Morgunblaðið - 21.03.2001, Blaðsíða 54
LÁRÉTT:
1 berja, 4 skipa fyrir, 7
falla í dropum, 8 mjólk-
urafurð, 9 brún, 11 um-
rót,
13 sjávardýrið, 14 gretta
sig, 15 himna, 17 úrkoma,
20 púka, 22 skoðunar, 23
stórs nagla, 24 annríki,
25 peningar.
LÓÐRÉTT:
1 hörfar, 2 einkennis, 3
mjög, 4 bakki, 5 óglatt, 6
flýtirinn, 10 litlar öldur,
12 ætt, 13 forfeður, 15
batna, 16 spilið, 18 bál, 19
þefar af, 20 hæðir, 21 sál-
ar.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 andhverfa, 8 gutla, 9 aflar, 10 lin, 11 spils, 13
staka, 15 hross, 18 spaði, 21 kát, 22 skapa, 23 angur, 24
rauðaldin.
Lóðrétt: 2 nýtni, 3 hvals, 4 efans, 5 falla, 6 agns, 7 hráa,
12 las, 14 tap, 15 hass, 16 okana, 17 skarð, 16 stagl, 19
angri, 20 iðra.
DAGBÓK
54 MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Sel-
foss kemur og fer í dag,
Sveabulk kemur í dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Pét-
ur Jónsson kom í gær.
Selfoss fer í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48. Skrifstofan
er opin alla miðvikud. kl.
14–17. S. 551 4349. Fata-
úthlutun og fatamóttaka
er opin annan og fjórða
hvern miðvikud. í mán-
uði kl. 14–17, s. 552 5277.
Styrkur, samtök
krabbameinssjúklinga
og aðstandenda þeirra.
Svarað er í s. krabba-
meinsráðgjafarinnar,
800 4040, kl. 15–17.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, kl. 9–16.30
klippimyndir, harð-
angur, kl. 13 smíða-
stofan opin, trésmíði/
útskurður og spilað, kl. 9
hár- og fótsnyrtistofur
opnar.
Aflagrandi 40. Heimboð
á bókamarkað Iðunnar
og Fróða, Suðurlands-
braut 8, miðvikudaginn
25. mars. Lagt af stað
frá Aflagranda kl. 13.15,
upplýsingar og skráning
í afgreiðslu, s. 562 2572.
Framtalsaðstoð verður
veitt fimmtudaginn 22.
mars. Upplýsingar í af-
greiðslu.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 böðun, kl. 9–12
vefnaður, kl. 9–16
handavinna og fótaað-
gerð, kl. 10 banki, kl. 13
spiladagur og vefnaður.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðjud. og fimmtud. kl.
13–16.30, spil og föndur.
Sundtímar á Reykja-
lundi kl. 16 á miðvikud.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586-8014 kl. 13–16.
Tímapöntun í fót-, hand-
og andlitssnyrtingu,
hárgreiðslu og fót-
anuddi, s. 566 8060 kl. 8–
16.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun, hárgreiðslu-
stofan og handa-
vinnustofan opnar, kl. 13
opin handavinnustofan.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–16.
Skrifstofan í Gullsmára
9 opin í dag kl. 16.30–18.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting og
verslunin opin til kl. 13,
kl. 13 föndur og handa-
vinna, kl. 13.30 enska,
byrjendur.
Félagsstarf aldraðra í
Garðabæ. Spilað í
Kirkjulundi á þriðjudög-
um kl. 13.30. Fótaað-
gerðir mánudaga og
fimmtudaga. Ath. nýtt
símanúmer 565 6775.
Félagsvist á Garðaholti í
boði Kvenfélags Garða-
bæjar 22. mars kl. 19.30.
Rútuferðir samkvæmt
áætlun. Vorfagnaður í
Kirkjuhvoli í boði Odd-
fellow 29. mars kl. 19.30.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Línudans kl. 11, byrj-
endur velkomnir. Mynd-
mennt kl. 13 og píla kl.
13.30. Á morgun,
fimmtudag, eru púttæf-
ingar í Bæjarútgerð kl.
10–11.30 og félagsvist kl.
13.30. Dansleikur á
föstudag, 23. mars, kl.
20.30.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10–13. Matur í hádeginu.
Göngu-Hrólfar fara í
létta göngu frá Ásgarði
kl. 10 í dag. Leikhóp-
urinn Snúður og Snælda
sýnir „Gamlar perlur“
sem eru þættir valdir úr
fimm gömlum, þekktum
verkum. Allra síðasta
sýning í dag kl. 14 í Ás-
garði, Glæsibæ. Mið-
apantanir í símum 588-
2111, 568-9082 og 551-
2203. Söngfélag FEB,
kóræfing kl. 17. Ath.:
Línudanskennsla Sig-
valda fellur niður. Bald-
vin Tryggvason verður
til viðtals um fjármál og
leiðbeiningar um þau
mál á skrifstofu FEB
fimmtudaginn 22. mars
kl. 11–12. Panta þarf
tíma. Dagsferð verður
farin í Grindavík-Bláa
lónið-Reykjanes 2. apríl.
Brottför kl. 10 frá Ás-
garði, Glæsibæ. Skrán-
ing hafin á skrifstofu
FEB. Silfurlínan opin á
mánudögum og mið-
vikudögum kl. 10–12.
Ath. skrifstofa FEB er
opin kl. 10–16. Uppl. í s.
588 2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9 opin
vinnustofa, postu-
línsmálun og fótaaðgerð,
kl. 13 böðun, kl. 13.30
samverustund.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 10.30 gamlir
leikir og dansar, frá há-
degi spilasalur opinn.
Tónhornið fellur niður.
Veitingar í kaffihúsi
Gerðubergs. Föstudag-
inn 23. mars kl. 15 syng-
ur Gerðubergskórinn í
Eden í Hveragerði, allir
velkomnir. Miðvikudag-
inn 28. mars verður farið
í heimsókn til Þorláks-
hafnar og samvera með
eldri borgurum þar.
Skráning hafinn. Allar
upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í s.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
kl. 10–17. Kl. 10.30
boccia, kl. 13 félagsvist,
kl. 17 bobb. Söngfugl-
arnir taka lagið kl. 15.15.
Guðrún Guðmundsdóttir
mætir með gítarinn.
Einmánaðarfagnaður og
handverksmarkaður
verða í Gjábakka
fimmtudaginn 22. mars.
Þeir sem áhuga hafa á að
selja þar handverk sitt
vinsamlegast bókið sem
fyrst.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.10 og 10.10 leikfimi, kl.
10 ganga, kl. 13
keramikmálun, kl. 13.30
enska.
Hraunbær 105. Kl. 9–
16.30 bútasaumur, kl. 9–
12 útskurður, kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 11 banki,
kl. 13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
böðun, fótaaðgerðir,
hárgreiðsla, keramik,
tau- og silkimálun og
jóga, kl. 11 sund í Grens-
áslaug, kl. 15 teiknun og
málun.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi,
hittast á morgun,
fimmtudag, kl. 10 í Keilu
í Mjódd. Spiluð keila,
spjallað, kaffi. Allir vel-
komnir. Nánari upplýs-
ingar veitir Ingibjörg
Sigurþórsdóttir í síma
545-4500.
Norðurbrún 1. Fótaað-
gerðastofan opin frá kl.
9–14, kl. 9–12.30 út-
skurður, kl. 9–16.45
handavinnustofurnar
opnar, kl. 10 sögustund,
kl. 13–13.30 bankinn, kl.
14 félagsvist, kaffi og
verðlaun.
Vesturgata 7. Kl. 8.30
sund, kl. 9 fótaaðgerðir
og hárgreiðsla, kl. 9.15
aðstoð við böðun, mynd-
listarkennsla og postu-
línsmálun, kl. 13–16
myndlistarkennsla, gler-
skurður og postulíns-
málun, kl. 13–14 spurt
og spjallað. Fyrirbæna-
stund verður fimmtu-
daginn 22. mars kl. 10.30
í umsjón sr. Hjálmars
Jónssonar dóm-
kirkjuprests. Allir vel-
komnir. Föstudaginn 23.
mars kl. 14.30 leikur
Ragnar Páll Einarsson á
hljómborð fyrir dansi.
Gott með kaffinu. Allir
velkomnir.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
bankaþjónusta, kl. 10
morgunstund og fótaað-
gerðir, bókband og búta-
saumur, kl. 13 hand-
mennt og kóræfing, kl.
13.30 bókband, kl. 14.10
verslunarferð.
Bústaðakirkja, starf
aldraðra, miðvikudaga
kl. 13–16.30, spilað,
föndrað og bænastund.
Boðið upp á kaffi.
Barðstrendingafélagið.
Spilað í kvöld í Konna-
koti, Hverfisgötu 105, 2.
hæð, kl. 20.30. Allir vel-
komnir.
Kvenfélag Kópavogs.
Aðalfundur verður hald-
inn fimmtudaginn 22.
mars kl. 20.30 í Hamra-
borg 10. Venjuleg aðal-
fundarstörf.
Kvenfélagið Aldan.
Munið góugleðina í
kvöld, miðvikudaginn 21.
mars, í Sóltúni 20 kl. 20.
Fjölmennið.
Hana-nú, Kópavogi.
Fundur í kvöld, mið-
vikudagskvöld, í bók-
menntaklúbbi Hana-nú.
Fundurinn er haldinn á
lesstofu Bókasafns
Kópavogs kl. 20–21.30.
Allir velkomnir.
Í dag er miðvikudagur 21. mars,
80. dagur ársins 2001. Benedikts-
messa. Orð dagsins: Trúin er
fullvissa um það, sem menn vona,
sannfæring um þá hluti, sem
eigi er auðið að sjá.
(Hebr. 11, 1.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
Víkverji skrifar...
NÝVERIÐ fékk Víkverji ábend-ingu um að upplýsingagjöf
mætti betur fara á Listasafni Íslands
varðandi hversu lengi þar er opið.
Kom þessi ábending bréflega og er
bréfritara gefið orðið:
„Um hádegisbilið hringdi ég í
safnið til að fá um það vitneskju
hversu lengi opið væri þann daginn.
„Það er opið til klukkan fimm,“ svar-
aði kvenmannsrödd.
Klukkan átta mínútur í fimm kom
ég þangað, reiknaði að sjálfsögðu
með að fá að ljúka hringnum um sal-
ina þótt það drægist aðeins fram yfir
eins og títt er um þjónustustaði yfir
höfuð. Þeir sem koma fyrir lokun fá
afgreiðslu.
En, nei. Fyrst verður á vegi mín-
um öryggisvörður, risi vexti, sem
sagði mér að ég mætti ekki fara inn,
þeir væru „að rýma húsið, klukkan
væri 8 mínútur í fimm“.
Ég varð heldur fúll við þessar
móttökur og tjáði manninum að ég
hefði hringt og mér verið sagt að það
væri opið til klukkan fimm. Hann
endurtók þá að þeir væru að rýma
húsið og spurði ég þá hinn stífasti á
móti hvort hann ætlaði að vísa mér
frá þegar húsið væri enn opið sam-
kvæmt auglýstum afgreiðslutíma.
Hann sagði þá: „Ég ætla ekki að vísa
þér frá, farðu þá bara inn og talaðu
við konurnar í afgreiðslunni.“ Ég inn
(og frúin með) og spyr þessar konur
hvort það geti rétt verið að það sé
hætt að selja inn í húsið þótt klukkan
sé ekki slegin.
„Já, við erum hætt að selja inn,“
svarar hún þá ákveðin. Ég er að
verða æ reiðari og spyr [konuna]
hvernig það megi standast að ég hafi
hringt til að fá upplýsingar um opn-
unartíma og verið sagt að opið væri
til fimm, en svo væri hún að segja
mér að klukkan átta mínútur í fimm
væri ekki hægt að komast inn. Húsið
væri enn opið, en það væri hætt að
selja inn.
Jæja, þá spyr ég hana hvenær þau
hætti að selja inn í húsið og þá kemur
aðeins hik á hana, en svo segir hún:
„Við hættum að selja inn klukkan
kortér í fimm.“ „Af hverju stendur
það hvergi og af hverju er manni
ekki sagt það þegar eftir er leitað,“
spyr ég þá, en þá brá svo við að ekk-
ert var svarið.
Þetta er alveg ótrúleg uppákoma,“
segir bréfritari og nefnir í lokin að
hann hafi sjaldan orðið jafnsleginn
yfir „stælum“ í opinberum starfs-
mönnum. Tekur Víkverji undir að
hér mætti eitthvað betur fara.
En til að draga aðeins úr gagnrýn-
inni getur Víkverji staðhæft að smá-
réttir á veitingastað Listasafnsins
eru bragðgóðir og þar er hægt að
una sér vel og lengi.
VÍKVERJI er sammála nafnasínum í gær um ágæti þáttarins
Gettu betur. Oft hefur hann furðað
sig á því hversu ótrúlegum hlutum
keppendur geta svarað. Nöfn
íþróttamanna, félaga, meistara og
sigurvegara í hinum og þessum
íþróttum ákveðin ár langt aftur í tím-
ann, sögufrægar persónur mann-
kynssögunnar (sem var ekki beint
uppáhaldsfag Víkverja) og stjórn-
málamenn eða frægar persónur fyrir
einhver afrek eru þeim ofarlega í
minni um leið og örlítil vísbending er
gefin. Þetta er skemmtileg íþrótt og
eflir áreiðanlega metnað framhalds-
skólanema til að fylgjast með og hafa
augu og eyru opin fyrir því sem ger-
ist í kringum okkur og öðru sem þeir
rekast á í fræðum sínum.
Yfirleitt eru þættirnir nokkuð líf-
legir og léttir og á stundum spenn-
andi. Minna gaman er þegar annað
liðið bakar hitt í stigum en svo virðist
sem munur á stigum hafi verið meiri
í keppninni í ár en oft áður.
Vonandi verður framhald á þess-
ari keppni enn um sinn en þó ber
kannski að huga að því að hætta beri
hverjum leik þá hæst hann stendur.
Spurning er hvort og hvernig eitt-
hvað mætti breyta uppbyggingu
keppninnar til að halda henni
ferskri. Því hljóta hinir vísu stjórn-
endur að geta ráðið framúr.
MÉR datt í hug í fram-
haldi af auglýsingu Olíu-
félagsins hvort ekki ætti
betur við að segja „Lífið
er of skemmtilegt til að
taka bensín“.
Tilefnið er hversu erf-
iðlega gengur að greiða
fyrir bensín á þessum
nýju þjónustustöðvum ol-
íufélaganna.
Koma þarf upp sér
kassa þannig að eingöngu
sé hægt að greiða fyrir
bensín, að ekki þurfi að
bíða eftir fólki við pylsu-
kaup og fleira.
Því lífið er of skemmti-
legt til að hanga í biðröð á
bensínstöð.
Gísli.
Þakkir
GUÐMUNDUR hafði
samband við Velvakanda
og langaði að senda þakk-
læti til Ellerts B. Schram
fyrir síungar og mann-
eskjulegar greinar í
Morgunblaðinu um helg-
ar.
Þökk fyrir lífið
ÞAÐ var föstudagurinn
16. mars sl. Klukkan lið-
lega tólf á hádegi. Ég stóð
við gatnamót Laugavegar
og Nóatúns. Það var rautt
ljós á móti mér og ég að
verða of sein. Leit snöggt
í kringum mig. Strætis-
vagn kom frá vinstri,
hægði ferðina og virtist
ætla að stansa við gatna-
mótin. Ef ég hlypi strax
af stað næði ég áreiðan-
lega yfir áður en beygju-
ljósið birtist. Ég gleymdi
að fullvissa mig um að
vagninn hefði stöðvast.
Hann hafði ekki gert það.
Ég hafði ekki rænu á að
þakka manninum sem
stóð á gangstéttinni og
hrópaði á eftir mér svo ég
stoppaði og slapp við að
verða fyrir strætisvagn-
inum. Ég skammaðist
mín þegar ég fór að hugsa
sæmilega skýrt, lífið er þó
ekki svona lítils virði. Ég
vil þakka honum núna og
vona að hann komist að
því. Munum græna kall-
inn, ekki hlaupa án þess
að hugsa. Þökk fyrir lífið.
Þórdís.
Tapað/fundið
Bláir Ecco-
götuskór
BLÁIR lágbotna Ecco-
götuskór með spennu of-
an á ristinni töpuðust fyr-
ir stuttu. Skórnir voru í
bleikum pappírspoka.
Skilvís finnandi er vin-
samlegast beðinn að hafa
samband í síma 581-2949.
Dýrahald
Babúska er týnd
BABÚSKA hefur ekki
sést síðan um hádegi 10.
mars sl. Hún er svört og
hvít með þykkan feld, of-
urlítið flatt andlit og mjög
gæf.
Babúska er eyrna-
merkt og með hálsól
merkt Babúska, Blöndu-
hlíð 4, 105 Rvík. Fólk er
vinsamlegast beðið að at-
huga kjallara og
geymslur hjá sér.
Ef einhver veit eitthvað
um ferðir hennar, vin-
samlegast látið vita í síma
562-2390 eða 694-5917.
Duna er týnd
DUNA er grár, mjög loð-
inn fjögurra mánaða kett-
lingur. Hún hvarf
fimmtudagsmorguninn
15. mars sl. frá Öldugötu
30a kj. Duna er með
rauða ól.
Ef einhver hefur orðið
hennar var, vinsamlegast
látið vita í síma 551-3122
eða 699-1165.
Vegna þjón-
ustuleysis á
bensínstöðvum
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags