Morgunblaðið - 16.03.2001, Side 55

Morgunblaðið - 16.03.2001, Side 55
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 55 Útfararþjónustan ehf. Stofnuð 1990 Rúnar Geirmundsson útfararstjóri Símar 567 9110 og 893 8638 www.utfarir.is runar@utfarir.is ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla. ✝ Ingileif SigríðurZoëga (Inga) fæddist í Reykjavík 19. nóvember 1927. Hún lést á Landspít- alanum við Hring- braut 6. mars síðast- liðinn. Foreldar hennar voru Geir G. Zoëga vegamála- stjóri, f. 28. sept. 1885, d. 4. jan. 1959, og Hólmfríður Zoëga, f. 5. maí 1894, d. 7. júlí 1982. Systk- ini Ingu eru Helga, f. 7. júlí 1917, d. 10. sept. 1932, Bryndís, f. 7. júlí 1917, d. 2. sept. 2000, Geir Agnar, f. 8. júní 1919, Gunnar, f. 7. mars 1923, og Áslaug f. 26. janúar 1926. Inga giftist 31. mars 1962 Jóni Magnússyni skrifstofustjóra, f. 26. júní 1917, d. 15. ágúst 1972. For- eldrar hans voru Magnús Jónsson, sparisjóðsstjóri í Borgarnesi, og Guðrún Jónsdóttir organisti. Dóttir Ingu og Jóns er Bryndís Helga, BA í frönsku og sagnfræði frá HÍ, f. 27. ágúst 1962. Maki hennar er Guðmund- ur Kristinn Ingvars- son viðskiptafræð- ingur, f. 14. okt. 1959. Foreldrar hans eru Ása Ás- geirsdóttir, f. 23. maí 1935, og Ingvar Kristinsson verslun- armaður, f. 8. jan. 1935, d. 5. sept. 1986. Börn Bryndísar Helgu og Guðmund- ar Kristins eru Ás- laug Inga, f. 9. ágúst 1989, Jón Orri, f. 9. febrúar 1992, og Unnur Þórdís, f. 3. nóvember 1997. Fyrir átti Guðmundur Sig- nýju, f. 7. júní 1982. Inga lauk prófi frá Kvennaskól- anum í Reykjavík árið 1945 og handavinnukennaraprófi frá Kennaraskólanum í Reykjavík ár- ið 1953. Hún starfaði sem handa- vinnukennari við Melaskólann í Reykjavík frá árinu 1953. Útför Ingu fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku amma. Nú hvílir þú í friði og ró á himni háum og horfir niður til okkar. Engillinn sem þú bjóst til og gafst okkur er núna í glugganum hjá okkur og við systkinin erum í peysunum sem þú prjónaðir á okkur. Við vitum að nú ert þú glöð og ánægð í þessum nýja heimi og seinna hittum við þig aftur á ný. Þú varst alltaf svo góð og vildir allt- af dekra mikið við okkur. Þú keyrðir mig alltaf í píanótíma og sagðir mér margt skemmtilegt á leiðinni. Þú bauðst okkur oft á ýmsa veit- ingastaði, þótt þú værir búin að vera og værir svona mikið veik í fætinum. Þú kenndir okkur líka að sauma og prjóna ýmsa hluti heima hjá þér í Skaftahlíðinni. Elsku amma, við systkinin þökkum fyrir allar samverustundirnar og kveðjum þig með söknuði. Áslaug Inga og Jón Orri. Í æsku var líf mitt á margan hátt samofið lífi Ingu frænku eins og við systkinin kölluðum hana móðursystur okkar. Inga bjó lengi í föðurhúsum, fyrst á Túngötu og seinna á Laug- arásveginum. Fjöldi heimsókna til afa og ömmu gaf því tilefni til margvís- legra samskipta og heimsóknir henn- ar á heimili fjölskyldu minnar á Vest- urbrún voru margar. Landfræðileg nálægð gerði það auðvelt fyrir mig og bróður minn Pál að hlaupa frá Vesturbrúninni niður á Laugarásveginn og leita hjálpar hjá Ingu frænku. Þegar illa viðraði til að bera út Morgunblaðið, málgagn allra landsmanna í hverfinu, var hún okkur stoð og stytta. Þá keyrði hún okkur bræður um hverfið með þungan pakkann. Ekki man ég eftir því að Inga hafi sagt nei, þó svo við værum snemma á fótum og langur vinnudag- ur fram undan hjá henni við kennslu í Melaskólanum – og gott að lúra að- eins lengur. Við bræður leituðum þannig gjarn- an til Ingu frænku, og seinna einnig til Jóns eiginmanns hennar, þegar mikið lá við. Ein jólin vildum við kom- ast hjá því að gefa hvor öðrum sömu jólagjöfina. Hver var betri en Inga til að tryggja að sama bókin yrði ekki keypt? Fyrst fór Páll inn með Ingu í Eymundsson í Austurstræti og var fljótur til baka, greinilega nokkuð ánægður með kaupin. Þegar ég kom inn í bókabúðina var ég líka fljótur að velja bók fyrir bróður minn en Inga var þver og leiðinleg. Henni fannst lít- ið til bókarvalsins koma, sagði að þetta væri ekkert skemmtileg bók og Páli myndi áreiðanlega ekki líka hún. Að lokum gafst Inga upp fyrir ágangi mínum, eftir dágóða stund. Það var ekki að furða að jólasveinninn færði okkur bræðrum sömu bókina, Ellefu strákar og einn knöttur. Ekki ásakaði ég Ingu fyrir að hafa brugðist trausti okkar í þetta sinn, enda við ofurefli að etja. Við fráfall Ingu hafa margar sam- eiginlegar minningar komið upp í hugann og margar þeirra ljóslifandi. Nokkrar þeirra náði ég reyndar að rifja upp með henni á sjúkrahúsinu. Þrátt fyrir erfiðan sjúkdóm sá ég brosið og glettnina sem ég þekkti frá því í gamla daga. Ég og fjölskylda mín þökkum Ingu frænku samfylgd- ina og sendum Bryndísi Helgu, Kidda og börnum þeirra innilegar samúðar- kveðjur. Geir Gunnlaugsson. Kveðja frá Melaskóla Með þessum orðum viljum við kveðja fyrrverandi samstarfsmann okkar, Ingu Zoëga. Inga kenndi handavinnu við skól- ann um áratuga skeið. Við eigum margar góðar minningar um Ingu. Hún var samviskusöm í starfi og var okkur hjálpsöm og ráða- góð ef á þurfti að halda. Inga bar hag nemenda sinna ætíð fyrir brjósti. Við vottum Bryndísi og öðrum ætt- ingjum innilega samúð. Starfsfólk Melaskóla. INGILEIF SIGRÍÐUR ZOËGA ✝ HólmfríðurÁrnadóttir fædd- ist í Hlíð á Langanesi 19. febrúar 1926. Hún lést að heimili sínu 8. mars síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Árni Hermann Guðnason, f. 8. júlí 1891, og Kristbjörg Ástfríður Sigurðardóttir, f. 30. ágúst 1893, bæði lát- in. Systkini hennar eru: 1) Jón Aðalberg, f. 11.10. 1915, látinn. 2) Árni Þorkels, f. 30.12. 1917, látinn, ekkja hans er Helga Gunnólfsdóttir, búsett í Keflavík, og eignuðust þau ellefu börn, eitt lést í bernsku. 3) Þor- kell, f. 18.5. 1920, unnusta hans var Sigríður Guðbrandsdóttir, bæði látin, þau eignuðust einn son. 4) Björgvin, f. 25.2. 1924, bú- settur í Keflavík, kona hans er Sigríður Sigurðar- dóttir, eiga þau fjög- ur börn. Tvíbura- systur, f. 25.6. 1933, 6) Svala, lést í bernsku, og 7) Kol- finna, búsett á Húsa- vík, maður hennar er Njáll Trausti Þórðarson, þau eiga fimm dætur. Upp- eldissystir Hólm- fríðar er Erla Guð- rún, f. 23.2. 1931, búsett í Bandaríkj- unum. Hólmfríður bjó hjá Kolfinnu systur sinni þar til árið 1979 er hún hóf sambúð með Valdimar Sveinbjarnarsyni, f. 15.8. 1931, en hann lést 1996. Þá fluttist hún á Hlévang, dvalarheimili aldraðra í Keflavík. Útför Hólmfríðar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Sofnuð ertu systir góð söngur hljóðnar líka, gleðisöng og gaman ljóð gjarnan vildir flíka. Ávallt varstu boðin, búin barn að hugga tel, systurbörnin svæfðir lúin og sinntir alltaf vel. Nú er allt svo nöturkalt nálægð dauða kenni, þakka fyrir allt og allt þó yfir sporin fenni. Horfin systir hrein og bein horfnir gleðifundir, minningarnar á ég ein um okkar kæru stundir. Þín systir, Kolfinna. Drottinn vakir, Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. Blíðlynd eins og besta móðir ber hann þig í faðmi sér. Allir þótt þér aðrir bregðist, aldrei hann á burtu fer. Drottinn elskar, Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. (S. Kr. Pétursson.) Í dag kveðjum við alveg yndislega konu, hana Fríðu okkar. Fríða var okkur sem góð amma og munum við minnast hennar sem slíkrar. Sú ein- staka sál sem hún var er nú kölluð til að þjóna drottni sínum. Fríða var barn í hjarta sínu og fengum við systur að njóta þess í æsku. Hún las fyrir okkur, söng og hafði sjálf mjög gaman af. Hún bjó stóran hluta ævi sinnar á heimili okk- ar og vorum við svo lánsamar að njóta hennar. Hún var hrein og bein og faldi ekki tilfinningar sínar. Ef hún varð reið gustaði af henni en stutt var í fal- lega brosið. Þegar hún var glöð, söng hún og trallaði og smitaði okkur hin. Fríða var félagslynd, átti marga kunningja og góða vini sem reyndust henni vel. Þeim viljum við þakka. Hún var dugleg að heimsækja þá sem voru henni kærir. Oft var hún búin að fara á þrjá staði og átti tvo eða þrjá eftir. Hún var því æði oft búin að ganga bæ- inn á enda. Í höndunum skapaði hún ýmislegt og var afar stolt af verkum sínum. Alltaf vildi hún gefa og gleðja aðra. Henni þótti vænt um fólkið sitt sem var henni svo kært. Fríða var einstök kona með stórt hjarta en samt svo brothætt. Hún sem var stór hluti af okkar lífi, kveður nú svo brátt. Við vit- um að hún mun alltaf vera með okkur og lifa í hjarta okkar. Börn okkar minnast hennar með hlýhug. Við vilj- um þakka foreldrum okkar fyrir að hafa boðið henni heimilið sitt og sýnt henni ást og umhyggju. Þið hafið hlúð vel að þessu barni guðs. Ljósið er slokknað, minningin eftir ein, áfram skal halda, en bíða verk að morgni. Sem liðast úr berginu lindin svo björt og hrein, lifir í hugskoti æsku dagurinn horfni. Þú varst mér sem amma, sem annaðist, gladdi og gaf, greiddir hvern vanda, raulaðir sönglög á kvöldin. Ég man það svo vel hve örþreytt og sæl ég svaf, þú signdir og blessaðir, það voru verkagjöldin. Þegar lít ég til baka og hugsa um horfinn dag, og hendurnar þínar sem struku svo blítt um vanga. Um minningu þína, sem er mér sem ljúf- lings lag, þú lausn hefur hlotið og frið eftir vegferð stranga. Blessi þig Drottinn og leiði um ljóssins stig, láti vonirnar rætast, sem ei uppfyllast máttu á jörðu. Vorsólar geislar ætíð umlyki þig, þú varst ávallt í hópi þeirra sem kærleiksverk gjörðu. (Guðm. G. Halldórsson.) Guð blessi þig, elsku Fríða. Ástfríður Svala, Árný Dalrós, Jóhanna, Þórdís Anna og Kolfinna. HÓLMFRÍÐUR ÁRNADÓTTIR ✝ Ólafur Þor-steinsson fæddist á Akureyri 12. febrúar 1935. Hann lést á Landspítalan- um 7. mars síðastlið- inn. Foreldar hans voru hjónin Bryn- hildur Ólafsdóttur og Þorsteinn Magn- ússon, sem eru bæði látin. Ólafur var fjórði í röð sex systkina. Elst var Gabríella, nú látin, Friðbjörg, Jenný, Magnús og Sig- mundur. Hinn 25. ágúst 1964 kvæntist Ólafur eftirlifandi eiginkonu sinni, Guðrúnu Jóhanns- dóttur, og eignuðust þau sex börn. Þau eru Jóhann Sigur- björn, Kristinn Helgi, Ólafur Jónat- an, Guðmundur Karl, Oddur Steinn Skagfjörð og Bryn- hildur. Fyrir hjóna- band eignaðist Ólaf- ur dóttur, Eygló. Barnabörn Ólafs eru orðin tólf. Útför Ólafs fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Í dag verður bróðir minn Ólafur jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju. Hann lést eftir stutta legu á hjarta- deild Landspítalans. Alla þá sem til hans þekktu setti hljóða við þá stað- reynd að Óli væri dáinn. Þessi lág- vaxni og fínlegi maður, sem öllum vildi gott gera og var ávallt að gefa af sínu, þótt ekki ætti hann mikið sjálf- ur. Mikill samgangur var á milli okkar Óla, hann kíkti nánast á hverjum degi inn hjá okkur Bjarna. Óli bróðir var hafsjór af fróðleik, vissi nánast allt og þekkti til flestra. Hann var skemmtilegur, góðhjartað- ur og hjálplegur, ekki síst þeim sem minna máttu sín. Heimili hans og Gunnu stóð opið öllum þeim sem til þeirra sóttu. Núna er heimur okkar fátækari, þar sem ekki er Óli. Engar sögur verða sagðar af Óla, sem með sínum séstaka frásagnarhætti hélt okkur iðandi af eftirvæntingu um það hvernig endir sögunnar yrði. Oft var mikið hlegið, en eins og sagt er, þá er stutt á milli hláturs og gráts, og nú er komið að kveðjustund. Við biðjum fyrir samúðarkveðjur til Gunnu og allra barna Óla. Megi Guð blessa minningu hans. Jenný og fjölskylda. ÓLAFUR ÞORSTEINSSON ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýs- ingar komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Formáli minn- ingargreina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.