Morgunblaðið - 16.03.2001, Síða 46
46 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
ATVINNA ÓSKAST
Vantar þig starfsmann?
Kona, 52 ára, með góða reynslu af ýmis konar
skrifstofustörfum, bókhaldi, sölumennsku, inn-
kaupum, ferðamálum o.fl., óskar eftir starfi.
Góð tölvukunnátta, einnig mjög góð ensku-
og dönskukunnátta. Uppl. í síma 898 8690.
Barngóð kona
Barngóð kona óskast í Vesturbæ til að gæta
6 mánaða drengs í fjóra tíma á dag.
Nánari upplýsingar í síma 551 5144.
Aðstoðarskólameistari
Staða aðstoðarskólameistara í Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi er laus til umsóknar
og veitist frá 1. júní nk Aðstoðarskólameistari
er staðgengill skólameistara og vinnur við dag-
lega stjórn og rekstur skólans. Ráðið er í starfið
til 5 ára í senn. Kjör eru samkvæmt kjarasamn-
ingi ríkisins og Kennararsambands Íslands.
Umsóknir skal senda skólameistara Fjölbrauta-
skóla Vesturlands, Vogabraut 5, 300 Akranesi.
Ekki þarf að nota sérstök umsóknareyðublöð.
Öllum umsóknum verður svarað er þær hafa
verið afgreiddar.
Undirritaður veitir frekari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 30. mars.
Skólameistari.
Hafrannsóknastofnunin
Ritari/fulltrúi
Hafrannsóknastofnunin óskar eftir að ráða rit-
ara/fulltrúa forstjóra. Auk almennra starfa ritara
forstjóra hefur ritari/fulltrúi umsjón með skjala-
vörslu aðalskrifstofu stofnunarinnar.
Leitað er eftir áhugasömum starfsmanni sem
getur unnið sjálfstætt, hefur lokið háskólaprófi
og/eða býr yfir haldgóðri reynslu og góðri
kunnáttu í íslensku, ensku og Norðurlandamáli.
Umsækjendur þurfa að hafa góða tölvukunn-
áttu og nokkra reynslu af skjalavörslu.
Laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráð-
herra og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun,
aldur og fyrri störf, sendist Hafrannsóknastofn-
uninni fyrir 1. mars nk.
Hafrannsóknastofunin er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði
haf- og fiskirannsókna og gegnir auk þess ráðgjafahlutverki varðandi
skynsamlega nýtingu og verndun auðlinda hafsins. Mikill hluti starf-
seminnar tengist alþjóðlegu samstarfi við erlendar hafrannsókna-
stofnanir og háskóla. Stofnunin rekur 5 útibú, tilraunaeldisstöð í
eldi sjávarlífvera, þrjú rannsóknaskip og hefur að jafnaði 170 starfs-
menn í þjónustu sinni.
Hafrannsóknastofnunin,
Skúlagötu 4,101 Reykjavík,
sími 552 0240.
Kirkjuráð hinnar íslensku þjóðkirkju
auglýsir
starf rektors
Skálholtsskóla
laust til umsóknar
Skálholtsskóli, er fræðslu- og ráðstefnusetur
á vegum þjóðkirkjunnar.
Kirkjuráð ræður í stöðuna.
Rektor Skálholtsskóla hefur aðsetur á Skál-
holtsstað.
Rektor hefur yfirumsjón og eftirlit með rekstri
skólans í samvinnu við skólaráð. Hann hefur
forystu um uppbyggingu og þróun starfs skól-
ans, meðal annars með því að stofna til nám-
skeiða og standa fyrir málþingum um kirkjuleg
og almenn efni á sviði guðfræði, kirkjutónlistar
og fræðslu í samræmi við lög um Skálholts-
skóla, nr. 22, 29. mars 1993.
Rektor ber ábyrgð á fjárreiðum skólans gagn-
vart kirkjuráði.
Um er að ræða krefjandi og áhugavert starf,
þar sem frumkvæði, skipulags- og samstarfs-
hæfileikar fá að njóta sín.
Hæfniskröfur:
Krafist er háskólaprófs og þekkingar og reynslu
í kirkjulegu starfi. Æskilegt er að rektor hafi
reynslu af stjórnun og rekstri og hann verður
að eiga auðvelt með mannleg samskipti.
Ráðið verður í starfið frá 1. ágúst nk. til fimm
ára.
Umsóknarfrestur er til 5. apríl 2001.
Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um
menntun og fyrri störf.
Umsóknum skal skila til skrifstofu Skálholts-
skóla, Skálholti, 801 Selfossi.
Nánari upplýsingar veitir formaður skólaráðs,
vígslubiskup í Skálholti, sími 486 8972.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Þróunarfélags
miðborgarinnar
verður haldinn á Hótel Borg fimmtudaginn
29. mars kl. 18.15.
Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins.
Aðrir dagskrárliðir nánar auglýstir síðar.
Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins
skulu berast skrifstofu félagsins eigi síðar en
viku fyrir aðalfund.
Þróunarfélag miðborgarinnar,
Laugavegi 51.
Fundarboð
Aðalfundur Hraðfrystihúss Eskifjarðar hf. verð-
ur haldinn miðvikudaginn 4. apríl nk. kl. 16.00
í safnaðarheimili kirkjumiðstöðvarinnar á Eski-
firði.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
13. grein samþykkta félagsins.
2. Tillaga um breytingar á 20., 21. og 23. grein-
um samþykkta félagsins.
3. Tillaga um heimild til stjórnar um kaup á
eigin hlutum.
4. Önnur mál.
Stjórnin.
Aðalfundarboð
Aðalfundur Steinullarverksmiðjunnar hf. verð-
ur haldinn á Kaffi Krók, Aðalgötu 16, Sauðár-
króki, mánudaginn 26. mars 2001, kl. 14.00.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, skv.
16. gr. samþykkta félagsins:
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess
sl. starfsár.
2. Efnahags- og rekstrarreikningur fyrir liðið
reikningsár, ásamt skýrslu endurskoðenda.
3. Tekin skal ákvörðun um hvernig fara skuli
með hagnað eða tap félagsins á reikningsár-
inu.
4. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og
endurskoðenda.
5. Kosning stjórnar og varastjórnar og tilnefn-
ing fulltrúa ríkisins.
6. Kosning endurskoðenda.
7. Breytingar á samþykktum félagsins.
8. Önnur mál, sem löglega eru upp borin.
Dagskrá fundarins, ársreikningur, tillögur til
breytinga á samþykktum félagsins og skýrsla
endurskoðenda liggur frammi á skrifstofu fé-
lagsins, skv. 14. gr. samþykkta þess.
Steinullarverksmiðjan hf.
KENNSLA
Stangaveiðimenn athugið
Nýtt námskeið í fluguköstum hefst sunnudag-
inn 18. mars í TBR-húsinu, Gnoðarvogi 1,
kl. 20.00.
Kennt verður 18. og 25. mars, 1., 8. og 22. apríl.
Við leggjum til stangir. Mætið tímanlega.
Skráning á staðnum gegn greiðslu
(ekki greiðslukort). Takið með ykkur inniskó.
KKR, SVFR og SVH.
TILKYNNINGAR
Handverksmarkaður
verður á Garðatorgi laugardaginn
17. mars. Básapantanir í símum
861 4950 og 692 6673.
STYRKIR
Astmi — ofnæmi — styrkur
Styrktar- og minnarsjóður Samtaka gegn astma
og ofnæmi veitir í ár styrki í samræmi við tilgang
sjóðsins sem er:
A. Að vinna að aukinni þekkingu á astma-
og ofnæmissjúkdómum.
B. Að styrkja lækna og aðra sem leita sér
þekkingar á ofangreindum sjúkdómum
og kunnáttu í meðferð þeirra með fram-
haldsnámi eða rannsóknum á þessu
sviði.
Umsóknir um styrki, ásamt gögnum, skulu hafa
borist til sjóðsstjórnar í pósthólf 936, 121
Reykjavík, fyrir 16. apríl 2001.
Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Astma- og ofnæmisfélagsins í síma 552 2153.
Sjóðsstjórnin.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 1 1813168½ UI.
I.O.O.F. 12 1813168½ 9.0.
I.O.O.F. 19 18131717 Hf.*
Útivist
Nú mæta allir á Útivistar-
skrallið í Húnabúð, Skeifunni
11, í kvöld, föstudaginn 16.
mars.
Sveitaball í borg. Diskótekið Ó.
Dollý sér um fjörið frá kl. 10—03.
Miðar við innganginn. Verð að-
eins 1.000 kr. (ekki kort).
Sunnudagsferð 18. mars
kl. 13.00
Krýsuvík — Sveifluháls.
Um 3 klst. ganga.
Sjá heimasíðu: utivist.is og
textavarp bls. 616.
Sími 533 1777
--------------------------------------------
Ráðstefnan
Hærra minn Guð til þín
Chris Vigil í Verzlun-
arskólanum. Klífum
hærra - styrkur unga
fólksins föstudaginn
16. mars kl. 20. Dans
— break — rapp o.fl.
----------------------------------------------
Sunnudaginn 18. mars kl. 17.
Barnagæsla verður í boði.
----------------------------------------------
Komdu og vertu með í því sem
Guð er að gera.
Gönguferð sunnudaginn
18. febrúar: Reynivallaháls —
Fossá við Hvalfjörð.
Um 2,5—3 klst. ganga. 250 m
hæðaraukning. Fararstjóri Sig-
ríður H. Þorbjarnardóttir.
Verð kr. 1.500. Brottför frá BSÍ
og Mörkinni 6 kl. 10.30.
Námskeið í rötun 19., 21. og
24. mars: Áttaviti og GPS
staðsetningartæki. Leiðbein-
endur frá Íslenska alpaklúbbn-
um. Skráið ykkur á skrifstofu F.Í.,
s. 568 2533 eða netfang fi@fi.is .
Takið þátt í spurningaleikn-
um á heimasíðu F.Í. Dagsferðar-
miði dreginn út í hverri viku.
www.fi.is, textavarp RUV
bls. 619.
Í kvöld kl. 21 heldur Jörmundur
Ingi Hansen erindi: „Bænir og
galdur“ í húsi félagsins, Ingólfs-
stræti 22.
Á laugardag kl. 15—17 er opið
hús með fræðslu og umræðum,
kl. 15.30 verður sýnt myndband
um sólkerfið og ægivíddir
geimsins.
Á sunnudögum kl. 17—18 er
hugleiðingarstund með leiðbein-
ingum fyrir almenning.
Á fimmtudögum kl. 16.30—
18.30 er bókaþjónustan opin
með miklu úrvali andlegra bók-
mennta.
Guðspekifélagið hvetur til
samanburðar trúarbragða, heim-
speki og náttúruvísinda. Félagar
njóta algers skoðanafrelsis.