Morgunblaðið - 16.03.2001, Page 59

Morgunblaðið - 16.03.2001, Page 59
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 59 Miss Jackson Outkast Road Trippin Red Hot Chili Peppers Butterfly Crazy Town It Was’nt Me Shaggy The Call Backstreet Boys Stan Eminem & Dido Last Resort Papa Roach Út á lífið Lydía Grétarsdóttir Man Overboard Blink 182 Things I Have Seen Spooks Gravel Pit Wu Tang Clan Shiver Coldplay Love Don’t Cost A Thing Jennifer Lopez Stuck In A Moment U2 Nobody Wants To Be Lonely Christina Aguilera & Ricky Martin My Love Westlife Farðu í röð Botnleðja Cant Fight The Moonlight LeAnn Rimes Don’t Let Me Be The Last To Know Britney Spears Lítill fugl 200.000 Naglbítar Vikan 15.03. - 22.03 http://www.danol.is/stimorol Ýmsir fylgihlutir á vélsleða á tilboðsverði SLEÐADAGAR SAMTÖK ferðaþjónustunnar hafa sent frá sér eftirfarandi ályktun um Reykjavíkurflugvöll: „Samtök ferðaþjónustunnar, sem eru samtök fyrirtækja í ferðaþjón- ustu þ.m.t. flugfélaga, minna á grundvallarþýðingu Reykjavíkur- flugvallar fyrir greiðar og áreiðan- legar flugsamgöngur innanlands. Innanlandsflug er mjög mikilvægur hlekkur í þjónustu við innlenda og erlenda ferðamenn og fara 95% af öllum farþegum um Reykjavík- urflugvöll og hefur innanlandsflug farið sívaxandi á undanförnum ár- um. Í umræðum um framtíð Reykja- víkurflugvallar hafa þau sjónarmið komið fram að flugvöllurinn verði að víkja fyrir íbúðarbyggð og að núver- andi staðsetning hans standi Reykjavíkurborg og þróun byggðar þar fyrir þrifum. Þessi umræða er um margt óskiljanleg og hefur verið bent sérstaklega á mikilvægi flug- vallarins fyrir almenningssamgöng- ur og uppbyggingu ferðaþjónustu í landinu. Hér er ekki einungis um skipulagsmál Reykavíkur að ræða, sem aðeins kemur Reykvíkingum við. Borgin er höfuðborg alls lands- ins, með þeim forréttindum og skyldum sem því fylgir. Á Reykja- víkurflugvelli starfa í dag um 500 einstaklingar, við starfsemi sem tengist samgöngum og ferðamálum, þættir sem hafa haft lykiláhrif í mik- illi uppbyggingu Reykjavíkur á und- anförnum árum. Samtök ferðaþjónustunnar hafa miklar áhyggjur af afleiðingum þess að flytja innanlandsflug til Keflavík- ur, en hafni Reykvíkingar vellinum er ljóst að hann mun flytjast til Keflavíkur, aðrir kostir eru óraun- hæfir. Það er álit SAF, að slíkur flutningur muni draga verulega úr notkun á innanlandsflugi og jafnvel hafa þær afleiðingar að flug leggist að mestu af. Ferðaþjónustan hefur á síðustu árum vaxið mjög hér á landi og gera allar framtíðarspár ráð fyrir áfram- haldandi vexti í ferðaþjónustu í heiminum og eigum við Íslendingar mikla möguleika á góðum hlut af þeirri aukningu. Það veldur því væg- ast sagt vonbrigðum þegar borgar- yfirvöld lýsa því yfir, að ef þau fái að ráða þá verði ekki pláss fyrir flug- tengda ferðaþjónustu í borginni eftir árið 2016. Ekki færri en 1.100 störf sem tengjast flugvallarrekstrinum á einn eða annan hátt eru í hættu. Auk þess er ljóst að farþegar í innan- landsflugi nýta sér margvíslega þjónustu annarra ferðaþjónustufyr- irtækja í borginni og hafa mörg þessi fyrirtæki lýst yfir áhyggjum vegna þessa máls. Hér er því um mikið hagsmunamál að ræða fyrir ferða- þjónustuna hér í landinu. Við hvetjum alla þá sem taka þátt í atkvæðagreiðslunni um framtíð Vatnsmýrarinnar nk. laugardag, að hafa þessa hagsmuni í huga. Hér er ekki einungis um skipulagsmál Reykjavíkur að ræða. Við verðum að hafa í huga uppbyggingu á almenn- ingssamgöngukerfi landsins, til hagsbóta fyrir landsmenn alla og þá gesti sem kjósa að sækja okkur heim.“ Völlurinn mikilvægur í þjónustu við ferðamenn ARKITEKTAFÉLAG Íslands, Fé- lag íslenskra landslagsarkitekta, Skipulagsfræðingafélag Íslands, Tæknifræðingafélag Íslands og Verkfræðingafélag Íslands hafa sent frá sér sameiginlega ályktun um Reykjavík og flugvöllinn: „Margt hefur verið rætt og ritað um framtíðarskipulag Reykjavíkur á undanförnum misserum. Þróun höf- uðborgarinnar til framtíðar í skipu- lagslegu samhengi er án efa eitt af stærstu skipulagmálum landsins í nánustu framtíð. Framtíðarþróun hennar hefur áhrif á borgarbúa, höf- uðborgarsvæðið og landið allt hvað varðar búsetu, stjórnsýslu, viðskipti og samgöngur. Unnið er að sameig- inlegu skipulagi á höfuðborgarsvæð- inu sem á að sjá fyrir þróun byggðar frá Hafnarfirði til Kjalarness til árs- ins 2024. Reykjavík, höfuðborg allra landsmanna, er þar í brennidepli. Einnig stendur fyrir dyrum endur- skoðun á aðalskipulagi Reykjavíkur. Ljóst er að mörg mikilvæg málefni þarf að kanna og ákveða áður en endanleg niðurstaða fæst um heild- arskipulag höfuðborgarinnar. Eitt af þeim málum, sem hvað mest hafa verið í umræðunni, er framtíð Reykjavíkurflugvallar og þróun byggðar í Vatnsmýrinni. Miklar umræður og skoðanaskipti eru um framtíð flugvallarins meðal stjórnmálamanna, opinberra emb- ættismanna, ýmissa samtaka og al- mennings. Skiptar skoðanir eru um hlutverk og staðsetningu flugvallar- ins. Mörgum spurningum er ósvarað um það hvert flugvöllurinn myndi flytjast og einnig um það hvað yrði gert við landið þar sem hann stend- ur, þótt ýmsar hugmyndir hafi verið fram settar. Einnig liggur ekki ljóst fyrir hvernig endanleg þróun vall- arins og landsins umhverfi hann yrði háttað ef hann verður um kyrrt, þótt þar liggi einnig fyrir tillögur. Arkitektafélag Íslands, Félag ís- lenskra landslagsarkitekta, Skipu- lagsfræðingafélag Íslands, Tækni- fræðingafélag Íslands og Verk- fræðingafélag Íslands vilja með ályktun þessari vekja athygli á mik- ilvægi málsins og sameiginlegri af- stöðu sinni. Félögin telja að grund- vallarupplýsingar skorti og leggja til að endanleg ákvörðun verði tekin um framtíðarstaðsetningu Reykja- víkurflugvallar þegar fram hafa far- ið ítarlegar og faglegar úttektir á þeim kostum sem fyrir liggja. Þá fyrst er hægt að taka endanlega ákvörðun um staðsetningu Reykja- víkurflugvallar með tilliti til skipu- lags-, umhverfis- og kostnaðarsjón- armiða og með heildarhagsmuni borgarbúa og landsmanna allra að leiðarljósi.“ Vilja fresta ákvörðun í flugvallarmálinu FORELDRAFÉLAG Digranes- skóla í Kópavogi stendur fyrir mál- þingi laugardaginn 17. mars sem er ætlað foreldrum, kennurum og öðr- um áhugasömum um skólamál. Ætlunin er að taka fyrir og ræða um ýmis mál sem tengjast skólum og þær leiðir og hugmyndir sem fagfólk á ólíkum sviðum hefur um skólastarf. Einnig samstarf heimila og skóla, skyldur og ábyrgð þeirra í því sameiginlega átaki að ala og uppfræða. Í lok hverrar framsögu geta viðstaddir borið upp spurn- ingar til frummælanda. Málþingið er haldið í sal Digranesskóla, en Digranesskóli er á horni Álfhóls- vegar og Skálaheiðar í Kópavogi. Kl. 9.30 verður skráning og afhend- ing gagna og kl. 10 mun Þóra Þórð- ardóttir, gjaldkeri foreldrafélagsins, setja þingið. Málþing í Kópavogi um skóla- mál ♦ ♦ ♦ Hrei nsum viðar-, rimla-, strimla-, plíseruð- og sólargluggatjöld. Hlíðarhjalla 26, s. 897 3634. Cranio-nám Norðurland / Akureyri 28. 04 — 3. 05. 2001 Thomas Attlee, DO, MRO, RCST College of Cranio—Sacral Therapy Félag höfuðbeina og spjaldhryggsjafnara www.simnet.is/cranio 422 7228, 699 8064, 897 7469

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.