Morgunblaðið - 21.03.2001, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 21.03.2001, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 61 www.sambioin.is Kringlunni 4 - 6, sími 588 0800 EINA BÍÓIÐ MEÐ THX DIGITAL Í ÖLLUM SÖLUM FYRIR 1090 PUNKTA FERÐU Í BÍÓ Sýnd kl. 3.50 og 5.55. Ísl. tal. Vit nr. 194. Spennandi ævintýramynd fyrir börn á öllum aldri Sýnd kl. 4. Vit nr. 203. Sýnd kl. 10. Vit nr. 166. Aðeins sam- einaðir gátu þeir sigrað! Sýnd kl. 6, 8, og 10.30. B. i. 14. Vit nr. 209.  Kvikmyndir.is kirikou og galdrakerlingin með íslensku tali Óskar Völundarsson sem Kirikou, Jóhanna Vigdís Arnardóttir sem galdrakerlingin. Einnig eru raddir þeirra Stefáns Karls Stefánssonar, Guðmundar Ólafssonar, Sigrúnar Wagge, Arnars Jónssonar og fleiri. Sýnd kl. 3.45. Ísl tal. Vit nr. 204. Sýnd kl. 5.15, 8, og 10.45. B. i. 16. Vit nr. 201. HK DV Hausverk.is Ein umtalaðasta mynd allra tíma heldur áfram að sópa til sín verðlaunum og er nú loks komin til Íslands www.sambioin.is Snorrabraut 37, sími 551 1384 FYRIR 1090 PUNKTA FERÐU Í BÍÓ Aðeins sameinaðir gátu þeir sigrað! Frá Jerry Bruckheimer framleiðanda Armageddon og Rock Sýnd kl. 6. Enskt tal. Vit nr. 195. Sýnd kl. 8 og 10.10. B. i. 14. Vit nr. 191. Sýnd kl. 5, 8 og 10.45. B. i. 16. Vit nr. 201. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. Vit nr. 166. HK DV Hausverk.is Miði í Regnbogann gildir sem happadrættismiði fyrir PS2 Óskarsverðlauna- tilnefningar 10 l - Sýnd kl. 6 og 8. Besta mynd ársins á yfir 45 topp tíu listum! Yfir 40 alþjóðleg verðlaun! Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Ísl texti. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. tilnefningar til Óskarsverðlauna m.a.: Besta myndin, besta aðalhlutverk-og aukahlutverk kvenna (Juliette Binoche, Judi Dench) og besta handrit.5 4 tilnefningar til Golden Globe verðlauna. Allt sem þarf er einn moli. Hér er á ferðinni algjör konfektmoli sem engin kvikmyndasælkeri má missa af . Magnaðir leikarar gera myndina að óleymanlegri skemmtun.  Ó.F.E.Sýn. . .  Kvikmyndir.com 1/2 Kvikmyndir.is / i ir.i ÓHT Rás 2 EMPIREI Mel Gibson Helen Hunt What Women Want Yfir 25.000 áhorfendur. Missið ekki af þessari. Loksins... maður sem hlustar. Vinsælasta mynd Mel Gibson til þessa.  Hausverkur.is  Kvikmyndir.is  Kvikmyndir.com Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. i ir Empirei HENGIFLUG Sýnd kl.10. Stærri/stinnari brjóst, án sílikon- a›ger›ar? • Hefur flú veri› me› barn á brjósti? • Hefur flú íhuga› sílikona›ger›? • Ertu ósátt vi› brjóstin á flér? • Finnst flér sílikona›ger› vera of mikil áhætta? • Mundir flú vilja íhuga nátturulega a›fer›? Uppl‡singar um Erdic® hjá: Erdic Umbo›inu í síma: 5640062 (9-17 alla virka daga) Veffang: www.erdic.is • Netfang: erdic@erdic.isEr di c kú ri nn e r í t öf lu fo rm i • 1 8 ár a al du rs ta km ar k. iw inther/0 3 /0 1 „ALLIR skulu vera jafnir fyrir lög- um og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litar- háttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna.“ Þannig hljóðar 65. grein Stjórnar- skrár Íslands. Það er vel við hæfi að gefa sér tíma í dag til þess að fara yf- ir þessa grein, velta henni fyrir sér og skilja. Dagurinn í dag er nefnilega alþjóðlegur dagur gegn kynþáttafor- dómum. Í tilefni þess verður fjöl- breytt dagskrá í kvöld í Listasafni Reykjavíkur sem hefst kl. 18. Rasismi er ekki skoðun, heldur glæpur „Yfirsögnin með deginum er „Ras- ismi er ekki skoðun – Rasismi er glæpur“,“ segir Bjarney Friðriks- dóttir, fulltrúi Mannréttindarskrif- stofu Íslands. „Það er í hegningar- lögunum og stjórnarskránni bann við mismunun sem byggist á kyn- þætti eða kynþáttahatri. Við notum þetta til þess að sýna fram á að ras- ismi er lögbrot en ekki einhver skoð- un. Þetta er brot á landslögum þann- ig að það skiptir töluverðu máli að fólk átti sig á því.“ Nýlegar skoðanakannanir sýndu að kynþáttafordómar væru vaxandi meðal ungs fólks á Íslandi, og þar af leiðandi vaxandi áhyggjuefni. „Við þurfum að komast að því hvernig þetta verður til og vinna á móti þessu. Við þurfum að fræða fólk gegn fordómum því þeir eru í eðli sínu byggðir á ranghugmyndum og vanþekkingu.“ En hvað ber að taka til bragðs? „Það verður að taka allt skólakerf- ið í gegn, alveg frá leikskóla upp í há- skóla. Það verður að kenna fólki skilning á annars konar menningu og hvað það er að búa í fjölþjóðlegu samfélagi. Vera bæði með beina for- dómafræðslu og fjölmenningarlega fræðslu þannig að fólk skilji það að í kjarna okkar erum við öll bara manneskjur og það eru fleiri hlutir sem sameina okkur en aðskilja.“ Takmarkanir tjáningarfrelsisins „Ég vil benda á það að Austurbæj- arskóli er að fara af stað fyrstur skóla með það brautryðjandastarf sem er fjölmenningarleg kennsla,“ segir Ósk Vilhjámsdóttir, einn skipuleggjenda kvölddagskrárinnar. „Svo er líka þarft að benda á ábyrgð fjölmiðla. T.d. þegar uppruni af- brotamanns er tekinn fram ef hann er erlendur. Það eru svona hlutir sem eru afskaplega skammt á veg komnir. Þessir hlutir sem eru ekki beinn rasismi en ala af sér rasisma.“ „Mér finnst ekki vera meðvituð hugsun um hvaða afleiðingar þetta hefur,“ segir Bjarney. „Það sama má segja um alla þá athygli sem félög eða samtök fá sem hafa kynþáttahat- ur eða misrétti á stefnuskrá sinni. Ég held að það myndi aldrei gerast í neinu öðru Evrópulandi að fluttar væru fréttir af aðalfundi rasista- hreyfingar, eins og var gert í vor á einni sjónvarpsstöðinni hér. Mér finnst það sjónarmið sem hefur kom- ið fram að þetta séu skoðanir sem dæmi sig sjálfar vera rangar. Fólk verður líka að gera sér grein fyrir því að það er réttmætt, bæði sam- kvæmt stjórnarskránni og alþjóðleg- um mannréttindasamtökum, að tak- marka tjáningarfrelsi þegar málflutningurinn gengur út á það að meiða aðra eða ef hann særir siðferð- iskennd fólks. Það þarf að ræða það hvað tjáningarfrelsi feli í sér og hvað það felur ekki í sér. Þau fela í sér bæði réttindi og ábyrgð.“ „Það myndi engum detta það í hug að birta frétt ef „Barnaníðingafélag- ið“ héldi aðalfund. Þetta er bara mjög sambærilegt,“ bætir Ósk við. „Þetta eru duldir fordómar sem teygja sig mjög víða. Alveg inn í okk- ar nánustu samfélög. Menntun er í rauninni eina svarið til þess að hreinsa þá út.“ Hvað er á dagskránni? „Við tvinnum saman stutt ávörp við dagskrárliði eins og maga-, flamingo- og afródans, didgeridoo- leik og fleira,“ segir Ósk. „Þetta er ekki skemmtilegt umfjöllunarefni þannig að við sýnum með þessum at- riðum jákvæðar hliðar fjölmenning- ar.“ Eitt af mörgum áhugaverðum dagskráratriðum er söngatriði frá allsérstæðum barnakór. „Þetta er fjölmenningarlegur kór. Það eru bæði íslensk börn og börn af erlendum uppruna í honum. Þau syngja saman lög frá upprunalönd- um hvers annars. Það er líka hluti af kórnum að fræða þau um menningu hvers annars. Þau syngja tyrknesk lög t.d. á tyrkensku þar sem það er tyrknesk stúlka í hópnum. Svo fá þau alltaf íslenskar þýðingar þannig að þau eru alltaf að læra íslensku. Þetta er líka myndlistar- og leiklist- arnámskeið þannig að hugmyndin er að brjóta þarna ákveðna múra og byggja þarna upp starf á milli þess- ara krakka.“ Tjáningar- frelsi, ekki þjáningarfrelsi Í dag er alþjóðlegur dagur gegn kynþátta- fordómum. Birgir Örn Steinarsson ræddi við Bjarneyju Friðriksdóttur og Ósk Vilhjálmsdóttur í tilefni þess. Morgunblaðið/Jim Smart Bjarney Friðriksdóttir og Ósk Vilhjálmsdóttir. Heimsljósin, sem er fjölmenningarlegur barnakór, syngur í kvöld. Dagskrá gegn kynþáttafordómum í Listasafni Reykjavíkur í kvöld
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.