Morgunblaðið - 21.03.2001, Page 2
8 SÍÐUR
Sérblöð í dag www.mb l . i s
Teiknimyndasögur
Myndir
Þrautir
Brandarar
Sögur
Pennavinir
Tindastóll í undanúrslit í fyrsta
sinn í sögu félagsins/C3
Ólafur og Ívar leika til úrslita með
Brentford í Cardiff/C1
4 SÍÐUR 4 SÍÐUR
Í VERINU í dag er sagt frá verðmæti loðnuafurða á
vetrarvertíðinni, áformum um styrjueldi á Íslandi og
auknum áhuga á handfæraveiðum. Einnig eru í blaðinu
upplýsingar um aflabrögð og markaði.
Morgun-
blaðinu í
dag fylgir
ferming-
arblað Aco.
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LÖGREGLUMAÐUR slasaðist
talsvert í andliti og hlaut slæman
heilahristing þegar fimmtán ára
piltur sparkaði í höfuð hans aðfara-
nótt sunnudags. Drengurinn lagði á
flótta en vitni að árásinni hlupu
drenginn uppi og stöðvuðu hann eft-
ir að hann hafði fallið niður af háum
kanti og fótbrotnað. Geir Jón Þór-
isson yfirlögregluþjónn segir að at-
burðir af þessu tagi hafi færst í vöxt
og verið tíðari en áður allt frá því síð-
astliðið haust. Hann segir að litið sé
alvarlegum augum á hluti sem
þessa. Lögreglumaðurinn sem í hlut
átti er fjölskyldumaður.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Reykjavík var tilkynnt um
að hópur pilta væri að brjóta rúður í
Foldaskóla í Grafarvogi skömmu
fyrir kl. 1. Þegar lögreglan kom á
vettvang var hópurinn á bak og burt
en fjórar rúður höfðu verið brotnar.
Skömmu síðar var tilkynnt um að
piltar væru að stela úr bifreið
skammt frá. Eigandi bílsins hugðist
verja eigur sínar en fékk spark í fót-
legg. Annar maður sem kom honum
til aðstoðar var sleginn með hnefa í
andlitið.
Nokkru síðar ók lögreglan fram á
hóp 15–18 ára pilta á gatnamótum
Gagnvegar og Fjallkonuvegar sem
pössuðu við lýsingu sem gefin hafði
verið af piltunum við Foldaskóla.
„Piltarnir voru þarna á spjalli við að-
ila sem voru þar á bíl. Ég ræddi við þá
en þeir byrjuðu með uppsteyt. Ég
ætlaði að taka annan þeirra frá hópn-
um og ræða við hann en hann ýtti við
mér og félagi hans hjálpaði honum.
Þetta leiddi til handtöku en ég var
einn að fást við þá tvo því félagi minn
hafði veitt öðrum úr hópnum eftirför
þegar þeir forðuðu sér á hlaupum.
Ég náði að snúa þann eldri niður í
jörðina og er klofvega yfir honum
þegar sá yngri kom hlaupandi að
mér og sparkaði í ennið á mér. Ég
vankaðist við höggið en náði að
handjárna þann eldri. Strákarnir í
bílnum sáu þegar drengurinn spark-
aði í höfuðið á mér og hlupu á eftir
honum niður brekku,“ sagði Jón
Gunnar Þórhallsson lögreglumaður.
Jón Gunnar var á sjúkrahúsi fram
til kl. 8 á sunnudagsmorgun. Hann
fékk heilahristing, kastaði upp og
vankaðist mikið. Hann hefur ekki
ennþá náð sér að fullu og er undir
eftirliti lækna.
Yfirleitt fólk undir áhrifum
„Það er engin launung á því að
það hefur töluvert borið á því að lög-
reglumenn hafa verið slasaðir við
störf sín og við handtöku á fólki í
haust og það sem af er þessu ári.
Sem betur fer hefur það ekki verið
alvarlegt fram að þessu en þó tals-
verður skaði,“ segir Geir Jón Þór-
isson yfirlögregluþjónn. Hann segir
að mörg tilfelli hafi komið upp á
skömmum tíma. Atburðir sem þess-
ir hafi alltaf átt sér stað af og til en
þeir hafi verið tíðari nú en áður.
Hann segir að þarna eigi hlut menn
á öllum aldri.
„Það sem veldur þessu er ákveðið
virðingarleysi og háttalag sem
mönnum finnst að sé í lagi að sýna
lögreglu en við lítum mjög alvarleg-
um augum. Yfirleitt á hér í hlut fólk
sem er undir áhrifum áfengis eða
vímuefna. Í þessu tilfelli var verið að
handtaka félaga árásarmannsins og
hann ætlaði að hjálpa honum. Það er
nokkuð oft sem þetta gerist. Einnig
getur það gerst að handtekinn aðili
streitist á móti og getur slasað lög-
reglumann, en oftast eru menn að
skipta sér af störfum lögreglu. Þetta
mál sætir rannsókn og í framhaldi af
því verður það sent ríkissaksóknara
sem ákærir í málinu,“ segir Geir
Jón.
Hann segir að lögreglumenn
verði af þessum sökum að sýna enn
meiri varúð við handtökur en hefur
verið gert. Geir Jón segir að hér sé
um að ræða hegningarlagabrot sem
getur varðað allt að sex ára fangelsi
og ætti alvara málsins því öllum að
vera ljós.
Jón Gunnar Þórhallsson lög-
reglumaður varð fyrir árás að-
faranótt 18. mars sl.
Vankaðist við höggið en tókst
að handjárna þann eldri
Líkamsárásir á lögreglumenn hafa færst í vöxt að undanförnu
STARFSFÓLK flugfélagsins Suður-
flugs ehf. og slökkviliðsmenn A-
vaktar Slökkviliðsins á Keflavík-
urflugvelli fengu í gær góðan glaðn-
ing fyrir vel unnin störf eftir
flugóhapp á Keflavíkurflugvelli 3.
mars sl. Roger Woolsey, eigandi
Lear Jet 35, lítillar þotu sem fórst
næstum þegar hjólbarði sprakk í
flugtaki, afhenti glaðninginn sem
samanstóð af ýmsu góðgæti í veg-
legum körfum.
Þotan var í sjúkraflugi þegar
óhappið varð og hafði millilent hér á
leið sinni frá Kenýa til Washington í
Bandaríkjunum. Í flugtaki sprakk
hjólbarði með þeim afleiðingum að
hjólabúnaður vélarinnar hægra
megin fór undan vélinni. Vélin sner-
ist heilan hring á vellinum og tókst
flugmönnum með naumindum að
stöðva hana við enda flugbraut-
arinnar. Taldist það kraftaverki
næst að ekki hlaust af stórslys, en
sex manns voru um borð í vélinni og
sluppu allir ómeiddir.
Tjökkuðu upp vélina
Strax eftir óhappið komu liðs-
menn A-vaktar Slökkviliðsins á
Keflavíkurflugvelli á vettvang,
tjökkuðu vélina upp á loftpúðum og
drógu hana inn í flugskýli Flugleiða
án þess að skemma vélina meira en
orðið var. Þessi vinnubrögð heilluðu
mjög Roger Woolsey, sem hefur
horft upp á aðra vél flugfélags síns,
American Jet International, sem
lenti í sams konar óhappi erlendis,
nánast eyðilagða í meðförum björg-
unarmanna sem beittu annars konar
aðferðum við að fjarlægja vélina af
vettvangi. Þá var brugðið yfir vélina
krossböndum og hún hífð upp með
áður greindum afleiðingum. Með
vinnubrögðum slökkviliðsins var því
komið í veg fyrir gríðartjón. Tals-
vert puð fylgdi því að draga vélina
af vettvangi í 10 stiga frosti og leið-
indaveðri og tók verkið sex tíma.
Vélin var dregin áfram af bíl og ann-
ar ýtti á eftir auk þess sem fótgang-
andi slökkviliðsmenn fylgdust með
tjakknum á leiðinni.
Þáttur Suðurflugs fólst síðan í því
að aðstoða við að koma vélinni í skýli
og liðsinna eigendum vélarinnar
m.a. með því að koma þeim í sam-
band við rannsóknarnefnd flugslysa
og afgreiða nýja vél daginn eftir.
Gert er ráð fyrir að vélinni verði
flogið af landi brott í dag, miðviku-
dag, að loknum viðgerðum.
Þakkað fyrir fagmannleg
vinnubrögð eftir flugóhapp
Morgunblaðið/Þorkell
Roger E. Woolsey afhendir Jónasi Marteinssyni, varðstjóra hjá Slökkvi-
liði Keflavíkurflugvallar, og Sigurði Arasyni varaslökkviliðsstjóra níð-
þunga körfu með snakki og alls kyns sósum frá Texas.
LÖGREGLAN í Hafnarfirði handtók
í gær sextán ára pilt fyrir að skjóta úr
loftskammbyssu að börnum að leik
með þeim afleiðingum að ein kúlan
lenti í sex ára barni. Meiðsli barnsins
voru ekki það mikil að það þyrfti að-
hlynningu á slysadeild, að sögn lög-
reglunnar. Pilturinn skaut af byss-
unni út um glugga heima hjá sér og
olli tiltæki hans nokkuri skelfingu
meðal barnanna. Lögreglan færði
piltinn til yfirheyrslu og lagði hald á
byssuna sem er leyfisskyld. Piltinum
var síðan sleppt að loknum yfir-
heyrslum en málið er í rannsókn lög-
reglu og verður sent barnaverndaryf-
irvöldum til meðferðar.
Kúlur í byssunni eru litlar blýkúlur
og segir lögreglan að lendi þær í aug-
um fólks geti hlotist af töluverður
skaði þar sem byssan sé kraftmikil.
Skaut á
börn með
loftbyssu
RÍKHARÐ H. Hördal forvörður er
látinn á fimmtugasta og fimmta
aldursári af völdum umferðarslyss
sem hann varð
fyrir í Helsinki í
Finnlandi fyrir
nokkrum vikum.
Ríkharð fædd-
ist í Lundar í
Manitoba í Kan-
ada 18. desem-
ber árið 1946
sonur hjónanna
Jocelyn Hördal
og Óskars Hör-
dal, en þau voru af íslensku bergi
brotin.
Ríkharð lauk prófi í forvörslu
málverka frá Konunglegu listaaka-
demíunni í Kaupmannahöfn árið
1982 og vann á viðgerðadeild
Munch-safnsins í Ósló það ár og á
viðgerðadeild Stedilijk-safnsins í
Amsterdam árið 1989.
Ríkharð starfaði við málverka-
viðgerðir hjá eigin fyrirtæki,
Morkinskinnu, frá árinu 1983, en
hefur síðustu árin starfað við for-
vörslu í Helsinki í Finnlandi.
Eftirlifandi eiginkona Ríkharðs
er Álfheiður Björk Einarsdóttir
sérkennari og eiga þau eina dóttur.
Lést eftir
umferð-
arslys
Ríkharð H.
Hördal
GUÐMUNDUR Eyjólfsson skíða-
göngumaður gekk 20 km í gær í
leiðangrinum „Frá strönd til
strandar 2001“ og tjaldaði á Heið-
arbæjaheiði.
Gærdagurinn var erfiður og
landslagið mishæðótt. Þá braut
hann skíðastaf og dráttarkjálki
sleðans brotnaði, en böndin eru heil
og eiga að duga áfram. Hann á von
á birgðum í Brú í Hrútafirði og þar
mun hann fá nýjan skíðastaf og efni
til að laga kjálkann. Hann á ófarna
72 km niður að Brú og vonast til að
komast þangað á föstudag.
Erfiður
dagur hjá
Guðmundi
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt tvo
ábúendur bújarðar í A-Húnavatns-
sýslu og Bændasamtök Íslands til
að greiða tveim eigendum fjórða
parts sömu jarðar 698 þúsund
krónur, ásamt vöxtum fyrir að hafa
selt greiðslumark jarðarinnar árið
1997 án vitneskju fyrrgreindra eig-
enda.
Í dómi Hæstaréttar kemur fram
að ábúendurnir, aðaláfrýjendur í
málinu, hafi selt allt greiðslumark-
ið án þess að leita samþykkis fjórð-
ungseigendanna, gagnáfrýjenda,
þótt þeim væri fullkunnugt um að
þeir væru þinglýstir eigendur hluta
lögbýlis. Var því fallist á kröfu
gagnáfrýjenda um að aðaláfrýjend-
um bæri að bæta þeim tjónið.
Greiðslumark
Sala án
samþykkis
bótaskyld
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦