Morgunblaðið - 21.03.2001, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 21.03.2001, Qupperneq 56
FÓLK Í FRÉTTUM 56 MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ EGILL Ólafsson var mættur í Salinn ásamt fríðu föruneyti til þess að flytja lög af nýrri einyrkjaplötu sinni, Angelus Novus/Nýr engill. Rólegt andrúmsloft var yfir öllu, dá- lítið hátíðlegt, greinilegt að um öðruvísi popptónleika var að ræða. Áður en gengið var til sætis fengu tónleikagestir afhenta dagskrá kvöldsins sem er gott framtak. Þar var að finna kynningu á hljómsveit Egils, valinn maður í hverju rúmi. Einnig var kynnt til sögunnar söng- konan Kristjana Stefánsdóttir sem átti eftir að syngja í mörgum lögum. Tónleikarnir hófust stundvíslega. Egill gekk einn síns liðs á svið, sett- ist við píanóið og spilaði lagið „Bara að nóttin kæmi“ við texta Nínu Bjarkar. Þegar laginu lauk var hljómsveitin mætt, tilbúin að veita Agli allan þann stuðning sem þarf til þess að koma kammerpopptónlist hans til skila. Lagið „Þórdís“ tók að hljóma og voru allir fljótir að detta í gír. Það er svolítið Þursabragð af „Þórdísi“ enda er lagið síðan 1980 af hljómleikaprógammi Þursanna, gott lag en gaman hefði verið að heyra meira í gítarnum. Eftir þessi tvö lög býður Egill gestum gott kvöld og segir frá nýju plötunni, að þarna séu saman komin lög sem hann geti flutt næstu fjörutíu árin. Það má segja að þetta séu tímalaus lög rétt eins og hann. Einnig tekur Egill það fram að tónleikarnir eigi ekki að vera langir, að hann vilji ekki þreyta fólk með óþekktum lögum. Þetta var ekki nauðsynlegt að taka fram þar sem tónleikagestir voru komnir í Salinn til þess að hlýða á Egil og nýju lögin. Allir höfðu efnisskrá í fórum sínum og afsakanir óþarfar. Eitthvað var tíminn samt Agli hug- leikinn þarna um kvöldið og fékk maður stundum á tilfinninguna að hann væri að flýta sér. Þetta má ef- laust skrifa á stress og viðkvæmni fyrir sköpuninni þar sem verið var að bera nýtt efni á borð fyrir fólk. Þetta spillti þó ekki fyrir tónlistinni sem á eftir fylgdi, hljómurinn varð bara þéttari og lög um ástina og lífið ómuðu í klukkutíma í viðbót. Byrjað var á ný á „Það veit ég“ sem er nokkuð magnað lag, á eftir því fylgdi „Lánið“, en þar naut Egill stuðnings frá Kristjönu Stefánsdótt- ur og átti hún eftir að skreyta mun fleiri lög með djasssöng sínum. „Lánið“ er í ætt við lög Egils af Tifa Tifa, búið þéttri hrynjandi, poppað og gæti orðið pínuvinsælt. Því næst var farið í furðulegt ferðalag, „Sat- úrnus“ tók völdin án hefðbundins texta en var þess í stað sönglað og umlað. Hljómsveitin hafði gaman af, hleypti tilfinningunum á stökk og var mjög virk í flutningi á þessu draumkennda lagi. Suðræn sveifla var næst borin á borð með „Venus og Amor“ og þar á eftir tók Egill sér stöðu, flutti ljóð, dró sig síðan í hlé og hleypti Kristjönu að með lagið „Allt í senn“ úr söngleiknum Come Dance with Me. Kristjana nýtti tækifærið, söng lagið af mikilli inn- lifun og ekki spillti fyrir afbragðs gítarsóló Guðmundar Péturssonar. Næst tóku við lög í rólegri kant- inum, „Leiðin er lengri“ af Tifa Tifa, „Móðir“ sem er lofsöngur til dýrðar móður Jörð og lagið „Ekki um“ sem er um allt sem við segjum ekki. Þessi lög komu ekki mikið á óvart, voru í raun bundin föstum hnútum þar sem fagmennskan var allsráð- andi. Svo kom röðin að titillagi nýju plötunnar „Nýr Engill“. Þetta er fallegt lag en greinilega vandmeð- farið þegar flutt er á tónleikum þar sem það virkaði örlítið flatt. Lagið „Sigling“ af Tifa Tifa var síðan til- einkað Karli Sighvatssyni og flutt á óaðfinnanlegan hátt. Eftir það þakk- aði Egill fyrir sig en var klappaður upp og endaði kvöldið á einu af sín- um klassísku lögum, „Það brennur“ sem var síðasta hljóðmynd kvölds- ins. Gott var að heyra í Agli á ný, röddin ótrúleg, tónlistin tilfinninga- rík og hann sem fyrr er óhræddur við að fara sínar eigin leiðir og vera sinn eigin herra. Tónleikarnir voru afbragð, öll spilamennska óaðfinn- anleg og líklegt þykir mér að tón- leikagestir hafi farið ánægðir heim eftir prýðilega skemmtun. Morgunblaðið/Golli Egill Ólafsson naut aðstoðar Kristjönu Stefánsdóttur. TÓNLIST H l j ó m l e i k a r SALURINN Útgáfutónleikar Egils Ólafssonar, Salnum í Kópavogi, mánudags- kvöldið 19. mars. Fram komu, auk Egils, Kristjana Stefánsdóttir söngur, Eyþór Gunnarsson píanó/ hljómborð, Guðmundur Pétursson gítar, Haraldur Þorsteinsson bassi, Matthías Hemstock tromm- ur/slagverk og Stefán S. Stef- ánssom saxófónn. E(n)gill í Salnum Jóhann Ágúst Jóhannsson POPPRAPPARINN Sean „Puffy“ Combs, þekktur sem Puff Daddy, var sýknaður af ákæru um ólög- lega meðferð skotvopna, síðastlið- inn föstudag. Tildrög ákærunnar liggja í heimsókn Combs ásamt fylgd- arfólki á skemmtistaðinn Club New York, sem staðsettur er á Times Square í New York, í des- ember árið 1999. Þar á að hafa komið til orðaskipta á milli rapp- arans og fastagesta staðarins sem endaði með lífshættulegum verkn- aði; skotið var af skammbyssu og þrír gestir særðir. Combs var kærður fyrir að hafa veifað byssu og félagi hans, ungrapparinn Jamaal „Shyne“ Barrow, fyrir að hafa gert gott betur og togað í gikkinn á sinni. Kviðdómurinn hafði hugsað málið í tvo og hálfan sólarhring áður en dómurinn var kveð- inn upp. Er Combs, sem hélt á biblíu í hendinni, heyrði af sýknuninni drúpti hann höfði en verjendur hans tveir stukku til og föðmuðu hann að sér. Combs var að vonum hrærður en hann átti fimmtán ára fangelsisvist yfir höfði sér. „Ég vil þakka Guði fyrir að hafa verið hjá mér og verndað mig, öllu fólkinu, aðdáend- unum, starfsfólki mínu, öllum í New York, öllum þeim sem báðu fyrir mér um allan heim,“ sagði Combs m.a. eftir rétt- arhöldin. Kviðdómurinn staðfesti engu að síður að Combs hefði stjakað við fastagesti, og hefði sá atburður leitt til látanna. Lífvörður Combs, Anthony „Wolf“ Jones, var einnig sýknaður en hann var kærður fyrir að hafa tekið við mútum af Combs ásamt því að eiga byssu. Ungrapparinn var miður hepp- inn. Hann var fundinn sekur um kæruleysisleg ofbeldis- og háska- verk og á yfir höfði sér fimm til tuttugu og fimm ára langan fang- elsisdóm. Puff Daddy er einn af vinsæl- ustu röppurum heims og átti stór- an þátt í að færa rappið og hina öllu mýkri R og B tónlist nær hvort öðru upp úr miðjum síðasta áratug. Hann rekur útgáfufyrir- tækið Bad Boy Records og stýrir eigin fatalínu, Sean John. Puff Daddy sýknaður Sean „Puffy“ Combs gengur út úr réttar- salnum ásamt móður sinni, Janice Combs. Ekki sekur Reuters ,0AF05 4   0A705 4  ,0FG05 4   0FB05 4  ,0H09# 4   0:09# 4            2  "##"$  "2  "+#0  )        ! 7     8 9!0  !    2 2  5    $&    "##$%&& ''(        2  "+ "$ )! * (+' '!#,-#.   ! $/%#$&&! 000!'! ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200 Stóra sviðið kl. 20.00: 1234 56 3  3 7 #2  "":# ((8+2  #$:# ((892  ;:+ 9  8<2 . $:+ 9 8=2  "":+ '' 9 ! * :1 ;   1<=> 2*=  ,"#:# ((8 "9:# ((8 "0:# ((8 "$:+ ((8  ":+'!#/ (( '!%& ((8 ";:+ ((8  "0:+%&!,& 9 ! ? @2A3B <233 9*  ) "+:# ((8"9:#+ (( = ((8:++ (( = ((8 ;:++ ((8 "":++ 9 8 ";:+ + 9  "0:++ = A5<1:< 2:<*BC = 5  ) "+:# ((8 #:# 9 8! Smíðaverkstæðið kl. 20.00: * :1 ;   1<=> 2*=  >&  ":# (( "":# ((8 #$:# ((8 :+ ((D 8 ;:+ ((. $:+ (( "":+ 9  "9:+  '' 9   "<:+ (( Litla sviðið kl. 20.30: =@8A *23= 36EFGA  ,"#:# '' 9  "+:# "0:# #:# 000!' ! H' !5 8   $&   * ( !D)!'!#,D#I8 !D !'!#,D%&!   Í HLAÐVARPANUM Einleikjadagar Kaffileikhússins 18.-28. mars fim. 22/3 kl.21 Þá mun enginn skuggi vera til fös. 23/3 kl.21 Bannað að blóta í brúðarkjól lau. 24/3 kl.21 Bannað að blóta í brúðarkjól Umræðufundur um einleikjaformið lau. 24/3 kl. 15.00 sun. 25/3 kl.15 Missa Solemnis sun. 25/3 kl. 21 Ég var beðin að koma... >G( 9       *2:  44* ""#J&"" 552 3000 Opið 12-18 virka daga SNIGLAVEISLAN KL. 20 flyst í Loftkastala vegna mikillar aðsóknar lau 21/4 fim 26/4 sun 29/4 Á SAMA TÍMA SÍÐAR KL. 20 sun 25/3 örfá sæti laus fös 6/4 laus sæti mið 11/4 laus sæti SJEIKSPÍR EING OG HANN LEGGUR SIG KL. 20 lau 24/3 örfá sæti laus lau 31/3 laus sæti lau 7/4 laus sæti Síðustu sýningar! WAKE ME UP before you go go fös 23/3 kl. 19 SÉRSTÖK AUKASÝNING TIL STYRKTAR LANGVEIKUM BÖRNUM 530 3030 Opið 12-18 virka daga SNIGLAVEISLAN KL. 20 Frumsýn. mið 21/3 UPPSELT fim 22/3 A&B kort gilda UPPSELT lau 24/3 kl. 16, C&D kort, UPPSELT sun 25/3 E kort gilda, UPPSELT þri 27/3 F&G kort gilda, UPPSELT mið 28/3 H&I kort gilda, UPPSELT fim 29/3 UPPSELT fös 30/3 UPPSELT lau 31/3 kl. 16 UPPSELT, Aukasýn. sun 1/4 UPPSELT mið 4/4 örfá sæti laus fim 5/4 UPPSELT lau 7/4 UPPSELT sun 8/4 UPPSELT mið 11/4 laus sæti fim 12/4 laus sæti - Skírdagur Á sýningardögum er miðasalan opin fram að sýn- ingu og um helgar opnar hún í viðkomandi leik- húsi kl. 14 ef sýning er um kvöldið. Hópasala er í síma 530 3042 frá kl. 10-16 virka daga. midasala@leik.is — www.leik.is Stóra svið BLÚNDUR & BLÁSÝRA e. Joseph Kesselring Fim 22. mars kl. 20 Aukasýning til styrktar Krýsuvíkursamtökunum Fös 23. mars kl. 20 2. sýning - ÖRFÁ SÆTI Fös 30. mars kl. 20 3. sýning - ÖRFÁ SÆTI Lau 31. mars kl. 19 4. sýning - ÖRFÁ SÆTI Lau 7. apríl kl. 19 5. sýning SKÁLDANÓTT e. Hallgrím Helgason Lau 24. mars kl. 19 - ÖRFÁ SÆTI LAUS Fim 29. mars kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS Fös 6. apríl kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS Lau 21. apríl kl. 19 Fös 27. apríl kl. 20 AUKASÝNINGAR V. MIKILLAR EFTIRSPURNAR MENNINGARVERÐLAUN DV 2001 ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR! MÓGLÍ e. Rudyard Kipling Lau 24. mars kl. 13 - UPPSELT Sun 25. mars kl. 14 - ÖRFÁ SÆTI LAUS Lau 31. mars kl 13 - UPPSELT Sun 1.apríl kl 14 - ÖRFÁ SÆTI LAUS Sun 8. apríl kl 14 Sun 22. apríl kl 14 – ATH:Sýningin er túlkuð á táknmáli Sun 29. apríl kl 14 ÍD KRAAK EEN OG KRAAK TWEE e. Jo Strömgren POCKET OCEAN e. Rui Horta Sun 25. mars kl. 20 – 4. sýning Sun 1. apríl kl. 20 – 5. sýning Fim 5. apríl kl. 20 – 6. sýning Litla svið KONTRABASSINN e. Patrick Süskind Fös 23. mars kl. 20 FORSÝNING Fös 30. mars kl. 20 FRUMSÝNING - UPPSELT Leikari: Ellert A. Ingimundarson Þýðing: Hafliði Arngrímsson/Kjartan Óskarsson. Leikmynd og búningar: Axel Hallkell Jóhannesson. Leikstjórn: Kjartan Ragnarsson. ABIGAIL HELDUR PARTÍ e. Mike Leigh Lau 24. mars kl 19- ÖRFÁ SÆTI LAUS Fim 29. mars kl. 20 ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR! ÖNDVEGISKONUR e. Werner Schwab Sun 25. mars kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS Sun 1. apríl kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS Miðasala: 568 8000 Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Nemendaleikhúsið sýnir STRÆTI eftir Jim Cartwright ""# (( "## ((  "+# ((8 'K "0# ## 9  Sýningar hefjast kl. 20.00 *( ""%#J.#! *+"&&
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.