Morgunblaðið - 21.03.2001, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.03.2001, Blaðsíða 18
Kátir og hressir Grímseyingar á kántrýhátíð Kiwanisklúbbsins Gríms. Grímseyingar skemmtu sér vel á kántrýhátíðinni með fjölda heimagerðra skemmtiatriða. Grímsey - Félagar í Kiwanis- klúbbnum Grími í Grímsey stóðu fyrir kynngimagnaðri kántrýhátíð í félagsheimilinu Múla nýlega. Gestir voru hvattir til að mæta í tilheyrandi klæðnaði, sem sagt í gallabuxum, vinnuskyrtum og að sjálfsögðu með kúrekahatta. Á boðstólum var „Grímseyjar-fried- chicken“, borinn fram á borð sem skreytt var með heyböggum og fleiru í sveitastíl. Skemmtiatriði voru ekki af verri endanum – öll heimatilbúin með kröftugum kántrýtakti. Allt frá dinnermúsik, Morgunblaðið/Helga Mattína Meðlimir sönghópsins „Þrjár úr Tungunum“, en þær heita frá vinstri Sigrún Þorláksdóttir, Steinunn Stefánsdóttir og Guðrún Ásgrímsdóttir. harmonikkuleik – einsöng – tví- söng – fjórsöng og fjöldasöng – í brandaralestur af færibandi, ka- raókí og línudans. Hápunktur kvöldsins var þegar elstu heiðursmenn eyjarinnar komu fram og sögðu gamlar, sannar, sveitasögur úr Grímsey. Kántrýhátíðin endaði svo á ekta hlöðuballi. Um dansmúsíkina sá Dónald með aðstoð söngfuglanna, Síu og Dabba. Kynngi- mögnuð kántrýhátíð í Grímsey LANDIÐ 18 MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ FRAMSÓKNARFLOKKUR og Sjálfstæðisflokkur hafa myndað nýjan meirihluta í bæjarstjórn Grindavíkur en upp úr samstarfi Framsóknarflokksins og Grinda- víkurlistans slitnaði í síðustu viku eftir tveggja ára samstarf vegna deilna um stjórnarsetu í Hitaveitu Suðurnesja. Þetta er í þriðja sinn á kjör- tímabilinu sem meirihluti er mynd- aður í bænum. Eftir kosningarnar 1998 tóku Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur við stjórnar- taumunum en upp úr því samstarfi slitnaði ári síðar. Þá tók við meiri- hlutastjórn Framsóknar og Grindavíkurlista sem var við lýði þar til í síðustu viku. Samstarfið í flokkunum hafði verið stirt um tíma en upp úr sauð þegar fulltrú- ar Framsóknar studdu ekki Hörð Guðbrandsson, fulltrúa Grindavík- urlistans, í sæti Ómars Jónssonar, Sjálfstæðisflokki, í stjórn Hita- veitu Suðurnesja. Hið nýja meirihlutasamstarf verður staðfest á bæjarstjórnar- fundi í dag en það er fyrsti fund- urinn frá því að upp úr samstarfi flokkanna slitnaði í síðustu viku. Samkvæmt samningi nýs meiri- hluta verður Ómar Jónsson forseti bæjarstjórnar og helmingaskipti eru í nefndum og formannssætum þeirra. Bæjarstjóri verður áfram Einar Njálsson. Taka upp þráðinn Að sögn Hallgríms Bogasonar, oddvita framsóknarmanna, gekk meirihlutamyndunin nú mjög hratt og vel fyrir sig og engar byltingar eru væntanlegar í málefnasamn- ingi flokkanna. „Við erum vanir að vinna saman og það má segja að við tökum upp þráðinn þar sem frá var horfið. Það er löngu búið að jafna þann ágreining sem olli okk- ar slitum á sínum tíma. Þetta jafn- aðist allt saman þegar frá liðu stundir.“ Ólafur Guðbjartsson, oddviti sjálfstæðismanna, tekur í sama streng. „Nú er byrjað upp á nýtt og þetta ætti að ganga betur núna því það eru engar framkvæmdir til að deila um,“ segir hann en stjórn- arslitin síðast urðu vegna ágrein- ings um framkvæmdir. Hann segir samstarfið leggjast vel í sig: „Við erum sammála um að reyna að ljúka þessu kjörtímabili á sem far- sælastan hátt fyrir bæinn. Það er það sem við vorum kosnir til.“ Nýr meirihluti myndaður í Grindavík Norður-Héraði - Páll Benedikts- son bóndi á Hákonarstöðum á Jökuldal liggur fyrir tófu í skot- húsi sem hann hlóð sjálfur af torfi og grjóti. Páll hlóð skot- húsið síðastliðið sumar en áður lá hann fyrir lágfótu í aflögðum bíl og fannst vistin oft köld. Þess vegna brá hann á það ráð að hlaða torfhús til að vera í og auk þess að vera hlýrra fellur það vel inní landslagið. Einnig berst lykt síður úr þessu húsi en tófan er þefvís með afbrigðum. Á stærð við hjóna- rúm af kóngastærð! Húsið er ekki stórt enda tæp- lega hægt að standa inní því upp- réttur og flatarmálið ekki meira en í góðu hjónarúmi af kónga- stærð. Inni er rúmbálkur sem Páll getur legið í og fylgst með ferðum tófunnar út um glugga neðan við skotlúguna. Þar er byssan bundin upp tilbúin til að skjóta þegar tófan birtist. Byssan sem Páll notar við veiðarnar er sjálfvirk haglabyssa sem hann hefur sett sjónauka á til þess að sjá bráðina betur. Páll bar út æti við húsið á haustdögum og skaut fyrstu tófurnar úr húsinu í janúar síðastliðnum. Alls hefur Páll skot- ið átta tófur úr húsinu í vetur og þær gætu orðið fleiri vegna þess að enn gengur á ætið hjá honum. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson. Páll Benediktsson, bóndi á Há- konarstöðum, hugar að skothúsi sínu sem hann hlóð af torfi og grjóti í sumar leið. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Páll búinn að koma sér fyrir inni í skothúsinu. Liggur fyrir tófu í skothúsi sem hann hlóð sjálfur Morgunblaðið/Daníel Hansen Bjarni Kr. Þorsteinsson af- henti Guðmundi Elvari Jónssyni viðurkenninguna. Eyja- og Miklaholtshreppi - Nýlega var 8 ára dreng á Snæ- fellsnesi, Guðmundi Elvari Jónssyni í Kolviðarnesi, færð viðurkenning frá Landssam- bandi slökkviliðs- og sjúkra- flutningamanna og frá Bruna- vörðum Borgarness. Viður- kenningin er tvö skrautrituð skjöl og hlaupahjól. Guðmund- ur Elvar fékk þessa viðurkenn- ingu fyrir að koma í veg fyrir stórbruna heima hjá sér en þar kviknaði í potti á eldavél. Hann sagði til um hvernig ætti að slökkva eldinn og með hverju en Guðmundur hafði nýlega verið í kennslu hjá Bjarna Kr. Þorsteinssyni, slökkviliðsstjóra í Borgarnesi. Bjarni sagði að þetta hefði vakið athygli hjá starfsfélögum hans, það hve ungur drengur sýndi mikið æðruleysi, skjót og rétt viðbrögð þegar eldur var á heimili hans. Þess vegna hefði þeim þótt ástæða til að færa honum viðurkenningu. Einnig sagði hann þetta sýna þýðingu þess að kynna öryggismál á heimilum fyrir börnum en Bjarni fór í skólana í hans um- dæmi í desember sl. og var með fræðslu um eldvarnir og þetta er afrakstur þess. Þá sagði Bjarni að verið væri að hanna sérstakan bikar sem veita á þeim skóla sem best tekur eftir í árlegri heimsókn hans í skólana í desember á þessu ári en ef hann hefði verið veittur í ár hefði hann komið í skóla Guðmundar Elvars, Lauga- gerðisskóla, en þar hlustuðu nemendur með sérstakri at- hygli. Fékk við- urkenningu fyrir rétt viðbrögð við bruna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.