Morgunblaðið - 21.03.2001, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
HÁKON ÞH fékk um 200 tonna
loðnukast út af Kjalarnesi í gær og
Örn KE álíka mikið magn í einu
kasti við Gróttu, en í gærkvöldi bár-
ust auk þess fregnir af loðnuveiði í
grennd við Dyrhólaey og Hjörleifs-
höfða.
Oddgeir Jóhannsson, skipstjóri á
Hákoni, segir að það sé torfa við
Kjalarnesið en hann hafi ekki þorað
að kasta aftur þar sem hann þekki
ekki botninn. Hann segir að hún sé
óhrygnd en ekki verðmikil. „Það
má kannski fá 3.000 krónur fyrir
tonnið,“ segir hann og bætir við að
hann sé aðeins fimm til 10 mínútur
að stíma í land í Reykjavíkurhöfn.
Hrygnd loðna en spræk
við Hjörleifshöfða
Beitir NK fékk 250 tonn í fyrsta
kasti við Hjörleifshöfða í gær-
kvöldi. Sigurjón Valdimarsson
skipstjóri segir að þetta sé hrygnd
loðna en hún sé spræk. „Það hefði
frekar átt að banna að veiða hana
núna en leyfa,“ segir hann og bætir
við að loðnan komi vestan að og
gangi austur eftir.
25 loðnubátar voru á sjó í gær-
kvöldi og stefndu flestir að svæði
við Dyrhólaey þar sem heyrðist af
veiði í gærkvöldi. Hins vegar var
ekkert að fá í Kolluálnum út af
Snæfellsnesi.
Helgi Laxdal, formaður Vél-
stjórafélags Íslands, segir að verið
sé að kanna hvort útgerðir hafi
brotið lög með því að senda loðnu-
skip á veiðar fyrir miðnætti í fyrra-
kvöld og reynist það raunin ætlar
félagið að kæra viðkomandi útgerð-
ir. „Það eru áhöld um það hvenær
lögin um frestun verkfallsins tóku
gildi,“ segir Helgi. Hann bætir við
að mestar líkur séu á að þau hafi
ekki tekið gildi fyrr en eftir mið-
nætti á mánudag, þótt lögin hafi
verið sett um klukkan tíu um kvöld-
ið því þau þurfi að hafa birst í
Stjórnartíðindum fyrir formlega
gildistöku.
Að sögn Helga er gert ráð fyrir
að þetta liggi fyrir í dag, en sekt
vegna brots á kjarasamningum Vél-
stjórafélagsins nemur rúmlega
300.000 kr. Hann segir könnun á
kæru gerða til að fullnægja réttlæt-
inu. „Við erum súrir yfir þessu inn-
gripi og þessum djöfulgangi og er
ekki rétt að fara að lögum fyrst
beðið er um þau?“
Enginn fundur var hjá viðsemj-
endum í sjómannadeilunni í gær en
sáttasemjari hefur boðað nýjan
fund eftir hádegi í dag.
Loðnuveiðin fór hægt af stað í kjölfar frestunar sjómannaverkfalls í fyrrinótt
Loðna
veiddist
við Gróttu
og Kjal-
arnes
Morgunblaðið/RAX
Örn KE fékk um 200 tonn af loðnu við Gróttu í gær og er það óvenjulegur veiðistaður rétt eins og við Kjalarnesið þar sem Hákon ÞH fékk svipaðan afla.
Treg loðnuveiði/B2
EDDA – miðlun og útgáfa, sem
varð til við samruna Vöku/
Helgafells og Máls og menn-
ingar, hefur sett á laggirnar
hljóð- og mynddeild. Hyggst
hún þegar á þessu ári láta veru-
lega til sín taka í útgáfu á ís-
lenskri tónlist.
Að sögn Skúla Helgasonar
útgáfustjóra Eddu – hljóðs og
myndar verða gefnar út á árinu
a.m.k. 20 breiðskífur með ís-
lenskum listamönnum af ýms-
um toga en þegar hafa verið
gerðir útgáfusamningar við
Megas, saxófónleikarann Jóel
Pálsson og hljómsveitirnar
Jagúar og Úlpu.
Áður óútgefið efni
með Megasi gefið út
Áformað er m.a. að gefa út
safn af áður óútgefnu efni með
Megasi, efni sem spannar allar
feril listamannsins. Fyrsta út-
gáfa Eddu – hljóðs og myndar,
sem verður önnur sólóskífa Jó-
els Pálssonar djassista, Klif,
kemur út innan tíðar.
Edda – hljóð
og mynd
Gefur út
20 íslensk-
ar skífur
á árinu
Edda kveður/60
EKKERT verður slakað á öryggis-
eftirliti lögreglu í Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar þrátt fyrir afnám vega-
bréfaeftirlits með aðild Íslands að
Schengen, að sögn Jóhanns R. Bene-
diktssonar, sýslumanns á Keflavík-
urflugvelli.
Meðal ráðstafana sem gerðar hafa
verið er fjölgun eftirlitsmyndavéla í
flugstöðinni úr 24 í 64. Þetta kemur
fram í greinaflokki Morgunblaðsins
um aðild Íslands að Schengen í
blaðinu í dag.
Einnig er verið að kanna kaup á
fullkomnum hugbúnaði sem tengdur
verður við myndavélakerfið. „Bún-
aðurinn gefur ýmsa möguleika við að
hafa hendur í hári brotamanna.
Hugsa mætti sér að eftirlýst fólk eða
fólk í farbanni yrði sett inn í kerfið
og ef það bæri fyrir vélarnar gæfi
búnaðurinn merki. Ef af þessum
kaupum verður, verður vitaskuld
fyrst að leita leyfis Persónuverndar
varðandi notkun. Þetta er mjög
spennandi mál og mun skýrast á
næstu vikum hvort af þessu verður.
Breska lögreglan er þegar farin að
nota þennan búnað með góðum ár-
angri,“ segir Jóhann.
Vopnuð 12 manna sveit
Nýtt skipurit hefur verið tekið í
notkun hjá sýslumannsembættinu
vegna aukinna verkefna í
tengslum við aðild Íslands að
Schengen.
Komið hefur verið á fót örygg-
isdeild og er verið að þjálfa upp
tólf manna vopnaða sveit, í sam-
vinnu við ríkislögreglustjóra, sem
tekur til starfa innan tíðar. Einnig
verða óeinkennisklæddir lög-
gæslumenn við eftirlit í flugstöð-
inni, að sögn Jóhanns.
Verklok við flugstöð 5 mán-
uðum fyrr en áætlað var
Ný suðurbygging flugstöðvar-
innar verður tekin í notkun að hluta
næstkomandi sunnudag þegar aðild
Íslands að Schengen gengur í gildi.
Verða miðbygging og vesturálma
flugstöðvarinnar þá opnaðar fyrir
farþegum. Unnið verður áfram að
framkvæmdum við austurálmu
byggingarinnar en ákveðið hefur
verið, að tillögu verktaka, að hraða
framkvæmdum þannig að unnt verði
að taka hana í notkun um miðjan júlí.
Skv. upplýsingum Óskars Valdi-
marssonar, forstjóra Framkvæmda-
sýslu ríkisins, voru verklok áætluð 1.
desember en nú er stefnt að því að
byggingin verði fullbúin 5 mánuðum
fyrir þann tíma.
Einnig kemur fram í greininni að
Íslendingar eru skuldbundnir til að
taka upp sprengjuleit í öllum far-
angri farþega sem fara um flugstöð-
ina, skv. reglum í alþjóðasamningi
sem taka gildi innan tveggja ára.
Mun sprengjuleitin fara fram í kjall-
ara nýbyggingarinnar og þarf að
kaupa sérstakan sprengjuleitarbún-
að, sem áætlað er að kosti nálægt 100
millj. kr.
Kaup á hugbúnaði í eftirlitsmyndavélar eru til skoðunar í Leifsstöð
Gefur merki ef eftirlýst fólk
ber fyrir myndavélarnar
Haldið/26–28
Nýir landgangar verða brátt teknir
í notkun á Keflavíkurflugvelli.
Morgunblaðið/Golli