Morgunblaðið - 21.03.2001, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 21.03.2001, Blaðsíða 45
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 45 ✝ Björn Brynjólfs-son fæddist á Steinsstöðum í Öxna- dal 9. maí 1920. Hann lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi 12. mars síðastliðinn. Björn var einn 15 systkina, sonur hjónanna Laufeyjar Jóhannes- dóttur húsfreyju og Brynjólfs Sveinsson- ar, hreppstjóra í Öxnadal. Björn kvæntist Guðborgu Blöndal, f. 7. okt. 1926, d. 1.des. 1992. Hún var dóttir hjónanna Önnu Jakob- ínu Ólafsdóttur húsfreyju og Guð- mundar Blöndal fulltrúa. Börn þeirra Björns og Guðborgar eru fjögur: 1) Hörður, kvæntur Sól- veigu Gísladóttur. Þeirra börn eru Gísli, Katrín og Björn. 2) Hrafnkell, kvæntur Báru Hall- dórsdóttur. Þeirra börn eru Hrafnhildur, Dóra, Linda og Börkur Halldór. 3) Sveinn, kvæntur Hjördísi Gunnþórs- dóttur. Þeirra dætur eru Hildur, Rakel og Birna. 4) Margrét, gift Georg Magnús- syni. Þeirra dætur eru Hrafnhildur Yrsa, Sigyn og Sara Hjördís. Að auki átti Björn fimm langafa- börn, Daníel, Áróru, Adam, Anthony og Goða. Björn byrjaði tíu ára gamall að vinna við vegagerð í Öxnadalnum og meirihluta starfsævinnar vann hann hjá Vegagerð ríkisins. Þeg- ar hann hafði fyllt sjö áratugi ákvað hann að láta gamlan draum rætast og fór að binda inn bækur sjálfum sér og öðrum til yndis og ánægju. Útför Björns fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. ,,Bestastibesti“ afinn minn. Ég var að hugsa um hvað ég var ótrú- lega heppin að eiga þig fyrir afa og hvað ég var heppin að við skyldum búa saman. Ef við hefðum ekki átt heima í sama húsi hefði ég þurft að hafa með mér húslykil í skólann og enginn afi verið heima til að hugsa um mig og gefa mér grjónagraut í hádeginu. Þá hefði ég heldur ekkert vitað um bækur að utanverðu og ekki vitað hvernig þær eru búnar til. Við Júlía söknum þín, ég reyni að mata hana eins og þú gerðir en hún vill ekki borða mikið. Ég gleymdi stundum að segja þér hvað grjóninn þinn var góður en núna er ég búin að segja það. Þegar ég verð amma ætla ég að elda grjónagraut eins og þú gerðir og það kunnum við bara. Júlía sendir þér mjá og ég koss. Bless, bless, elsku afi minn. Þín Sara Hjördís. Elsku afinn minn. Þegar einhver sem manni þykir svona ofsalega vænt um deyr gerist margt inni í manni. Hugurinn fer af stað og ótal myndir koma upp í hugann, myndir sem ég og þú eigum bara tvö ein. Hluti af hjartanu brestur og það kemur tómarúm í plássið, sem afinn minn átti bara og enginn annar fær. En það sem lifir eru minningar okk- ar, hlátur og vísurnar þínar sem þú kenndir mér, ekki alltaf við mikinn fögnuð mömmu og hvað þá ömmu. Manstu þegar þú sast og gafst mér kaffi úr sykurmola, þá var ég eins árs og amma hafði svo miklar áhyggjur af að ég myndi hætta að stækka. En Tommi og Jenni, leir- kallarnir og línan gleymast seint svo ekki sé nú minnst á þá félagana Derrick og Matlock. Það sem við gátum nú setið saman og horft á ýmislegt í sjónvarpinu en samt var það nú ekkert miðað við spila- mennskuna… Marías, Hornafjarð- armanni og vist og amma sá um ,,hæ gosann“, því að ykkur fannst hann svo leiðinlegur. Og eftir að þú fluttir til okkar í Hafnarfjörð vorum við saman í liði þegar fjölskyldan spilaði vist og við segjum engum hvernig við fórum að því að vinna, alltaf hreint. Margar og skemmtilegar minn- ingar koma upp í hugann eins og þegar við Rakel uppástóðum það að vera kettir og vildum lepja mjólk af undirskál. Og auðvitað létuð þið amma það eftir okkur eins og allt annað, meira að segja að búa í ,,kókópuffsskápnum“. Ég sé okkur í anda í gula Escortinum með gæru- sætunum á leiðinni í kjörbúðina að kaupa mjólk með kleinunum eða brúnkökunni hennar ömmu. Ég man líka þegar við sátum og borð- uðum kjötbollur í brúnni „a la amma“, og ég er örugglega eina barnið sem hefur fengið hangikjöt í sjö ára afmælisgjöf frá afa sínum, þú vildir nú helst borða það í öll mál. ,,Upplifelsi“ okkar gegnum árin hefur kennt mér svo margt og minningarnar eru eins og mynda- albúm sem hægt er að fletta aftur og aftur og það er ómetanlegt að hafa átt svona yndislegan afa sem ég fékk að hafa og eiga í næstum 19 ár. Þessi upprifjun er nú bara smápartur af því sem við brölluðum saman, ég veit þú manst og ég gleymi ekki. Bless elsku ,,bestasti“ afinn minn og þú smellir einum á hana ömmu frá mér. Þín Sigyn. Á lífsleiðinni kynnumst við fjölda manns. Sumir rétt reka inn nefið en hverfa síðan jafn skjótt og þeir birt- ust án þess að skilja eftir sig nein spor. Aðrir staldra aðeins lengur við og kenna okkur eitthvað sem við áttum ólært – og þegar þeir halda á braut stöndum við eftir örlítið rík- ari; örlítið reyndari. Svo eru það hinir sem einhverra hluta vegna ganga beint inn í hjarta okkar og hreiðra þar um sig til frambúðar. Sumir þeirra koma blaðskellandi og byrja strax að búa um sig… meðan aðrir fara sér hægar, næra okkur með návist sinni og það er ekki fyrr en mörgum árum seinna sem við áttum okkur á því að þeir eru fyrir lifandis löngu fluttir inn. Það var líka nákvæmlega svona sem þau hjónin Bíbí og Bjössi tóku sér ból- festu í mínu hjarta. Hún bræddi mig með fyrsta brosi… en það var ekki fyrr en löngu seinna sem ég gerði mér grein fyrir að mér þótti ekki minna vænt um hann. Það er ekki hægt að syngja um sólina án þess að minnast á mán- ann. Það er ekki hægt að tala um daginn án þess að nefna nóttina. Og sennilega segir það meira en mörg orð að það er ekki hægt að skrifa um Bjössa án þess að segja frá Bíbí. Víst virtust þau við fyrstu sýn eins og dagur og nótt. En saman mynd- uðu þau eina heild; hjónaband þeirra var sterkt, hamingjusamt og heilbrigt; saman mynduðu þau sól- arhringinn. Hann var sterka, þögla „týpan“, hún í eðli sínu afar lífsglöð og minnti mig alltaf á fjörlegt fiðr- ildi. Út á við virkaði þessi pínulitla kona sem afar ráðsett frú þar sem hún gekk hnarreist á háu hælunum sínum. En heima fyrir átti hún það alveg til að gleyma sér í leik við Sigyn dótturdóttur sína; skríða á fjórum fótum eftir stofugólfinu og gelta, hneggja eða baula… allt eftir því hvaða dýr var í mestu uppáhaldi þá stundina. Hún var nógu lífs- reynd til að taka sjálfa sig ekki allt of hátíðlega; nógu stór til að dæma fólk ekki eingöngu eftir breyskleik- um þess en jafnframt nógu sjóuð til að geta varað okkur við ýmsum gildrum sem kynnu að verða á vegi okkar. Hún var greiðvikin, örlát, hlý og skilningsrík; lifandi sönnun þess að styrkur og stærð manneskj- unnar fer ekki eftir líkamsburðum hennar. Sennilega myndu sérfræðingar segja að Bjössi hafi verið lokaður maður; hann flíkaði ekki tilfinning- um sínum. Bíbí virtist hins vegar ekki hafa neitt val; tilfinningar hennar leyndu sér sjaldnast. Hún var hrifnæm með eindæmum og þegar hún var glöð ljómuðu augun af kátínu en þessi sömu augu kjöft- uðu líka frá þegar henni mislíkaði eitthvað; þá skutu þau gjarnan gneistum. Bíbí var hins vegar ein- hver hláturmildasta kona sem ég hef kynnst – og þegar hún hló… þá glotti Bjössi. Hún hafði þann dásamlega eiginleika að geta komið auga á spaugilegu hliðarnar á lífinu og þá ekki síst sjálfri sér. Hún sagði okkur ótal sögur úr eigin lífi en hafði samt enn meiri áhuga á að heyra sögur úr okkar lífi; sögur af alls konar sérkennilegum uppátækj- um okkar Möggu og vandræðaleg- um kringumstæðum. Hvað eftir annað fengum við óstöðvandi hlát- ursköst saman; Magga, mamma hennar og ég. Meðan við möluðum í eldhúsinu, flissuðum og fífluðumst var Bjössi inni í stofu; eitthvað að dunda. Einhverra hluta vegna leiddi ég aldrei hugann að því að auðvitað heyrði hann allt sem fram fór án þess að hann tæki beinan þátt í samræðunum. Hans þátttaka fólst fyrst og fremst í þessari notalegu nærveru. Hinn 1. desember 1992 dró ský fyrir sólu í lífi Bjössa. Þá kvaddi Bíbí þennan heim og satt best að segja held ég að á þeirri stundu hafi hann helst viljað slást í förina með henni. Við, sem til þekktum, vorum heldur ekkert viss um að hann myndi lifa þetta af. En smám sam- an rofaði til; hann flutti suður og bjó síðustu árin í kjallaranum hjá Möggu og Gogga. Þessi sambúð þriggja kynslóða var til mikillar fyr- irmyndar; það var alltaf opið á milli hæðanna… nema þegar Bjössi tók upp á því að sjóða siginn fisk… þá hallaði Magga hurðinni. Bjössi var barn síns tíma og Bíbí hafði alltaf séð um alla matargerð á heimilinu. Hann var því kominn á áttræðisald- ur þegar hann fór að fletta upp- skriftabókum og prófa sig áfram með potta og pönnur. Hann hafði mjög ákveðnar skoðanir á því hvað teldist ætt og hvað ekki; pasta var til að mynda ekki matur og það þýddi lítið að bjóða honum upp á sveppi og salöt. Hann borðaði nefni- lega hvorki gorkúlur né kanínufóð- ur. Og ekki orð um það meir. Kjöt- súpa, bjúgu og vel feitt hangikjöt voru hans daglega „brauð“ og allt tal um kólesteról lét hann sem vind um eyru þjóta. Það kom því öllum á óvart þegar hann lenti í einhverju úrtaki hjá Hjartavernd og í ljós kom að hann hafði nokkurn veginn sama kólesterólmagn í blóðinu og kornabarn. Eftir það glotti hann bara góðlátlega í matarveislunum hjá Möggu þar sem hann sat fyrir enda borðsins með hangikjöt og uppstúf meðan við gæddum okkur á gúrkum og grilluðu grænmeti. Það eru fjölmörg ár síðan Bjössi læddist inn í hjarta mitt og hreiðr- aði þar um sig og það verður óneit- anlega sérkennilegt að sitja í eld- húsinu hjá Möggu og eiga ekki von á að heyra fótatakið hans í stig- anum, eiga ekki eftir að kíkja niður og skoða hvaða bækur hann er að binda inn, eiga ekki eftir að heyra Möggu segja við Söru: „Skrepptu nú niður og fáðu þér grjónagraut hjá afa.“ Þessi hægláti, hógværi maður náði að skilja eftir djúp og afar dýr- mæt spor. Sárastur er samt sökn- uður Möggu, Gogga, Sigynjar og Söru, sem og hinna barna hans, tengdabarna og barnabarna. Það er samt huggun harmi gegn að hinum megin bíður Bíbí, sem hann elskaði heitar en lífið sjálft. Um leið og ég og fjölskylda mín sendum öllum ástvinum þessara öndvegishjóna okkar innilegustu samúðarkveðjur vil ég þakka þeim fyrir einlæga vináttu og yndislegar samverustundir. Birni óska ég svo góðrar heimkomu. Inger Anna Aikman. BJÖRN BRYNJÓLFSSON ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.                                              !" #!$    %&&'(&)*)%"+! *  ,** # *-  &'(&)*&,#!)  . ) .+). ) . ) .+)$ 3  .   '  2  4 &   &    4      !     ! -;;?!8*  /- . ) ' . $  5  .   )   ' &  !  5&      &  62 ,'  &   "5 0 Látin er Cecilía Heinesen, frá Klakks- vík í Færeyjum. Hún kom til Íslands ung að aldri og giftist Matth- íasi Helgasyni ættuð- um frá Grímsey. Hún var á áttugasta aldursári. Þessarar konu ætla ég að minnast nokkrum orðum. Kynni okkar hóf- ust fyrir um það bil aldarfjórðungi, þá varð hún tengdamóðir sonar míns sem nú er látinn. Á þeim árum var Cecilía á miðjum aldri, fríð kona, örugg og hlý í fasi, ég fékk strax traust á henni. Hún var greind og skemmtileg, hnyttin í svörum og frábær húsmóðir, mikil móðir og amma, og sem slíkar náðum við best saman þar sem barnabörnin voru sameiginleg. Þau kunnu líka vel að meta hana og hún var næm á þarfir þeirra og tilfinningar. Syni mínum og hans fjölskyldu reyndist hún ómetanleg í blíðu og stríðu og milli hans og hennar var djúp og einlæg vinátta, og henni því mikið áfall og sorg þegar hann féll frá á besta CECILIA HEINESEN ✝ Cecilia Heinesenfæddist í Klakks- vík í Færeyjum 15. maí 1921. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Eir 7. mars síðastlið- inn og fór útför hennar fram í kyrr- þey 19. mars. aldri. Á þeim tíma var farið að bera á þeim sjúkdómi hennar sem stigmagnaðist þar til yfir lauk. Cecilía varð fyrir mikilli lífsreynslu, hún missti ungan son sinn á fyrstu hjúskaparárum sínum, síðan eigin- manninn, þá tengda- soninn og síðan tvo syni, með fárra ára millibili, á besta aldri frá fjölskyldum og ungum börnum. Báða sérstaklega væna og vel gerða menn, og báðum sérstak- lega annt um móður sína, enda harmdauði öllum sem kynntust þeim. En hún bar öll áföll eins og hetja þrátt fyrir allt og erfiðleika þeim samfara. Féll henni mörg gæfa í skaut, hún átti stóran frænda- og vinahóp bæði hér og í Færeyjum, sem hún heimsótti oft, og líka átti hún góð og traust börn og tengda- börn sem sýndu henni hlýju og umönnun eftir bestu getu. Börnum hennar, barnabörnum og öðrum ættingjum og vinum votta ég og fjölskylda mín innilega samúð og hinni látnu djúpa virðingu og þökk fyrir ómetanlegan kærleika okkur til handa. Ég bið góðan Guð að ljá henni leiðsögn sína til farinna ástvina. Auður Thoroddsen. MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama ein- stakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfi- lega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Birting afmælis- og minningargreina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.