Morgunblaðið - 16.03.2001, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 16.03.2001, Qupperneq 68
FÓLK Í FRÉTTUM 68 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Í EÐLI sínu virðist „Eðlan“ eða Reptile, nýjasta plata Erics Clapt- ons, vera í senn einhvers konar þakkargjörð hans til þroskaáranna og vottorð um frelsi hans nú sem þroskaðs manns og listamanns. Þetta tvíeðli er bæði styrkur hennar og veikleiki. „Á mínum æskustöðvum,“ skrifar Clapton í aðfaraorðum plötunnar, „er orðið „reptile“ notað um þann sem er manni kær...Það er notað af sparsemi og ýtrustu virðingu; í því felst engin móðgun, heldur þvert á móti viðurkenning.“ Síðan minnist hann þess með ánægju þegar hann var fyrsta sinni kallaður „reptile“ og tileinkar plötuna öllum þeim góðu eðlum sem orðið hafa á vegi hans en einkum og sérílagi frænda sínum einum sem hafði meiri áhrif á hann en aðrir menn, aðrar eðlur. Síðasta lag plötunnar er skírt í höfuðið á þeim frænda og eiginkonu hans. Eric Clapton verður 56 ára þann 30. mars næstkomandi og sú hlýja og virðing sem einkennir aðfaraorðin er sannarlega til marks um lífsreyndan mann sem lítur þrátt fyrir allt sáttur yfir farinn veg, erfitt og sársauka- fullt ferðalag á köflum þar sem glíma við eiturlyfjafíkn og ástvinamissi hefði gengið af mörgum manninum dauðum. Clapton er sigurvegari í eigin lífi og þegar ég sá hann og heyrði m.a. kynna þessa nýju plötu við upphaf hljómleikaferðalags í London fyrir nokkrum vikum miðl- aði hann tónlist sinni og reynslu af örlæti og hlýju hins auðmjúka sig- urvegara. Á þessum hljómleikum varð áhorfandi og áheyrandi vitni að því kraftaverki þegar maður og gítar eru eitt. Lagavalið á Reptile ber þess þó merki að Clapton er ekki eins örugg- ur í listinni og lífinu. Annað slagið slítur hann rætur sínar úr blúsnum og grípur í hálmstrá einhvers sem hann virðist halda að sé vinsælda- popp. Þetta einkenndi líka síðustu sólóplötu hans, Pilgrim, sem maraði í hálfu kafi gervihljóms hljóðgervla en náði þó andanum í nokkrum laga- smíðum á borð við „My Father’s Eyes“. Þetta gervi er sem betur fer horfið á Reptile. Clapton sneri aftur heim til blúsins í fyrra með sam- starfsplötu þeirra BB Kings, Riding With the King, en einnig hún hefði orðið sterkari með strangara laga- vali. Clapton semur sjálfur helminginn af fjórtán lögum Reptile, annaðhvort einn eða í félagi við aðra. Þetta eru afar misjafnar lagasmíðar og engin þeirra er á við hans bestu. Fyrsta lagið, titillag plötunnar, er leikandi létt, sönglaus samba, þar sem fingra- fimi Claptons á gítarinn nýtur sín átakalítið. „Believe In Life“ er eins og nafnið bendir til lofgjörð til lífsins og ást- arinnar, snotur æfing í þeim heldur flata poppstíl, hér nokkuð sömbuð- um, sem hann er farinn að semja í. Söngur hans er svo dúnmjúkur og settlegur að minnir á Cliff Richard. Besta frumsamda lagið er „Find Myself“, glaðbeittur stúfur þar sem gáskafull laglínan togast skemmti- lega á við angurværan texta um að horfa í senn glaður og leiður um öxl til liðinna tækifæra. „Second Nature“ er veikburða smíð sem Clapton ljær meiri sann- færingarkraft en hún á skilið. Versta frumsamda lagið er „Mod- ern Girl“, að sönnu óaðfinnanlega leikin en vandræðaleg vangavelta miðaldra manns um nútímastúlku. Ekki vildi ég sitja uppi með ljóðlínur á borð við „She moves through your life like a warm summer breeze and nothing will stand in her way, the so- und of her voice brings your heart to it’s knees“; sem sagt, ég heyri ekki betur en hjartað fái hné, rímsins vegna. Og svo stelur Clapton blygð- unarlaust línunni „Don’t throw your love away“, sem þjónaði The Searc- hers vel en bjargar engu hér. „Superman Inside“ er kraftmeira en önnur frumsamin lög á plötunni, ekki ferskt, ekki frumlegt en traust- ur rokkari þar sem Clapton syngur fyrir sveit bakvarða á borð við Billy Preston á Hammondorgel og hinum aldna kvintett The Impressions sem styðja dyggilega við hann á þessari plötu, ásamt fleiri úrvalsspilurum, t.d. Steve Gadd á trommum, Nathan East á bassa og Andy Fairweather Low á gítar. Lokalag Reptile er „Son and Sylvia“; þar syngur Clapton með gít- arnum einum ljóðrænan óð til gam- alla vina og munnharpa Prestons læðist inn sem hlédrægur liðsauki. Hin leiða staðreynd er sú að lög annarra höfunda en Claptons sjálfs eru betri helmingur plötunnar. Í „Got You On My Mind“ kveður Clapton þéttan, hefðbundinn rokk- blús sem hann flytur af ekki minni innlifun en öryggi, nær utan um jafn auðveldlega og ástríðuþrungið og barn um brjóst móður sinnar. „Travelling Light“ naut sín betur í lymskulegri og lágstemmdri túlkun höfundarins, JJ Cales, og nýtist Clapton ekki eins vel og t.d. „Coc- aine“ eða „After Midnight“ sama höfundar, rafsóló hans óvenju graut- arlegt og innkomur The Impressions á skjön við gangverk lagsins. Betur heppnast klassastykki Ray Charles „Come Back Baby“, þungur saknaðaróður þar sem Clapton syngur með strengjum og raddböndum úr sér tilfinninga- iðrin, í orða- stað manns sem vill særa elskuna sína aftur heim, ýlfrandi gítar- inn eins og úlf- ur á fullu tungli. „Broken Down“ er glassúrkennt soul-lag og „Ain’t Gonna Stand For It“ eftir Stevie Wonder til- gangslaus end- urgerð fyrir dansiböll. Klass- ískur blúskeimur „I Want a Little Girl“ fær hins vegar í flutningi Claptons innlifaða fyllingu og hið bráðfallega lag James Taylors „Don’t Let Me Be Lonely Tonight“ öðlast nýjan lit og nýtt líf; það er eins og Clapton lifi sársauka þess við hljóðritun, fagurlega studdur af The Impressions og í lokasólóinu grefur hann með gítarnum áður ónumda tóna upp úr kunnuglegum jarðvegi. Þarna er eðal-Clapton á ferð. En of víða er Reptile eins og leit að ein- hverju sem ekki finnst. „Eðlan“ er í heild ekki eðal-Clapton heldur með- al-Clapton. Það er reyndar meira en það mesta og besta hjá flestum. Eric Clapton er ekki venjuleg eðla; hann er sprelllifandi risaeðla í rokksög- unni, sennilega stærsta dýrið í hjörð- inni. ERLENDAR P L Ö T U R Árni Þórarinsson fjallar um nýjustu hljóðversskífu Erics Claptons sem hann kaus að nefna Reptile.  Eðaleðla? „Á mínum æskustöðvum er orð- ið „reptile“ notað um þann sem er manni kær...“ skrifar hinn 56 ára gamli Eric Clapton í aðfara- orðum plöt- unnar. ÞAÐ ER ekki nóg með það að ljótu sléttuúlfarnir séu í toppbaráttunni á vinsældalistanum yfir mest leigðu myndböndin heldur er geisladiskurinn með tónlistinni úr myndinni nú kom- inn á topp Tónlist- ans. Það eru sveitapoppsöngv- arnir sem eru ráð- andi í myndinni og ber þar helst að nefna LeAnn Rimes slag- arann „Can’t fight the moonlight“. Það er greinilega vinsælt hér á landi að spangóla með ljótu sléttuúlfunum. Sveitapopp!                      ! " #  $ %  !  & '( !)" &*+,       % +, ,- ./0 %- 1 -  )   2 ) $       % )   30 )44 34 3                       !  " # !$ %  &' #     (  )! $  #     * +      ,  ,   ! & -   ./' 0 1 2 3 4 &  ,   -  5556  ,  & *7 # '  %  5 9 -   :;;; <5<<<<< : ( #   -  <<< = :;>?@:;;?   ,  :< A< B< C< D< E< F< >< ;< :?< ::< :A< :B< :C< :D< :E< :F< :>< :;< A?< A:< AA< AB< AC< AD< AE< AF< A>< A;< B?< 56 5 7 85 9 : : ; 59 ( 5; (5 59 95 9< ;: 5; 5 = : 8 5 (6 56 5 5: < 8= 97 5( >   %? )3. 3@ '    )3. % % % >   '    '    ! $ '    % %  A ,// '    % % B! >     '    % 3@ 1- C  ,  3 >  3 D1,   E    *   ? / F  /G 1,       &$ 2 -   % 4 - ,E   /   3  4 //?    /      H), # I), IA  I ?)  - I ?  I ?!  I30?  3 #  J I30? 3 3 ,I%  ,    I%?   I%? !  (< :< A< B< C< D< E< F< >< ;< :?< ::< :A< :B< :C< :D< :E< :F< :>< :;< A?< A:< AA< AB< AC< AD< AE< AF< A>< A;< B?< J J J 7   4+  K %       ( K = 9 ; (6 55 56 7 : 5 8 58 < 5; (7 (8 K 59 (5 89 K 57 5( K 5< 8< 9= 5= (( REGGAEPOPPARINN Shaggy er víst í skýj- unum þessa dagana yfir velgengni smá- skífulagsins „It Wasn’t Me“ og nýjustu breið- skífunnar Hot- shot en hún er í átjánda sæti Tónlistans. Í ný- legu spjalli við tón- listartímaritið Q sagðist kappinn helst þrífast á vel- gengni og góðu kynlífi og fullyrti að þessa dagana væri hann að upplifa hámarks- skammt. Þá er bara að vona að pilturinn verði ekki uppiskroppa með þessi verald- legu gæði á komandi árum. Í skýjunum! ÞAÐ hlýtur að teljast til tíðinda þegar listamaðurinn Egill Ólafsson tekur upp á því að senda frá sér sóló- plötu. Það er verk sem hann hefur látið ógert í ein tíu ár, eða síðan platan Blátt blátt kom út. „Angelus Novus“ eða „Nýr Engill“ upp á íslensk- una er þriðja sólóplata söngvarans og það sést glögglega á Tónlistanum að hennar hefur verið beðið með eftirvæntingu því platan skýst beint upp í annað sæti listans. Nýr Egill! NÝLIÐARNIR í Spooks eru greini- lega að gera lukku með lagi sínu „Things I’ve Seen“ því plata þeirra S.I.O- .S.O.S. vol 1 kemur sér fyrir í tuttugasta og fimmta sæti Tón- listans. Hljóm- sveitinni hefur verið líkt við The Fugees, tón- listin er í sama anda, létt rapp með melódískum sönglínum inn á milli. Spooks er spáð miklum vinsældum og sögur herma að það sé þó nokkuð um slagara á þessari fyrstu plötu sveitarinnar. Ný Fugees?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.