Morgunblaðið - 16.03.2001, Page 33

Morgunblaðið - 16.03.2001, Page 33
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 33 DEREK Mundell opnar sýningu á vatnslitamyndum í Galleríi Reykjavík, Skólavörðustíg 16, á morgun, laugardag. Derek Mundell fæddist hinn 17. mars 1951 og ólst upp í bænum Ryde á Wighteyju undan suður- strönd Englands. Hann lauk BS- prófi í landbúnaðarvísindum árið 1972, settist að á Íslandi haustið 1976 og hefur búið hér síðan með fjölskyldu sinni. Hann starfar við markaðs- og sölumál hjá SR-mjöli. Teikning og málun hafa ætíð verið hugðarefni Dereks. Í fimm- tán ár hefur áhuginn mest beinst að málun með vatnslitum. Derek hefur sótt fjölda myndlistarnám- skeiða og lengi unnið með hópi áhugamanna er hist hafa í módel- tímum. Derek hefur áður tekið þátt í samsýningu 48 myndlistar- manna í Galleríi Fold (1996). Myndirnar á sýningunni eru rúmlega 30 talsins. Flestar eru þær módelmyndir og uppstillingar en í eldri myndunum hefur Derek málað sérstæða staði og sérkenni í landslaginu. „Einhvers staðar varð ég að byrja og hvers vegna ekki að opna fyrstu einkasýningu mína á 50 ára afmælinu? Með aðstoð og þolin- mæði margra góðra kennara hef ég smám saman kynnst þessari grein málaralistarinnar sem talin er enskust þeirra allra. Ég hef ver- ið að einfalda verk mín að undan- förnu og reyna að láta þau tala sínu máli. Það sést á sýningunni þar sem ég að gamni mínu hef einnig sett eldri myndir og gef þannig til kynna vissa þróunarsögu,“ segir Derek. Sýningin stendur til 31. mars. Opið er alla virka daga kl. 13–18, laugardaga kl. 11–16 og sunnudag- inn 18. mars kl. 14–17. Vatnslitamyndir í Galleríi Reykjavík Derek Mundell við eitt verka sinna.  MÁL og menning/Edda – miðlun og útgáfa hefur gefið út bókina Learning Icelandic, kennslubók í ís- lensku fyrir útlendinga. Þetta er grunnbók og miðað er við að byrjendur, hvort heldur þeir eru í bekkjarkennslu eða sjálfsnámi. Bók- in skiptist í 15 leskafla, heildarglósu- lista og ítarlega málfræði með fjölda dæma. Í hverjum kafla eru tekin fyrir afmörkuð atriði í málfræðinni og þau æfð bæði skriflega og með hlustun. Orðaforði hverrar blaðsíðu er glós- aður neðst á síðunni. Allar skýringar, fyrirmæli, glósur og málfræðin eru á ensku. Fjöldi teikninga og korta prýðir bókina. Svör við æfingum eru aftast í bókinni. Hlustunarefni á geisladiski fylgir hverri bók. Auður Einarsdóttir, Guðrún Theo- dórsdóttir, María Garðarsdóttir og Sigríður Þorvaldsdóttir sömdu efnið. Bókin er 160 bls., prentsmiðjan Grafík hf. sá um prentvinnslu. Margrét E Laxness gerði kápu, teikningar og útlit, og Ólafur Valsson kort. Verð bókarinnar er 3.980 kr. Nýjar bækur alltaf á fimmtudögum Eftirlits- og öryggiskerfi fyrir heimili, stofnanir og fyrirtæki Fjölbreytt úrval af eftirlitsmyndavélum til inni- og útinotkunar, skjáir í lit eða sv/hv og myndbandstæki, sem taka upp allt að 960 klst. Bjóðum ennfemur úrval innbrota-, öryggis- og brunaviðvörunarkerfa. Veitum tæknilega ráðgjöf við val og uppsetningu! Mjög hagst ætt verð! www.ef.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.