Morgunblaðið - 21.03.2001, Blaðsíða 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 47
DR. JENS Eike Schnall kennari frá
háskólanum í Bonn flytur opinberan
fyrirlestur fimmtudaginn 22. mars
kl. 17.15 í boði heimspekideildar Há-
skóla Íslands í stofu 301 í Árnagarði.
Fyrirlesturinn nefnist: Konungs
skuggsjá and Disticha Catonis.
Í fyrirlestrinum mun hann ræða
um Konungs skuggsjá sem kennslu-
rit. Hann mun fjalla um upphaf Kon-
ungs skuggsjár í ljósi Disticha Cat-
onis og sýna fram á hvernig þær
heimildir sem höfundi voru tiltækar
höfðu áhrif á niðurskipan efnis og
byggingu Konungs skuggsjár sem
kennslurits.
Dr. Jens Eike Schnall er staddur
hér á landi vegna Sókrates-sam-
starfs Háskóla Íslands og háskól-
anna í Bonn, Cagliari, Durham og
kennir í tvær vikur við íslenskuskor.
Hann stundaði nám í germönskum
og norrænum fræðum ásamt heim-
speki í Vín, Kaupmannahöfn og
Göttingen, en þaðan lauk hann dokt-
orsprófi árið 1997. Ritgerð hans
fjallaði um Konungs skuggsjá og
nefndist „Didaktische Absichten und
Vermittlungsstrategien im altnor-
wegischen Königsspiegel (Konungs
skuggsjá)“. Ritgerðin kom út á bók
árið 2000.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku og allir eru velkomnir.
Háskólafyr-
irlestur á
fimmtudag
VIÐ SETNINGU
Skátaþings 2001 á Ak-
ureyri voru þrír ungir
skátar frá Blönduósi
heiðraðir fyrir fræki-
legt björgunarafrek er
þeir björguðu ungum
vini sínum úr snjóflóði
í byrjun mánaðarins.
Þóttu þeir bregðast
sérstaklega rétt við
miðað við aðstæður
þrátt fyrir ungan ald-
ur. Þessir ungu dreng-
ir eru allir starfandi í
skátafélaginu Bjarma
á Blönduósi.
Í fréttatilkynningu
segir: „Eins og flestum
er kunnugt féll snjó-
flóð á drengina er þeir
voru að leik rétt fyrir
ofan Blönduós og
grófst Brynjar Árni
Stefánsson undir í því
snjóflóði. Félagar hans og skáta-
bræður voru þeir Andri Þorleifs-
son, Daníel Valgeir Stefánsson og
Svanur Ingi Björnsson en þeim
voru veitt Afreks- og hetjudáða-
merki Bandalags íslenskra skáta
úr silfri fyrir framgöngu sína og
snarræði en stjórnendur lögreglu
og sjúkraliðs höfðu sérstaklega
orð á því hvað þeir brugðust rétt
við öllum aðstæðum, rétt eins og
um sérþjálfað fullorðið fólk væri
að ræða.
Við sama tækifæri veitti stjórn
BÍS fórnarlambinu, Brynjari Árna
Stefánssyni, Silfurliljuna og smár-
ann fyrir sinn þátt, en án hans
hefði afrek félaga hans ekki orðið
að veruleika og eins þótti mönnum
vasklegt, þegar allt var yfirstaðið,
hvað Brynjar bölvaði hressilega
öllu saman því honum þótti vistin í
snjónum ekki neitt skemmtileg.“
Skátaþing 2001 var haldið í
Verkmenntaskólanum á Akureyri
dagana 16.–18. mars að við-
stöddum fulltrúum allra skátafé-
laga á landinu. Skátahöfðingi Ís-
lands, Ólafur Ásgeirsson, var
endurkjörinn til þriggja ára. Mik-
ill uppgangur hefur verið í skáta-
starfi að undanförnu og er stefnt
að því að ljúka byggingu nýrrar
skátamiðstöðvar á miðju næsta
ári. Auk þess má geta að dagana
16. til 23. júlí á næsta ári verður
Landsmót skáta haldið á Hömrum
við Akureyri og er búist við allt
að 6.000 íslenskum og erlendum
skátum á mótið.
Ungir skátar heiðraðir
fyrir björgunarafrek
Skátarnir ungu frá Blönduósi sem heiðraðir
voru ásamt Ólafi Ásgeirssyni, Skátahöfðingja
Íslands (t.v.), Margréti Tómasdóttur vara-
skátahöfðingja og sjúkrabílstjóranum sem
fyrstur kom á staðinn, en hann er einnig skáti.
Ljósmynd/Guðmundur Jónsson
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
ANNAR fundurinn í röð fræðslu-
funda fyrir almenning um veirur og
veirusjúkdóma verður haldinn
fimmtudaginn 22. mars kl 20 í Lög-
bergi, stofu 101.
Örverufræðifélag Íslands stendur
fyrir röð fræðslufunda fyrir almenn-
ing um veirur og veirusjúkdóma.
Stuttir útdrættir úr fyrirlestrunum
munu birtast fyrirfram í Morgun-
blaðinu og samantekt auk upplýs-
inga um félagið munu birtast í tíma-
ritinu Lifandi vísindi að fundaröðinni
lokinni. Fundirnir eru öllum opnir og
aðgangur ókeypis.
Á fundinum mun Guðrún Erna
Baldvinsdóttir læknir fjalla um
herpesveirur og að loknu hléi ræðir
Sigríður Elefsen líffræðingur um
inflúensu.
Rætt um
herpesveirur
og inflúensu
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
stendur fyrir gönguferð í kvöld,
miðvikudagskvöld, kl. 20 frá Lista-
safni Reykjavíkur (Hafnarhúsinu),
Miðbakkamegin. Farið verður yfir
að anddyri Borgarbókasafns
Reykavíkur, Grófarhúsinu, og upp
Grófina og Aðalstræti.
Við grunn Aðalstrætis 16 mun
Mjöll Snæsdóttir fornleifafræðing-
ur sýna hópnum það sem komið
hefur í ljós við uppgröft í grunni
hússins. Að því loknu verður geng-
ið upp á Landakotshæðina og það-
an vestur í Ánanaust og út í
Reykjanes í Örfirisey. Til baka um
Hafnarsvæðið og yfir gamla Hlíð-
arhúsasandinn að Borgarbókasafn-
inu. Í lok ferðarinnar verður boðið
upp á sýrudrykk. Allir velkomnir.
Kvöldganga
á söguslóðir
LÍFFRÆÐIFÉLAG Íslands stend-
ur fyrir fyrirlestri miðvikudaginn 21.
marz. Þar mun dr. Jón Jóhannes
Jónsson, dósent við læknadeild og
yfirlæknir meinefnafræðideildar
Landspítalans, halda fyrirlestur sem
hann nefnir: Genalækningar.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
Lögbergi, stofu 101, og hefst kl. 20
stundvíslega. Aðgangur er ókeypis
og er öllum heimill aðgangur meðan
húsrúm leyfir.
Fyrirlestur um
genalækningar
♦ ♦ ♦
STREITUVALDAR:
Álag, samskipti, einelti, fjárhagsáhyggjur,
sjúkdómar ➨
STREITUEINKENNI:
Einbeitingarskortur, svefntruflanir,
átröskun, kvíði, depurð, uppgjöf ➨
NÁTTÚRULÆKNINGAFÉLAG
ÍSLANDS
efnir til málþings í Þingsal 1, Hótel Loftleiðum,
FIMMTUDAGINN 22. MARS 2001 kl. 20:00.
Fundarstjóri: Árni Gunnarsson, framkvstjóri HNLFÍ
Frummælendur:
1. Margrét Arnljótsdóttir, sálfræðingur
2. Þórhallur Heimisson, prestur
3. Ólafur Mixa, heimilislæknir
4. Bridget McEvoy, verkefnisstjóri í hjúkrun HNLFÍ
Umræður og fyrirspurnir.
Auk frummælenda taka þátt í umræðunum:
Sigríður Eysteinsdóttir, næringarfræðingur HNLFÍ
Helga Mogensen, jógakennari
Björg Árnadóttir, framkvæmdastjóri
Heilsuverndar ehf.
Allir velkomnir
Aðgangseyrir 600 kr.
FRÍTT FYRIR FÉLAGSMENN
STREITA
Afleiðing atorku, dugnaðar og áfalla?