Morgunblaðið - 16.03.2001, Síða 63
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 63
ATLI Harðarson er einn skarpasti
og frumlegasti heimspekingur Ís-
lands og eru flestar af greinum
hans stórathyglisverðar. En svo
bregðast krosstré sem önnur, rit-
gerð hans „Ein hugleiðing um hrís-
grjónagraut með rúsínum og kan-
elsykri“ (Lesbók 10/2) er ekki upp
á marga fiska. Hún er vissulega vel
skrifuð og skemmtileg en innihald-
ið er harla rýrt. Atli skrifar í hrein-
ræktuðum pollíönnu- og pangloss-
stíl um hnattvæðingu, hennar
djarfi nýheimur er bestur allra
mögulegra heima. Verst er þó til-
hneiging höfundar til að gera and-
stæðinga hnattvæðingarinnar tor-
tryggilega án nokkurra raka.
Þannig gerir Atli að því skóna að
þessir menn séu afdalakarlar og
-kerlingar. Til að kóróna allt saman
leyfi afdalaskríllinn sér þá ósvinnu
að vera á móti stórfyrirtækjum,
heyr á endemi!
Ég hef eitt og annað við þessa
skoðun Atla að athuga. Eitt er fyr-
ir sig að afdalamennska hefur
ýmsa kosti, meðan afdalir voru og
hétu bjó þar fólk sem oft var betur
að sér en hin sjónvarpsóða plebba-
kynslóð sem nú vex úr grasi í
Reykjavík. Annað er hitt að stór-
fyrirtækin og hnattvæðingin eru
ekki heilagar kýr. Í bók Þjóð-
verjanna Hans-Peter Martins og
Harald Schumanns Gildra hnatt-
væðingarinnar (Die Globalisier-
ungsfälle ) fá fyrirtækin og hnatt-
væðingin á baukinn. Í stuttu máli
sagt þá telja höfundar að hnatt-
væðingin leiði til þess að fjölþjóða-
fyrirtæki eigi alls kosti við starfs-
fólk sitt. Séu starfsmenn með
múður hóti fyrirtækin einfaldlega
að flytja starfsemi sína annað.
Þannig tókst þýska fyrirtækinu
Viessman að neyða starfsmenn
sína til að sætta sig við að vinna
þrjá tíma ókeypis í viku hverri með
því að hóta að flytja reksturinn til
Tékklands. Íbúar þess lands hafa
ekki orðið feitir á viðskiptum sín-
um við stórfyrirtækin ef marka má
orð Þjóðverjanna tveggja. Eftir að
Volkswagen keypti Skoda-verk-
smiðjurnar jókst framleiðni þeirra
um 30% á fáeinum árum en kjör
starfsfólksins bötnuðu lítið. Þegar
fólkið gerðist svo djarft að biðja
um launahækkun þá hótuðu eig-
endurnir að flytja starfsemina til
Mexíkó.
Ekki er nóg með að stórfyrir-
tæki svínbeygi starfsmenn sína,
þau hafa líka ráð ríkisstjórna í
hendi sér, segja Martin og Schu-
mann. Þess eru dæmi að fyrirtækin
hafi kúgað fé út úr skattgreiðend-
um, heimtað niðurgreiðslur og fríð-
indi, að öðrum kosti flytji þau fyr-
irtækin til annarra landa (ef rétt er
fæ ég ekki séð annað en að hnatt-
væðingin sé hættuleg hinum frjálsa
markaði). Auk þess geta þau að
miklu leyti ráðið skattahlutfalli í
ríkjum, þau berji í gegn skattfríð-
indi sjálfum sér til handa með þeim
afleiðingum að skattastefna lýð-
ræðisríkja markast að allverulegu
leyti af þeim (fyrirtækjunm). Þá
þýðir lítið að láta borgarana greiða
atkvæði um skattahlutfallið eins og
Atli vill. Fjölþjóðafyrirtækin ógna
því bæði lýðræðinu og markaðnum.
Það fylgir svo sögunni að Martin
og Schumann eru ekki meiri af-
dalakarlar en svo að þeir telja að
liður í lausn vandans sé að gera
Evrópusambandið að raunverulegu
ríki sem stjórnað sé með lýðræð-
islegum hætti. Það er því vel hægt
að vera gagrýninn á fjölþjóðafyr-
irtæki án þess að vera þjóðremb-
ungur.
Enginn getur borið þjóðrembu á
milljarðamæringinn George Soros
en hann telur að hnattvæðing fjár-
málamarkaðarins geti leitt til al-
varlegrar efnahagskreppu. Soros
er undir áhrifum frá hagfræðingn-
um Daniel C. Korten. Korten segir
að Adam Smith hafi haft á réttu
standa er hann sagði að markaður-
inn virkaði ekki nema til væri
sæmilega öflugt ríkisvald sem gæti
séð um að „umferðarreglur“ við-
skiptanna væru virtar. Slíku valdi
er ekki til að dreifa á hinum al-
þjóðlega fjármálamarkaði, segja
þeir Korten og Soros. Fái fjár-
málaspekúlantar (eins og Soros
sjálfur) að valsa frjálsir getur það
haft alvarlegar afleiðingar fyrir
efnahagslíf alheimsins. Þess vegna
þarf einhvers konar yfirþjóðlegt
vald sem getur stjórnað „umferð“
fjárins á alþjóðamörkuðum. Kåre
Willoch, fyrrverandi forsætisráð-
herra Noregs og hægrimaður, tek-
ur undir þessi orð Kortens og Sor-
os. Hann segir að ein helsta veilan
við hnattvæðingu samtímans sé sú
að fyrirtækin þurfi yfirleitt ekki að
greiða fyrir umhverfisspjöll sem
hljótast af flutningum. Þetta er
ekki aðeins skaðlegt umhverfinu
heldur líka efnahagslífinu því
markaðurinn virki ekki almenni-
lega nema seljandi borgi allan
kostnaðinn við að koma vöru sinni
á framfæri. Núverandi skipan mála
gerir það hagkvæmara fyrir fyr-
irtækin að flytja vörur yfir langar
vegalengdir því þau þurfa ekki að
borga markaðsverð fyrir flutn-
ingana. Því er þessi skipan þjóð-
hagslega óhagkvæm og umhverfinu
hættuleg. Í ofan á lag hyglir skip-
anin stórfyrirtækjum sem hafa ráð
á stórfelldum flutningum milli
landa og leiðir því til aukinnar
samþjöppunar auðmagns.
Ég ætla ekki að leggja dóm á
staðhæfingar þessara manna, að-
eins benda á að menn geta vel ver-
ið gagnrýnir á hnattvæðingu og
stórfyrirtæki án þess að vera
heimalingar. Hnattvæðingin er
margþætt fyrirbæri með kostum
og göllum eins og fleira, aðeins
glópar dýrka „glóbaliseringu“.
Greina ber milli skynsamlegrar
hnattvæðingar og „glópa-lisering-
ar“. Hið síðastnefnda er fyrir Póllí-
önnurnar, sem sjá hnattvæðinguna
í rósrauðum litum, og Pangloss-
anna sem telja sig búa í hinum
besta allra mögulegra hnattvæddra
heima.
STEFÁN SNÆVARR,
kennir heimspeki í Noregi.
„Glópa-lísering“Frá Stefáni Snævarr:
Full búð af dönskum og þýskum
sumarfatnaði
Laugavegi 84
sími 551 0756
Vinningar komu á eftirtalin númer:
Ferð fyrir tvo til Benidorm,
Mallorka eða Portúgal að
verðmæti kr. 190.000
nr. 81189 og 70853.
Ferð fyrir tvo til Dublinar
að verðmæti kr. 80.000
nr. 30568, 83930, 70512
og 52694.
Næsti aukaútdráttur verður
miðvikudaginn 21. mars nk.
Slysavarnafélagið Landsbjörg
Dregið var í fyrsta og
öðrum aukaútdrætti
Slysavarnafélagsins
Landsbjargar
7. og 14. mars sl.
Flokksþing framsóknarmanna
Engin uppgötvun 19. ald-
arinnar hefur reynst jafn
þýðingarmikil þeirri að
allar skapaðar skepnur
geta meira og minna
breyst eftir því hvernig
með þær er farið. Menn
fundu að lífið allt, hver
vera, hver tegund, var
mjúk og mótanleg. Mikið
mátti gera eftir því sem að
var unnið, gera ein-
staklingana misjafna,
stundum sterka og full-
komna, stundum veika og
lítilsgilda, stundum nokk-
uð af hvoru tveggja. Fátt
gat gert menn bjartsýnni
en þessi skoðun. Fyrr var
nauð aumingjanna óbæt-
andi. Sumir þóttust útvald-
ir, vera fæddir til að vera
gæfumenn, njóta lífsins og
drottna í heiminum. Aðrir,
þeir veiku, þeir kúguðu,
héldu þeir góðu menn að
ættu að vera eilífir þjónar
og undirlægjur þeirra
sterku, gerðir vegna
þeirra.
Til þessara manna, til
þeirra þjáðu, kom kenn-
ingin um breytileik lífsins
eins og hressandi fagnað-
arboðskapur. Fátæklingur-
inn, kúgaður og smáður,
dreginn úr ósigri í ósigur,
skildi nú að hann var líka
maður. Í honum bjó líka
manndómsneisti sem gat
logað og lýst ef hans var
réttilega gætt.
Þá fundu þeir sem skildu
hvað hér var á seiði að
fyrir hverjum manni var
um lífið að tefla, að
hverjum þeim sem ekki
gat etið af lífsins tré var
hörmungin vís.
Jónas Jónsson
frá Hriflu, 1911.
Frá átakshópi öryrkja
• Tryggingabætur verði hækkaðar
verulega til að íslensk þjóð geti
skammlaust borið sig saman við
þær lýðræðisþjóðir sem sam
bærilegar eru henni að þjóðar-
tekjum.
• Dregið verði verulega úr þeim
harðneskjulegu tekjutengingum
sem öryrkjum er gert að búa við
- tekjutengingum sem eiga ríkan
þátt í að brjóta niður einstakl-
inga og fjölskyldur. Horfið verði
algjörlega frá tengingu við tekjur
maka.
• Skattleysismörk verði hækkuð og
horfið að fullu frá skattlagningu
húsaleigubóta.
• Öryrkjum verði skilað að fullu
og öllu þeim niðurgreiðslum sem
þeir áður nutu til lyfjakaupa,
símanotkunar og bifreiðakaupa -
nauðsynja sem varða öryrkja
meira en flesta aðra og vega
hlutfallslega mun þyngra í
heildarútgjöldum þeirra.
• Ítarlegra upplýsinga verði aflað
um þann margvíslega sparnað
sem hlytist af eflingu almanna-
trygginga og niðurstöður kynntar
eigi síðar en hálfu ári fyrir næstu
þingkosningar.
Átakshópur öryrkja.
20
0
01
1
Jónas Jónsson
frá Hriflu
Garðatorgi, sími 565 6550.
Nýkomnar úlpur og stuttkápur
Verð frá kr. 7.698
Tilboðsverð á stuttum jökkum
og síðbuxum
Verð frá kr 3.498