Morgunblaðið - 21.03.2001, Side 53

Morgunblaðið - 21.03.2001, Side 53
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 53 FRÉTTIR herma að talíbanar í Afganistan séu að eyðileggja allar búddastyttur landsins, m.a. þá í Bamian en í fréttunum er sagt að hún sé stærsta búddastytta í heimi, 53 m há. Styttan í Bamian er reynd- ar ekki stærst, heldur næststærst, því stærsta búddastytta heims er í Kína, við bæinn Leshan í Sechuan- héraði, og er hún 71 metri á hæð. Styttan í Kína er nefnd Stóri Búdda, á kínversku DAFÓ. Hún er höggvin inn í fjallið við Leshan, þar sem árnar Dadu og Min renna sam- an, en í samrennsli þeirra myndast mikil og kröftug straumköst. Það var árið 713, sem hafist var handa við að reisa þetta mikla mannvirki, en það var búddamunk- urinn Haitong, sem fékk þá hug- mynd að myndarleg búddastytta hér myndi hafa lægjandi áhrif á strauminn, sem kæmi bátum og mönnum þeirra vel, því títt var um að bátar færust hér með tilheyrandi mannskaða. Haitong entist ekki aldur til að sjá verk sitt fullkomnað, það tók 90 ár að fullgera það. Segja má að DAFÓ sé meirihátt- ar, sem dæmi um stærð hennar má nefna að eyrun eru 7 m löng, tærn- ar 8½ m langar og táneglurnar 1½ m langar. UNNUR GUÐJÓNSDÓTTIR, Njálsgötu 33, Rvík. Stærsta Búdda- stytta í heimi Frá Unni Guðjónsdóttur: ÞAÐ var nokkru fyrir jól, sem for- sætisráðherra tilkynnti að aldraðir og öryrkjar fengju 4% hækkun í des- ember, þegar laun almennt hækkuðu ekki nema um 3% og þóttist sýnilega vera góður strákur. En hann hafði gleymt að geta þess hve lífeyrir þess- ara hópa hafði lækkað mikið í stjórn- artíð Davíðs og co. við það að lækka skattleysismörkin niður í 63 þúsund og kippa greiðslum til þessa fólks úr sambandi við almenna launaþróun í landinu en haga þessum greiðslum eftir eigin geðþótta, sem hefir vægast sagt verið siðlaust og haft þær afleið- ingar að þessir hópar hafa dregist langt aftur úr launum miðað við það sem áður var, svo nemur 20%, svo við þetta risastökk forsætisráðherra er aðeins 1% sem munar svo enn standa eftir 19%. Þetta er að sjálfsögðu gert til að lítillækka þetta fólk og þrýsta því niður í örbyrgð, og verkalýðs- hreyfingunni til ævarandi skammar að hreyfa ekki mótmælum, hún hafði þó áður samið um þessa tengingu við almenna launaþróun. Um verkalýðs- hreyfinguna mætti margt segja, þó að það verði ekki gert hér, kannski síðar á öðrum vettvangi, en sem verkalýðs- hreyfing eða barátta virðist hún búin að vera. Er það ekki svo að foringj- arnir uni bara glaðir við sitt – og skítt svo með hina sem í litlum mæli sækja fundi. Hvað er til ráða? Í grein í Morgunblaðinu 7. desem- ber 2000 lýsir Ólafur Ólafsson fyrr- verandi landlæknir hörmulegu ástandi margra sem fá aðeins lífeyri frá Tryggingastofnun og hann spyr: „Hvað er til ráða? – Þarf að fara með málið til Mannréttindadómstóls Evr- ópu til að úrbætur fáist?“ Er það ekki einmitt rétta leiðin að stjórn félags eldri borgara sendi málið þangað, ef ríkisstjórnin vill ekki strax nú í byrj- un nýrrar aldar skila til réttra eig- enda þessum 19% sem þeir hafa með rangindum af þeim haft? Það ætti ekki að vera svo mjög erfitt með allan tekjuafganginn á fjárlögum og miðað við margt annað sem ríkisstjórnin hefur gert sýnist þetta beinlínis óhjá- kvæmilegt. Voru þeir ekki að hækka lífeyri Vigdísar Finnbogadóttur um helming úr 500 þúsund upp í milljón og Halldóru Eldjárn úr 300 þúsund upp í 600 þúsund? Þeir munu þó ekki hafa áður verið búnir að skerða lífeyri þessara kvenna einsog venjulegs fólks, sem áður var minnst á. Nú mætti kannski halda að ég öfundaði þessar blessaðar konur en svo er þó ekki, heldur nefni ég þetta til að benda á réttlætiskennd ríkisstjórnar- innar. – Þó er eitt, sem ekki má gleymast að ríkisstjórnin hækkaði eigin laun og laun handhafa forseta- valds rétt eftir að forsætisráðherra tilkynnti að engar launahækkanir yrðu þótt laun forseta Íslands hækk- uðu sem næmi þeim tekjuskatti sem honum yrði gert að greiða. Erfiður biti að kyngja Hlýtur ekki forsætisráðherra, sem gerir sjálfan sig að ósannindamanni og verður uppvís að því að hygla sjálf- um sér og öðrum sem næstir standa í svokölluðum metorðum, þvert oní töl- uð orð að vera ofurlítið miður sín? Ó, nei. Hann þarf þess ekki, rétt á eftir var hann kjörinn stjórnmálamaður ársins af meiri hluta aðspurðra Ís- lendinga. Já, það er nú svo, oft mætti halda ef tekið er mið af skoðanakönn- unum að Íslendingar væru mestu furðufuglar veraldar. Nú verður fróð- legt að sjá hvort forsætisráðherra tekst að einhverju leyti að sniðganga dóm Hæstaréttar í máli öryrkja gegn ríkisvaldinu og greiða þeim minna en Hæstiréttur dæmdi þeim; sýnilega er öllum brögðum beitt til að sniðganga þann dóm, fyrst forsætisráðherra hefur skipað nefnd til að kanna málið. Já, það er ekki á þennan stjórnmála- mann aldarinnar logið, þó að sagt sé að hann hafi ekki löngun til að skipta þjóðarkökunni réttlátlega. Óviður- kvæmileg orð forsætisráðherra um dóm Hæstaréttar sýna svo ekki verð- ur um villst að þetta er erfiður biti að kyngja fyrir stjórnmálamann aldar- innar. En örugglega mun þessi dóm- ur Hæstaréttar gleðja alla þá, sem óska að í þessu þjóðfélagi ríki réttlæti, hvort sem málið er þeim viðkomandi eður ei. Því ber vissulega að fagna að Hæstiréttur sýni það að hann lætur ekki stjórna sér, því vissulega er sú þjóð í nauðum stödd, sem hvorki get- ur treyst ríkisstjórn sinni né Hæsta- rétti. Að svo mæltu óska ég Hæsta- rétti allra heilla á komandi öld og megi hann ávallt kveða upp dóma með réttlætið að leiðarljósi. Lokaorð Greinin hér á undan er ekki alveg í takt við tímann og af sérstökum ástæðum ekki farið fyrr frá höfundi hennar. Hún er skrifuð á þeim tíma, er Hæstiréttur hafði dæmt í máli Ör- yrkjabandalagsins. Síðan hafa hinir ótrúlegustu hlutir gerst; þar sem eru bréfaskriftir forseta Alþingis og for- seta Hæstaréttar. Um þau hafa lög- skipaðir sagt margt en ekki verið sammála, lögspekingar fram- kvæmdavaldsins telja það hið besta mál þar sem framkvæmdavaldið gat ekki skilið dóminn, en hinir voru furðulostnir og eru þessar bréfa- skriftir búnar að vera í brennidepli. En að lokum vil ég endurtaka það að sú þjóð er vissulega í nauðum stödd sem hvorki getur treyst fram- kvæmdavaldinu né Hæstarétti. AÐALHEIÐUR JÓNSDÓTTIR, Furugerði 1. Barátta um brauðið Frá Aðalheiði Jónsdóttur: BRIDS U m s j ó n A r n ó r G . R a g n a r s s o n Suðurlandsmót í tvímenningi Suðurlandsmót í tvímenningi fór fram á Þingborg laugardaginn l7. mars. Sextán pör tóku þátt í mótinu og urðu úrslit þessi: Guðl. Sveinss. – Erl. Jónss. (Gestapar) 77 Kristján M. Gunnarss. – Vilhj. Þór Pálss. 60 Þröstur Árnas. – Ólafur Steinas. 36 Sigurður Vilhjálmss. – Björn Snorras. 3l Gunnar Þórðars. – Runólfur Þ. Jónss. l7 Kristinn Þóriss. – Helga Sturlaugsd. l7 Sigfinnur Snorras. – Brynjólfur Gestss. ll Erla Sigurjónsd. – Sigfús Þórðars.7 Þröstur Árnason og Ólafur Steina- son unnu sér rétt til að spila í úrslit- um í tvímenningskeppni Íslands- mótsins í brids, þar sem tvö efstu pörin spiluðu ekki um réttinn. Á þessu móti var einnig spilað um réttinn til að spila á næsta landsmóti UMFÍ í sumar. Spilarar verða valdir á næstunni af bridsnefndinni. Mótið fór vel fram undir góðri stjórn spila- stjórans Eiríks Hjaltasonar. Bridsfélag Suðurnesja Mánudaginn 5. mars lauk þriggja kvölda loðnutvímenningi. Þrjú efstu pör: Heiðar Sigurjónss. – Þröstur Þorlákss. Garðar Garðarss. – Óli Þ. Kjartanss. Karl G. Karlss. – Guðjón S. Jensen Nú stendur yfir Butler-tvímenn- ingur. Minningarmót um Guðmund Ingólfsson. Staðan er þessi þegar einu kvöldi er ólokið. Garðar GArðarss. – Óli Þ. Kjartansson 115 Randver Ragnarss. – Svala Pálsd. 108 Gunnar Guðbjörnss. – Elías Guðmundss 108 Jóhannes Sigurðss.– Gísli Torfason 108 Félag eldri borgara í Kópavogi Þriðjudaginn 13. marz mættu 23 pör til keppni og urðu úrslit þessi í N/S: Ólafur Ingimundars. - Jón Pálmason 263 Ólafur Ingvarss. - Þórarinn Árnason 239 Ingibjörg Kristjánsd. - Þorst. Erlingss. 238 Hæsta skor í A/V: Bragi Björnsson - Magnús Halldórss. 267 Þórður Jörundss. - Guðm. Magnússon 244 Einar Guðnason - Leifur Jóhannsson 241 Á föstudag spiluðu 20 pör og þá urðu úrslitin þessi í N/S: Eysteinn Einarss. - Sigurður Pálsson 278 Lárus Hermannss. - Sigurður Karlss. 227 Heiður Gestsd. - Ingiríður Jónsd. 219 Hæsta skor í A/V: Alfreð Kristjánss. - Fróði B. Pálss. 293 Ólafur Ingvarss. - Þórarinn Árnason 244 Helga Helgadóttir - Þorleifur Þórarinss. 237 Meðalskor báða dagana var 216. Spilakvöld Bridsskólans og BSÍ Mjög góð þátttaka er á mánudög- um hjá Hjálmtý og spila að jafnaði 18 pör. Mánudaginn 12. mars urðu úr- slit þessi: N-S-riðill Sjöfn Sigvaldad. – Guðm. Luðvigsson 113 Eiríkur Þorsteinss. – Páll Guðmundss. 94 Ásbjörn Þorleifss. – Kristín Hilmarsd. 93 A-V-riðill Heiða Sigmundsd. – Hildur Eysteinsd. 101 Benedikt Franklínsson – Magnús Waage 89 Guðbjörn Sandholt – Herdís Þorgrímsd. 89 Spilað er öll mánudagskvöld í Þönglabakka 1, 3. hæð. Spila- mennska hefst kl. 20.00. Eldri borgara brids í Gullsmára Eldri borgarar spiluðu tvímenn- ing á 8 borðum á vegum bridsdeildar FEBK að Gullsmára 13, mánudag- inn 19. marz sl. Miðlungur 126. Bezt- um árangri náðu: NS Sigurþór Halldórss. - Viðar Jónss. 153 Helga Ámundad. - Hermann Finnbogas. 149 Sigurp. Árnas. - Sigurjón H. Sigurjónss 146 AV Karl Gunnarsson - Ernst Backman 166 Unnur Jónsd. - Jónas Jónss. 165 Kristján Halldórsd. - Eggert Kristinss. 145 -- Eldri borgara brids að Gull- smára 13 alla mánudaga og fimmtu- daga. Skráning kl. 12.45. annan hvern miðvikudag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.