Morgunblaðið - 16.03.2001, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 65
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
FISKAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert djarfur bæði til orðs
og æðis og lætur fátt standa
í veginum fyrir því að þú
komir áhugamálum þínum
í höfn.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarft að búa þig undir
breytingar á vinnustað þínum
og þarft að tileinka þér ný
vinnubrögð. Vertu jákvæður
og opinn og þá mun þér
ganga allt í haginn.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Oft er lítið að marka það sem
sagt er um menn og málefni
og því skaltu fara varlega í
því að hlaupa eftir óvarlegum
ummælum annarra.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Allskonar sögusagnir eru á
gangi í kringum þig en þú
skalt ekki láta svo lítið sem
hlusta á þær því það er bara
tímasóun fyrir utan þá and-
styggð sem Gróa á Leiti jafn-
an vekur.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er eins og allir séu upp-
teknir við eigin ófarir. Láttu
fólk um að leysa vandamál sín
sjálft og sinntu sjálfur eigin
málum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þótt erfiðleikar skjóti upp
kollinum hér og þar eru þeir
bara til að sigrast á og þú hef-
ur gaman af þeirri glímu.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þótt þig kunni að langa til
þess að draga þig inn í skel
þína skaltu ekki láta undan
þeirri freistingu heldur þvert
á móti gera þig gildandi með
samstarfsmönnum þínum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það gæti virst sem hlutirnir
gengju of auðveldlega fyrir
sig en sannleikurinn er sá að
þú heldur fast utan um at-
burðarásina og lætur enga
vitleysu henda.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er auðveldari kostur að
velja beinu sléttu brautina en
stundum kalla mál á það að
menn hafi kjark til þess að
brjóta nýjar leiðir.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Reyndu að snúa öllum hlutum
þér í hag og vertu ekki að
sýta það þótt eitthvað fari
öðruvísi en þú hefðir helst
kosið.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þér veitist eitthvað erfitt að
halda þig að verki í dag en þú
skalt nú samt gera þitt besta
og skila þínu dagsverki þótt
minna verði um tilþrif en
venjulega.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þeir eru margir sem vilja
taka þátt í samtökum sem þú
íhugar nú að stofna til.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ættir að gæta tungu þinn-
ar í annarra viðurvist því oft
má satt kjurrt liggja. En
verðir þú að tala þá færðu orð
þín í tilhlýðilegan búning.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
Íslenskt ástaljóð
Litla fagra, ljúfa vina,
lífstrú mín er bundin þér.
Sjáðu hvernig sólin brosir
sigurglöð við þér og mér.
Allt, sem ég um ævi mína
unnið hef í ljóði og tón,
verður hismi, ef hjartað, vina,
hefur gleymt að elska frón.
Í augum þínum unaðsbláu,
augunum, sem ljóma best,
sé ég landið, litla vina,
landið, sem ég elska mest.
Litla fagra, ljúfa vina,
lífið fer að kalla á þig,
mundu þá að þú ert landið,
og þá hefurðu elskað mig.
Beðist er velvirðingar á villum í fyrri birtingu.
Vilhjálmur frá Skáholti.
SPIL með Berkowitz og
Cohen sjást reglulega í
bridsdálkum og tímarit-
um enda mynda þeir
sterkt par, sem spilar á
öllum helstu mótum í
Bandaríkunum og víðar.
Í spili dagsins er Berk-
owitz í aðalhlutverki sem
sagnhafi í sjö laufum:
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ –
♥ K74
♦ ÁK862
♣ KDG53
Vestur Austur
♠ 7 ♠ DG1065432
♥ D109852 ♥ G
♦ 54 ♦ DG107
♣9742 ♣ –
Suður
♠ ÁK98
♥ Á63
♦ 93
♣Á1086
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 grand
Pass 2 spaðar * 4 spaðar 5 lauf
Pass 5 tíglar Pass 5 hjörtu
Pass 7 lauf Allir pass
* láglitir
Þetta er gullfalleg al-
slemma, en fjögurra
spaða sögn austurs á
hættunni benti til að leg-
an væri villt og því væri
full ástæða til vand-
virkni. Vestur kom út
með einspilið í spaða.
Berkowitz henti hjarta
úr borði og tók slaginn
heima með ás. Hann spil-
aði laufsexu á kóng og þá
kom tromplegan í ljós.
Næst tók sagnhafi ÁK í
tígli og stakk tígul með
tíunni heima og aftur
fékk hann slæm tíðindi,
þegar vestur henti
hjarta. Nú var orðin
veruleg hætta á að gefa
slag á tromp. En Berk-
owitz leysti málið þannig:
Hann spilaði spaðakóng.
Vestur gat ekki hagnast
á því að trompa, því þá
yrði yfirtrompað og síðan
væri einfalt mál að fría
tígulinn og ná trompun-
um af vestri. Vestur
henti því hjarta og tígull
fór úr borði. Nú var
spaði stunginn, hjarta-
kóngur tekinn og síðasti
tígullinn trompaður með
laufásnum. Laufáttan
kom næst – nían frá
vestri og gosinn úr borði.
Loks var farið heim á
hjartaás og tromp vest-
urs – 74 – fönguð með
D5 blinds.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson.
Árnað heilla
70 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 16.
mars, verður sjötugur Guð-
jón Tómasson, Álftamýri
53, Reykjavík. Eiginkona
hans er Kristín Ísleifsdóttir.
Þau eru að heiman í dag.
70 ÁRA afmæli. Í dagföstudaginn 16. mars
er sjötugur Helgi Jónasson,
fyrrverandi fræðslustjóri,
Hæðarbyggð 7, Garðabæ.
Helgi og eiginkona hans,
Erla Sigurjónsdóttir, verða
að heiman á afmælisdaginn.
STAÐAN kom upp á
Cappelle la Grande-skák-
mótinu sem lauk fyrir
skömmu. Einn af mörgum
ungum stórmeisturum
Frakka, Laurent Fress-
inet (2581), hafði svart
gegn gamla refnum Davor
Komljenovic (2512)
frá Króatíu.
26...Rh3+! 27.gxh3
Hvítur var einnig í
miklum vanda
staddur eftir 27.Kh1
Rxf2+. 27...Dg5+
28.Dg4 28.Bg2 er
svarað með 28...Bf3
28...Bxg4 og hvítur
gafst upp.
Íslandsmót fram-
haldsskólasveita
hefst kl. 19.00 16.
mars í húsakynnum
Taflfélags Reykja-
víkur. 17. mars verður
T.R. með skemmtikvöld
sem hefst kl. 20.00. 18.
mars heldur T.R. netskák-
mót sem verður haldið á
ICC. Nánari upplýsingar
er hægt að fá áskak.is.
Skákfélagið Grand rokk
mun í samvinnu við Við-
skiptanetið standa fyrir
mótaröð í hraðskák. Und-
anrásir verða tefldar 17.
mars og 24. mars. Úrslita-
keppnin fer fram 31. mars.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
COSPER
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað.
Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja
afmælistilkynningum
og/eða nafn ábyrgð-
armanns og símanúm-
er.
Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í
bréfsíma 569-1329,
eða sent á netfangið
ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Yfirhafnir
Útsala
50% afsláttur
Opið laugardag
frá kl. 10—16
Mörkinni 6,
sími 588 5518
Síðustu
dagar
Aldrei meira úrval af nýjum
brúðarkjólum
Allir fylgihlutir, undirföt o.fl.
Ítölsk föt fyrir herra
FATALEIGA GARÐABÆJAR
sími 565 6680
Opið virka daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 10-14.
LAUGAVEGI 36
Opnaðu
augun
30% verðlækkun
á öllum
gleraugnaumgjörðum
& glerjum.
Islam í sögu
og samtíð
Leiðbeinandi
á námskeiðinu er
sr. Þórhallur Heimisson.
Fjögurra kvölda námskeið um sögu,
trú og þjóðfélag Islam haldið í
Hafnarfjarðarkirkju.
Námskeiðið hefst
fimmtudag eftir páska
Upplýsingar og skráning í síma 555 1295
eða á srthorh@ismennt.is
á horni Laugavegs og Klapparstígs
sími 552 2515
Sígild verslu
n
Full búð af nýjum vörum
15% vikutilboð
af kirsuberja-
húsgögnum
og Funkis-stólum