Morgunblaðið - 16.03.2001, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 16.03.2001, Qupperneq 62
62 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ                                 BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. UNDIRRITAÐUR er landsbyggðar- maður búsettur í Reykjavík nú um stundir. Á næstunni verður mér boðið að kjósa um hvort flytja skuli Reykjavík- urflugvöll burt úr Vatnsmýrinni eða ekki. Valið stendur aðeins um þessa tvo kosti. Ég get ekki kosið. Ástæðan er eftirfarandi: Ég er hallastur undir hina frábæru hug- mynd þeirra Trausta Valssonar og/ eða Hrafns Gunnlaugssonar að setja niður flugvöllinn á Lönguskerjum. Þetta er einfaldlega langbesta hug- myndin af þeim sem fram hafa komið, þrátt fyrir kostnað. Ef ekki getur orð- ið af því að byggja á Lönguskerjunum vildi ég sjá völlinn áfram í Vatnsmýr- inni, þó í breyttri mynd. Ef ég greiði atkvæði um að halda vellinum í Vatns- mýrinni er ég að gefa til kynna að mér fyndist það betri lausn en að reisa hann á Lönguskerjum, sem ekki er sannleikanum samkvæmt. Ef ég á hinn bóginn greiði því at- kvæði að völlurinn verði fluttur á ég á hættu að atkvæði mitt verði túlkað á þann veg að ég vilji flytja hann í Hvassahraun eða til Keflavíkur. Hvorugt vil ég. Mér finnst ástæðu- laust að byggja annan völl við hliðina á Keflavíkurvelli og að flytja innan- landsflugið til Keflavíkur kemur ekki til greina frá sjónarhóli landsbyggð- armanns sem e.t.v. þarf að fara fram og til baka samdægurs. Sjálfur hef ég oft, starfs míns vegna, þurft að taka morgunvél frá Reykjavík út á land og „kaffivél“ til baka. Þessi möguleiki væri nánast úr sögunni væri innanlandsflugið í Keflavík. Niðurstaðan er því þessi, að undirritaður getur ekki greitt at- kvæði um þá valkosti sem í boði eru. Hitt vekur mér nokkra furðu að menn skuli nú á þessum tímum hraðra tæknibreytinga vera svo upp- teknir af þessum ógnarlöngu flug- brautum sem nota skal eftir u.þ.b. 20 ár. Er virkilega ekki reiknað með framförum í flugmálum næstu ára- tugina? Fyrir áratugum voru fundin upp flugtæki sem á íslensku nefnast þyrlur. Þessi tæki geta lent og hafið sig á loft lóðrétt og eru nánast einu sam- göngutæki næstu nágranna okkar í vestri, auk smábáta. Þessi tæki eru líklega dýrari í rekstri nú en venjuleg- ar flugvélar en þurfa þær að verða það eftir 20 ár þegar t.d. nýtt elds- neyti hefur verið tekið í notkun, létt- ari byggingarefni, meira flugöryggi og ný hönnun? Ég vil leggja til að við látum af þessum áætlunum um risa- flugvelli en byggjum rúmgóðan þyrlupall fyrir allt innanlandsflug innst á Lönguskerjum og tengibraut frá Álftanesi inn að Nauthólsvík um leið. Síðan má byggja varnargarð, þvert á fjörðinn, utar á Lönguskerj- um, í áttina til lands. Hann gæti brotið niður mesta brimið sem annars kynni að ná inn að hinni nýju flugstöð. Jafnframt er unnt að skilja eftir siglingarennu fyrir báta og skip af ýmsum stærðum og gerð- um. Reykjavík, 11. mars 2001. MAGNÚS H. ÓLAFSSON, Gautlandi 1, 108 Rvk. Flug(vallar)þankar leikmanns Frá Magnúsi H. Ólafssyni: HVAÐ er eiginlega að Íslending- um? Er ekki allt í lagi heima hjá þeim? Mér er spurn. Á það að bitna á Össuri og Samfylkingunni hans þótt honum hafi orðið það á að bregðast hárrétt við á ögurstundu. Hvers á Össur að gjalda? Hann er ekki Súpermann, né heldur er hann forvitri. Ég á við að hann sér ekki fyrir óorðna hluti. Hann þarf að gjalda þess að hafa ekki spurt heil- brigðismálaráðherra hvernig henni liði og hvort hún treysti sér til að standa við hlið hans fyrir framan sjónvarpsmyndavélar. Hún svarar kannski „já“, en það er ekki þar með sagt að hún standi með honum og Össuri láist að spyrja hvort hún hafi vottorð, upp á það. Svo heyrist eitthvert „gurgl“ frá Ingibjörgu Pálmadóttur og hún fellur fram fyr- ir sig í fang blaðakonunnar rétt eins og hún sé að hvísla að henni ein- hverju „skúbbi“ og þar eð Össur er ekki forvitinn skýst hann ekki á milli þeirra til að hlera hverju Ingi- björg sé að ljúga upp á hann. Hefði hann verið Súpermann hefðu þær báðar legið stórslasaðar því hann bregst við á ljóshraða þegar sá er gállinn á honum. Össur er ekki læknismenntaður. Hann er líffræð- ingur að mennt og hefur að auki talsvert vit á fiskum og pólitík. Hefði þjóðin fyrirgefið honum ef hann hefði gripið fyrir bringspalir heilbrigðisráðherra og notað á henni „Heimlich“takið, sem reynist vel ef kjötbiti stendur í hálsinum á fólki, en á það til að bráka rifbein þess? Hvað þá ef hann hefði notað munn við munn aðferðina. Hann hefði umsvifalaust verið kærður fyr- ir kynferðislega áreitni. Nei, Össur brást hárrétt við. Hann vissi að það eina rétta var að skipta sér ekki af því sem honum kom ekki við og hefði örugglega gert illt verra. Það á að sæma hann Fálkaorðunni fyrir að halda ró sinni og bíða þess að hæfari menn myndi drífa að (örugglega hefur verið nóg af læknum þarna í kring til að fylgj- ast með yfirboðara sínum). Nei, það er öðru nær. Össur er talinn mis- kunnarlaus skepna sem glottir yfir óláni Ingibjargar. Nei, svipurinn á honum sýnir hvað honum sé létt yfir að ráðherra sé á lífi og jafnvel fær um að halda viðtalinu áfram. Eða kannski honum hafi verið létt yfir að Ingibjörg hafi náð aftur heilsu. En allavega var það huggun harmi gegn að Ingibjörg hafði vit á að láta sig ekki falla til vinstri í fang Öss- urar. Hvernig hefði það verið túlkað og hvernig hefðu viðbrögð hans ver- ið? Hefði hann vikið sér undan hefði fylgi Samfylkingar minnkað um 20% en ekki aðeins 10%. BIRGIR BRAGASON, Rauðarárstíg 22, 105, Reykjavík. Hvers á Össur að gjalda? Frá Birgi Bragasyni:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.