkru vestar, í Makedóníu við landamærin að Kosovo. Hreyfingarnar, UCPMB og UCK, eiga það sameiginlegt að berjast fyrir auknum réttindum Alb- ana, annars vegar innan Júgóslav- neska ríkisins og hins vegar í Makedóníu. Talið er að fyrrverandi félagar í Frelsisher Kosovo, sem var leystur upp eftir að NATO tók við stjórn héraðsins, styðji báðar skæru- liðahreyfingar, berjist með þeim og útvegi þeim vopn og vistir. UCPMB á hlutlausa svæðinu Í suðurhluta hlutlausa svæðisins við mörk Serbíu og Kosovo-héraðs hefur Frelsisher Presevo, Medvedja og Bujanovac (UCPMB) látið að sér kveða. Svæðið er fimm km breitt og var lýst hlutlaust að loknum átök- unum í Kosovo árið 1999. Átti það að gegna hlutverki nokkurs konar „stuðpúða“ milli júgóslavneska hers- ins og hersveita NATO í Kosovo. Samkvæmt vopnahléssamkomulag- inu var einungis léttvopnuðum serbneskum lögreglumönnum heim- ilt að vakta svæðið og skæruliðar hafa því getað hafst þar við nær óáreittir. Í suðurhluta hlutlausa svæðisins búa um 70 þúsund Albanar og skæruliðar UCPMB berjast fyrir sjálfsákvörðunarrétti þeirra og hugsanlega sameiningu við Kosovo, ef héraðið fengi sjálfstæði. Talið er að skæruliðarnir séu nokkur hundr- uð, jafnvel um tvö þúsund, en þeir hófu baráttu sína í byrjun síðasta árs. UCPMB samdi á mánudag við Júgóslavíustjórn um tímabundið vopnahlé. Á mánudag komust stjórnvöld í Belgrad jafnframt að samkomulagi við NATO um að senda herlið inn á hlutlausa svæðið í fyrsta sinn síðan átökunum lauk, í því skyni að flæma skæruliða þaðan. Hófu her- sveitirnar innreið sína á miðvikudag. UCK í Makedóníu Þjóðfrelsisherinn (UCK), um 200 manna skæruliðahópur sem starfar í Makedóníu, hefur síðan í janúar á þessu ári lent í endurteknum átökum við makedóníska hermenn, lögreglu- menn og landamæraverði við landa- mærin að Kosovo. UCK-hreyfingin er byggð á leifum nokkurra minni hreyfinga albanskra aðskilnaðar- sinna, sem höfðu starfað síðan snemma á 10. áratugnum, en talið er að hreyfingin sé ekki eins skipulögð og UCPMB. Átökin höfðu aðallega átt sér stað í námunda við bæina Tearce og Tanusevci, nálægt landamærunum, en á miðvikudag bárust þau til Te- tovo, sem er í um 40 km fjarlægð þaðan. Óttast er að átökin breiðist enn frekar út í vesturhluta Maked- óníu, þar sem stærstur hluti hinna 600 þúsunda Albana í landinu hefur búsetu. Talið er að skæruliðar hafi það að markmiði að sameina vest- urhéruð Makedóníu við Kosovo, í þeirri von að héraðinu verði á end- anum veitt sjálfstæði. UCK gaf í vikunni út yfirlýsingu, þar sem stefnumál hreyfingarinnar eru sett fram. Krefjast skæru- liðarnir þess meðal annars að ný stjórnarskrá verði sett í Makedóníu þar sem albönskum íbúum landsins verði veitt jöfn réttindi á við Maked- óníumenn og að alþjóðlegir aðilar taki að sér að miðla málum. NATO gagnrýnt fyrir seinagang Erfitt er að meta að hve miklu leyti albanskir íbúar í Kosovo og Makedóníu styðja þessar skæruliða- hreyfingar eða hversu mikil hætta stafar af baráttu þeirra. En margir hafa gagnrýnt NATO fyrir að hafa brugðist of seint við hættunni. Friðargæslusveitir banda- lagsins (KFOR) héldu sig í fyrstu al- gerlega innan yfirlýsts verksviðs síns og létu nægja að sprengja til dæmis upp vegi að landamærunum til að torvelda för skæruliða. Und- anfarna viku hafa afskiptin aukist. Slíkt er ekki áhættulaust og gæti skapað friðargæsluliðinu óvild alb- anskra íbúa. En flest bendir nú til að aðgerðaleysi hafi enn meiri hættu í för með sér. Harðnandi árásir albanskra skæruliða í Serbíu og Makedóníu Vekja ugg um nýtt stríð á Balkanskaga Reuters Íbúar Tetovo yfirgefa heimili sín í gær. Ýmsir óttast að upp- reisn albanskra skæru- liða í Makedóníu og suð- urhluta Serbíu, sem nú hefur staðið í rúmt ár, geti þróast í nýtt alls- herjarstríð á Balkan- skaga. En hverjir eru skæruliðarnir og fyrir hverju berjast þeir?   3  4  7    " '.     ! "#$% ! 3         & '( + &)%! *#+,# !% "+-!   !"# $%&'&( % 56789:;<: .% #+%$ "#$%!&%/ &     + !  + #%!    7   "  ). VARNARMÁLARÁÐHERRA Ind- lands, George Fernandes, sagði af sér embætti í gær. Afsögnin tengist mútuhneykslinu svokallaða sem skekið hefur indversku ríkisstjórn- ina undanfarna daga. Einn stjórnar- flokkur samsteypustjórnar Atal Behari Vajpayee forsætisráðherra dró sig út úr ríkisstjórninni fyrr í gærdag vegna málsins. Jaya Jaitley, formaður Samata-flokksins sem á aðild að ríkisstjórninni, sagði og embætti sínu lausu í gær. Vonir ríkisstjórnarinnar um að af- sögn Fernandes yrði til þess að lægja gagnrýnisraddir stjórnarand- stæðinga urðu þó fljótlega að engu, þeir vilja að ríkisstjórnin segi af sér. Hneykslið blossaði upp sl. þriðju- dag þegar myndband liðsmanna fréttavefjarins tehelka.com var sýnt. Í því sáust háttsettir foringjar í hernum og emb- ættismenn stjórnarflokk- anna taka við peninga- greiðslum gegn loforðum um að mæla með vopna- sölu fyrirtækisins West End. Fyrir- tækið var hins vegar hugarsmíð fréttamanna sem þóttust vera vopnasalar. Afsagnarræðu Fernandes var sjónvarpað á indversku ríkissjón- varpsstöðinni. Í henni segir Fernan- des ástæðu afsagnarinnar vera þá að hann vilji styrkja „baráttuþrek hers- ins og koma í veg fyrir frekara tjón varnarmála landsins.“ Fernandes sagðist hvetja forsætisráðherra til þess að rannsaka allar ásakanir sem kviknað hefðu um varnarmál í kjöl- far málsins. Fernandes vísaði því á bug að hann hefði hagað sér ótil- hlýðilega í embætti og sagðist hafa barist gegn spillingu í sinni embætt- istíð. Áður en Fernandes tilkynnti um afsögn sína átti forsætisráðherrann fund með K.R. Narayanan, forseta Indlands þar sem þeir ræddu ástandið. Vajpayee hafði áður hafnað tilboði Fernandes um að segja af sér en þrýstingur jókst sífellt á hann um að skipta um skoðun. Aðeins einn stjórnarflokka ríkis- stjórnarinnar hefur ekki lýst yfir stuðningi við Vajpayee. Stjórnmála- flokkurinn Trinamool Kongress, dró sig út úr ríkisstjórn í gær. Flokk- urinn á erfiðar kosningar fyrir hönd- um í heimaríki sínu í V-Bengal. Úr- sögnin hefur ekki mikil áhrif á ríkisstjórnina sem er með öruggan meirihluta á þingi. „Ríkisstjórnin verður að segja af sér“ Stjórnarandstæðingar héldu uppi harðorðri gagnrýni á ríkisstjórnina í gær. „Ásakanir um að forsætisráð- herrann sé flæktur í hneykslið hafa kviknað. Ríkisstjórnin verður að segja af sér. Það er ekki svigrúm til samningaviðræðna,“ sagði Kapil Sinal, leiðtogi stærsta stjórnarand- stöðuflokkins, Kongressflokksins. Bangaru Laxman sagði sl. þriðju- dag af sér embætti sem formaður flokks hindúista, BJP, sem er öflug- asti stjórnarflokkurinn. Bæði hann og Jaitley segjast hafa verið fórnar- lömb rógsherferðar. Þau sjást bæði taka við peningum í myndbandinu. Stjórnarflokkur dregur sig úr ríkisstjórn Indlands í kjölfar mútuhneykslis Varnarmálaráðherra segir af sér Nýju-Delhi. AFP, AP. George Fernandes BOSSE Ringholm, fjármálaráð- herra Svíþjóðar, hefur verið harð- lega gagnrýndur af flokkssystkinum sínum fyrir þá ætlun sína að hyggj- ast festa kaup á lóðinni sem ein- býlishús hans stendur á. Jafnaðarmenn hafa gagnrýnt þá ákvörðun borgar- stjórnar Stokk- hólms sem gerir húseigendum kleift að kaupa lóðir þær sem húsin standa á fyrir helming af því verði sem lóða- matið segir til um. Þessi ákvörðun var tekin 1999 af núverandi meiri- hluta borgarstjórnar sem hægri- flokkarnir mynda. Að því er fram kemur í sænsku dagblöðunum Dagens Nyheter og Aftonbladet sýndi Ringholm strax þá um haustið áhuga á að kaupa lóð- inasem er í Enskede-hverfinu í suð- urhluta Stokkhólms. Þá var lóðamat- ið 400.000 skr., andvirði 3,5 milljóna ísl. kr. Á dögunum fékk ráðherrann svo bréf frá borgaryfirvöldum sem buðu honum að kaupa lóðina á helming þessa verðs, eða 1,7 milljónir ísl. kr. Ringholm sagði í samtali við sænsku fréttastofuna TT að hann hefði ákveðið að taka tilboðinu. „Ég ákvað það fyrir einu og hálfu ári síð- an en borgaryfirvöld hafa dregið það að senda mér formlegt tilboð.“ Ringholm leigir nú lóð hússins síns fyrir um 86.000 ísl. kr. árlega. Leigulóðir í Stokkhólmi eiga rætur sínar að rekja til upphafs 20. aldar- innar en þá leigðu bæjaryfirvöld fá- tækum íbúum lóðir fyrir lítið fé þar sem þeir gátu reist hús sín. Lóðirnar voru leigðar til langs tíma en leigan hefur snarhækkað hin síðari ár. Of lágt verð á lóðunum Sænskir stjórnmálaflokkar deila ekki um sölu á lóðunum, það er verð- ið sem fer fyrir brjóstið á þeim. Síð- ast þegar jafnaðarmenn fóru með völd í borgarstjórn Stokkhólms voru þær seldar fyrir 73% af lóðamati. Sl. áramót hækkaði lóðamat lóða í eigu borgarinnar um 60-100% og er mat lóðar Ringholm nú t.d. 7 millj- ónir ísl. kr. Ringholm segist taka undir það að kaupverðið sé of lágt, hins vegar verði sömu reglur að gilda fyrir alla. Málið þykir að sumu leyti minna á mál Lailu Freivald, fyrrverandi dómsmálaráðherra og flokkssystur Ringholm, sem neyddist til að segja af sér embætti í fyrra þegar upp komst að hún hugðist kaupa leigu- íbúð þá sem hún bjó í og var í eigu húsnæðisfyrirtækis í eigu borgar- innar. Jafnaðarmenn höfðu lýst sig alfarið á móti því að leiguíbúðir þess- ar yrðu seldar íbúum en ákvörðun um það var tekin af meirihluta borg- arstjórnarinnar. Ringholm sagði í samtali við Af- tonbladet að hann hefði alls ekki í hyggju að segja af sér. Annika Billst- röm, leiðtogi minnihluta jafnaðar- manna í borgarstjórn, var mjög harðorð í garð Freivald á sínum tíma. Hún gagnrýnir ákvörðun Ringholm, en þó ekki eins og Frei- vald. Að sögn Billström beinist gagnrýni hennar einkum að meiri- hlutanum. Fyrir hans tilstilli hefði bærinn nú orðið af 4.400 milljónum skr., andvirði 38 milljarða ísl. kr., sem hefði mátt nota í mikilvæga hluti. Fjármálaráð- herra Svíþjóðar Gagnrýnd- ur vegna fyrirhug- aðra lóða- kaupa Stokkhólmi. Reuters. Bosse Ringholm

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.