Morgunblaðið - 21.03.2001, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 21.03.2001, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ afsláttu FRELSI TIL FERÐA Í 15 LÖNDUM H IN nýja suðurbygging Leifsstöðvar er alls um 17 þúsund fer- metrar að stærð og stækkar flugstöðina um nálægt helming. Fimm landgönguhlið eru á nýju byggingunni en við opnunina 25. mars verður miðhluti hennar og vest- urálma, sem er með þremur land- göngubrúm, tekin í notkun. Austur- álman verður hins vegar lokuð þar til í sumar. Klædd líparíti og gleri Áætlað var að verklok yrðu 1. des- ember næstkomandi og þá yrði bygg- ingin fullbúin, en nú hefur verið ákveðið að stefna að því að fram- kvæmdum verði lokið um miðjan júlí, eða nærri fimm mánuðum á undan áætlun. „Við höfðum gert ráð fyrir því að verktakinn hefði tímann fram til 1. desember til að ljúka þessu en hann hefur lagt til að framkvæmdum verði flýtt þannig að byggingin verði komin í fulla notkun í júlí, og líst okkur vel á það,“ segir Óskar Valdimarsson, for- stjóri Framkvæmdasýslu ríkisins. Tæp tvö ár eru síðan framkvæmdir hófust við bygginguna og hafa fram- kvæmdir gengið vel. Hluti bygging- arinnar hefur verið klæddur með líp- aríti sem tekið var úr námum á Austurlandi. Suðurhlið byggingar- innar er að mestu klædd gleri. Hanna þurfti bygginguna með til- liti til þess að aðskilja þyrfti umferð farþega sem koma frá löndum utan Schengen-svæðisins og fara í gegnum vegabréfaskoðun, frá farþegum sem ferðast innan svæðisins. Er suður- byggingin því á tveimur hæðum. Undir henni er einnig kjallari. Byggingunni er skipt í svokallaðan miðkjarna og austur- og vesturálmu. Vegabréfaskoðunarsvæðið, aðstaða sýslumanns og annað sem snýr að landamæraeftilriti er á annarri hæð í miðbyggingunni. Á fyrstu hæð hefur verið byggt þjónusturými fyrir þá farþega sem ekki tilheyra Schengen- löndunum. Séu þeir hins vegar á leið inn á Schengen-svæðið fara þeir upp á aðra hæð í stórt landamærarými þar sem vegabréfaeftirlit fer fram. Önnur hæðin er að öðru leyti ætluð farþegum sem ferðast innan Schen- gen-svæðisins. Frá 2. hæð liggja svo brýr frá miðkjarnanum yfir í austur og vesturálmu. Fallið var frá áætlunum um bygg- ingu sérstakra biðrýma við land- gönguhliðin. Sprengjuleit í farangri fer fram í kjallara eftir tvö ár Í kjallaranum verður tekin upp sprengjuleit í farangri eftir tvö ár en skv. alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að þarf að taka upp sprengjuleit í öllum farangri á Keflavíkurflugvelli áður en hann fer um borð í vélarnar. Reglurnar kveða einnig á um að sprengjuleit skuli gerð á farangri sem fluttur er á milli flugvéla í tengiflugi. Ekki er ljóst hvort Ísland fær und- anþágu frá því ákvæði þó eftir því hafi verið leitað. „Þessar reglur taka gildi 1. janúar 2003 og til þess að vera tilbúnir var byggður kjallari undir bygginguna, sem þarf ekki að taka í notkun strax,“ sagði Óskar. Þar verður komið fyrir sprengjuleitarbúnaði og sett upp kerfi fyrir farangursflokkun. Banki og veitingaaðstaða Að sögn Óskars Valdimarssonar, verður byggingin nokkuð hrá þegar hún verður opnuð til bráðabirgða næskomandi sunnudag. Ekki verður búið að leggja gólfefni eða mála en allt verður þó tilbúið til opnunar. Á neðri hæðinni verður opnað þjón- ustusvæði 25. mars fyrir um 200 manns. Þar verður bankaútibú og veitingaaðstaða til bráðabirgða fyrir farþega utan Schengen-svæðisins, sem bíða eftir tengiflugi til landa sem eru ekki þátttakendur í Schengen- samstarfinu. Á 2. hæð verður í fyrstu lítil þjón- usta í boði fyrir farþega þar sem þeir hafa aðgang að allri núverandi að- stöðu í norðurbyggingu Leifsstöðvar. Fjögur landgönguhlið við núver- andi landgang verða eingöngu fyrir flugvélar sem fljúga innan Schengen- svæðisins, en aðrar landgöngubrýr verða notaðar jafnt af Schengen-vél- um og vélum sem koma frá löndum utan Schengen, s.s. Bandaríkjunum og Kanada. omfr@mbl.is Flugstöðin á að vera fullbúin í júlí :68   -3  4  5 & 41    0  2   -3  & 4  2  5 & 41     6    %1 2 77  2 4 0  +,'-  # Hin nýja suðurbygging Flugstöðvar Leifs Eiríks- sonar verður tekin í notkun til bráðabirgða næstkomandi sunnu- dag, þegar Schengen- samstarfið tekur gildi. Byggingin verður svo fullbúin í júlí, um fimm mánuðum fyrr en áætl- anir gerðu ráð fyrir. HEILDARKOSTNAÐUR vegna framkvæmda við nýja suður- byggingu Flugstöðvar Leifs Ei- ríkssonar, að meðtöldum flug- hlöðum og eldsneytiskerfi og breytingum sem gerðar hafa verið í norðurbyggingu, er nú áætlaður um fjórir milljarðar króna. „Við erum mjög nálægt því að halda þeirri kostnaðaráætlun sem gerð var fyrir ári,“ segir Óskar Valdimarsson, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins. Að hans sögn má gróflega áætla að kostnaður við stækk- unina vegna þátttöku Íslands í Schengen nemi um fjórðungi heildarkostnaðar, eða um einum milljarði kr. Óskar segir að sennilega hefði ekki verið þörf á að byggja tvær hæðir ef Ísland hefði ekki gerst aðili að Schengen. Fyrstu áætlanir um minni byggingu námu 550 milljónum króna Áætlanir um stækkun flug- stöðvarinnar hafa tekið miklum breytingum á seinustu árum. Árið 1996, þegar ljóst var að Ís- land yrði aðili að Schengen, lagði Framkvæmdasýsla ríkisins fram kostnaðaráætlun vegna stækkunar flugstöðvarinnar og tillögur um stækkun og breyt- ingar. Var þá gerð tillaga um byggingu 2.000 fermetra þjón- ustumiðstöðvar við núverandi landgang og að landgöngubrúm yrði fjölgað úr 6 í 9. Kostnaður var áætlaður 400 millj. kr. og hreinn aukakostnaður vegna Schengen var áætlaður 150 millj. kr. Óskar segir áætlanir um stækkun Leifsstöðvar hafa mik- ið breyst frá þessum tíma. „Þetta er í rauninni ekki sama bygging. Í byrjun árs 1997 var ákveðið að leggja hönnun sem þá lá fyrir til hliðar og fara í opna samkeppni um verkið. Í framhaldi af því kom allt önnur bygging. Margar forsendur hafa breyst, m.a. hefur kjallarinn sem er í byggingunni bæst við,“ segir hann. Óskar sagði að þegar nið- urstöður úr samkeppninni lágu fyrir hefði heildarkostnaður verið áætlaður um 3,6 millj- arðar, sem með verðbótum og einhverjum viðbótum vegna ákvarðana byggingarnefndar, væri í dag kominn í 4 milljarða. „Það er alveg rétt að fyrstu hugmyndir voru um allt annað og minna hús en þarna um ræð- ir,“ sagði hann. Heildarkostnaður 4 milljarðar MUN innflytjendum fjölga vegna þátttöku Íslands í Schengen-samstarfinu? Hver verða áhrif Schengen á ferðaþjónustu? Kostnaður og ávinningur aðildar Ís- lands. Viðtöl við ráðherra. Á morgun Áhrif Schengen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.