Morgunblaðið - 21.03.2001, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 21.03.2001, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 9 ÖRYRKJUM fjölgaði ekki á Íslandi á árabilinu 1976-1996 ef tekið er til- lit til fjölgunar þjóðarinnar og breyttrar aldurssamsetningar. Þetta kemur fram í grein sem birt- ist í Læknablaðinu nýverið. Að rannsókninni stóðu Sigurður Thorlacius, Sigurjón Stefánsson, Stefán Ólafsson og Vilhjálmur Rafnsson. Öryrkjum sem skráðir eru hjá Tryggingastofnun ríkisins hefur fjölgað ár frá ári á undanförnum ár- um. Þjóðinni hefur einnig fjölgað og því vildu þeir sem stóðu að rann- sókninni komast að því hvort um raunaukningu væri að ræða. Niður- staða þeirra er sú að ekki hafi verið raunaukning á þessu tímabili. Árið 1976 voru örorkuþegar 6.773, en ár- ið 1996 voru þeir orðnir 8.714. Fjölgunin er 28,7%. Á sama tíma fjölgaði Íslendingum á aldrinum 16- 66 ára um 29,8%. Hins vegar kemur fram í niðurstöðu rannsóknarinnar að mun fleiri eru nú metnir með 75% örorku en áður, en þeim sem fá örorkustyrk og eru með færri ör- orkustig fækkar. Aukningin á ör- orku yfir 75% kom fram hjá báðum kynjum og var í stórum dráttum óh- áð aldri. Marktæk aukning varð hjá báðum kynjum á örorku yfir 75% vegna flestra sjúkdómaflokka. Sigurður Thorlacius tryggingayf- irlæknir sagði í samtali við Morg- unblaðið að hann hefði ekki átt von á þeirri niðurstöðu að öryrkjum hefði hlutfallslega fækkað á þessu tíma- bili, sérstaklega ekki í ljósi þess að undir lok þess hefði verið talsvert mikið atvinnuleysi hér á landi. Öryrkjum fjölgaði ekki Rannsókn á algengi örorku á árunum 1976–1996 BÚSETI er vel í stakk búinn til að sinna rekstri leiguíbúða og það myndi falla vel að núverandi starf- semi samtakanna. Lífeyrissjóðir eru einnig tilbúnir til þess að koma að fjármögnun bygginga leiguíbúða að ákveðnum skilyrðum uppfylltum en fram kom hjá félagsmálaráðherra á Alþingi í síðustu viku að í undirbún- ingi væru tillögur um byggingu leiguíbúða á höfuðborgarsvæðinu með aðkomu þessara aðila. Gunnar Jónatansson, fram- kvæmdastjóri Búseta, segir að þeir hafi átt í óformlegum viðræðum við ráðuneytið um þessi mál. Búseti komi að þessu máli sem einn af örfá- um aðilum hér á landi sem hafi ein- hverja reynslu af rekstri íbúðarhús- næðis. Búseti hafi verið starfandi í fimmtán ár og hafi sannað sig á því tímabili að hans mati. Síðastliðin tíu ár hafi samtökin byggt um það bil 40 íbúðir á ári og sjái nú um rekstur yfir 400 íbúða á höfuðborgarsvæðinu og sé því álitlegur kostur fyrir fjárfesta til að eiga samstarf við til að byggja upp þennan leigumarkað sem mikil þörf sé fyrir eins og komið hafi fram. „Við horfum á þetta þannig að við séum þessi aðili sem þykist kunna að reikna út hvað það kostar að reka þetta. Síðan er það önnur saga hvernig hið opinbera ætlar að koma að málinu og hvernig niðurgreiðslur, ef um þær verður að ræða, verða út- færðar. Við teljum skynsamlegast að fyrirtækið sé rekið með hefðbundin rekstrarleg sjónarmið að leiðarljósi og síðan ef til þurfi að koma félagsleg aðstoð þá komi hún í gegnum skatta- kerfið beint,“ sagði Gunnar enn- fremur. Hann sagði að svona rekstur myndi falla mjög vel að starfsemi Búseta og þeir geti auðveldlega bætt við sig einhverjum tugum eða hundr- uðum íbúða án þess að auka fasta- kostnað. Það myndi auka hagræð- ingu og koma til góða fyrir væntanlega viðskiptavini svona fyr- irtækis ef af þessu yrði. Markaðskjör algert skilyrði Hrafn Magnússon, framkvæmda- stjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, segir að ef lífeyrissjóðir eigi að koma inn sem lánveitendur í þessum efn- um sé það algert skilyrði að það sé á markaðskjörum, enda sé það bundið í lögum um lífeyrissjóði. Í annan stað sé ljóst að lífeyrissjóðir geti ekki komið að þessu máli sem fram- kvæmdaaðilar. Það sé annarra að slá taktinn í þeim efnum, stjórnvalda, sveitarfélaga, verkalýðsfélaga og annarra aðila. Að þessum skilyrðum uppfylltum komi það vel til skoðunar af hálfu lífeyrissjóðanna að koma að þessu máli en tillögur í þessum efn- um séu enn sem komið er ómótaðar. Þeir telji líka að um þetta þurfi að takast víðtæk samstaða helstu hags- munaaðila. Hugmyndir um bygg- ingu leiguhúsnæðis Fellur vel að starfi Búseta Hörskokkar með kvartbuxum, peysur og bolir Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00. Endurtekin vegna fjölda áskoranna. 6. apríl ABBA-sýning D.J. Páll Óskar í diskótekinu, ásamt Lúdó sextett og Stefán í Ásbyrgi 30. mars Queen-sýning RADISSON SAS, HÓTEL ÍSLANDI Forsala miða og borðapantanir alla virka daga kl. 11-19. Sími 533 1100 • Fax 533 1110 Framundan á Fjölbreyttar sýningar Veffang: www.broadway.is • E-mail: broadway@broadway.is SÝNING NÆSTA FÖSTUDAG - 23. MARS Einhver magnaðasta sýning sem sett hefur verið á svið á Broadway. Eiríkur Hauksson kemur frá Osló í hverja sýningu og syngur Freddie Mercury. Landslið Íslenskra hljóðfæraleikara kemur við sögu og flytur allra vinsælustu lög hljómsveitarinnar frá upphafi til vorra daga. Rokksýning allra tíma á Íslandi ! Hljómsveitarstjóri: Gunnar Þórðarson. Dansstjórn: Jóhann Örn. - Leikstjórn: Egill Eðvarðsson. Næsta laugardag -24. mars: Endurtekin vegna fjölda áskoranna. Frábærir söngvarar! Sýning 6. apríl Sýning 21. apríl KristjánGíslason túlkar Cliff Richard SHADOWS íslenskir gítarsnillingar leika Nights on Broadway Geir Ólafsson og Big Band SHADOWS-sýning Hljómsveitin Stormar leikur fyrir dansi og diskótek í Ásbyrgi Fjölbreytt úrval matseðla. Stórir og litlir veislusalir. Borðbúnaður-og dúkaleiga. Veitum persónulega ráðgjöf við undirbúning. Hafið samband við Guðrúnu, Jönu eða Ingólf. Einkasamkvæmi - með glæsibrag Árshátíðir, ráðstefnur, fundir, vöru- kynningar og starfsmannapartý LANDSLAGIÐ -söngvakeppni Bylgjunnar Milljónamæringarnir leika fyrir dansi Queen-sýning D.J. Páll Óskar í diskótekinu 28. apríl Queen-sýning D.J. Páll Óskar í diskótekinu, ásamt Lúdó sextett og Stefán í Ásbyrgi Karlakórinn HEIMIR Queen-sýning Fegurðardrottning Reykjavíkur Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur fyrir dansi D.J. Páll Óskar í diskótekinu, ásamt Lúdó sextett og Stefán í Ásbyrgi D.J. Páll Óskar í diskótekinu 23. mars 24. mars 14. apríl 18. apríl 20. apríl 21. apríl 27. apríl Hljómsveitin Lúdó sextett og Stefán leikur fyrir dansi í Ásbyrgi næsta föstudag D.J. Páll Óskar í diskótekinu á Dömu- Djamminu HEIMIR Álftagerðisbræður og Jóhannes Kristjánsson, eftirherma, skemmta. Missið ekki af þessari frábæru sýningu! Alltaf eitthvað - fyrir alla! Landsins bestu söngvarar og hljóðfæraleikarar Karlakórinn Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur fyrir dansi á eftir. Dömu-Djamm... áföstudag St af ræ na H ug m yn da sm ið ja n 2 35 7                !  "   # $   % Kringlukast 22.—25. mars 20% afsláttur af öllum peysum og bolum Kringlunni — s. 568 1822
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.