Morgunblaðið - 21.03.2001, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.03.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ MENNIRNIR þrír, sem handteknir voru á farfuglaheimilinu í Laugardal með þýfi úr tveimur innbrotum að andvirði 6–8 milljónir kr., eru taldir tilheyra rússnesku mafíunni. Gunn- leifur Kjartansson yfirmaður auðg- unarbrotadeildar lögreglunnar, seg- ir að það sem styðji þetta séu aðferðirnar, sem eru þær sömu og þekktar eru meðal afbrotamanna frá Austur-Evrópu, og afbrotaferillinn sem nær víða um álfuna. „Þetta er skipulögð glæpastarf- semi sem er undir stjórn annarra manna. Það er ýmislegt í aðferðum þessara manna og einnig Rúmenans, sem handtekinn var á síðasta ári fyr- ir innbrot, sem segir okkur að hér sé um þrælskipulagða starfsemi að ræða. Við höfum líka upplýsingar í þessa veru frá starfsbræðrum okkar á Norðurlöndum og víðar í Vestur- Evrópu. Þessir afbrotamenn koma inn í löndin, fremja glæpi og eru farnir sem fyrst til baka. Þessi starf- semi er um alla Evrópu og við erum einfaldlega að fá þetta yfir okkur núna,“ segir Gunnleifur. Að mati lögreglunnar er ekki talið að Schengen-samningurinn sé til þess fallinn að sporna við þessari þróun. Hluti þessarar skipulögðu starfsemi fari fram innan Schengen- svæðisins, þar sem útsendarar glæpasamtaka haldi margir til. Þeir sem séu á annað borð innan Scheng- en-svæðisins eigi greiða leið hingað til lands og minna eftirlit verði með þeim en áður. Hingað til lands komu mennirnir frá Vilníus í Litháen með millilend- ingu í Kaupmannahöfn. Danir verða ekki formlegir aðilar að Schengen- samningnum fyrr en næstkomandi sunnudag, eins og öll hin Norður- löndin. Mennirnir hafa hlotið dóma í Þýskalandi, sem er aðili að Scheng- en, og hefðu þeir að líkindum verið stöðvaðir í Kaupmannahöfn hefði Schengen-samningurinn verið kom- inn í gildi þar. Lögreglan í Ósló og Helsinki hefur farið fram á nánari upplýsingar frá lögreglunni í Reykjavík um mennina. Ómar Smári Ármannsson aðstoð- aryfirlögregluþjónn segir að starf- semi af þessu tagi sé þekkt í Evrópu og beri jafnan á góma á alþjóðlegum ráðstefnum og fundum lögregluyfir- valda. Þjófar taldir tilheyra rússnesku mafíunni BORGARYFIRVÖLD hyggjast ljúka endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur eftir árið 2016 á þessu kjörtímabili og að sögn Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur borg- arstjóra verður gert ráð fyrir íbúðabyggð á svæðinu í því skipu- lagi. „Við gerum náttúrlega ekki ráð fyrir breytingu á aðalskipulaginu fyrir 2016 en eftir það má gera ráð fyrir byggð í Vatnsmýrinni,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Í drögum að svæðisskipulagi fyrir höfuðborgar- svæðið, sem kynnt var í október á síðasta ári, kemur fram að 5 þús- und íbúða byggð rúmist í Vatns- mýrinni. Ingibjörg Sólrún sagði hins veg- ar að ekki væri búið að taka neina formlega ákvörðun um það hversu þétt byggðin yrði. Nú yrðu menn að fara yfir þau mál. Vinnu við svæðisskipulag á að ljúka í vor „Þetta getur gerst í áföngum og á nokkuð löngum tíma og ég held raunar að það sé nokkuð mikil- vægt fyrir Vatnsmýrina að það gerist þannig.“ Ingibjörg Sólrún sagði að stefnt væri að því að sér- stök samvinnunefnd um svæðis- skipulag á höfuðborgarsvæðinu, sem skipuð er fulltrúum átta sveit- arfélaga, skilaði frá sér tillögum um nýtt svæðisskipulag höfuðborg- arsvæðisins í vor. Þegar tillögurn- ar lægju fyrir þyrftu sveitarfélögin og umhverfisráðherra að staðfesta þær og þá væri skipulagið orðið bindandi fyrir sveitarfélögin. Svæðisskipulagið tekur til byggðaþróunar, landnotkunar, um- hverfismála, samgangna og veitu- kerfa auk þess sem samfélagsleg þróun á svæðinu er skoðuð sér- staklega. Skipulagssvæðið afmark- ast af sveitarfélagsmörkum Kjós- arhrepps í norðri og Hafnarfjarðar í suðri. Svæðisskipulag er gert til minnst 12 ára, en svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins nær til árs- ins 2024 og er skipt í tvo áfanga varðandi byggðaþróun, eða 2000 til 2018 og 2018 til 2024. Áætlað er að íbúafjöldi á höf- uðborgarsvæðinu muni aukast um 60 þúsund á þessum 24 árum, eða úr 170 þúsund í 230 þúsund. Þar sem svæðisskipulagið er bindandi fyrir sveitarfélögin þarf aðalskipulag hvers sveitarfélags að taka mið af því. Aðalskipulag er skipulagsáætlun sem nær til alls lands í viðkomandi sveitarfélagi. Það er rammi fyrir deiliskipulag og er stefnumörkun sveitarstjórn- ar um landnotkun, umferðarkerfi og þróun byggðar. Byggt á Álfsnesi, í suðurhluta Hafnarfjarðar og Vatnsmýri Eins og fram kom að ofan voru í október á síðasta ári kynnt drög að nýju svæðisskipulagi höfuðborgar- svæðisins. Samkvæmt þeim er gert ráð fyrir mögulegum byggingar- svæðum á Álfsnesi í Reykjavík, við Hamranes og Vatnshlíð í suður- hluta Hafnarfjarðar og á svæði Reykjavíkurflugvallar. Ingibjörg Sólrún sagði að það færi svolítið eftir því hvaða ákvörðun yrði tekin um Vatnsmýr- ina hvort og þá með hvaða hætti byggð yrði skipulögð í Álfsnesi og sunnan Hafnarfjarðar. Hún sagði að samvinnunefndin þyrfti að meta það hvaða áhrif ný byggð í Vatns- mýri myndi hafa á byggðaþróun til norðurs og suðurs. Í fyrri áfanga svæðisskipulags- ins, sem nær frá 2000 til 2018, er gert ráð fyrir að 26 þúsund nýjar íbúðir muni rísa innan höfuðborg- arsvæðisins. Í síðari áfanganum, sem nær frá 2018 til 2024, er gert ráð fyrir 7 þúsund nýjum íbúðum. Þó aðeins sé gert ráð fyrir 7 þúsund nýjum íbúðum í síðari áfanganum er í drögunum tekið fram að í Álfsnesi sé rúm fyrir 7 þúsund nýjar íbúðir, á byggingarsvæðunum í suður- hluta Hafnarfjarðar rúmist 7 þús- und í viðbót og í Vatnsmýrinni rúmist 5 þúsund íbúðir. Stefnt að því að endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur verði lokið á þessu kjörtímabili Rými fyrir 5.000 íbúða byggð í Vatnsmýrinni                                   ! !   "#! #$ %&            ' %() *+,-.'&          / *   - 0 * (%" ,,& 1.#()          !2 3 4  5 6 3  5 !7 5   89 !7 5  89: !7 5  ;     .    <                                 !        *= >!' ? MEIRI óvissa ríkir um efnahagshorfur hér á landi nú en um langt skeið og liggja til þess bæði innlendar og erlendar orsakir að mati Þjóðhagsstofnunar, en rit stofnunarinnar um þjóðarbúskapinn, framvinduna í ár og horfur á næsta ári var birt í gær. Erlendu orsakirnar eru niðursveiflan í Bandaríkjunum og verðfall á hlutabréfamörkuðum, en óvissan hér á landi felst ekki síst í því hvernig atburðarásin verður sem leiðir til minni viðskiptahalla á næstu misserum og árum. Stofnunin spáir að verulega dragi úr vexti þjóðarútgjalda í ár og að þau aukist um 1,1% í ár en jukust um 5,4% í fyrra og 4,6% árið 1999. Þessi umskipti skýrast af minni fjárfestingu, en gert er ráð fyrir að hún dragist saman um 2,5%, og hægari vexti einkaneyslu, en spáð er að hún aukist um 2,5% en jókst 4,0% árið 2000 og 6,9% árið 1999. Jafnframt er því spáð að út- flutningur vöru og þjónustu aukist um 3,4% og innflutningur um 0,9%. Hagvöxturinn verður 2,0% í ár en var 3,6% á síðasta ári og við- skiptahallinn nær hinn sami og í fyrra eða sem nemur um 10% af landframleiðslu. Þá er áfram spáð mikilli atvinnu og að verðbólga verði 4,3% milli áranna 2000 og 2001 og um 5% innan árs- ins. Þjóðhagsstofnun segir að brýnasta verkefni hagstjórnar á Íslandi sé að draga úr viðskipta- halla með því að koma á betra samræmi milli þjóðarútgjalda og þjóðartekna. 10% viðskipta- halli af landframleiðslu sé meiri en áður hafi verið hér á landi við sambærilegar aðstæður. Þegar mikill halli hafi skapast hafi það að jafn- aði verið vegna óvæntrar lækkunar útflutn- ingstekna eða rýrnunar viðskiptakjara, en nú stafi hann nær eingöngu af innlendri eftir- spurnarþenslu. „Gífurleg útlánaaukning, slaki í hagstjórn, einkum 1998 og 1999, og almennar launahækk- anir umfram launabreytingar í helstu við- skiptalöndum hafa viðhaldið uppgangi og eftirspurn í efnahagslífinu. Andlagið er hins vegar mikill viðskiptahalli og erlend lántaka bankakerfisins. Svona mikill halli fær ekki staðist til lengdar og gerir efnahagslífið við- kvæmara fyrir breytingum í ytri aðstæðum,“ segir Þjóðhagsstofnun. Jafnframt kemur fram að ríkisfjármála- stefnan í ár geti flýtt fyrir því að forsendur skapist til vaxtalækkunar, bæði með góðri af- komu og þéttu taumhaldi á útgjöldum. Samspil ríkisfjármála og peningamála sé einkar þýð- ingarmikið við núverandi horfur þegar reyni eigi mjúka lendingu í efnahagslífinu. Stofnunin segir einnig að ástæða sé til að endurskoða peninga- og gengisstefnuna, jafn- framt því að auka vægi ríkisfjármálastefnunn- ar í efnahagsstjórninni. Það gæti auðveldað að- lögun hagkerfisins að minni vexti þjóðar- útgjalda um hríð sem sé óhjákvæmilegt til að draga úr viðskiptahalla og verðbólgu og treysta fjármálastöðugleikann. Að auki sé æskilegt að efla ýmsa þætti fjármálaeftirlitsins í því skyni að tryggja að lánastofnanir haldi áhættu sinni innan þeirra marka sem eðlilegt geti talist með tilliti til þeirra hagsveiflna sem búast megi við í íslenskum þjóðarbúskap. Þá kemur fram að efnahagshorfur fyrir árin 2002–2005 séu að ýmsu leyti hagfelldar. Stofn- unin spáir 3% árlegum hagvexti og að verð- bólga verði að jafnaði um 3,5% á ári, auk þess sem atvinna verði áfram mikil þótt atvinnu- leysi aukist nokkuð um leið og dragi úr spennu í efnahagslífinu. Hagvöxturinn gæti jafnvel orðið meiri ef ráðist yrði í frekari fjárfestingar í áliðnaði í samræmi við þau áform sem væru í undirbúningi. Þjóðhagsstofnun kynnir nýtt mat á efnahagsframvindunni í ár og á næsta ári Efnahagshorf- urnar óvissari en um langt skeið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.