Morgunblaðið - 16.03.2001, Side 64
DAGBÓK
64 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Ern-
ir, Snorri Sturluson,
Vigri, Þerney, Örfir-
isey, Freri og Gissur Ár
koma í dag. Mánafoss
fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Ak-
ureyrin kom í gær.
Fuglberg fór í gær.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 14
bingó. Samsöngur með
Árelíu, Hans og Hafliða.
Framtalsaðstoð verður
veitt fimmtudaginn 22.
mars, skráning í síma
562-2571.
Árskógar 4. Kl. 13 opin
smíðastofan, kl. 9 hár-
og fótsnyrtistofur opnar.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30 böð-
un, kl. 9 bókband, kl. 9–
16 handavinna og fótaað-
gerð, kl. 13 vefnaður og
spilað í sal.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðjud. og fimmtud. kl.
13–16.30, spil og föndur.
Pútttímar í íþróttahús-
inu að Varmá kl. 10–11 á
laugard. Jóga kl. 13.30–
14.30 á föstud. í dval-
arheimilinu Hlaðhömr-
um. Uppl. hjá Svanhildi í
s. 586 8014 kl. 13–16.
Tímapöntun í fót-, hand-
og andlitssnyrtingu,
hárgreiðslu og fótanudd,
s. 566 8060 kl. 8–16.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun, hárgreiðslu-
stofan og handa-
vinnustofan opin, kl. 9.45
leikfimi, kl. 13.30 göngu-
hópur.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
kl. 13 „opið hús“, spilað á
spil.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Tréútskurður í Flens-
borg kl. 13. Myndmennt
kl. 13. Brids kl. 13.30
„Grænlenskir dagar“:
Fjörukráin býður
félagsmönnum í Félagi
eldri borgara í Hafn-
arfirði á Grænlenska
daga í Fjörukránni
sunnudaginn 18. mars
kl. 15.30. Grænlands-
kynning og kaffiveit-
ingar. Skrásetning í
Hraunseli og aðgöngu-
miðar afhentir þar.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Spilað í
Kirkjulundi á þriðjudög-
um kl. 13.30. Fótaað-
gerðir mánudaga og
fimmtudaga. Ath. Nýtt
símanúmer, 565 6775.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10–13. Matur í hádeginu.
Leikhópurinn Snúður og
Snælda sýnir „Gamlar
perlur“ sem eru þættir
valdir úr fimm gömlum,
þekktum verkum. Sýn-
ingar eru á mið-
vikudögum kl. 14 og
sunnudögum kl. 17 í Ás-
garði, Glæsibæ. Ath.
allra síðustu sýningar.
Miðapantanir í símum
588 2111, 568 9082 og
551 2203. Göngu-Hrólfar
fara í létta göngu frá Ás-
garði kl. 10 á mið-
vikudagsmorgun. Bald-
vin Tryggvason verður
til viðtals um fjármál og
leiðbeiningar um þau
á skrifstofu FEB
fimmtudaginn 22. mars
kl. 11–12. Panta þarf
tíma. Dagsferð verður
farin í Grindavík–Bláa
lónið–Reykjanes 2. apríl.
Brottför kl. 10 frá Ás-
garði, Glæsibæ. Skrán-
ing hafin á skrifstofu
FEB. Silfurlínan opin á
mánudögum og mið-
vikudögum kl. 10–12.
Ath. Opnunartími skrif-
stofu FEB er kl. 10–16.
Upplýsingar í síma
588 2111.
Félagsstarf, Furugerði
1. Kl. 9 aðstoð við böðun,
smíðar og útskurður, kl.
12 matur, kl. 14 messa,
prestur sr. Ólafur Jó-
hannsson, kaffiveitingar
eftir messu.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 13 opin
vinnustofa, kl. 9.30
gönguhópur, kl. 14
brids.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, spilasalur opinn
frá hádegi. Aðstoð frá
skattstofunni verður
veitt miðvikud. 21. mars,
skráning hafin. Mánu-
daginn 26. mars kemur
Hrafnistukórinn í heim-
sókn. Veitingar í kaffi-
húsi Gerðubergs. Allar
upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í s.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 13 bókband,
kl. 9.15 vefnaður.
Gullsmári, Gullsmára
13. Gleðigjafarnir syngja
í Gullsmára.
Hraunbær 105. Kl. 9–12
baðþjónusta og út-
skurður, kl. 9–17 hár-
greiðsla, kl. 9–12.30
bútasaumur, kl. 11 leik-
fimi og spurt og spjallað.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
baðþjónusta og hár-
greiðsla, kl. 9–12.30
bútasaumur, kl. 11 leik-
fimi. Ferð í Listasafn Ís-
lands miðvikudaginn 21.
mars kl. 14.30. Farið
verður með rútu, skrán-
ing í síma 588 9335.
Norðurbrún 1. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9–12.30 út-
skurður, kl. 10 boccia, kl.
13.30 stund við píanóið.
Aðstoð við skattframtal
verður miðvikudaginn
21. mars. Þeir sem voru
búnir að panta tíma
halda tímunum. Nánari
uppl. í s. 568-6960.
Vesturgata 7. Kl. 9 fóta-
aðgerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15 handavinna, kl.
13 sungið við flygilinn.
Kl. 14.30 dansað við
lagaval Halldóru, rjóma-
pönnukökur með
kaffinu. Allir velkomnir.
Heimboð á bókamarkað
Iðunnar og Fróða á Suð-
urlandsbraut 8, miðviku-
daginn 21. mars. Lagt af
stað frá Vesturgötu kl.
13.15. Upplýsingar og
skráning í síma
562 7077, eða í af-
greiðslu.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
bókband og morg-
unstund, kl. 10 leikfimi
og fótaaðgerð, kl. 13.30
bingó.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Spilað kl. 13.15.
Allir eldri borgarar vel-
komnir.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára 13
kl. 10 á laugardögum.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum í
Laugardalshöll kl. 10.
Kiwanisklúbburinn
Geysir í Mosfellsbæ
heldur spilavist í kvöld
kl. 20.30 í félags-
heimilinu Leirvogs-
tungu. Kaffi og meðlæti.
Póstmenn, eft-
irlaunadeild, hittast í
Þjóðmenningarhúsinu
við Hverfisgötu á
morgun, laugardag, kl.
14.
Árnesingafélagið í
Reykjavík. Messukaffi í
safnaðarheimili Kópa-
vogskirkju n.k. sunnu-
dag kl. 15. Hefst með
guðsþjónustu kl. 14.
Minnst 100 ára afmælis
Tómasar Guðmunds-
sonar skálds frá Efri-
Brú í Grímsnesi með
upplestri og söng. Allir
velkomnir.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Nánari
uppl. á skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Minningarkort
Styrktarfélags krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í síma 588-7555
og 588-7559 á skrifstofu-
tíma. Gíró- og kred-
itkortaþjónusta.
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd á skrifstofu
félagsins í Suðurgötu 10
(bakhúsi) 2. hæð, s.
552-2154. Skrifstofan er
opin miðvikud. og
föstud. kl. 16–18 en utan
skrifstofutíma er
símsvari. Einnig er hægt
að hringja í síma
861-6880 og 586-1088.
Gíró- og kredit-
kortaþjónusta.
Í dag er föstudagur 16. mars, 75.
dagur ársins 2001. Gvendardagur.
Orð dagsins: Og nú fel ég yður
Guði og orði náðar hans, sem mátt-
ugt er að uppbyggja yður og gefa
yður arfleifð með öllum þeim, sem
helgaðir eru.
(Post. 20, 32.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
LÁRÉTT:
1 dökk, 4 sveia, 7 kven-
mannsnafn, 8 trylltur, 9
guð, 11 skip, 13 stafn á
skipi,14 huldumaður, 15
brún, 17 landsvæði, 20
ástæður, 22 gleðjast, 23
mergð, 24 skartgripur-
inn, 25 sefur.
LÓÐRÉTT:
1 kvenvarg, 2 erfið, 3
hreint, 4 í fjósi, 5 samtala,
6 ákveð, 10 góla, 12 mat-
hák, 13 augnalok, 15
ójafnan, 16 krók, 18 ber,
19 með tölu, 20 fornafn,
21 málmur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 fársjúkur, 8 leiði, 9 gadds, 10 gái, 11 tugga, 13
renna, 15 músar, 18 sigur, 21 ólm, 22 gjall, 23 ellin, 24
flugeldur.
Lóðrétt: 2 áning, 3 seiga, 4 úrgir, 5 undin, 6 glit, 7 aska,
12 góa, 14 efi, 15 megn, 16 stall, 17 róleg, 18 smell, 19
guldu, 20 rann.
K r o s s g á t a
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI tekur heils hugarundir með ferðaþjónustubænd-
um, sem kröfðust þess á Búnaðar-
þingi á dögunum að fá að selja eigin
afurðir heima við. Í greinargerð með
ályktun Búnaðarþings segir að al-
gengt sé í nálægum löndum, þar sem
bændur stunda ferðaþjónustu, og
„jafnvel stolt hvers bónda að selja af-
urðir búa sinna gestum þeim er þjón-
ustu kaupa“. Bændur telja þarna
vera tækifæri til að kynna og halda á
lofti þjóðlegri matarhefð og Víkverji
er alveg hjartanlega sammála. Vík-
verji hefur haft mjög gaman af að
fara um landbúnaðarhéruð í t.d.
Þýzkalandi, Sviss, Frakklandi og
Ítalíu og kaupa landbúnaðarvörur
beint af bændum, sem selja fram-
leiðslu sína með miklu stolti, hvort
heldur það er ostur, pylsa, vín eða
brauð.
Sumum þessum afurðum fylgir
löng og skemmtileg fjölskyldusaga,
sem sögð er um leið og viðskiptin eiga
sér stað og Víkverja finnst landbún-
aðarafurðir oft beztu „minjagripirn-
ir“ sem hægt er að hafa með sér heim
úr ferðalagi, þótt ekki verði þeir yf-
irleitt langlífir í ísskápnum.
VÍKVERJA hefur löngum runniðtil rifja að úti um land hefur ger-
ilsneydd og vakúmpökkuð fjölda-
framleiðsla verið eina matvaran í boði
víðast hvar í verzlunum. Og þeir, sem
vilja fá sér í svanginn á ferðalögum
um þjóðvegi landsins, furða sig flestir
á því að á boðstólum skuli aðallega
vera hamborgarar og pylsur, fram-
reiddar í plastklæddum sjoppum,
þegar allt um kring eru matarkistur
af fugli, fiski og stutt í ferskt hráefni
hjá bændum. Enn vantar tilfinnan-
lega litla, vistlega veitingastaði, sem
bjóða upp á rétti sem eru búnir til úr
hráefni úr nágrenninu – en þar er svo
sannarlega af nógu að taka. Víkverja
finnst að sameina megi í auknum
mæli húsvernd og „matarferðaþjón-
ustu“ með því að bjóða upp á íslenzk-
an mat í gömlum, uppgerðum húsum
og fá þeim þannig verðugt hlutverk.
x x x
TÆKIFÆRIN liggja víðar en íferðaþjónustunni; það má líka
bæta þjónustuna við neytendur al-
mennt. Auðvitað ætti í miklu meira
mæli að ýta undir samkeppni í land-
búnaðargeiranum með því að einstök
bú fái að markaðssetja vörur sínar
undir eigin nafni. Krafa neytenda um
að vita uppruna vörunnar verður sí-
fellt háværari. Er nokkuð óeðlilegt
við að neytendur spyrji frá hvaða bæ
þær séu ættaðar, lambalundirnar
sem þeir kaupa úti í búð? Er nokkuð
athugavert við að bændur, sem ná af-
burðaárangri í t.d. sauðfjárrækt eða
nautgriparækt, njóti þess með því að
vörur þeirra séu markaðssettar sem
sérstök gæðavara? Er ekki löngu
komið nóg af að allir leggi inn í sömu
mjólkur- og kjötsúpuna?
x x x
KANNSKI náum við því einhverntímann að á umbúðum íslenzkr-
ar matvöru verði sagt frá fjölskyldu-
hefðinni, sem liggi að baki lambakjöt-
inu með þessu sérstaka bragði, eða
því hvernig menn hafi mann fram af
manni lagt sig fram um að verka
harðfisk eða hákarl með tilteknum
hætti. Neytendur kunna að meta per-
sónulega nálgun af því tagi. Einstak-
lingar, örnefni og ættir mættu gjarn-
an verða meira áberandi í mark-
aðssetningunni í stað kaupfélaga og
afurðastöðva.
Á UNDANFÖRNUM ár-
um hafa alþingismenn talað
af mikilli ábyrgð um
byggðaþróun og staðið fyr-
ir markvissum flutningum
á stofnunum og fyrirtækj-
um ríkisins til landsbyggð-
arinnar. Við þurfum án taf-
ar byggðarkjarna er getur
staðist samanburðinn við
Reykjavík, þenslan á höfuð-
borgarsvæðinu og glæp-
samlegt fasteignaverð stað-
festir það. Með tilliti til
þessa og þeirra framfara
sem orðnar eru í samskipt-
um vegna fjarskipta þá er
lausnin skýr. Þingmenn, ég
skora á ykkur að halda
áfram flutningi ríkisfyrir-
tækja og stofnana út á
landsbyggðina; flytjið Al-
þingi til Akureyrar. Einnig
má benda á þá hættu sem
Alþingi stafar af flugum-
ferð frá Reykjavíkurflug-
velli og nauðsyn þess að
flytja Alþingi úr núverandi
húsnæði. Notum tækifærið!
Brynjólfur.
Þakkir
ÉG undirrituð vil koma á
framfæri þakklæti til fyrir-
tækja og einstaklinga fyrir
pennana sem mér hafa ver-
ið sendir. Alltaf eru not fyr-
ir meira. Þetta er tóm-
stundagaman hjá mér.
Þegar maður situr í hjóla-
stól og þó sérstaklega á vet-
urna er gaman að dunda við
að setja þá í möppur og ég
set þá alla í möppur og
merki þá frá hverjum þeir
eru.
Ástarþakkir,
Helga Bergmann,
Hátúni 12, Rvík.
Launhelgi lyganna
eftir Baugalín
ÁSTÆÐA þess að ég sest
niður og skrifa þetta bréf er
sú að ég fékk bókina Laun-
helgi Lyganna eftir Bauga-
lín í jólagjöf og snart hún
mig mjög djúpt. Ég hef ver-
ið að hugsa um hana síðan
og tel að það sé rík ástæða
fyrir því að fólk viti af þess-
ari bók, því hún kemur inná
nánast allt það sem hulið er
innan einkaheims fjölskyld-
unnar. Og þá á ég ekki við
flölskyldu Baugalínar held-
ur allra þeirra sem hafa
annaðhvort upplifað svipað
eða eiga vini sem gengið
hafa í gegnum álíka og seg-
ir frá í bókinni. Reyndar hef
ég verið að bíða eftir því að
þeir sem hafa eitthvað með
meðferð unglinga og barna
að gera vekji athygli á bók-
inni, en því miður hef ég
ekki tekið eftir því. Ég
benti vinkonu minni á bók-
ina og hún fékk hana senda
að sunnan og sagði mér að
hún hefði ekki getað hætt
að lesa, heimilisverkin
hefðu setið á hakanum og
hún hefði hreinlega hrært í
pottinum með annari hend-
inni en haldið á bókinni með
hinni og verið heppin að
maturinn brann ekki við.
Núna segist hún skilja
miklu betur hvað átt er við
þegar talað er um misnotk-
un á börnum. Við erum
sammála um að réttarúr-
bætur sem Baugalín talar
um í bókinni séu löngu
tímabærar enda lögin eins
og þau eru í dag ekki börn-
um bjóðandi. Hver gætir
réttar þeirra? Ég vill bara
segja við Baugalín að þessi
bók er meistarastykki og
verður vonandi til að opna
augu allra sem eitthvað
vilja gera til góðs í svona
málum. Ég hvet alla sál-
fræðinga og sálfræðinema
til að lesa Launhelgi Lyg-
anna. Það tapar enginn á
því. Kannski er þetta bókin
sem alltaf vantaði en eng-
inn þorði að skrifa.
Ogga.
Niðrandi orðatiltæki
ÉG hef oft furðað mig á því
að þegar þjálfara fótbolta-
liðs eða handboltaliðs geng-
ur ekki vel og félögin vilja
losna við hann er þetta
orðatiltæki notað: hann var
rekinn. Mér finnst þetta
niðurlægjandi og óvirðing
við þjálfarann, sem er bú-
inn að gera sitt besta. Því
má ekki segja „látinn fara“
eða „leystur frá störfum“?
Mér finnst það mannúð-
legra, það er að segja, er
nokkuð til sem er mannúð-
legt í okkar þjóðfélagi? Það
virðist allt ganga út á pen-
inga, ekki hugsjón. Því mið-
ur finnst mér íþróttir hafa
þróast þannig.
P.Þ.
Dýrahald
Jósefína er týnd
JÓSEFÍNA er týnd. Hún
hvarf frá Laufásvegi 7
föstudagskvöldið 9. mars sl.
og hennar er saknað sár-
lega heima hjá sér. Hún er
lítil og fíngerð, bröndótt
með hvítan maga og loppur
og nokkra hvíta bletti. Hún
á það til að mjálma mikið,
svo ef einhver hefur heyrt
eða séð til hennar, vinsam-
lega hafið samband í síma
562-3888 eða 692-6446.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Alþingi til Akureyrar,
ábending til
þingmanna